Dagblaðið Vísir - DV - 31.07.2020, Page 22
22 FÓKUS 31. JÚLÍ 2020 DV
Skreytti með þeim allra
besta og framtíðin er björt
Í þessari viku kíkti ég á Jóa Fel og við skreyttum köku. Útkoman var sannkallað
meistara verk. Ég hafði aldrei áttað mig á því hvers kyns apparat bakarí væru.
Lífið á DV er gott þessa dagana. Í síðustu viku fór ég í súkkulaðinudd,
sem var ansi mikill lúxus. Í
byrjun þessarar viku spurði
yfirmaður minn aftur hvað ég
vildi gera í þessari viku. Það
var tilvalið að halda áfram
með súkkulaðiþemað og því
lét ég dálæti mitt á kökum í
ljós. Áður en ég vissi af var
búið að hringja í bakarann
þjóðþekkta Jóa Fel og fundur
okkar á milli ákveðinn.
Ég fór í bakaríið hans Jóa
í Holtagörðum um hádegis-
leytið á miðvikudegi. Við
ákváðum að við myndum
skreyta köku saman. Vekjara-
klukkan mín hefði þurft að
hringja um miðja nótt hefði ég
viljað baka með honum, enda
eru bakarar líklega sú stétt
sem er hvað þekktust fyrir að
vakna snemma. Fyrirkomu-
lagið hentaði mér vel, þar sem
að ég á í erfiðleikum með að
vakna klukkan átta eða níu á
morgnana.
Jói er aðalmaðurinn
í bakaríinu
Það þarf engan skipulags-
verkfræðing til að átta sig á
því að Jói er aðalmaðurinn í
bakaríinu. Ég var ekki lengi
að spotta hann, en áður en
mér tókst að heilsa honum
þurftu ábyggilega þrír eða
fjórir að ná af honum tali,
bæði starfsmenn og við-
skiptavinir. Þegar mér tókst
loksins að fanga athygli Jóa
fylgdi hann mér á bak við
afgreiðsluborðið, en þar er
sjálft bakaríið. Fyrstu fyrir-
mælin voru bæði einföld og
sniðug: „Þvo sér um hendur
og spritta“. Þórólfur er
ábyggilega ánægður með Jóa.
Sjálfur hef ég aldrei komið
í bakarí, það er að segja fyrir
utan inn í afgreiðsluna. Það
kom mér á óvart hversu stórt
svona apparat er í raun og
veru. Óteljandi ofnar, færi-
bönd, borð, skápar, deig og
kökur. Í þessu tiltekna bakaríi
er bakað fyrir hin bakaríin
hans Jóa Fel, sem eru orðin
allmörg og því er nóg að gera
og tíu bakarar að störfum.
Björt framtíð í
kökuskreytingum
Jói sótti köku og krem sem
hafði verið búið til í morgun.
Hann rétti mér spaða og
sleif og sagði mér að smyrja
kökuna með kreminu, sem ég
og gerði. Það fer ekki á milli
mála að Jói vill hafa nóg af
súkkulaði á kökunum og pass-
aði upp á að hver krókur og
kimi væri húðaður í súkku-
laði.
Næst tók við annað og
flóknara verkefni, að búa
til marsípan-rós. Mig hafði
aldrei grunað að ég gæti gert
slíka. Jói sótti marsípan-rúllu
og skar hana í bita, úr bit-
unum gerðum við litlar kúlur
sem voru síðan pressaðar í
smjörpappír, og þannig urðu
til rósablöð. Eftir það rúll-
aði maður blöðunum saman
og smátt og smátt varð til
falleg rós. Ef þessi lýsing er
ekki nægilega nákvæm þá
er ábyggilega hægt að læra
svona á YouTube. Ég og Jói
gerðum sitthvora rósina. Ef
til vill var sú sem Jói gerði
aðeins fallegri en mín, þó var
ég mjög ánægður með mína.
Seinasta skrefið leyfði lista-
manninum í mér að blómstra.
Þá sótti Jói súkkulaðilauf,
-bita, -prik og -strá, auk jarð-
arberja, bláberja og einhvers
konar gulra berja sem heita
víst blæjuber. Hann sagði mér
að gera það sem ég vildi og
það gerði ég. Eftir nokkurra
mínútna skreytingar kom í
ljós að ég á bjarta framtíð í
kökuskreytingum. Samt vant-
aði eitthvað, Jói var ekki lengi
að fatta hvað það var: Smá
glimmer, sem hann stráði yfir
kökuna. Útkoman var sann-
kallað meistaraverk, þó ég
segi sjálfur frá.
Stórt skref fyrir mig
Jói sagði mér að hann hefur
verið í bökunarbransanum í
bráðum fjörutíu ár, eða síðan
hann var sextán ára. Honum
finnst ekkert skemmtilegra en
að baka og það næstskemmti-
legasta er að elda. Ef maður
væri ekki að gera eitthvað
skemmtilegt, þá væri það bara
tilgangslaust. Þegar ég spurði
Jóa hvað hann hefði gert marg-
ar kökur fór hann að hlæja,
enda erfitt að telja, líklega
væru þær í tugum þúsunda
talsins. Þessi köku skreyting
var því lítið skref fyrir Jóa, en
stórt skref fyrir mig.
Þegar ljósmyndarinn var
búinn að taka myndirnar,
kvöddumst við Jói, hann sagði
mér að enginn myndi þora að
skera kökuna.
Sá fyrir mér kökuslys
Leiðin til baka var vandasöm,
kollegar mínir á DV höfðu
sagt „eins gott að þú komir
með kökuna til okkar eftir
á“. Ég komst að því að hraða-
hindranir eru ekki bestu vinir
svona köku-listaverka. Ég
kom þó bílnum á áfangastað,
en það í talsverðri fjarlægð
frá vinnustaðnum mínum, þar
sem gjaldfrjáls stæði eru ekki
á hverju strái í miðbænum. Við
tók löng og ströng ganga. Ég sá
fyrir mér svakalegt köku slys,
að ég myndi missa kökuna
fyrir framan manna mergð,
sem myndi hlæja að mér.
Sem betur fer komst ég á
leiðarenda, vinnufélögum
mínum til mikillar ánægju.
Enginn trúði því að ég hefði
skreytt þessa köku, allra síst
gert blómið, sem var líkt og
áður kom fram, mjög flott.
Spádómur Jóa rættist, enginn
þorði að skera kökuna í fyrstu.
Það var mál starfsmanna að
þetta væri einstaklega ljúffeng
kaka. Og alveg sérstaklega vel
skreytt. n
Jón Þór
Stefánsson
jonthor@dv.is
Jói Fel, ég og kakan, sem var virkilega gómsæt og vel skreytt. MYNDIR/ERNIR
Það væru allir
til í að fá sér
eina svona
tertu.