Dagblaðið Vísir - DV - 31.07.2020, Blaðsíða 14
14 FRÉTTIR 31. JÚLÍ 2020 DV
dansbrölt var hins vegar vinn
an mín. Ég upplifði að þeim
fyndist ég mega sýna á meðan
ég var einhleyp en þegar við
værum komin í samband væri
ég orðin þeirra eign. Tómas
hefur aldrei sýnt mér svona
viðhorf. Hann hefur alltaf sýnt
mér og starfinu mínu virðingu
og finnst bara geggjað það
sem ég er að gera.“
Tekur kommentin inn á sig
Margrét Erla viðurkennir að
í gegnum árin hafi athuga
semdakerfi fjölmiðla tekið á
taugarnar. Áður en þetta við
tal er tekið tilkynnir blaða
maður henni að það sé ekkert
mál að loka athugasemdakerf
inu á dv.is þar sem viðtalið
birtist á endanum. „Mér finnst
svo þreytandi hversu margir
eru tilbúnir til að segja að ég
sé athyglissjúk tussa þegar
fjallað er um mig í fjölmiðlum.
Ég man eftir því þegar ég var
í atvinnuleit og setti inn frum
lega færslu um það á Face
book sem blaðamaður vildi
síðan birta því honum fannst
þetta skemmtileg leið til að
leita að vinnu. Kommentakerf
ið fylltist þá af athugasemdum
frá fólki sem sagðist nú eiga
frænda sem væri líka að leita
að vinnu en það hefði enginn
skrifað frétt um það. Auðvitað
á maður ekki að taka þetta inn
á sig en maður gerir það samt.
Dropinn holar steininn. Það
kemur mér alltaf jafn mikið á
óvart hvað fólk getur verið illa
innrætt.“ Hér skal tekið fram
að DV hafði samband við Mar
gréti Erlu að fyrra bragði og
óskaði eftir viðtali við hana.
„Þegar á hólminn er komið
myndi ekkert af þessu fólki
tala svona við mann persónu
lega. En þegar valdamesti
maður í heimi talar eins og
hann talar þá er búið að gefa
ákveðið leyfi fyrir því að segja
hluti sem samræmast ekki
almennri kurteisi. Ég held
að fólk sem segir þessa ljótu
hluti á netinu sé að leita að
mannlegum samskiptum og sé
hreinlega komið á þann stað að
það vill óheilbrigð samskipti
frekar en engin. Auðvitað hafa
þessar neikvæðu athugasemd
ir áhrif á mig þrátt fyrir að
þau jákvæðu séu alltaf miklu
fleiri. Röksemdafærslan um
að ég hafi nú farið í þetta við
tal og geti því átt von á þessu
slá mig samt bara eins og að
ég hafi nú bara verið að bjóða
upp á ýmislegt því ég var í of
stuttu pilsi.“
Hér er komið að játningu
hjá blaðamanni: „Ég hef aldr
ei áður tekið viðtal við neinn
sem fækkar fötum.“ Margrét
Erla spyr hvort ég sé þá að
tala um í viðtalinu sjálfu eða
almennt. Blaðamaður: „Alla
vega ekki í viðtalinu sjálfu.“
Útrás og spenna
Það var árið 2007 sem hún
datt inn í kabarettsenuna í
New York. „Þá byrjaði þetta
allt. Í sömu vikunni hætti kær
astinn með mér og ég vann
milljón í Happdrætti Háskól
ans. Ég ákvað þá að fara til
New York og læra dans.“ Hún
hafði raunar lært dans frá
unga aldri og meðal annars
verið í ballettskóla. Í gegnum
vini vina kynntist hún „bur
lesque“ heiminum þarna úti
og þegar hún kom aftur heim
saknaði hún þess að hér væri
engin slík menning. Hún sá þó
auglýsingu í Kramhúsinu um
ókeypis sirkustíma og lét slag
standa. „Hér í Kramhúsinu er
mikil gróðrarstía ýmissa lista
hópa. Þessir tímar eru það
sem síðan varð að Sirkus Ís
lands og stofnandi sirkussins
borgaði salarleiguna með því
að mála þakið.“
Margrét Erla segist á þess
um tíma ekki síst hafa heillast
af áherslu á jákvæða líkams
ímynd. „Mig langaði að tala
um þessi mál og vekja athygli
á því að ef ég væri að sýna
á sviði þá væru svo margar
konur sem ættu ekki að óttast
að mæta í sundklefann. Þetta
veitti mér líka ákveðna útrás
og stundum hugsaði ég um
fyndin atriði sem væru enn
fyndnari ef ég myndi sýna
þau í engum buxum. Ég er líka
alltaf þakklát fyrir það fólk
sem tekur þátt í sýningunum
með mér. Við erum allskonar
og það er ekkert skemmti
legt ef allir fara úr fötunum
og gaman að vita aldrei hvað
gerist næst.“
Þrátt fyrir gríðarlega fjöl
breytt starf er hún ekki í
neinum vandræðum með að
nefna hvað er skemmtilegast.
