Morgunblaðið - 03.01.2020, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 03.01.2020, Blaðsíða 25
MINNINGAR 25 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. JANÚAR 2020 ✝ Kamma Andr-ésdóttir (áður Kamma Rasmus- sen) fæddist á Ströndum, Austur- ey í Færeyjum, 19. október 1936. Hún lést á Landspítalan- um í Fossvogi 18. desember 2019. Foreldrar Kömmu voru Andreas Fre- derik Rasmussen, f. 1. september 1910, d. 20. janúar 1991, skipasmiður og skipstjóri, og Johanna Davina Rasmussen (f. Olsen), f. 17. september 1912, d. 1970, húsmóðir og verslunar- kona. Foreldrar Andreasar voru Andreas og Fredrika Rasmus- sen búsett á Ströndum, Fær- eyjum. Foreldrar Davinu voru Sámal og Johanna Olsen, búsett á Tóftum, Færeyjum. Kamma fæddist á Ströndum í Færeyjum og ólst þar upp. Á unglingsárum starfaði hún við verslun foreldra sinna samhliða skólagöngu en hún lauk prófi frá Verslunarskólanum í Þórs- höfn 1956. Kamma fluttist til Neskaupstaðar árið 1957 þar sem hún kynntist eftirlifandi eiginmanni sínum, Lindberg ey, f. 2019; d) Sóley, f. 1993, dóttir hennar er Erla Dís, f. 2015; 3) Andri, f. 28. júní 1961, börn hans eru a) Andrea Eik, f. 1990, börn hennar eru Evelyn Auður, f. 2012 og Rökkvi Björn, f. 2018 og b) Elías Andri, f. 1992; 4) Sigríður, f. 15. október 1963, gift Birni Kristjánssyni, börn þeirra eru a) Kristján Lindberg, f. 1984 og b) Anna Karen, f. 1989, í sambúð með Thomas Westergaard Duus, synir þeirra eru Vilas Björn, f. 2016 og Valde Björn, f. 2017; 5) Þorsteinn Norðfjörð, f. 2. júlí 1968, giftur Fabiola Castillo, sonur Þor- steins er a) Lindberg Norðfjörð, f. 2000 og synir Fabiolu eru b) Aaron, f. 2004 og c) Isaac, f. 2006; 6) Friðrik, f. 2. maí 1978, giftur Mirasol Suarez Lind- bergsson og börn þeirra eru a) Kiane Charles, f. 2006 og b) Emmarie, f. 2010. Systkini Kömmu voru fjögur: 1) John Juul Rasmussen, f. 4. apríl 1934, d. í júlí 2018, kvænt- ur Margit Rasmussen; 2) Sámal Andreas Rasmussen, f. 24. febr- úar 1938, d. 13. nóvember 2014, kvæntur Bergþóru Ásgeirs- dóttur; 3) Símun Edvin Rasm- ussen, f. 20. september 1944, kvæntur Jovinu Rasmussen; 4) Jeffrey Rasmussen, f. 12. apríl 1952, kvæntur Káru Rasmussen. Útför Kömmu fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju í dag, 3. janúar 2020, og hefst klukkan 13. Norðfjörð Þor- steinssyni skipa- smið, f. 15. ágúst 1936. Kamma og Lind- berg giftust 16. febrúar 1959. Lind- berg var sonur Þor- steins Jónssonar, sjómanns frá Nes- kaupstað, og Sig- ríðar Elíasdóttur húsmóður, ættuð úr Mjóafirði. Börn Kömmu og Lindbergs eru 1) Steinunn, f. 10. desember 1958, sonur hennar er Elvar Atli Ævarsson, f. 1980, giftur Rut Guðnadóttur, börn þeirra eru Frosti, f. 2010 og Svala, f. 2017; 2) Jóhanna, f. 26. maí 1960, gift Gísla Hirti Guð- jónssyni, börn þeirra eru a) Berglind Norðfjörð, f. 1978, gift Ingólfi Þór Hlynssyni, börn þeirra eru Hildur Jóhanna, f. 2000, Helena Dís, f. 2006 og Hlynur Þór, f. 2010; b) Guðjón Anton, f. 1983, í sambúð með Ás- dísi Hauksdóttur, synir þeirra eru Gísli Hjörtur, f. 2015 og Birkir Hrafn, f. 2019; c) Kamma Dögg, f. 1986, gift Georg Rúnari Ragnarssyni, dætur þeirra eru Hrafntinna, f. 2013 og Eva Mó- Í dag kveð ég hana ömmu mína í hinsta sinn með mikinn söknuð í hjarta. Þrátt