Morgunblaðið - 03.01.2020, Blaðsíða 12
12 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. JANÚAR 2020
TAUBLEIUBÚÐIN ÞÍN
Kíktu á netverslun okkar
bambus.is
Nýbýlavegi 8 – Portið, sími 847 1660, www.bambus.is, bambus@bambus.is
bambus.is bambus.is • Opið mánudaga og fimmtudaga frá kl. 10-14
Suðurlandsbraut 26 Sími: 587 2700
Opið 11-18 virka daga og 11-16 laugardaga. www.alno.is
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Nýtt hraðamet á flugleiðinni milli
Reykjavíkur og Akureyrar var sleg-
ið á nýársdag þegar Bombardier
Q400-vél frá Air Iceland Connect
var aðeins 26 mínútur á leiðinni. Al-
gengt er að á vélum af umræddri
gerð sé leið þessi farin á 32-35 mín-
útum og stundum skemmri tíma.
Hagstæðar vindáttir réðu því hins
vegar hve greitt nýársflugið gekk.
„Þetta var afar skemmtileg ferð,“
segir Jóhann Skírnisson flugstjóri í
samtali við Morgunblaðið.
Örskot upp í 19 þúsund fet
Flugvélin TF FXI fór í loftið frá
Reykjavík eftir hádegi á nýársdag.
Flugtakið var til suðurs og fljótlega
eftir að komið var á loft var beygt
mjúklega til vinstri yfir Kópavog.
Flogið var austur yfir Mosfellsheiði,
Skorradal og þvert yfir Langjökul,
þaðan svo yfir Blöndulón, sunnan
Skagafjarðardala og svo niður botn
Eyjafjarðardals í beinni línu inn á
flugbrautina á Akureyri.
„Q400 er feiknalega aflmikil flug-
vél og var því aðeins örskot upp í 19
þúsund fet. Í lofti var hvöss suð-
vestanátt, sjálfsagt um 100 hnútar
eða 50 metrar á sekúndu. Því bar
okkur hratt norður. Við lentum svo í
ljúfum þey á Akureyri, höfðum þá
þurft að hægja talsvert á okkur í að-
fluginu niður og fram Eyjafjörðinn.
Hefðum sennilega getað verið enn
fljótari í förum ef aðstæður hefðu
leyft,“ segir Jóhann, sem við hlið sér
hafði Val Hlíðberg flugmann sem
hélt um stýrið nánast alla leiðina.
Flugfreyjur voru Bryndís Björg
Jónsdóttir og Aldís Tryggvadóttir.
Í nýársfluginu suður voru að-
stæður talsvert aðrar; taka þurfti á
loft til norðurs á Akureyrarflugvelli
og beygja svo til suðurs og fljúga í
mótvindi til Reykjavíkur. Tók flugið
37 mínútur, sem telst samt mjög
góður tími.
Árið byrjar með glæsibrag
„Kjarni málsins er sá að Q400 eru
dúndrandi góðar vélar; sterkar,
fljótar í förum og gaman að fljúga
þeim. Svo var auðvitað gaman að
byrja nýtt ár í fluginu með þessum
glæsibrag,“ segir Jóhann, sem hefur
verið 33 ár í innanlandsfluginu, hjá
Air Iceland Connect og ýmsum
fyrirrennurum þess.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Q400 Vélar þessarar gerðar hafa verið í flota Air Iceland Connect í bráðum fjögur ár og reynslan þykir góð.
Setti hraðamet í flugi
norður á nýársdag
Var 26 mínútur á Q400 frá Reykjavík til Akureyrar
Flugstjóri „Okkur bar hratt norður en vindurinn var 50 metrar á sekúndu,“
segir Jóhann Skírnsson, hér við stýrið á vél sinni á Reykjavíkurflugvelli.
Ragnhildur Þrastardóttir
ragnhildur@mbl.is
Magn svifryks í andrúmslofti á
mælistöð við Grensásveg í Reykjavík
fyrstu klukkustund nýársdags í ár
var um þrefalt minna en í fyrra.
Elfa Björk Ellertsdóttir, upplýs-
ingafulltrúi hjá Reykjavíkurborg,
segir að ástæðan fyrir þessu sé að
öllum líkindum veðrið sem var á
höfuðborgarsvæðinu á gamlárskvöld
og nýársdag. Úrkoma var en líklegt
er að mengunin hafi blandast henni
og því farið niður í jarðveginn í stað
þess að halda sig í andrúmsloftinu.
Ómögulegt er að segja hvort minni
mengun megi rekja til þess að færri
hafi skotið upp flugeldum, að sögn
Elfu.
Minnkaði hratt á nýársnótt
„Styrkur svifryks fyrstu klukku-
stundina árið 2020 var 317 míkró-
grömm á rúmmetra í mælistöðinni
við Grensásveg í Reykjavík. Til sam-
anburðar var hann fyrstu klukku-
stundina árið 2019 985 míkrógrömm
á rúmmetra og 2018 1.457 míkró-
grömm á rúmmetra. Á síðasta ára-
tug var styrkurinn mestur árið 2010
eða 1.575 míkrógrömm,“ segir í til-
kynningu frá Reykjavíkurborg.
Magn svifryks í andrúmslofti fór
vel yfir heilsuverndarmörk á flestum
mælistöðvum fyrstu klukkustund
nýársdags en minnkaði svo hratt og
var einungis yfir heilsuverndar-
mörkum aðra klukkustund nýárs-
dags í Fjölskyldu- og húsdýragarð-
inum.
Heilsuverndarmörk svifryks eru
50 míkrógrömm á rúmmetra. Við
Grensásveg fór styrkur svifryks 14
sinnum yfir sólarhringheilsuvernd-
armörk árið 2019 miðað við gögn en
styrkur má fara 35 sinnum yfir mörk
samkvæmt reglugerð þar um.
Svifrykið þrefalt
minna en í fyrra
Mælingar í Reykjavík á nýársnótt
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Áramót Talsvert minna mældist af
svifryksmengun yfir Reykjavík.
Bifreið sem ek-
ið var afar hægt
eftir Hring-
braut í Reykja-
nesbæ um ára-
mótin, og stigið
ótt og títt á
bremsuna, vakti
athygli lög-
reglumanna.
Þegar ökumað-
urinn nam svo skyndilega staðar á
miðjum vegi var ákveðið að kanna
með ástand hans. Hann reyndist í
fullkomnu lagi og voru þarna á ferð
erlendir ferðamenn sem voru að
leita að norðurljósum, að því er seg-
ir í dagbók lögreglunnar á Suður-
nesjum.
Þá voru nokkrir ökumenn stöðv-
aðir vegna gruns um vímuefna-
neyslu. Einn þeirra hafði áður verið
sviptur ökuréttindum.
Nokkrir voru svo kærðir fyrir
hraðakstur. Sá sem hraðast ók
mældist á 125 km hraða á Reykja-
nesbraut þar sem hámarkshraði er
90 km á klukkustund.
Ferðamenn í leit
að norðurljósunum