Dagblaðið Vísir - DV - 31.07.2020, Page 34
34 FÓKUS 31. JÚLÍ 2020 DV
Við hvetjum lesendur til að senda
spurningar og vangaveltur sínar til
Kristínar í tölvupósti á:
hjonabandssaela@gmail.com.
Spurningunum verður svo svarað
hér í Fjölskylduhorninu, að sjálf-
sögðu nafnlaust og í fullum trúnaði.
Fjölskylduhornið
Sérfræðingur svarar
Kristín Tómasdóttir, hjónabandsráðgjafi
svarar spurningum lesenda um málefni
er varða fjölskylduna, börnin og ástina í
Fjölskylduhorni DV. Að þessu sinni svarar
Kristín spurningu lesanda sem reynir að
fóta sig sem stjúpforeldri.
STJÚPMÓÐIR UPPLIFIR ÓSKÝR MÖRK
Ég og sambýlismaður minn erum búin að vera saman í tvö ár. Við eig-
um eitt barn saman og mað-
urinn minn á síðan tvö börn
frá fyrra sambandi sem eru
hjá okkur aðra hvora viku.
Mér hefur gengið ágætlega að
mynda tengsl við stjúpbörnin
mín og sambandið okkar er
gott. Samskiptin á milli mín
og barnsmóður mannsins
míns eru hins vegar mjög
stirð og hafa alltaf verið. Það
er eins og hún geti ekki sætt
sig við „nýju konuna“ sem
er núna orðin stjúpmóðir
barna hennar. Ég veit að hún
hefur talað illa um mig fyrir
framan börnin sín og það er
eins og hún geti ekki sam-
þykkt það að ég er partur af
þeirra lífi. Ég hef alltaf reynt
að koma fram við hana af
virðingu og sýna henni til-
litssemi en núna er mælirinn
fullur. Maðurinn minn virðist
eiga erfitt með að setja henni
mörk og við höfum ósjaldan
rifist út af þessu. Ég vil ekki
að þetta eyðileggi sambandið
okkar en ég er alveg að fara
að gefast upp. Hvernig er
best að taka á þessu?
Skýrari mörk
Sælar. Takk fyrir spurning-
una sem ég efast ekki um að
margir stjúpforeldrar geta
tengt við, klassískur stjúpfor-
eldravandi en það gerir hann
ekki auðleystan.
Í fyrsta lagi vil ég hrósa
þér fyrir að hafa myndað
góð tengsl við stjúpbörnin
þín. Það skiptir mestu máli
en getur verið flókið, sér-
staklega ef þú ert ekki með
mömmu þeirra á þínu bandi.
Þú nefnir að móðir þeirra
geti ekki samþykkt þig og
þá spyr ég; er það hennar?
Eruð það ekki þú og sam-
býlismaður þinn sem veljið
að vera saman og hans að
taka ákvörðun um það hvort
þú sért stjúpmóðir barnanna
hans eða ekki? Það væri
a.m.k. ekki heillavænlegt ef
fyrrverandi sambýliskonur
ættu að velja núverandi sam-
býliskonur.
Það sem ég hef pínu áhyggj-
ur af er að þetta er að koma
upp á milli þín og sambýlis-
mannsins. Þar þarf fókusinn
að vera. Hvernig er hægt að
skýra mörkin? Hvernig er
hægt að auðvelda honum að
setja mörk? Getið þið fengið
utanaðkomandi aðstoð við
það? Stundum hljómar slíkt
óyfirstíganlegt en ég leyfi
mér að fullyrða að einn tími í
fjölskyldumeðferð gæti gert
ykkur öll sáttari. Það er hægt
að hjálpa ótrúlegasta fólki að
bæta samskipti, skýra mörk,
tileinka sér aðra samskipta-
hætti eða afmarka umræðu-
efni.
Sýna gott fordæmi
Ef þú og barnsmóðirin getið
alls ekki rætt saman, þá gæti
verið ráð að skoða hvort það
sé yfir höfuð nauðsynlegt.
Væri kannski best ef þú og
sambýlismaður þinn mynduð
sammælast um að samskiptin
fari alfarið fram í gegnum
hann? Þannig stafar fyrr-
verandi minni ógn af þér og
þú þarft ekki að díla við hana.
Í ljósi þess að þú ert alveg
að gefast upp þá verð ég að
benda þér á að þér ber engin
skylda til þess að vera í bandi
við fyrrverandi konu sam-
býlismannsins þíns. Mögulega
getur þú einfaldað samskiptin
eða bara dregið þau mörk að
þú sért ekki inni í þeim.
Á hinn bóginn getur þú
ekki svo glatt breytt því
hvað fyrrverandi kona sam-
býlismannsins gerir. Ef hún
velur að tala illa um þig fyrir
framan börnin þá er lítið
sem þú getur gert til þess að
koma í veg fyrir það. Aftur
á móti læra börn betur það
sem gert er fremur en það
sem sagt er. Ef þú sýnir for-
dæmi og hegðun sem þú vilt
að stjúpbörnin þín kunni að
meta þá er líklegra að þau
taki mark á þeirri hegðun en
þeim orðum sem þau heyra
um þig. Á endanum eru það
þau sem umgangast þig og
þau sem geta lagt raunveru-
legt mat á það hvaða mann-
kosti þú hefur að bera.
Finna jafnvægið
Að lokum bendi ég þér á bók
sem heitir Stjúptengsl eftir
Valgerði Halldórsdóttur. Þar
eru hinir ýmsu kimar stjúp-
fjölskyldna reifaðir, bæði á
fræðilegum grunni en einn-
ig út frá reynslu íslenskra
stjúpfjölskyldna. Þar kemur
meðal annars hugtakið stjúp-
blinda fram. Þegar rætt er
um „stjúpblindu“ er átt við
að stjúptengsl eru ósýnileg
á öllum sviðum samfélags-
ins. Hlutverk blóðforeldra
er miklu skýrari og um það
er skrifað í lög, Biblíuna,
lífsleiknibækur og þó víðar
væri leitað. Stjúphlutverkið
er ekki jafn skýrt og upp-
lifa margir stjúpforeldrar
fyrir vikið að þau séu van-
metin, ofmetin og að þeirra
staða sé annað hvort tekin
sem sjálfsögð eða að eftir
kröftum þeirra sé ekki óskað
við ákveðnar aðstæður. Það
er erfitt að finna jafnvægið
í tengslum við hvenær stjúp-
foreldrar mega skipta sér af
og hvenær ekki, hvenær þau
mega taka ábyrgð og hvenær
það er óæskilegt.
Mögulega ættuð þið hjónin
að nýta uppgjöf þína í að
spyrna við fótum. Þá á ég við
setja ykkur skýran ramma
um hvernig þið viljið hátta
þessum málum, fá þá aðstoð
sem þið þurfið og reyna að
njóta þess sem vel gengur og
tækla það sem betur má fara.
Ég veit þið getið það! n
MYND/GETTY
Það er erfitt að
finna jafnvægið í
tengslum við
hvenær stjúp-
foreldrar mega
skipta sér af og
hvenær ekki.