fyrir stutt veikindi átti ég ekki von á því að þurfa að kveðja hana strax. Ég er þakklát fyrir þær fjölmörgu minningar sem ég á um hana, þakklát fyrir allar okkar stundir, þakklát fyrir allt sem hún gaf mér og þakklát fyrir að hafa haft hana sem fyr- irmynd. Ég naut þeirra forréttinda að eiga unga mömmu þannig að fyrstu ár lífs míns bjuggum við hjá ömmu og afa. Það tel ég hafa markað okkar einstaka samband, því amma og afi voru svo miklu meira en bara amma mín og afi og hafa þau bæði hafa haft mikið að segja í upp- eldi mínu, fyrir það verð ég þeim báðum ávallt þakklát. Börnin mín hafa einnig notið þeirra forréttinda að hafa kynnst langömmu sinni og átt með henni mörg ár, fyrir það eru bæði ég og þau þakklát og munum ævinlega búa að. Amma var fædd og uppalin í Færeyjum og ég hef ávallt verið stolt af því að hafa þann bak- grunn frá henni. Þær eru ófáar sögurnar sem hún sagði mér frá Færeyjum og fólkinu okkar þar. Ferðirnar með henni til Færeyja eru ómetanlegar. Sér- staklega minnist ég ferðarinnar árið 2004 þegar við fórum öll stórfjölskyldan á ættarmót á Ströndum og í Rúnavík. Á Ströndum urðum við auðvitað öll að mæta í messu, sem við gerðum, en þar sem íslenskan og færeyskan eiga mörg sam- eiginleg orð sem þýða þó hvert sinn hlutinn varð þetta ein eft- irminnilegasta kirkjuferð sem ég hef farið. Amma var nú ekk- ert sérstaklega kát með okkur systur þegar við grenjuðum úr hlátri yfir sögnum um fuglana, en gat þó hlegið að því síðar. Einnig minnist ég ævintýra- legrar ferðar okkar til Mexíkó. Við höfum oft rifjað upp og hlegið saman að ævintýrunum sem við lentum í á leið okkar þangað. Amma var alveg einstök, hún var mikill frumkvöðull og alltaf með einhver verkefni í gangi, hvort sem það var veitinga- rekstur, blómaverslun, fram- leiðslufyrirtæki eða stórveislur. Það var aldrei lognmolla í kringum hana ömmu og helst vildi hún alltaf hafa eitthvað fyrir stafni. Amma vildi þó ekki meina að þetta væri dugnaður eða frumkvöðulsstarf heldur var hún bara að draga björg í bú og búa sér til vinnu, eins og hún sagði sjálf ekki alls fyrir löngu þegar við ræddum saman um ævistarf hennar. Elsku afi, missir þinn er mik- ill og hugur minn er hjá þér. Þín Berglind. Mig langar til að minnast elskulegrar föðursystur minnar, Kömmu, með nokkrum orðum. Ein af mínum fyrstu æsku- minningum að heiman á Norð- firði er frá því að þær mág- konur, Kamma og mamma, stóðu baki brotnu yfir reyk- mettuðum eldavélarhellunum – skörulegar með skíðagleraugu – að steikja flatbrauð. Þær voru báðar athafnakonur í eðli sínu og þarna höfðu þær lagt saman krafta sína í lítið framleiðslufyr- irtæki sem gekk út á að selja flatbrauð í verslanir og skipin. Kamma var eina systir pabba en þau voru alls fimm systkinin: John, Kamma, pabbi minn skírður Sámal Andreas, Símun og Jeffrei. Öll héldu þau systk- inin góðu sambandi hvert við annað og aldrei man ég eftir því að þeim hafi orðið sundurorða. Eins og títt var um Færey- inga á þeim tíma komu Kamma og pabbi heim á Norðfjörð í lok 6. áratugarins stuttu á eftir for- eldrum sínum, Andreasi og Da- vínu. Síldarárin voru þá í algleym- ingi í bænum okkar, Neskaup- stað, og bæði settust systkinin þar að og eignuðust norðfirska maka þótt afi og amma flyttu