Dagblaðið Vísir - DV - 31.07.2020, Síða 46

Dagblaðið Vísir - DV - 31.07.2020, Síða 46
46 SPORT 433 31. JÚLÍ 2020 DV STEFNIR AÐ ÞVÍ AÐ KOMAST AFTUR Í ÍSLENSKA LANDSLIÐIÐ Knattspyrnukonan Natasha Moraa Anasi kemur frá Texas. Hana óraði ekki fyrir því að una sér svo vel á Íslandi og hyggst dvelja hér á landi með fjölskyldunni til frambúðar. Ég get eiginlega ekki lýst til- finningunni að spila þessa leiki. Það var frábært að fá þetta tækifæri og þetta var mjög gaman. Natasha er ánægð með lífið á Íslandi og mun ekki flytja aftur til Bandaríkjanna í bráð. MYND/ERNIR Sóley Guðmundsdóttir soley@dv.is L andslagið var það sem heillaði mig,“ segir Na-tasha Moraa Anasi, fyr- irliði knattspyrnuliðs Kefla- víkur, um meginástæðuna fyrir því að hún valdi að koma til Íslands að spila fótbolta. Hún er mikil útivistarmann- eskja og er dugleg að ferðast um landið. Natasha hóf feril sinn á Íslandi með ÍBV árið 2014 og spilaði með þeim 50 leiki. Árið 2017 skipti hún yfir í Keflavík, þar sem hún hefur einnig spilað 50 leiki. Natasha býr í Reykjanesbæ ásamt unnusta sínum Rúnari Inga Erlingssyni og börnum þeirra Harper Eyju og Óliver Daða. 100 leikir á Íslandi Þegar Natasha kom til Íslands um mitt sumar árið 2014 óraði hana ekki fyrir því að vera enn að spila hér á landi árið 2020. Natasha hefur nú spilað 100 leiki hér á landi, í deildar- og bikarkeppni. „Það er mjög gaman að hafa náð öllum þessum árum og leikjum. Ég hafði reyndar ekki hugmynd um að ég væri komin með 100 leiki. Bæði árið 2014 og 2015 var ég efins um hvort að mig langaði að koma aftur að spila hér en ég kom alltaf aftur, sem betur fer.“ Finnst Ísland vera heima Natasha fékk íslenskan ríkis- borgararétt í desember á síð- asta ári. „Það var æðislegt. Fyrst og fremst var þetta mikilvægt fyrir fjölskylduna. Ég fann að þetta var rétti tímapunktur- inn. Mér var farið að finnast Ísland vera heima,“ segir Na- tasha. Henni líður mjög vel á Íslandi og gæti ekki hugsað sér að flytja aftur til Bandaríkj- anna eins og staðan er núna. „Allir hér eru svo rólegir, það er svo gott að vera á Íslandi. Ég myndi segja að Ísland væri einn besti staður í heiminum til að byggja upp fjölskyldu. Á meðan við erum með ung börn hugsum við ekkert um að flytja til Bandaríkjanna. Ég gæti alveg hugsað mér að flytja þangað í framtíðinni.“ Fyrstu landsleikirnir Natasha hefur verið einn af öflugustu varnarmönnum á Íslandi frá því hún kom til landsins. Eftir að hún fékk íslenskan ríkisborgararétt varð hún gjaldgeng í íslenska landsliðið. Í byrjun mars á þessu ári spilaði Natasha sína fyrstu landsleiki fyrir Íslands hönd. „Ég get eiginlega ekki lýst tilfinningunni að spila þessa leiki. Það var frábært að fá þetta tækifæri og þetta var mjög gaman. Allir í kringum liðið tóku vel á móti mér.“ Bónorð og bikarúrslit Margt hefur drifið á daga Na- töshu frá því hún kom fyrst til landsins. Hún ber sterkar taugar til Vestmannaeyja, eftir að hafa varið fyrstu ár- unum með ÍBV. Eftir stutta umhugsun nefnir Natasha tvo atburði sem hún telur hvað eftirminnilegasta við dvöl sína á Íslandi og tengjast þeir báðir Vestmannaeyjum. „Á Þjóðhátíð 2018 fórum við Rúnar í bátsferð með vinum okkar. Í ferðinni var stoppað í helli þar sem hann bað mín. Það var ótrúlegt augnablik sem ég mun aldrei gleyma.“ Natasha hefur upplifað bæði hæðir og lægðir í boltanum. Árið 2016 komst Natasha og lið hennar, ÍBV, í bikarúr- slit, þar sem liðið tapaði fyrir Breiðablik. Segir hún bikar- úrslitaleikinn alltaf ofarlega í huga sér. „Þetta var skemmtilegur leikur og þrátt fyrir að við töpuðum þá spiluðum við vel. Við vorum skemmtilegur hóp- ur og andrúmsloftið var frá- bært í kringum leikinn.“ Spilar eins lengi og líkaminn leyfir Natasha segir erfitt að segja til um hvað framtíðin ber í skauti sér. Hún vill þó spila fótbolta eins lengi og líkaminn leyfir. „Ég er að verða 29 ára og veit ekki hvað ég á mörg ár eftir. Það væri gaman að komast aftur í landsliðshóp.“ Lið hennar Keflavík spilar í næstefstu deild. Hún telur það að spila ekki í efstu deild, ekki hindrun fyrir hana að vera aftur valin í landsliðið. „Deildin er sterkari en oft áður. Liðin í deildinni eru sterk og samkeppnin er góð. Ég ætla að halda áfram að leggja mig alla fram við æf- ingar og þá tel ég að ég geti gert tilkall til landsliðssætis. Ef ég held áfram að standa mig vel ætti þetta ekki að skipta máli,“ segir Natasha. n

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.