Morgunblaðið - 03.01.2020, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 03.01.2020, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. JANÚAR 2020 Líkamsrækt er gulls ígildi og hana má stunda með ýmsum hætti. Reglulega má sjá Ásdísi Kvaran ganga umhverfis Hólavallagarð í Reykjavík. „Ég kalla þetta kraft- göngu, því ég er með tvo stafi,“ seg- ir hún og leggur áherslu á að hún sé ekki skíðakona. „Ég bara geng, það er það eina sem gamlingjar geta gert og eiga að gera.“ Þegar færðin er góð gengur Ás- dís þrjá hringi. „Ég er skíthrædd við snjóinn og sérstaklega hálkuna. Ég er 20 mínútur að fara einn hring og ef ég kemst þrjá hringi er ég bú- in að vera úti í klukkutíma. Anda og anda og gera allt sem maður á að gera.“ Ásdís fer líka um tvisvar í viku til Guðrúnar Brynjólfsdóttur, sjúkra- þjálfara hjá Sjúkraþjálfun Reykja- víkur í Ellingsen-húsinu á Fiskislóð vestur á Granda. „Ég ætla að fara þangað þar til ég dey,“ segir göngugarpurinn. „Maður verður að reyna að halda sér í gangi.“ steinthor@mbl.is Klukkutíma kraftganga á dag umhverfis Hólavallagarð heldur Ásdísi Kvaran gangandi Morgunblaðið/Árni Sæberg Hring eftir hring eftir hring Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Leit hófst að nýju í gær að að manni sem talið er að hafi verið að ganga á fjallið Hrútaborg á Snæfellsnesi síðastliðinn laugardag. Leitin hefur ekki borðið árangur enn sem komið er. Maðurinn sem leitað er að heitir Andris Kalvans, 57 ára gamall Lithái sem búsettur er í Reykjavík. Talið er að hann hafi ekið að heiman að morgni 28. desember. Bíll hans fannst við Heydalsveg í Hnappadal, við upphaf gönguleiðarinnar á fjallið Hrútaborg. Menn úr björg- unarsveitum af Vesturlandi leit- uðu í kringum Hrútaborg í gær, rúmlega 20 menn. Einar Þór Strand, formaður svæðisstjórnar björgunarsveit- anna, segir að leitað sé út frá þeirri tilgátu að maðurinn hafi veikst eða fallið á göngunni. Hann tekur fram að erfitt sé að leita þar sem snjóað hafi á svæðinu, bæði daginn sem talið er að Andris hafi gengið á fjallið og síðan. Því sé snjór yfir lægðum og gjótum. Leitað var fram í myrkur í gær og leit hefst að nýju árdegis í dag. Einar Þór segir að reynt verði að fá fleira fólk til leitar í dag, frá öðrum svæð- um, og vonast eftir 100 björgunar- sveitarmönnum. Ekki leitað við Dyrhólaey Enn hefur engin ákvörðun verið tekin um áframhaldandi skipulega leit að Rimu Grunskyté Feliksas- dóttur, sem talin er hafa fallið í sjó- inn við Dyrhólaey fyrir jól. Þar fannst bíll hennar. Hennar hefur verið saknað frá 20. desember. Blásið til stærri leitar í Hnappadal í dag  Snjór er yfir og erfitt að leita  Frekari skipuleg leit að konu við Dyrhólaey hefur ekki verið ákveðin Andris Kalvans Ljósmynd/Aðsend Leit Björgunarsveitarmenn við erfiðar aðstæður á gönguleið á Hrútaborg. „Mér sýnist útsölurnar fara af stað með hefðbundnum hætti í ár,“ segir Sigurjón Örn Þórðarson, fram- kvæmdastjóri Kringlunnar, en jan- úarútsala verslunarmiðstöðvarinnar hófst í gær og mun standa fram yf- ir fyrstu helgina í febrúar. Sagði Sigurjón að svo virtist sem aðsókn í Kringluna í gær hefði verið með svipuðu sniði og fyrri ár. Sigurjón segir að sumar versl- anir hafi þegar verið farnar af stað með útsölur sínar á milli jóla og ný- árs, en Kringlan sjálf hafi ekki formlega hafið útsölur fyrr en 2. janúar. Algengast er að verslanir bjóði upp á um 30-50% afslátt af vörum sínum á þessum tíma til að byrja með. Spurður hvort hann eigi von á fjölgun gesta Kringlunnar vegna útsalanna segir Sigurjón að reynsl- an sýni að útsölur séu alltaf vel séð- ar og vel sóttar af viðskiptavinum, og vetrarútsalan standi þar sumar- útsölunni framar. sgs@mbl.is Tími útsalanna hafinn  Útsölur jafnan vel séðar og vel sótt- ar af viðskiptavinum Kringlunnar Morgunblaðið/Árni Sæberg Útsala Verslanir Kringlunnar hófu flestar janúarútsölur sínar í gær.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.