aftur til Færeyja. Kamma frænka og pabbi voru um margt með líka skaphöfn og bæði voru þau rólynd og orðvör. Kamma skildi vel okkur sem yngri vorum, var áhugasöm um hagi okkar, fordómalaus og op- in fyrir hvers kyns nýjungum. Hún tók hverju því sem að höndum bar opnum huga, var alltaf hún sjálf og óhrædd við að fara ótroðnar slóðir. Hún var að mörgu leyti frumkvöðull í okkar litlu heimabyggð, hvort sem það var við rekstur fyrirtækja sinna eða til að afla sér þekkingar á því sem var efst á baugi hverju sinni. Kamma var alltaf færeysk í hjarta sínu þótt hún byggi stærstan hluta ævi sinnar á Ís- landi. Hún gætti þess að kynna okkur og halda í heiðri færeysk- ar hefðir, hún var virk í Fær- eyingafélaginu í Reykjavík, dansaði og útbjó færeyskar veislur eins og henni var einni lagið. Mér fannst Kamma frænka mín tignarleg og flott kona þegar hún var klædd í færeyska búninginn sinn og far- in að kveða með dansfélögum sínum. Kamma lá heldur aldrei á liði sínu um ábendingar og ráð varðandi færeyska menningu og tungu. Ég vissi alltaf að ég átti stuðning Kömmu frænku vísan þegar ég þurfti sem mest á því að halda sem ungur maður. Hún hvatti mig áfram og sagði mér að trúa á sjálfan mig hvað svo sem öðrum kynni að finnast. Ég upplifði Kömmu og Lind- berg sem samrýnd og samlynd hjón. Saman áttu þau orðið stóra og myndarlega fjölskyldu sem núna kveður ættmóður sína. Ég bið Guð að varðveita minningu Kömmu frænku minnar og þakka henni fyrir samfylgdina allt mitt líf. Við Kristján vottum Lindberg og fjölskyldunni allri okkar inni- legustu samúð. Davíð. Kamma Andrésdóttir ✝ JòhannesRagnarsson fæddist á Ísafirði 29. september 1929. Hann lést á sjúkrahúsinu á Hvammstanga 16. desember 2019. Foreldrar hans voru Guðrún Arn- björg Hjaltadóttir, húsfreyja og mat- ráðskona, og Ragnar Benediktsson Bjarna- son skipstjóri. Jóhannes ólst upp á Ísafirði og á Sæbóli á Ingjaldssandi við Önund- arfjörð. Systkini Jóhannesar eru Hjalti, f. 1925, d. 2007, Jóhann Pétur, f. 1926, Ragna Guðrún, f. 1928, Þórunn Maggý, f. 1933, Ævar Stefán, f. 1936, og Karen, f. 1937, d. 2013. Árið 1962 kvæntist Jóhann- es Sigurlaugu Steinunni Guð- mundsdóttur frá Nýpukoti í Víði- dal, f. 1942, d. 2011, og bjuggu þau alla sína bú- skapartíð á Jörfa í Víðidal. Synir þeirra eru Hjalti, f. 1961, Guðmundur Hrafn, f. 1963, og Ægir, f. 1967. Útför Jòhannesar fer fram frá Víðidalstungukirkju í dag, 3. janúar 2020, klukkan 14. Við fráfall Jóa á Jörfa er margs að minnast. Andlátið var öllum mjög óvænt því að hann hafði verið nokkuð heilsugóður þótt væri nýorðinn níræður nú í haust. En Jói var drífandi í öllu sem og varð nú. Hann var Vestfirðingur að ætt og fæddist á Ísafirði 1929 og var skírður því langa nafni, Guðni Jóhannes Hjaltason og var Ragnarsson, en var auk þess Bjarnarrson sem var ættarnafn en aldrei notað. Á þeim árum tíðkaðist ekki að börn væru að þvælast um án þess að gera neitt og fór hann því fljótlega að fást við léttari störf. Níu ára gamall fór hann til dvalar í sveit að Sæbóli á Ingjaldssandi og var þar í sex ár. Þaðan fór hann á línubát frá Ísafirði og ætlaði að verða sjó- maður. Lenti þar í aftakaveðri, tók fyrir borð og var nærri drukknaðar en bjargað upp rænulitlum. Varð hann þá ákveðinn í að hætta á