Dagblaðið Vísir - DV - 31.07.2020, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 31.07.2020, Blaðsíða 32
S túlkan gat í fyrstu veitt afar litlar upplýsingar. Hún var í losti og sagð- ist muna lítið af því sem hafði gerst. Þegar bóndinn hringdi í neyðarlínuna gat hún ekki einu sinni gefið upp nafnið sitt. Smám sam- an skýrðist þetta. Stúlkan hét Ezra McCandless, var á 21. ári. Hún sagði að fyrr- verandi kærasti hennar hefði ráðist á sig og veitt sér þessa áverka. Sá hét Alex Woodworth. Hvaða fólk var þetta, Ezra og Alex? Hver var forsagan að þessu skelfilega atviki? Ástarþríhyrningur Ezra McCandless fæddist og ólst upp á sveitabýli fjöl- skyldu sinnar í Wisconsin. Aðalþéttbýlisstaðurinn í ná- grenninu er bærinn Eaue Cla- ire, þar sem búa um 70.000 manns. Þangað flutti Ezra ekki löngu fyrir þessa atburði og hóf feril sem sjálflærður listamaður. Hún hætti í fram- haldsskóla til að helga sig list sinni. Á helsta kaffihúsi bæjar- ins kynntist hún manni að nafni Jason Mengel, sem var 13 árum eldri en hún. Þrátt fyrir aldursmuninn smullu þau saman og tókust með þeim ástir. Jason starf- aði sem herlæknir og var stundum lengi frá vegna her- æfinga. Á kaffihúsinu kynnt- ust þau Alex Woodworth, 23 ára gömlum forfallakennara og heimspekinema. Alex og Ezra deildu áhuga á listum og hún ræddi við hann um það sem hún var að reyna að skapa. Þetta leiddi lengra og þau tóku upp samband án vitundar Jasons. Er Jason kom aftur til Eaue Claire eftir tveggja mánaða heræfingar skýrði Ezra hon- um frá því að kunningi Alex hefði nauðgað sér. Þau hefðu verið að drekka saman og hún hefði orðið mjög ölvuð. Þá hefði hann ráðist á hana og hún ekki getað veitt mót- spyrnu. Þegar lögregla spurði Alex út í málið sagði hann að Ezra hefði sagt honum að hún hefði haft samfarir sjálfvilj- ug við manninn. Lögreglan hætti rannsókn málsins og varð þetta til þess að spilla vináttu Ezra og Alex Skömmu eftir þetta ákvað Ezra að láta bóhemalífinu í Eaue Claire lokið í bili og fara heim í sveitina til for- elda sinna og sleikja sárin þar um stund. Jason hafði í millitíðinni komist að fram- hjáhaldi hennar með Alex og slitið sambandinu. Örlagadagurinn 23. mars Dag einn ákvað Ezra að skreppa til Eaue Claire, hitta Alex og spjalla við hann um listina. Hana langaði til með- al annars til að sýna honum texta sem hún hafði skrifað. Þau hittust á áðurnefndu kaffihúsi og svo vildi til að Jason var einnig á staðnum. Honum fannst eitthvað undarlegt við andrúmsloftið á milli þeirra tveggja, Alex og Ezra, og af einhverjum ástæðum varð hann áhyggju- fullur. Alex og Ezra fóru síðan heim til Alex. Stuttu síðar hjólaði Jason þangað til að aðgæta um þau. Rétt er að taka fram að það var ekki afbrýðisemi sem knúði Jas- on, Ezra hafði margoft beðið hann um að byrja með sér aftur en hann vildi það ekki, treysti henni ekki. En núna hafði hann áhyggjur af henni. Svo sérkennilega vildi til að nágranni sem sá Jason snigl- ast fyrir utan húsið þar sem Alex bjó hringdi á lögreglu. Þegar lögreglumaður kom á vettvang útskýrði Jason að hann hefði áhyggjur af vinum sínum. Lögregla aðgætti um Alex og Ezra og þau sögðu að ekkert amaði að þeim. Það átti eftir að koma á daginn að hugboð Jasons reyndist rétt. Sporin inn í skóg Aftur að sveitabænum þar sem Ezra leitaði hjálpar. Eftir að hafa yfirheyrt bóndann á bænum og Ezra var næsta mál hjá lögreglunni að finna Alex. Hann fannst hins vegar hvergi. Svaraði ekki í síma, var ekki heima hjá sér, og vinir og kunningjar vissu ekki hvar hann hélt sig. Samkvæmt Ezra hafði árás- in átt sér stað inni í bílnum hennar, hún hafði setið undir stýri er Alex veittist að henni. En hún mundi ekki hvar bíll- inn var. Með því að rannsaka fót- spor Ezra sem lágu að sveita- bænum tókst eftir nokkurt erfiði eða rekja þau að bíl sem stóð yfirgefinn í skóg- arrjóðri nokkurn spöl frá sveitabænum. Í bílnum lá dáinn maður, höfuðið út um opnar farþegardyr aftur í. Þetta var Alex og á líkama hans voru 16 stungusár. Í endurtekinni yfirheyrslu lýsti Ezra því hvernig Alex hefði ráðist á hana með hnífn- um og skorið hana þegar hún sat undir stýri. Henni hefði hins vegar tekist að snúa hnífnum úr höndum hans og hefði banað honum í sjálfs- vörn. Lýsing Ezra á atburðum þóttu ekki stemma við verksumerki. Til dæmis var lítið blóð í bílnum sem kom illa heim og saman við þann framburð hennar að þau hefðu tekist á um hnífinn í bílnum. Engin varnarsár voru á Ezra og ekki heldur á Alex. Það benti til að hann hefði orðið fyrir árás gjör- samlega sér að óvörum. Ezra var ákærð fyrir morð að yfirlögðu ráði. Ástæðan fyrir glæpnum var talin vera sú að hún vildi ryðja Alex úr vegi til að auðveldara yrði að endurheimta sambandið við Jason. Hún var dæmd í ævilangt fangelsi með möguleika á reynslulausn eftir 50 ár. Dómur var felldur snemma á þessu ári og hefur honum verið áfrýjað. Ezra neitaði sök fyrir rétti. n SAKAMÁL Að kvöldi 23. mars árið 2018 kom stúlka, illa til reika, að bóndabæ í Wis- consin og leitaði ásjár hjá bónda sem þar bjó einn, manni að nafni Don Sipple. Stúlkan var útötuð í mold og blóði og hún var hágrátandi. Bóndinn hleypti henni inn og hringdi í neyðarlínuna. Neyðaróp um kvöld og bíll úti í skógi Banvænn ástarþríhyrningur var orsökin á bak við óhugnanlegan atburð sem varð í Wisconsin kvöld eitt fyrir rúmlega tveimur árum. Ung kona í neyð leitaði hjálpar. Ezra McCandl ess mundi í fyrstu lítið eftir hvað hafði gerst. MYNDIR/ SKJÁSKOT AF YOUTUBE Jason Mengel ber vitni við réttarhöldin. Alex Woodworth fannst ekki eftir árásina. Ágúst Borgþór Sverrisson agustb@dv.is Með því að rannsaka fótspor Ezra sem lágu að sveita- bænum tókst eftir nokkurt erfiði eða rekja þau að bíl sem lá yfirgefinn í skógarrjóðri nokkurn spöl frá. 32 FÓKUS 31. JÚLÍ 2020 DV

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.