„Að kenna burlesque og ka
barett. Á námskeiðin koma
konur sem vilja eiga samtal við
sjálfa sig og hvar þær standa
í sínum þokka. Oft koma kon
ur eftir barnsburð sem eru í
sömu glímu og ég núna. Hver
á þennan líkama? Líkaminn
er þá orðinn matarbú fyrir
nýja manneskju og það sem
við sjáum í speglinum er ekki
endilega það sem við tengjum
við. Mér finnst líka alltaf gam
an að fá konur á námskeið sem
segja í lokin, eins og þær séu
hissa: „Ég var nú bara svolítið
flott.“
Margrét Erla segir það
skipta sig miklu að veita nýja
sýn á kvenmannslíkamann.
„Oft hugsa konur bara: Er
ég sæt núna? En núna? Ég vil
sýna kvenmannslíkamann sem
sterkann, fyndinn og skrýt
inn Að á bak við kroppinn sé
mann eskja með kímnigáfu,
væntingar og þrár.“
Svo „flott kona”
Hún vakti mikla athygli á
sínum tíma þegar hún leysti
Ragnhildi Steinunni Jóns
dóttur af í Kastljósinu en fékk
skilaboð sem henni fundust
misvísandi. „Fólk sendi mér
skilaboð um að það væri svo
hressandi að sjá „svona konu“
á skjánum. Fólk fór endalaust
í kring um þessi einföldu
skilaboð: „Þú ert feit.“ Málið
er að ég var ekki einu sinni
feit á þessum tíma heldur í
stærð 1214. Ég fékk líka oft
að heyra að ég væri svo „flott
kona“. Ef einhver segir konu
vera „flotta“ þýðir það í mín
um huga að hún sé aðeins of
feit, aðeins of gömul eða að
eins of gráhærð. Fyrir mig
þýðir „flott kona“ að hún passi
ekki inn í þennan hefðbundna
fegurðarstaðal. Mér þykir
reyndar alltaf vænt um þessi
skilaboð því þau koma frá
fallegum stað. Á sínum tíma
fannst mér „feit“ vera nei
kvætt orð en núna upplifi ég
það einfaldlega sem lýsingu á
fólki. Að vera feitur þýðir ekki
að vera ljótur.“
Skilaboðin sem hún fékk
sem dagskrárgerðarkona í
Kastljósi sneru síðan minnst
að eiginlegu starfi hennar
heldur frekar að því hvar hún
hefði fengið hin og þessi föt.
„Ég fæ oft skilaboð frá konum
um að þær vildu óska að þær
elskuðu líkama sinn eins og ég
ég elski líkama minn. Ég elska
hann ekki. Mér er sama. Sú
staðreynd að mér er sama er
svo miklu meiri ást en það hat
ur sem okkur er kennt að upp
lifa í garð líkama okkar. Mér
er sama þó það sjáist í nær
buxnafar. Mér er sama þó ég
sé núna með stærri maga en
venjulega. Ég hef sparað mér
svo mikinn tíma, fyrirhöfn
og leiðindi með því að vera
sama,“ segir hún í kæfandi hit
anum í portinu við Kramhúsið,
klædd nærbuxum, sokkum og
brjóstahaldara.
„Þegar ég varð 35 ára fór
ég að sjá svo miklu meira af
megrunarauglýsingum á Face
book. Markaðurinn segir að
þegar þú ert kona yfir 35 ára
þá áttu að hata þig mjög mikið.
Það hefur áður verið sagt að
kapítalisminn myndi falla um
sjálfan sig ef við myndum öll
vakna á morgun, vera ánægð
með líkama okkar og hugsa:
„Djöfull er ég sæt í dag.“
Heilu fyrirtækin eru rekin á
þeim grundvelli að fólk hati
líkama sinn og þurfi að breyta
honum, bæði konur og karlar.
Mesta pönkið núna er að vera
ánægður með sjálfan sig, vera
sáttur. Mér finnst það fallegt
orð. Vera sáttur við sjálfan
sig.“ n
Ég hef sparað mér svo mik-
inn tíma, fyrirhöfn og leið-
indi með því að vera sama.
Margrét Erla vill sýna kvenmannslíkamann sem sterkann, fyndinn og skrýtinn. MYND/ERNIR