Dagblaðið Vísir - DV - 31.07.2020, Blaðsíða 32
S túlkan gat í fyrstu veitt afar litlar upplýsingar. Hún var í losti og sagð-
ist muna lítið af því sem
hafði gerst. Þegar bóndinn
hringdi í neyðarlínuna gat
hún ekki einu sinni gefið
upp nafnið sitt. Smám sam-
an skýrðist þetta. Stúlkan
hét Ezra McCandless, var á
21. ári. Hún sagði að fyrr-
verandi kærasti hennar
hefði ráðist á sig og veitt sér
þessa áverka. Sá hét Alex
Woodworth.
Hvaða fólk var þetta, Ezra
og Alex? Hver var forsagan
að þessu skelfilega atviki?
Ástarþríhyrningur
Ezra McCandless fæddist
og ólst upp á sveitabýli fjöl-
skyldu sinnar í Wisconsin.
Aðalþéttbýlisstaðurinn í ná-
grenninu er bærinn Eaue Cla-
ire, þar sem búa um 70.000
manns. Þangað flutti Ezra
ekki löngu fyrir þessa atburði
og hóf feril sem sjálflærður
listamaður. Hún hætti í fram-
haldsskóla til að helga sig list
sinni.
Á helsta kaffihúsi bæjar-
ins kynntist hún manni að
nafni Jason Mengel, sem
var 13 árum eldri en hún.
Þrátt fyrir aldursmuninn
smullu þau saman og tókust
með þeim ástir. Jason starf-
aði sem herlæknir og var
stundum lengi frá vegna her-
æfinga. Á kaffihúsinu kynnt-
ust þau Alex Woodworth, 23
ára gömlum forfallakennara
og heimspekinema. Alex og
Ezra deildu áhuga á listum
og hún ræddi við hann um
það sem hún var að reyna
að skapa. Þetta leiddi lengra
og þau tóku upp samband án
vitundar Jasons.
Er Jason kom aftur til Eaue
Claire eftir tveggja mánaða
heræfingar skýrði Ezra hon-
um frá því að kunningi Alex
hefði nauðgað sér. Þau hefðu
verið að drekka saman og
hún hefði orðið mjög ölvuð.
Þá hefði hann ráðist á hana
og hún ekki getað veitt mót-
spyrnu. Þegar lögregla spurði
Alex út í málið sagði hann að
Ezra hefði sagt honum að hún
hefði haft samfarir sjálfvilj-
ug við manninn. Lögreglan
hætti rannsókn málsins og
varð þetta til þess að spilla
vináttu Ezra og Alex
Skömmu eftir þetta ákvað
Ezra að láta bóhemalífinu
í Eaue Claire lokið í bili og
fara heim í sveitina til for-
elda sinna og sleikja sárin
þar um stund. Jason hafði í
millitíðinni komist að fram-
hjáhaldi hennar með Alex og
slitið sambandinu.
Örlagadagurinn 23. mars
Dag einn ákvað Ezra að
skreppa til Eaue Claire, hitta
Alex og spjalla við hann um
listina. Hana langaði til með-
al annars til að sýna honum
texta sem hún hafði skrifað.
Þau hittust á áðurnefndu
kaffihúsi og svo vildi til að
Jason var einnig á staðnum.
Honum fannst eitthvað
undarlegt við andrúmsloftið
á milli þeirra tveggja, Alex
og Ezra, og af einhverjum
ástæðum varð hann áhyggju-
fullur. Alex og Ezra fóru
síðan heim til Alex. Stuttu
síðar hjólaði Jason þangað
til að aðgæta um þau. Rétt er
að taka fram að það var ekki
afbrýðisemi sem knúði Jas-
on, Ezra hafði margoft beðið
hann um að byrja með sér
aftur en hann vildi það ekki,
treysti henni ekki. En núna
hafði hann áhyggjur af henni.
Svo sérkennilega vildi til að
nágranni sem sá Jason snigl-
ast fyrir utan húsið þar sem
Alex bjó hringdi á lögreglu.
