Dagblaðið Vísir - DV - 31.07.2020, Side 45

Dagblaðið Vísir - DV - 31.07.2020, Side 45
A ð þessu sinni er spáð fyrir áhrifavald-inum Sunnevu Einarsdóttur sem er fædd 7. ágúst 1996 og er því alveg að verða 24 ára. Sunneva er fædd í Ljónsmerkinu og því gaman að segja meira frá því merki. Ljónið er ástríðufullt, hlýtt og glaðlynt. Ljónið hefur gaman af því að gleðja fólk og skemmta því og er einnig þekkt fyrir að vera gjaf- milt. Þetta er forvitið merki og finnst gaman að afla sér upplýsinga um alls kyns tilviljanakennda hluti sem það hefur áhuga á. Helstu ókostir Ljónsins eru þrjóska og óþolinmæði. Jafnvægi Lykilorð: samningar, sanngirni, sannleikur, orsök og afleiðing Það fyrsta sem kemur til mín er að þú sért að fara að skrifa undir mikilvægan samning. Ég sé pappíra og lög- menn sem koma að þessum samningi. En það er léttur blær sem fylgir þessu spili þannig að þetta er greini- lega góður samningur sem mun láta gott af sér leiða. Taktu þér góðan tíma og gerðu þær kröfur sem þú vilt. Stjarnan Lykilorð: von, trú, tilgangur, endurnýjun, andleg mál Stjörnuspilið er svokallað óskaspil, alheimurinn er að hlusta og óskir munu rætast. Innsæi mínu finnst þetta tengjast heilsunni, þú ert að huga betur að heilsunni þessa dagana, bæði andlegri og líkamlegri. Þú færð aukinn lífskraft með því að gefa þér tíma í þessi mál- efni og þessi kraftur mun vera grundvöllurinn að því að allt fer að ganga betur upp hjá þér. Elskendurnir Lykilorð: kærleikur, sátt, sambönd, jöfnun, gildi, val Ástin blómstrar. Kúrekinn ríður í gegnum eyðimörkina og þegar sandurinn sest sér hann ástina sína, ró kemur yfir hann og fuglarnir fara að syngja á ný. Erilsamir tímar hafa haldið aftur af rómantíkinni en í kortunum sést að nýir tímar eru í vændum þar sem ástin fær að blómstra á ný. Skilaboð frá spákonunni Þetta er svo falleg spá hjá þér að það eina sem ég get sagt við þig að þessu sinni er að þakka fyrir það sem þú hefur og þau tækifæri sem lífið hefur gefið þér og það jafnvel í formlegu bréfi. Þakklætið er svo mikilvægt og ætti að vera mantra manns á morgni hverjum. STJÖRNUSPÁLESIÐ Í TAROT Sunneva Einarsdóttir Svona eiga þau saman Vikan 31.07. – 06.08. Óskirnar munu rætast Ólík en óstöðvandi saman MYND/ERNIR stjörnurnarSPÁÐ Í Fjölmiðlakonan Viktoría Hermannsdóttir og grínistinn Sólmundur Hólm Sólmundar-son, betur þekktur sem Sóli Hólm, eru á meðal þekktustu para landsins og hafa bæði skapað sér sess í sínum geira. DV lék forvitni á að vita hvernig þau eiga saman ef litið er til stjörnumerkjanna. Sóli er Krabbi og Viktoría er Vatnsberi. Krabbinn er skapandi, hugmyndaríkur, til- finninganæmur. Krabbar eru heimakærir fjöl- skyldumenn sem kunna vel við sig í öryggi og kósíheitum. Vatnsberinn er meiri félagsvera: vingjarnlegur, opinn, og sérvitur. Einstakling- ar í Krabba- og Vatnsberamerkjunum eiga það sameiginlegt að vera metnaðarfullir og ákveðn- ir, hafa löngun til að fara sínar eigin leiðir en forðast átök. Krabbinn er oft íhaldssamur og hefðbundinn og finnst þægilegt að vera í rútínu. Vatnsberinn er líklegri til að verða eirðarlaus og leitar frekar í tilbreytingu. Þó svo að þessi tvö merki virðist við fyrstu sýn vera of ólík þá má ekki gleyma að andstæð- ur laðast hvor að annarri. Þegar þessir tveir einstaklingar finna leið til að láta ólíka eigin- leika sína vinna saman eru þeir óstöðvandi. n Viktoría Hermannsd. 