sjónum og fór árið eftir í sveitavinnu norður í Vatnsdal í nokkur ár þaðan að Nípukoti og kynntist þar konuefninu Stein- unni Guðmundsdóttur sem nú er látin fyrir nokkrum árum. Sem dæmi um dugnað hans að annað árið sem hann var þar, þá var hart og gróðurlaust vor og hann heylaus og haglaust vegna snjóa, en kominn með um 100 ær. Greip hann það ráð að fara með allt féð á sauðburði fram á heiði á eyðibýlið Öxna- tungu, þar sem nægur gróður var sem kom undan snjónum. Var þar einn með féð á girðing- arlausu landi og rásaði víða, vinnutími því allt að 18 tímar án hvíldar á sólarhring, en allt fór vel. Slíkt var þá sjaldgæft orðið og í dag myndi enginn leggja á sig það harðræði en hætta frek- ar búskap, en það var Jóa síst í huga. Hann festi kaup á Jörfa 1958 sem þá var talinn meðal léleg- ustu jarða í Víðidal, illa húsuð og túnið bara 6 ha en af miklum dugnaði í ræktun og byggingum gerði hann hana að vildisjörð og stórbýli. Til að standa straum af kostnaði vann hann töluvert á vélum Búnaðarsambandsins og í sláturvinnu svo búskapur lenti mikið á konunni á meðan, sem var einstök kona og mikill dugn- aðarforkur. Jói hætti búskap rétt fyrir aldamótin en við tóku sonurinn Ægir og kona hans Stella Jór- unn. Jói byggði sér og konu sinni þá nýtt íbúðarhús á jörð- inni því að hann vildi dvelja sem lengst á jörðinni sem hann hafði lagt mest allt sitt líf í. Jói var lít- ið í félagsmálum, en var þó 8 ár í hreppsnefnd og lagði þar gott til mála. Langa grein má gera um ævi Jóa sem hér er ekki svigrúm til, en benda má áhugasömum á frásögn hans sjálfs í tímaritinu Húna 2012 sem heitir „Ég hef yfirleitt verið heppinn í lífinu“. Hann hafði ýmsar dulargáfur og var mjög berdreyminn. Þeg- ar heilsan fór að bila flutti hann í elliíbúð á Hvammstanga og síðar á sjúkrahúsið þar sem hann var til loka. Við hjónin þökkum Jóa fyrir einstaklega góða viðkynningu, samstarf og samvinnu mörg undanfarin ár. Þar var góður maður og hreinskiptinn í öllu. Jafnframt lýsum við yfir okk- ar dýpstu samúð og hryggð með sonum hans og tengdadætrum, öllum barnabörnum og barna- barnabörnum sem og öðrum ættingjum. Hlíf og Agnar. Látinn er Jóhannes Ragnars- son á Jörfa 90 ára að aldri. Jói eins og hann var jafnan kallaður kom frá Ísafirði í Vatnsdalinn 1949 þá ungur maður um tví- tugt. Í Vatnsdalnum dvaldi hann sem vinnumaður á fjórum bæjum. Það er á Eyjólfsstöðum, Ási, Grímstungu og Haukagili, á Haukagili var hann meira og minna í fimm ár. Áður en hann kom í Vatnsdalinn var hann til sjós á Ísafirði. En árin í Vatns- dalnum voru átta eða níu ár. Í Vatnsdalnum leið mér alltaf vel, sagði Jói. Hann var með af- brigðum duglegur og tók jafnan hraustlega til hendinni við öll verk. Hann var bóndi af lífi og sál og naut þess að vera innan um skepnur. Hann var algjör bindindismaður á áfengi og tób- ak. Á þessum árum og þá að- allega á Haukagili eignaðist hann ört stækkandi fjárstofn, og trúlega með góðri aðstoð Konráðs bónda á Haukagili. Hann sagði mér einhverntím- ann að þegar hann flutti úr Vatnsdalnum vestur í Víðidal hefði hann verið kominn með um 140 fjár. Hann heyjaði fyrir sitt fé fram á svokölluðum dal í landi Haukagils sem þá var úthagi en er núna orðið ræktað tún. Þarna sló hann með orfi og ljá og rak- aði