Morgunblaðið - 03.01.2020, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 03.01.2020, Blaðsíða 33
ÍÞRÓTTIR 33 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. JANÚAR 2020 Nú styttist í enn eitt stórmótið hjá karlalandsliðinu í handbolta en EM hefst í næstu viku. Ómissandi þáttur í því að þrauka í gegnum skammdegið hér í fásinninu norður í hafi er að fylgjast með liðinu í janúar. Í dag flýgur íslenska liðið til Þýskalands og leikur þar vin- áttulandsleik á morgun. Til eru dæmi um að menn geti orðið spenntir yfir vináttulandsleikjum handboltalandsliðsins. Meira að segja mjög spenntir. Vinir mínir Halli Pé og Raggi Ingvars voru einu sinni sem oft- ar á unglingsárunum að fylgjast með vináttulandsleik í sjónvarp- inu. Leikurinn fór fram í Laugar- dalshöllinni, sem þá þurfti ekki undanþágu eins og nú. Á Bogdan-árunum voru stundum haldin mót hérlendis ef því var að skipta eins og Flugleiða- mótið. Í minningunni finnst mér eins og RÚV hafi oft sýnt seinni hálfleik í beinni á virkum dögum en það er svo sem útúrdúr. Horfðu þeir á leikinn heima hjá Ragga á Holtabrún. Þeir lifðu sig svo inn í leikinn að þegar kviknaði í sjónvarpinu veittu þeir því enga athygli. Þegar Alfreð, Kristján og félagar voru á skján- um létu menn ekki smávægileg- an óþef slá sig út af laginu. Slökkviliðið í Bolungarvík óskaði aldrei eftir kröftum þeirra Halla og Ragga svo ég viti til enda áttuðu þeir sig ekki á stöðunni fyrr en myndin í sjón- varpinu datt loks út. Á meðan þeir kveinkuðu sér yfir því að sjá ekki restina af leiknum mun Ingvar heitinn, faðir Ragga, hafa komið og borið tækið út úr hús- inu. Spennan í handboltalands- leikjum getur verið stórhættuleg og landsmenn skyldu vera við öllu búnir þegar EM hefst. BAKVÖRÐUR Kristján Jónsson kris@mbl.is HANDBOLTI Jóhann Ingi Hafþórsson johanningi@mbl.is Vinstri hornamaðurinn Bjarki Már Elísson er á leiðinni á sitt fjórða stórmót með íslenska landsliðinu í handbolta. Hann æfir nú af krafti með liðinu fyrir EM í Svíþjóð, Noregi og Austurríki sem hefst 9. janúar. Bjarki hefur verið sjóðheit- ur með Lemgo í þýsku 1. deildinni, en hann er næstmarkahæstur allra í deildinni með 148 mörk. Aðeins Daninn Hans Óttar Lindberg, sem Íslendingar reyna stundum að eigna sér, er með fleiri mörk, eða 149. Eru þeir í sérflokki hvað varð- ar markaskorun í deildinni, sem er ein sú sterkasta í heimi. Það var nóg að gera hjá Bjarka undir lok síðasta árs og spilaði hann þrjá leiki á aðeins átta dög- um í lok desember. „Ég er þokka- legur. Maður spilaði auðvitað mikið um jólin, svo maður er pínu lemstraður hér og þar en það er bara eins og gengur og gerist í þessu og maður þekkir vel. Ég er spenntur að fá að byrja og ég kem fullur sjálfstrausts inn í þetta mót,“ sagði Bjarki í samtali við Morgunblaðið á æfingu liðsins á Ásvöllum. Bjarki skipti yfir úr Füchse Berlin í Lemgo fyrir leiktíðina til að fá stærra hlutverk, sem hann hefur nýtt afar vel. Hefur Bjarki m.a einu sinni skorað 14 mörk, tvisvar 13, einu sinni 11 og einu sinni 10 mörk í leik þýsku deild- inni. „Ég sá þetta kannski ekki al- veg fyrir mér, en ég sá klárlega fyrir að ég yrði í stærra hlutverki en ég var hjá Berlín og var búinn að ræða það við klúbbinn og þjálf- arann áður en ég skrifaði undir. Ég átti von á því að þetta yrði eitt- hvað í þessa áttina en ég við- urkenni að það hefur gengið von- um framar. Ég vissi alveg að ég gæti þetta og þurfti bara að kom- ast í aðstöðu til þess,“ sagði Bjarki. Landsliðið stefnir hærra Bjarki hefur leikið á stórmóti á hverju ári frá og með HM 2017, en hann var ekki í hópnum fyrir HM á síðasta ári. Meiðsli Guðjóns Vals Sigurðssonar rétt fyrir mót þýddu hins vegar að hann var kallaður til með minnsta fyrirvara. „Auðvitað er þetta betra í ár. Ég var náttúr- lega ekki valinn í hópinn síðast og kom óvænt inn í þetta rétt fyrir mót. Það var mjög sérstakt en þetta var búið að liggja fyrir lengi núna, svo ég hlakka bara til.