Dagblaðið Vísir - DV - 31.07.2020, Síða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 31.07.2020, Síða 28
Erfitt og skrítið að aflýsa Þjóðhátíð Þ jóðhátíð á stóran stað í hjörtum Vestmann­eyinga. Heimamenn reisa um hverja verslunar­ mannahelgi tjaldborg í Herj­ ólfsdal, þar sem fjölskyldur hafa samastað yfir hátíðina. Þjóðhátíðinni í ár hefur verið aflýst sökum kórónaveirufar­ aldurs. Er þetta í fyrsta skipti sem hátíðinni er aflýst í yfir hundrað ár. Eins og að jarða nákominn ættingja „Það var mjög erfitt og skrítið að aflýsa Þjóðhátíð. Það var eins og maður væri að jarða nákominn ættingja. Það góða við þennan ættingja er það að hann mun vonandi vakna aftur til lífsins á næsta ári,“ segir Hörður Orri Grettis­ son, framkvæmdastjóri ÍBV og formaður Þjóðhátíðar­ nefndar. „Við biðum eins lengi og við mögulega gátum með að taka þessa ákvörðun. Fyrst og fremst vegna fjárhagslegu hliðarinnar, en líka vegna þess menningarlega gildis sem hátíðin hefur fyrir Vest­ manneyinga.“ Hörður segir það hafa verið nokkuð ljóst í júní að Þjóðhátíð yrði ekki haldin með venjulegu sniði. „Við héldum lengi í vonina með að geta haldið eitthvað. Okkar síðasta plan var að halda fimm til sex þúsund manna brekkusöng með því að skipta brekkunni upp. Þegar í ljós kom um miðjan júlí að miklar fjöldatakmark­ anir yrðu fram yfir Verslun­ armannahelgi, lá þetta ljóst fyrir.“ Hörður segir hátíðina skipta heimafólk miklu máli. „Fyrir okkur Eyjamönnum er þetta svipað og jólin. Ég er 37 ára og ég hef farið 35 sinnum á Þjóðhátíð. Þetta er bara mjög skrítið, það eru til­ finningar í þessu.“ Hörður hvetur fólk til að halda sína eigin Þjóðhátíð og hlakkar til að gleðjast í Herjólfsdal á næsta ári. n Þjóðhátíð var fyrst haldin í Vestmannaeyjum árið 1874 til að fagna þúsund ára afmæli Íslands- byggðar. Fjöldi fólks mætir á hátíðina á hverju ári. Sóley Guðmundsdóttir soley@dv.is Heimamenn munu reyna að halda í einhverjar hefðir, þrátt fyrir að Þjóðhátíð fari ekki fram. MYND/ÓSKAR SVONA VERÐUR HELGIN HJÁ NOKKRUM VESTMANNEYINGUM Við vinirnir ætlum að tjalda hvíta tjaldinu og halda í hefðirnar. Það verður setningarkaffi á föstudaginn og súpa borðuð í tjaldinu um kvöldið. Fjölskyldan kemur til Eyja og við ætlum að gera gott úr helginni. Ég verð í brúðkaupi úti á landi sem var löngu planað. Það verður bara tvöföld gleði í Herjólfsdal á næsta ári. Ég ætla að liggja með tærnar upp í loft og hafa það kósý með fjölskyldunni. Ég læt ættingja um að tjalda hvíta tjaldinu í garðinum og kíki kannski á þá ef ég hætti mér út. Ég mun kíkja til vina og ættingja í hvítu tjöldin. Það verður aðeins lengra á milli þeirra í ár þannig að ég þarf að vera skipulagður. Við Eyjamenn erum staðráðnir í að gera gott úr þessu. Ég ætla til Eyja um helgina að slaka á og njóta með fjölskyldunni. Hvíta tjaldinu verður tjaldað úti í garði og við höldum litla þjóðhátíð. Íris Róbertsdóttir bæjarstjóri í Vestmannaeyjum Hermann Hreiðarsson knattspyrnu- þjálfari Júníus Meyvant tónlistarmaður Páll Magnússon alþingismaður Berglind Björg Þorvaldsdóttir knattspyrnukona Hörður Orri Grettisson framkvæmda- stjóri ÍBV og formaður Þjóð- hátíðarnefndar 28 FÓKUS 31. JÚLÍ 2020 DV

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.