Dagblaðið Vísir - DV - 31.07.2020, Blaðsíða 46
46 SPORT 433 31. JÚLÍ 2020 DV
STEFNIR AÐ ÞVÍ AÐ KOMAST
AFTUR Í ÍSLENSKA LANDSLIÐIÐ
Knattspyrnukonan Natasha Moraa Anasi kemur frá Texas. Hana óraði ekki fyrir því að
una sér svo vel á Íslandi og hyggst dvelja hér á landi með fjölskyldunni til frambúðar.
Ég get eiginlega ekki lýst til-
finningunni að spila þessa
leiki. Það var frábært að fá
þetta tækifæri og þetta var
mjög gaman.
Natasha er ánægð með lífið á Íslandi og mun ekki flytja aftur til Bandaríkjanna í bráð. MYND/ERNIR
Sóley
Guðmundsdóttir
soley@dv.is
L andslagið var það sem heillaði mig,“ segir Na-tasha Moraa Anasi, fyr-
irliði knattspyrnuliðs Kefla-
víkur, um meginástæðuna
fyrir því að hún valdi að koma
til Íslands að spila fótbolta.
Hún er mikil útivistarmann-
eskja og er dugleg að ferðast
um landið. Natasha hóf feril
sinn á Íslandi með ÍBV árið
2014 og spilaði með þeim 50
leiki. Árið 2017 skipti hún yfir
í Keflavík, þar sem hún hefur
einnig spilað 50 leiki.
Natasha býr í Reykjanesbæ
ásamt unnusta sínum Rúnari
Inga Erlingssyni og börnum
þeirra Harper Eyju og Óliver
Daða.
100 leikir á Íslandi
Þegar Natasha kom til Íslands
um mitt sumar árið 2014 óraði
hana ekki fyrir því að vera
enn að spila hér á landi árið
2020. Natasha hefur nú spilað
100 leiki hér á landi, í deildar-
og bikarkeppni.
„Það er mjög gaman að hafa
náð öllum þessum árum og
leikjum. Ég hafði reyndar ekki
hugmynd um að ég væri komin
með 100 leiki. Bæði árið 2014
og 2015 var ég efins um hvort
að mig langaði að koma aftur
að spila hér en ég kom alltaf
aftur, sem betur fer.“
Finnst Ísland vera heima
Natasha fékk íslenskan ríkis-
borgararétt í desember á síð-
asta ári.
„Það var æðislegt. Fyrst og
fremst var þetta mikilvægt
fyrir fjölskylduna. Ég fann að
þetta var rétti tímapunktur-
inn. Mér var farið að finnast
Ísland vera heima,“ segir Na-
tasha. Henni líður mjög vel á
Íslandi og gæti ekki hugsað sér
að flytja aftur til Bandaríkj-
anna eins og staðan er núna.
„Allir hér eru svo rólegir, það
er svo gott að vera á Íslandi.
Ég myndi segja að Ísland væri
einn besti staður í heiminum
til að byggja upp fjölskyldu.
Á meðan við erum með ung
börn hugsum við ekkert um
að flytja til Bandaríkjanna.
Ég gæti alveg hugsað mér að
flytja þangað í framtíðinni.“
Fyrstu landsleikirnir
Natasha hefur verið einn af
öflugustu varnarmönnum á
Íslandi frá því hún kom til
landsins. Eftir að hún fékk
íslenskan ríkisborgararétt
varð hún gjaldgeng í íslenska
landsliðið. Í byrjun mars á
þessu ári spilaði Natasha
sína fyrstu landsleiki fyrir
Íslands hönd.
„Ég get eiginlega ekki lýst
tilfinningunni að spila þessa
leiki. Það var frábært að fá
þetta tækifæri og þetta var
mjög gaman. Allir í kringum
liðið tóku vel á móti mér.“
Bónorð og bikarúrslit
Margt hefur drifið á daga Na-
töshu frá því hún kom fyrst
til landsins. Hún ber sterkar
taugar til Vestmannaeyja,
eftir að hafa varið fyrstu ár-
unum með ÍBV. Eftir stutta
umhugsun nefnir Natasha tvo
atburði sem hún telur hvað
eftirminnilegasta við dvöl
sína á Íslandi og tengjast þeir
báðir Vestmannaeyjum.
„Á Þjóðhátíð 2018 fórum við
Rúnar í bátsferð með vinum
okkar. Í ferðinni var stoppað
í helli þar sem hann bað mín.
Það var ótrúlegt augnablik
sem ég mun aldrei gleyma.“
Natasha hefur upplifað bæði
hæðir og lægðir í boltanum.
Árið 2016 komst Natasha og
lið hennar, ÍBV, í bikarúr-
slit, þar sem liðið tapaði fyrir
Breiðablik. Segir hún bikar-
úrslitaleikinn alltaf ofarlega
í huga sér.
„Þetta var skemmtilegur
leikur og þrátt fyrir að við
töpuðum þá spiluðum við vel.
Við vorum skemmtilegur hóp-
ur og andrúmsloftið var frá-
bært í kringum leikinn.“
Spilar eins lengi
og líkaminn leyfir
Natasha segir erfitt að segja
til um hvað framtíðin ber í
skauti sér. Hún vill þó spila
fótbolta eins lengi og líkaminn
leyfir.
„Ég er að verða 29 ára og
veit ekki hvað ég á mörg ár
eftir. Það væri gaman að
komast aftur í landsliðshóp.“
Lið hennar Keflavík spilar í
næstefstu deild. Hún telur það
að spila ekki í efstu deild, ekki
hindrun fyrir hana að vera
aftur valin í landsliðið.
„Deildin er sterkari en oft
áður. Liðin í deildinni eru
sterk og samkeppnin er góð.
Ég ætla að halda áfram að
leggja mig alla fram við æf-
ingar og þá tel ég að ég geti
gert tilkall til landsliðssætis.
Ef ég held áfram að standa
mig vel ætti þetta ekki að
skipta máli,“ segir Natasha. n