Morgunblaðið - 03.01.2020, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 03.01.2020, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. JANÚAR 2020 Hamraborg 10, Kópavogi Sími: 554 3200 Opið: Virka daga 9.30–18 VERIÐ VELKOMIN Í SJÓNMÆLINGU ——— Á vef Samtaka fyrirtækja ísjávarútvegi er að finna áhugaverða samantekt á þróun eiginfjár fyrirtækja í sjávarútvegi og annarra fyrirtækja. Í saman- tektinni er horft aftur til ársins 2002 og þá fæst sú niðurstaða að eigið fé í sjávarútvegi hafi nær þre- faldast, úr 128 milljörðum króna það ár í 341 milljarð árið 2018.    Þegar þessi þróun er borin sam-an við þróunina hjá öðrum fyrirtækjum bendir SFS á að aukn- ingin þar hafi verið mun meiri en í sjávarútvegi, eða sexföld.    Þó að deila megi um þennansamanburð eins og annan og um það hvort að eigið fé sé rétti mælikvarðinn er þessi saman- burður vissulega áhugaverður, ekki síst í ljósi söngsins sem heyrist oft um að sjávarútvegurinn eigi ekki aðeins að búa við skattlagn- ingu umfram aðrar greinar, svo- kölluð veiðigjöld, heldur einnig að þessir skattar þurfi að hækka.    Sú ályktun sem draga má afsamanburði á þróun eigin fjár í sjávarútvegi og í öðrum greinum er alls ekki að ástæða sé til að hækka veiðigjöld. Þvert á móti styður þessi samanburður þá skoðun að veiðigjöldin eigi annaðhvort alls ekki rétt á sér eða séu of há.    Þegar við bætist að sjávar-útvegur erlendis, sem keppir við íslenskan sjávarútveg, er ríkis- styrktur sést enn betur hve óeðlileg þessi sérstaka skattlagning er og hversu fjarstæðukennd krafan er um að auka hana enn frekar. Vísbending um veiðigjöld STAKSTEINAR Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Árni Benediktsson, fyrrverandi fram- kvæmdastjóri, lést 28. desember, á 91. aldursári. Hann var fæddur á Hofteigi á Jökuldal 30. desem- ber 1928, sonur Benedikts Gíslasonar, bónda og rithöfundar, og Geirþrúðar Bjarnadóttur, og ólst þar upp fram undir fermingu. Árni lauk verslunarprófi frá Samvinnuskólanum 1949 sem þá var enn til húsa í aðalstöðvum Sam- bands íslenskra samvinnufélaga (SÍS) við Sölvhólsgötuna í Reykjavík. Hann starfaði við sjávarútveg í hálfan fimmta ára- tug, lengst af sem framkvæmda- stjóri í fyrirtækjum tengdum Sambandi íslenskra samvinnu- félaga. Hann starfaði fyrst hjá Landsmiðjunni, Hraðfrystistöð- inni hf. á Sauðárkróki og Meitl- inum hf. í Þorlákshöfn, en var síðan framkvæmdastjóri Kirkju- sands hf. 1963-1977 og Fram- leiðni sf. 1977-1985. Árni var formaður Félags Sambandsfiskframleiðenda 1968-1985 og síðan fram- kvæmdastóri félagsins í nokkur ár. Árni var um skeið varaformaður stjórnar Fiskveiða- sjóðs, í stjórn Fiskifélags Ís- lands, Verðjöfn- unarsjóðs fiskiðn- aðarins, Vinnumála- sambands sam- vinnufélaganna og Útgerðarfélags samvinnumanna. Hann flutti erindi og fyrirlestra og skrifaði fjölda blaðagreina um sjávarútvegs- og efnahagsmál, en einnig um íslensk fræði. Á níræðisafmælinu fyrir ári sagði Árni í samtali við Morgunblaðið að tími sinn færi að mestu í lestur og skriftir. „Ég les mikið um erlend stjórn- mál og íslenskar ævisögur. Svo skrifa ég svona eitt og annað sem flest fer í ruslakörfuna. En það gerir ekkert til. Ég hef gaman af þessu og það er gott að skrifa á tölvuna.“ Eftirlifandi eiginkona Árna er Björg Dúfa Bogadóttir, f. 1929. Börn þeirra eru Margrét, f. 1952, Björg, f. 1957 og Bene- dikt, f. 1966, auk barnabarna og barnabarnabarna. Andlát Árni Benediktsson Bókaútgefendur hafa væntingar um að bóksalan í nóvember og desember hafi verið svipuð og á sama tíma 2018. Engar tölur liggja þó fyrir að sögn Heiðars Inga Svanssonar, for- manns Félags íslenskra bókaútgef- enda. Verslanir gera upp við forlögin í lok þessa mánaðar og skýrist þá hvernig salan var en tölur Hagstof- unnar um bóksöluna í fyrra koma ekki fyrr en í sumar. Heiðar Ingi segir að tilfinning bókaútgefenda sé að salan á prent- uðum bókum hafi dreifst á fleiri titla en áður, en það gæti þýtt að veltan yrði minni. Almennt séu útgefendur ánægðir með jákvætt andrúmsloft í þjóðfélaginu gagnvart bókum. Jóla- bækurnar hafi fengið mikla umfjöll- un í fjölmiðlum og góð aðsókn verið að upplestrum rithöfunda. Auking hafi orðið á netsölu og hljóðbókasölu en tölur um það eru enn ekki fyrir hendi. Bókartitlum fjölgaði í fyrra frá 2018 og hafa aldrei fleiri skáldverk verið gefin út og sama er að segja um fjölda nýrra höfunda. Gífurleg fjölg- un nýrra bóka fyrir börn og unglinga vakti einnig athygli en alls voru 107 ný skáldverk gefin út fyrir þennan aldurshóp en voru 73 árið á undan. Er það nærri helmingsaukning. Bóksala líklega dreifst á fleiri titla  Vísbendingar um að sala prentaðra bóka hafi verið svipuð og í fyrra Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Bóksala Líklega svipuð um jólin og árið 2018 sem þótti gott ár.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.