Þegar lögreglumaður kom á
vettvang útskýrði Jason að
hann hefði áhyggjur af vinum
sínum. Lögregla aðgætti um
Alex og Ezra og þau sögðu að
ekkert amaði að þeim.
Það átti eftir að koma á
daginn að hugboð Jasons
reyndist rétt.
Sporin inn í skóg
Aftur að sveitabænum þar
sem Ezra leitaði hjálpar. Eftir
að hafa yfirheyrt bóndann á
bænum og Ezra var næsta
mál hjá lögreglunni að finna
Alex. Hann fannst hins vegar
hvergi. Svaraði ekki í síma,
var ekki heima hjá sér, og
vinir og kunningjar vissu
ekki hvar hann hélt sig.
Samkvæmt Ezra hafði árás-
in átt sér stað inni í bílnum
hennar, hún hafði setið undir
stýri er Alex veittist að henni.
En hún mundi ekki hvar bíll-
inn var.
Með því að rannsaka fót-
spor Ezra sem lágu að sveita-
bænum tókst eftir nokkurt
erfiði eða rekja þau að bíl
sem stóð yfirgefinn í skóg-
arrjóðri nokkurn spöl frá
sveitabænum. Í bílnum lá
dáinn maður, höfuðið út um
opnar farþegardyr aftur í.
Þetta var Alex og á líkama
hans voru 16 stungusár.
Í endurtekinni yfirheyrslu
lýsti Ezra því hvernig Alex
hefði ráðist á hana með hnífn-
um og skorið hana þegar hún
sat undir stýri. Henni hefði
hins vegar tekist að snúa
hnífnum úr höndum hans og
hefði banað honum í sjálfs-
vörn.
Lýsing Ezra á atburðum
þóttu ekki stemma við
verksumerki. Til dæmis var
lítið blóð í bílnum sem kom
illa heim og saman við þann
framburð hennar að þau
hefðu tekist á um hnífinn
í bílnum. Engin varnarsár
voru á Ezra og ekki heldur
á Alex. Það benti til að hann
hefði orðið fyrir árás gjör-
samlega sér að óvörum.
Ezra var ákærð fyrir morð
að yfirlögðu ráði. Ástæðan
fyrir glæpnum var talin vera
sú að hún vildi ryðja Alex úr
vegi til að auðveldara yrði að
endurheimta sambandið við
Jason.
Hún var dæmd í ævilangt
fangelsi með möguleika á
reynslulausn eftir 50 ár.
Dómur var felldur snemma
á þessu ári og hefur honum
verið áfrýjað. Ezra neitaði
sök fyrir rétti. n
SAKAMÁL
Að kvöldi 23. mars árið
2018 kom stúlka, illa til
reika, að bóndabæ í Wis-
consin og leitaði ásjár
hjá bónda sem þar bjó
einn, manni að nafni Don
Sipple. Stúlkan var útötuð
í mold og blóði og hún
var hágrátandi. Bóndinn
hleypti henni inn og
hringdi í neyðarlínuna.
Neyðaróp um kvöld og bíll úti í skógi
Banvænn ástarþríhyrningur var orsökin á bak við óhugnanlegan atburð sem varð í
Wisconsin kvöld eitt fyrir rúmlega tveimur árum. Ung kona í neyð leitaði hjálpar.
Ezra
McCandl ess
mundi í
fyrstu lítið
eftir hvað
hafði gerst.
MYNDIR/
SKJÁSKOT AF
YOUTUBE
Jason Mengel ber vitni við réttarhöldin. Alex Woodworth fannst ekki eftir árásina.
Ágúst Borgþór
Sverrisson
agustb@dv.is
Með því að rannsaka fótspor
Ezra sem lágu að sveita-
bænum tókst eftir nokkurt
erfiði eða rekja þau að bíl sem
lá yfirgefinn í skógarrjóðri
nokkurn spöl frá.
32 FÓKUS 31. JÚLÍ 2020 DV