Dagblaðið Vísir - DV - 31.07.2020, Page 38
38 MATUR 31. JÚLÍ 2020 DV
Una í eldhúsinu
Djöflaterta með kaffikremi og granateplum
Kökubotnar
200 ml soðið vatn
6 msk. kakó
100 g púðursykur
130 g smjör
100 g sykur
3 egg
220 g hveiti
½ tsk. lyftiduft
½ tsk. matarsódi
3 tsk. vanilludropar
Ofn hitaður í 180 gráður og tvö 20-
25 cm bökunarform húðuð vel að
innan með annaðhvort Pam-úða
eða smjörlíki.
Kakói (passið að sigta kakóið sam-
an við) og púðursykri er blandað
saman við soðið vatn. Gætið þess
að það sé ekki meira en fingur-
volgt. Setjið til hliðar.
Bræðið smjör og leyfið að kólna
aðeins og blandið svo saman við
sykurinn þar til blandan verður ljós
og létt í sér. Þá er eggjunum bætt
saman við blönduna og öllu hrært
vel saman.
Því næst er restinni af þurrefn-
unum bætt saman við.
Að lokum er vatninu sem búið var
að blanda með sykri og kakói bætt
út í og deiginu blandað vel saman.
Deiginu er svo skipt jafnt í tvö
bökunarform og bakað í um 25-35
mínútur.
Passið að botnarnir kólni alveg
áður en kreminu er smurt á.
Kaffikrem
250 g smjörlíki
250 g flórsykur
2 msk. vanilludropar
5 msk. uppáhellt kaffi
1 granatepli, til þess að setja
fræin ofan á kökuna
Hellið upp á smá kaffi, tilvalið að
nota það síðar með kökunni. Takið
frá smá kaffi í bolla og leyfið að
kólna.
Þeytið vel saman flórsykri, smjör-
líki (mjúku) og vanilludropum. Best
er að stilla á meðalhraða og leyfa
kreminu að blandast vel saman í
nokkrar mínútur.
Blandið kaffinu saman við og
þeytið áfram í smátíma.
Skerið granatepli í tvennt og takið
kjarnann frá, ef eplið er mjög blautt
er gott að þerra fræin aðeins með
servíettu og taka mesta rakann.
Smyrjið kreminu á milli botnanna
og síðan að utan og stráið svo fræj-
unum yfir toppinn á kökunni.
Verði ykkur að góðu.
Kínóa salat
150 g kínóa
150 g spínat
50 g rauðkál, ferskt
2-3 gulrætur
30 g radísuspírur
150 g bláber
50 g kókosflögur
Byrjið á að sjóða kínóa í potti
(forðist að ofsjóða það, það á til
að festast saman).
Blandið saman í skál spínati, gróf-
söxuðu, fersku rauðkáli, flysjuðum
gulrótum, og blandið öllu vel
saman við, nema kókosflögunum
og kínóanu.
Sigtið vatnið af kínóanu og leyfið
aðeins að kólna. Blandið því svo
saman við salatblönduna, vel og
vandlega.
Að lokum er kókosflögum stráð yfir.
Verði ykkur að góðu.
Uppskriftir Unu Guðmundsdóttur,
matgæðings DV, klikka ekki
frekar en fyrri daginn. Hún býður
nú upp á matarmikið salat sem
er fullkomið á undan ljúfri Djöfla-
tertunni.
MYNDIR/AÐSENDAR
00000
www.veidikortid.is
Hvar ætlar þú að
veiða í sumar?
Útsölustaðir: N1, OLÍS, veiðivöruverslanir