Morgunblaðið - 03.01.2020, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 03.01.2020, Blaðsíða 22
22 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. JANÚAR 2020 Sími 534 1500 | kiddi@kambstal.is | Íshellu 1, 221 Hafnarfirði Klippt & beygt kambstál fyrir minni og stærri verk Reynsla | gæði | þjónusta VANTAR ÞIG STARFSFÓLK? Suðurlandsbraut 6, Rvk | S. 419 9000 info@handafl.is | handafl.is Við útvegum hæfa starfskrafta í flestar greinar atvinnulífsins Traust og fagleg starfsmannaveita sem þjónað hefur íslenskum fyrirtækjum í áraraðir Ein frægasta skáld- saga allra tíma, Vesal- ingarnir eða Les mis- érables eftir franska rithöfundinn Victor Hugo, hefur farið sig- urför um heiminn. Af efni þessarar sögu hafa fjölmargar kvik- myndir verið gerðar og var ein af þeim síð- ustu sýnd núna á dögunum í sex hlut- um í RÚV. Þar segir frá fyrrverandi refsi- fanga sem var látinn sæta mjög harðri og óvæginni refsingu fyrir litlar sakir um margra ára skeið. En hann breytist í ein- stakt góðmenni eftir að hafa kynnst guðs- manni sem sneri við afbroti sem hann hafði nýlega framið beint framan við þjóna réttvísinnar og gaf hon- um það sem hann hafði stolið. Á yfirstandandi vetri hafa komið upp tvö mismunandi en graf- alvarleg mál. Annars vegar eru meint misferli og mútur ásamt lík- legu umfangsmiklu peningaþvætti og tengir fyrirtækið Samherja við fremur alvarleg afbrot sem okkur þykir ákaflega miður að geti gerst í okkar friðsama íslenska sam- félagi. Spilling er ákaflega alvar- leg ásökun og við Íslendingar erum í mikilli varnarstöðu gagn- vart alþjóðasamfélaginu að koma henni af okkur sem fyrst. En til þess þarf að lyfta mörgum grettis- tökum og hugsa margt upp á nýtt. Hins vegar beinist athygli lands- manna að háskólakennara nokkr- um þar sem við sögu koma mis- ferli með fíkniefni, frelsisskerðing og ekki er ólíklegt að sitthvað fleira komi við sögu. Svona mál þar sem allt snýst meira og minna um fíkniefni eru við rannsókn mjög erfið viðureignar og að sama skapi mjög viðkvæm. Þarna koma líklega margir við sögu og það er ekki létt, já verulega erfitt að vera í sporum lögreglu sem og þeirra aðila sem við sögu koma. Það verður að segja sem er, að miður er að dómstóll götunnar fer strax af stað að dæma til vinstri og hægri og það vægast sagt mjög óvægilega eins og við má búast. Þungur hugur er til dómstóla að hafa ekki framlengt gæsluvarðhald en þess má geta að því má ein- ungis beita í þágu rannsóknar til að gæta rannsóknarhagsmuna; að grunaður maður geti ekki afmáð sönnunargögn eða haft áhrif á vitni. Þá er spurning hvort hætta sé á að sá grunaði haldi viðtekinni brotastarfsemi en á það hefur ekki reynt. Ætli sé ekki rétt að við sem ekki erum aðili að þessum málum, hvorki rannsakendur né máls- aðilar, dokum við og leyfum lög- reglunni og saksóknara að vinna sína rannsókn í góðu tómi án þess að settur sé óeðlilegur þrýst- ingur, kannski með óþarfa at- hugasemdum eða óviðeigandi yf- irlýsingum? Við verðum að hafa í huga að fyrir rúmum 40 árum var kveðinn upp einn af alvarlegustu refsidómum á seinni tímum sem síðar reyndist byggður á mjög veikum grunni og jafnvel rang- indum gagnvart því unga fólki sem hlut átti að máli. Þar hefur ekki verið ákveðið eitt né neitt annað en að sumir ákærðir hafa verið sýknaðir af öllum sökum en aðrir ekki. Það verður að sýna stillingu og ígrundun. Það væri miður ef síðar kæmi í ljós að óeðlilegur þrýst- ingur hefði verið settur á rann- sóknaraðila og þeir hugsanlega gengið lengra en tilefni hefði verið. Grunaðan ber að telja sak- lausan uns sekt hans er sönnuð. Við skulum því doka við en auð- vitað er hlutverk