11. febrúar 1987 Vatnsberi n Frumleg n Sjálfstæð n Mannvinur n Framsækin n Fjarlæg n Ósveigjanleg Sólmundur Hólm 14. júlí 1983 Krabbi n Forvitinn n Mikil aðlögunarhæfni n Fljótur að læra n Skipulagður n Taugaóstyrkur n Ákvarðanafælinn MYND/STEFÁN KARLSSON Svona verður verslunarmannahelgin hjá þér Hrútur 21.03. – 19.04. Þú ert nú þegar stressuð/aður yfir því að sólin muni ekki mæta í partýið þitt og ert líkleg/ur til þess að vera búin/n að pakka eða farin/n að baka fyrir helgina. Það skal vera gaman! En þú ert sætur flippkisi sem auðvelt er að gleðja þannig að trúnó og Aperol Spritz munu bæta upp fyrir allar væntingarnar þínar. Naut 20.04. – 20.05. Þú ert týpan sem vill tjalda! Þú átt prímus sem þú talar meira um en þú ættir og ert spenntari en börnin yfir því að grilla sykurpúða sem þú stingur auðvitað grein í gegnum frekar en einhverju aðkeyptu spjóti frá Hagkaup. Náttúrubarnið þitt mun blómstra um helgina. Tvíburar 21.05. – 21.06. Æ, þú ert svo skemmtilega grilluð týpa. Þú sérð tilefni til þess að fara í búning um helgina og ert mega peppuð/aður yfir því að fá alla fjölskylduna, blóðskylda eður ei, í skemmtilega leiki. Hver er til í Kubb? Krabbi 22.06. – 22.07. Eins og venjulega þá ert þú sáttust/ astur þegar allir koma saman. Stórt ítalskt fjölskylduboð er í kortunum þínum þar sem allir tala hver yfir annan, hlæja hátt, borða og drekka tímunum saman. Í öllum þessum látum situr þú þögull með sjálfum þér og lítur yfir þennan fagra hóp með þakklæti í huga. Ljón 23.07. – 22.08. Ljónið undirbýr sig í eitt sykki ‘hipster’ útilegu. Grasstrá í kjafti, kúrekahattur og varðeldur. Ekki gleyma nokkrum myndum fyrir samfélagsmiðlana, annars gerðist þetta ekki! Það verður sungið um helgina alveg þannig að þú verður rám/ur á mánudaginn kemur. Meyja 23.08. – 22.09. Það verður kósý hjá Meyjunni! Þú ert með vel valdar bækur, Yogi-teið þitt sem þú kaupir bara til að geta lesið á litla miðann með skemmti- legu heimspekinni og sumarbústað sem þú bókaðir fyrir mánuði síðan. Vog 23.09. – 22.10. Vogin dansar inn í helgina og er alveg slétt sama um hvað öðrum finnst! Ef þú ert foreldri þá mun táningurinn skammast sín fyrir þig alla helgina (en samt í alvöru bara dást að þessu innra barni þínu). Þú munt dansa úti, inni á bensín- stöðinni og langt fram á nótt. Sporðdreki 23.10. – 21.11. Það er veiðiferð í kortunum þínum um helgina og það verður fiskað eins og enginn sé morgundagurinn. Þú ert líka með svo mikið vinnueðli að þú nýtur þess að hafa smá fyrir hlutunum áður en þú uppskerð. Bogmaður 22.11. – 21.12. Hvar er glamúrinn? Hann er með þér, því þú pimpar allar helgarferðr upp með kampavíns-útileguglösum sem þú geymir í ‘Merry Poppins’ Michael Kors-töskunni, glimmeri í rassvasanum og bluetooth-hátal- ara í hanskahólfinu. Alltaf tilbúin/n í partýið og því sjaldan leiðinlegt með þér. Steingeit 22.12. – 19.01. Þú kýst vini þína fram yfir fjöl- skylduna þessa helgina því þó þú elskir fjölskylduna þá þarftu smá svigrúm frá henni. Óvænt ‘roadtrip’ með vinum þínum er í kortunum, ekkert svo vel planað en ekkert í boði annað en að hafa gaman og skella sér í kaldan sjóinn. Vatnsberi 20.01. – 18.02. Þú ákveður að vera heima að þessu sinni. Þú nýtir helgina í heimilisdúllerí, skipulag, bakstur, Netflix og notalegt fjölskyldu- hangs. Engin plön eru stundum bestu plönin og þá er líka svigrúm fyrir hið óvænta. Fiskur 19.02. – 20.03. Þín draumahelgi væri að allt þitt fólk færi í sveitina og þú fengir smá einveru sem þú nýtur betur en nokkur annar. Þú ert þó í spilastuði þessa helgina og tekur öll borðspilin þín og tarotspilin þín upp í bústað. Notaleg helgi fram undan. STJÖRNUFRÉTTIR 45DV 31. JÚLÍ 2020

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.