saman með hrífu, því ekki var hægt að koma þar að vélum. Á vetrum hýsti hann fé sitt í gömlum torffjárhúsum sem voru á svokölluðu húsatúni. Þessi fjárhús voru mjög góð á þeirra tíma vísu og voru með bárujárnsþaki. Oft fór ég í fjár- húsin með Jóa að sinna sínu fénu. Og einnig sá hann um hirðinguna á fé Konráðs bónda. Tvo hesta átti hann sem hann fór með í göngur fyrir Haukagil ásamt hestum frá Haukagili. Hestar Jóa voru báðir rauðir. Jói var mjög barngóður og nut- um við systkinin þess að hann lék við okkur þegar tími gafst. Eitt rigningarsumarið í Vatns- dalnum, að ég held 1957, var bú- ið að slá mjög mikið á Haukagili og heyið búið að hrekjast og orðið úr sér sprottið, var Jói þá fluttur í Víðidalinn, en fenginn til að sæta. Byrjað var snemma morguns og endað um kvöld. Þegar þessu var lokið var farið í að telja sætin eftir daginn og reyndust þau vera 98 að tölu. Þar tók Jói hressilega til hend- inni eins og vanalega. Jói hóf búskap á Jörfa í Víðidal 1960 ásamt konu sinni Sigurlaugu Steinunni Guðmundsdóttur, en hún lést af slysförum 2011. Þeg- ar ég var 16 ára var ég sendur á dráttarvél vestur að Jörfa til að hjálpa við uppsteypu á fósi sem Jói var að byggja og var þar í tvo daga í þeirri vinnu. Á 90 ára afmæli Jóa 29. september sl. fór ég ásamt frænda mínum Egg- erti Haukssyni norður að Jörfa og tókum þar þátt í afmælis- veislu sem þar var haldin og færðum honum að gjöf ljós- mynd af Einvígisfossinum sem er í Álkugilinu. Mikið fannst okkur gaman að hitta þennan höfðingja og spjalla um árin hans í Vatns- dalnum. Þá fann ég það best hvað honum þótti vænt um Vatnsdalinn. Eggert dvaldi á sumrin á Haukagili á árunum hans Jóa þar. Eftir að Jói flutti í Víðidalinn kom hann oft í Vatnsdalinn sinn að heilsa upp á fólkið, aðallega Lárus í Grímstungu og Konráð á Haukagili. Ég votta aðstandendum hans innilega samúð. Sævar Örn Stefánsson frá Haukagili. Jóhannes Ragnarsson Elskulegur faðir minn, tengdafaðir, afi og langafi, KJARTAN BJARNI KRISTJÁNSSON Norðurbyggð 31, Akureyri, lést föstudaginn 20. desember. Útför hans verður frá Akureyrarkirkju mánudaginn 6. janúar kl. 13.30. Blóm og kransar vinsamlega afþökkuð en þeim sem vilja minnast hans er bent á Gjafasjóð Öldrunarheimila Akureyrar (Skógarhlíð). Sigríður Kjartansdóttir Kristján Þ. Halldórsson Kjartan B. Kristjánsson Erla Sara Svavarsdóttir Guðrún Kristjánsdóttir Auður Kristjánsdóttir Magnús Finnsson Ingunn Jóhanna Kristjánsd. Halldóra Laufey Kjartansdóttir Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla út- gáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/ sendagrein Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstu- degi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri greinar eru ein- göngu birtar á vefnum. Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem nánustu aðstandendur senda inn. Þar koma fram upplýsingar um hvar og hvenær sá sem fjallað er um fæddist, hvar og hvenær hann lést og loks hvaðan og klukkan hvað útförin fer fram. Þar mega einnig koma fram upplýsingar um foreldra, systkini, maka og börn. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í for- málanum, sem er feitletraður, en ekki í minningargreinunum. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.