fjölmiðla mikil- vægt engu að síður til að tryggja að við fáum að fylgjast með framþróun rannsóknar í náinni framtíð. Eftir Guðjón Jensson Guðjón Jensson »Það væri miður ef síð- ar kæmi í ljós að óeðli- legur þrýstingur hefði verið settur á rannsókn- araðila og þeir hugsan- lega gengið lengra en tilefni hefði verið. Höfundur er eldri borgari og leiðsögumaður. arnartangi43@gmail.com Aðgát skal höfð í nærveru sálar Ég á aðeins eitt líf. Það er mér mjög dýr- mætt. Ég reyni að lifa því og ég hef reynt að vanda mig við það enda nýt ég þess. Samt veik- ist ég, verð fyrir hvers kyns vonbrigðum og særist. Að lokum mun ég verða dæmdur úr- eltur af samtímanum og smám saman mun slokkna á líkama mínum. Hann deyr og verður að moldu. Ég er stöðugt minntur á það að ég á aðeins eitt líf. En þegar ég hugsa málið, þá er það eftir allt saman bara allt í lagi. Ég sætti mig við það. Því ég hef falið líf mitt Guði og í trausti til sonar hans, frelsarans Jesú, mun það vara að eilífu. Hans sem sagði: Ég er upprisan og lífið. Sá sem trúir á mig mun lifa þótt hann deyi. Sá sem lifir og trúir á mig skal aldrei að eilífu deyja. Ég lifi og þér munuð lifa. Lífið heldur áfram Markmið eru sett, áföngum er náð, tímamót verða. Fjallið er klifið, toppnum er náð. Þá koma í ljós nýir toppar, ný markmið, nýir áfrangar. Þrátt fyrir öll tímamót og fjarlæg markmið sem oft virðast eins og loka- takmark þá heldur lífið alltaf ein- hvern veginn áfram. Þrátt fyrir allt mótlæti, torfærur og brekkur, bar- áttu og ósigra. Og jafnvel þótt ævinni ljúki, jafnvel þrátt fyrir sjálfan dauð- ann sem er sannkölluð tímamót, þá heldur lífið áfram og ekkert fær það stöðvað. Hvorki við sjálf, mannlegur máttur né utanaðkomandi öfl. Lifi lífið Góður Guð vaki okkur yfir á nýju ári. Umvefji okkur öll kærleika sín- um og fylli okkur anda sínum, friði og von. Hann fylli okkur anda skilnings og samstöðu þannig að við hugum að hag heildarinnar. Og gefi okkur að lifa sítengd við lífið. Í þakklæti þann- ig að við tökum að sjá og hlusta á okkur sjálf, samferðafólk okkar og umverfi með hjartanu. Gefum okkur tíma til að rækta okkur sjálf. Setjast nið- ur og biðja hvert fyrir öðru, sjálfum okkur og umhverfi, því þá verður allt eitthvað svo miklu mildara og betra. Njótum lífsins og stundarinnar sem kem- ur ekki aftur. Verum ekki sífellt að bíða eftir einhverju sem kemur kannski seinna. Njótum þess að dvelja í núinu því að andartakið líður hratt og það kemur ekki aftur. Munum að stress, óhófleg vinna, hraði og það að hafa alltaf brjálað að gera lengir ekki lífið og eykur ekki vellíðan. Því síður dýrir munir, mun- aður og óhófleg eyðsla og neysla. Hleypum heldur hinum varanlega friði að í hjarta okkar og gerum þannig lífið sjálft að niðurstöðu í til- veru okkar. Já, kærleikans Guð vaki yfir þér og veri með þér í leit að tilgangi lífsins. Hann veri með þér í allri þinni gleði og hamingju. En einnig á rauna- stundum vonbrigða, sorgar og sökn- uðar. Hann gefi okkur nýja sýn á lífið sem fyllt er raunverulegum mark- miðum og varanlegri hamingju. Nýtt upphaf sem byggt er á gömlum, traustum og góðum merg. Bjargi sem ekki bifast, þrátt fyrir að allt virðist í heiminum hverfult og vera að farast. Fullur bjartsýni og von óska ég ykkur og bið kærleika og friðar á árinu 2020. Lifi lífið! Aðeins eitt líf Eftir Sigurbjörn Þorkelsson Sigurbjörn Þorkelsson » Guð vaki yfir þér og veri með þér í leit að tilgangi lífsins. Í allri þinni gleði og hamingju. En einnig á rauna- stundum vonbrigða, sorgar og söknuðar. Höfundur er ljóðskáld og rithöfundur og aðdáandi lífsins.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.