Morgunblaðið - 03.01.2020, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 03.01.2020, Blaðsíða 14
14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. JANÚAR 2020 PON Pétur O. Nikulásson ehf. Melabraut 21, 220 Hafnarfjörður | Sími: 580 0110 | pon.is skotbómulyftara AG línan frá Manitou býður meðal annars upp á nýtt ökumannshús með góðu aðgengi og útsýni. HANNAÐUR TIL AÐ VINNA VERKIN NÝ KYNSLÓÐ • DSB stjórntakkar • JSM stýripinni í fjaðrandi armi • Stýrð stjórnun og hraði á öllum glussahreyfingum • Virk dempun á bómu Opið: 8-18 virka daga 10-14 laugardaga Sími 588 8000 slippfelagid.is Blár vinur í stofunni, yndislegur litur sem nýtur sín vel í flestum rýmum. Skoðaðu litaúrvalið okkar á slippfelagid.is Notalegur BAKSVIÐ Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Sólbergið ÓF 1, frystitogari Ramma hf., fiskaði fyrir 5.153 millj- ónir króna (CIF) á nýliðnu ári. Það er trúlega meira aflaverðmæti en hjá nokkrum öðrum íslenskum tog- ara á einu ári. Miðað er við óslægð- an fisk, en alls nam afli Sólbergsins 13.732 tonnum af bolfiski, sem trú- lega er einnig met. Almennt mun árið hafa verið gott hjá togaraflotanum og mörg skip bættu við sig afla frá fyrri árum. At- hygli vekur að tveir ísfisktogarar, Björg EA, skip Samherja, og Viðey RE, togari í eigu Brims, veiddu rúmlega 10 þúsund tonn á árinu, sem hefur trúlega ekki gerst áður, og var aflaverðmæti Bjargar yfir tveir milljarðar, en upplýsingar fengust ekki um verðmæti afla Við- eyjar. Risatúr í Barentshafið Sólbergið kom nýtt til landsins í maí 2017, en skipið var smíðað í Tyrklandi. Stærsti túr Sólbergsins á árinu var í Barentshafið í febrúar og fram í mars. Aflinn í þessum risatúr var 1.905 tonn af óslægðum fiski og verðmætið 686 milljónir. Kleifaberg RE, skip Útgerðar- félags Reykjavíkur, er trúlega í öðru sæti á eftir Sólbergi sam- kvæmt upplýsingum sem blaðið afl- aði í gær. Kleifaberg veiddi um 12.500 tonn á árinu og aflaverðmæt- ið var yfir 3,6 milljarðar. Örfirisey er þriðja aflahæsta skipið, aflinn eitthvað minni en hjá Kleifabergi, en verðmætið að líkindum 3,5-3,6 milljarðar. Kleifaberg var smíðað í Póllandi fyrir 45 árum og er kynslóðum skipa eldra en til dæmis Sólbergið. Tækni á millidekki og lest er minni en á nýju skipunum og skipið dreg- ur aðeins eitt troll. Eigi að síður var þetta áttunda árið í röð sem Kleifa- berg fiskar yfir 10 þúsund tonn á einu ári. Kvótastaða og aflasamsetning hefur veruleg áhrif á verðmæti og þannig er afli Sólbergsins að veru- legu leyti þorskur, en meira af ufsa og karfa hjá Kleifaberginu. Tvær áhafnir eru á flestum frystitogar- anna og róið annan hvern túr. Fleiri frystiskip munu hafa farið yfir þrjá milljarða í aflaverðmæti á nýliðnu ári, nefna má Vigra RE og Arnar HU. Síðan eru það ísfisktogararnir, sem margir hverjir fiskuðu einstak- lega vel á árinu. Þar eru Viðey RE og Björg EA efst á blaði með yfir tíu þúsund tonn. Ekki er langt síðan það þótti góður afli ísfisktogara að koma með 5-6 þúsund tonn að landi á einu ári. Hafa ber í huga að ísfisk- togarar eru minni en frystiskipin og landa 1-2 sinnum í viku, meðan túr- ar frystitogarana taka um mánuð. Björgúlfur EA, skip Samherja, Akurey RE, skip Brims, og Drang- ey og Málmey, skip Fisk Seafood á Sauðárkróki, fiskuðu einnig vel á árinu. Eins og áður sagði var árið yfir- leitt gott hjá togaraflotanum, en heldur meira þurfti að hafa fyrir því að veiða þorsk en nokkur undanfar- in ár, samkvæmt því sem einn við- mælandi sagði. Þá var þorskurinn líka heldur smærri en verið hefur síðustu ár. Eigi að síður var árið eitt það stærsta hjá togaraflotanum hvað afla áhrærir. Engin loðnuvertíð hafði áhrif á uppsjávarskipin Árið var erfiðara hjá uppsjávar- skipunum þar sem engar loðnuveið- ar voru leyfðar. Mikið var hins veg- ar veitt af síld, makríl og kolmunna og gæti aflaverðmæti þeirra upp- sjávarskipa sem mest fiskuðu hafa verið í kringum tvo milljarða. Verðmæti afla yfir fimm milljarðar  Afli Sólbergs á nýliðnu ári 13.732 tonn af óslægðum fiski  Kleifaberg enn meðal aflahæstu skipa  Tveir ísfisktogarar veiddu yfir 10 þúsund tonn  Árið var almennt gott hjá togurunum Fullkomið frystiskip Sólberg ÓF kom nýtt til landsins 2017 og hefur síðan komið með mikinn afla að landi. Ljósmynd/Þorgeir Baldursson Enn við toppinn Kleifaberg er 45 ára gamalt skip, en stendur enn fyrir sínu. Ljósmynd/Þorgeir Baldursson Björg EA Tveir ísfisktogarar fiskuðu yfir 10 þúsund tonn á árinu. Margrét Jónsdóttir Njarðvík hefur verið ráðin rektor Háskólans á Bifröst frá og með 1. júní 2020, en hún var valin úr hópi sjö umsækjenda. Tekur hún við af Vilhjálmi Egilssyni sem lætur af störfum sökum ald- urs. Margrét er með doktorspróf í spænsku máli og bókmenntum frá Princeton University og MBA frá Háskólanum í Reykjavík. Hún var dósent í HR árin 1995-2007 og forstöðumaður alþjóðasviðs skólans 2007-2011. Stofnaði hún þá fyrirtækið Mundo, er sér- hæfir sig í þjálfunarferðum kennara erlendis. Margrét ráðin rektor á Bifröst Margrét Jónsdóttir Njarðvík

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.