“ Ísland hafnaði í ellefta sæti á HM í Þýskalandi og Danmörku á síðasta ári og segir Bjarki liðið ætla sér lengra á EM í ár. „Við ætlum okkur það klárlega. Fyrsta markmiðið er að komast upp úr þessum riðli. Ef við náum því er þetta allt galopið. Þetta er auðvitað gríðarlega erfiður riðill með sterk- um þjóðum en á sama tíma spenn- andi,“ sagði Bjarki. Ísland er í E-riðli með Dan- mörku, Ungverjalandi og Rúss- landi og verður leikið í Malmö í Svíþjóð. Ísland verður að eiga afar gott mót til að eiga möguleika á sæti á Ólympíuleikunum í Tókýó í sumar, en Bjarki segir það markmiðið. „Mig langar ótrúlega að fara á Ólympíuleikana næsta sumar og þá þurfum við að eiga rosalega gott mót,“ sagði Bjarki, sem er ekki endilega að horfa á samkeppni á milli sín og Guðjóns Vals Sigurðs- sonar um sæti í vinstra horninu í byrjunarliðinu. „Ég horfi ekki á þetta þannig. Ég er liðsmaður og langar að gera vel fyrir liðið, hvort sem það verður í tíu mínútur, frá byrjun eða bara að horfa af bekkn- um. Það er gaman að fá að vera með,“ sagði Bjarki Már Elísson. Langar ótrúlega að fara á Ólympíuleikana  Bjarki Már Elísson hefur farið á kostum í Þýskalandi  Horfir til Tókýó Ljósmynd/Lemgo Sigur Bjarki Már fagnar sigrinum gegn Erlangen á 2. í jólum en hann skoraði 14 mörk í leiknum í 14 tilraunum. Guðmundur Þórarinsson mun ekki ganga til liðs við búlgarska knatt- spyrnufélagið Levski Sofia. Búlgarski miðillinn Novsport greindi frá þessu í gær. Guðmundur hefur verið sterklega orðaður við búlgarska 1. deildar- félagið að undanförnu, en hann er án félags eftir að samningur hans við sænska úrvalsdeildarfélagið Norrköping rann út á dögunum. Hólmar Örn Eyjólfsson leikur með Levski Sofia en Guðmundur hefur einnig verið orðaður við Heerenveen og Djurgården. Guðmundur fer ekki til Búlgaríu Ljósmynd/Norrköping Samningslaus Guðmundur Þór- arinsson er án félags. Eva Björk Davíðsdóttir, landsliðs- kona í handknattleik, er í toppbar- áttunni í efstu deildinni í Svíþjóð með liði sínu Skuru. Í gær vann lið- ið stórsigur á Skövde á heimavelli, 35:25. Eva, sem er leikstjórnandi, skoraði 2 mörk fyrir Skuru í leikn- um en að loknum fyrri hálfleik var staðan 19:11. Skuru er í 2. sæti deildarinnar með 19 stig eins og Sävehof sem er í 3. sæti. Höör er í efsta sæti með 22 stig en Skuru á hins vegar leik til góða. Skuru hefur aðeins tapað ein- um leik af fyrstu ellefu. Sigurgangan heldur áfram Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Svíþjóð Eva Björk Davíðsdóttir og samherjar eru til alls líklegar. Knattspyrnumað- urinn Emil Páls- son hefur gert nýjan samning við norska liðið Sand- efjord, sem leikur í úrvalsdeildinni á næsta keppnis- tímabili. Emil staðfesti við mbl.is í gær að hann yrði áfram hjá félaginu, en hann var með lausan samning í lok síðasta árs. Hefur hann verið hjá Sandefjord síðan 2018. Sandefjord hafnaði í 2. sæti í b- deildinni á síðasta tímabili en Emil sneri aftur á völlinn síðasta haust eft- ir að hafa slitið hásin í desember 2018. Lék hann sjö leikir með liðinu undir lok tímabilsins. Viðar Ari Jóns- son leikur einnig með Sandefjord, en þrjú Íslendingalið fóru upp í efstu deild að þessu sinni. Ásamt Sandefjord voru það Ála- sund með Hólmbert Aron Frið- jónsson, Daníel Leó Grétarsson og Davíð Kristján Ólafsson innanborðs og Start með Aron Sigurðarson undir stjórn Jóhannesar Harðarsonar. Ar- on hefur nú róið á önnur mið en Guð- mundur Andri Tryggvason mun hins vegar að öllum líkindum koma við sögu hjá Start, eins og fram kom í viðtali við Jóhannes hér í blaðinu á dögunum. Emil Páls samdi við Sandefjord Emil Pálsson Stefnt er að því að leikur Íslands og Rúmeníu í umspili fyrir EM karla í knattspyrnu fari fram á Laugardalsvelli, en leikurinn verð- ur spilaður 26. mars næstkomandi. Netmiðillinn Fótbolti.net greindi frá því í gær að KSÍ hefði skilað inn þeirri áætlun sinni til Knatt- spyrnusambands Evrópu, UEFA. Þar er jafnframt haft eftir Klöru Bjartmarz, framkvæmdastjóra KSÍ, að ekki hafi verið skilað inn hug- mynd að leikvangi til vara, verði Laugardalsvöllurinn ekki leikfær í lok mars, þar sem KSÍ ætlar sér að spila leikinn á Laugardalsvelli. Mikill kostnaður mun fylgja því fyrir KSÍ að halda Laugardalsvelli við fyrir umspilsleikinn við Rúmena og vill Knattspyrnusambandið fá hjálp frá Reykjavíkurborg við kostnaðinn. „Stjórn leggur áherslu á að rætt verði við eigendur vallar- ins um kostnaðarhlutdeild,“ segir í fundargerð frá síðasta stjórn- arfundi KSÍ. Stefna á að spila leikinn mikilvæga í Laugardalnum Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Vígi Laugardalsvöllur hefur reynst íslenska landsliðinu afar mikilvægur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.