Morgunblaðið - 03.01.2020, Blaðsíða 16
16 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. JANÚAR 2020
Útsala
40% afsláttur
af öllum litríka og fallega
fatnaðinum hjá okkur
Bæjarlind 2, Kópavogur, sími 866 4493.
Regnboginn verslun Regnboginn_verslun
Opið miðvikudaga frá 11-13 og öðrum tímum eftir samkomulagi
Afslátturinn reiknast frá í körfunni
Sjáið úrvalið í
netverslun okkar
regnboginnverslun.is
BAKSVIÐ
Þóroddur Bjarnason
tobj@mbl.is
Úra- og skartgripaversluninni Leon-
ard í Kringlunni verður lokað 12. jan-
úar, eftir 30 ára rekstur á sama stað.
Sævar Jónsson, stofnandi og eigandi
verslunarinnar, sem hefur alla tíð
lagt áherslu á vandaðar lúxusvörur
frá vörumerkjum eins og Gucci,
Calvin Klein og Breitling, segir að nú
sé komið að kaflaskilum. Verslunin
færi sig alfarið yfir á netið. „Nú er
flautað aftur, og nýr leikur hefst,“
segir Sævar í samtali við Morgun-
blaðið.
Sævar er þekktur fótboltamaður
og lék með Val hér á landi. Hann var
einnig atvinnumaður í Noregi, í Belg-
íu og í Sviss. Í síðasttalda landinu
kynntist hann fyrst framleiðslu á
lúxusúrum.
Sævar segir að ný netverslun á vef-
slóðinni leonard.is hafi verið sett upp í
lok nóvember sl. og hún hafi strax
fengið sterk viðbrögð, bæði frá inn-
lendum og erlendum viðskiptavinum.
„Við ætlum ekki að binda okkur þar
við sölu á skartgripum og úrum ein-
göngu, heldur að skoða einnig sölu á
innlendum snyrtivörum, eins og til
dæmis kremum. Allt sem er framleitt
á Íslandi er mjög vanmetið,“ segir
Sævar í samtali við Morgunblaðið.
Forsendur hafa breyst
Spurður um helstu ástæður fyrir
breytingunum segir Sævar að for-
sendur í rekstrinum séu nú orðnar
aðrar en þær voru. „Maður sér það á
ferðalögum erlendis og almennt í
uppgjörum síðustu ára að margt hef-
ur breyst. Fólk er farið að kaupa
þessar vörur mikið á netinu beint frá
útlöndum. Við höfum verið mikið í
merkjavöru, og stærri framleiðendur
eru farnir að opna sínar eigin versl-
anir. Það þýðir að framlegð okkar
hefur minnkað, og kostnaður aukist.
Áhugi framleiðenda á dreifingu til
verslana í minni löndum eins og Ís-
landi hefur líka minnkað mikið. Þeir
vilja frekar sleppa milliliðum, auk
þess sem þeir selja sjálfir mikið á
netinu. Það er ekkert gaman fyrir
mann að standa í einhverjum búð-
arleik ef maður hefur ekkert út úr
því,“ útskýrir Sævar.
Hann segir að erlendu vörumerkin
séu einnig farin að gera auknar kröf-
ur til endursöluaðila, sem valdi þeim
þá hærri kostnaði. „Þú þarft kannski
að eyða milljónum króna í að starf-
rækja verkstæði fyrir einhverja úra-
tegund.“
Hann segir að börnin hans fjögur
hafi einnig haft áhrif á þá þróun sem
nú er að eiga sér stað. „Börnin okkar
Helgu eiginkonu minnar hafa öll
komið að rekstrinum. Elsti sonurinn,
sem hefur meðal annars sinnt við-
gerðum fyrir okkur, er nú að flytja
til Akureyrar. Dæturnar þrjár eru í
skóla og í öðrum verkefnum. Þær
hafa alltaf unnið í búðinni samhliða
en maður finnur að áhuginn er ekki
sá sami og var. En þegar ég nefndi
þann möguleika að færa okkur yfir á
netið fann ég aftur neista hjá þeim
að taka þátt í rekstrinum,“ útskýrir
Sævar. „Þær eru mjög spenntar fyr-
ir því að breyta þessu svona.“
Opnuðu augu hans
Hann segir að börnin hafi líka opnað
augu hans fyrir því hvað unga kyn-
slóðin er að hugsa. „Ungt fólk kaupir
nær allt af netinu í dag. Þetta hefur
áhrif á mann. Ég er mjög bjartsýnn á
netverslunina okkar og hef fulla trú á
að hún eigi eftir að vaxa og dafna.
Þar munum við bjóða áfram flest þau
vörumerki sem eru í dag í búðinni.
Fólk þarf því ekki að örvænta þótt
verslunin hverfi á braut. Nú getur
það bara farið á netið og við sendum
vörurnar heim.“
Sævar og fjölskylda munu þó ekki
alfarið hætta hefðbundnum versl-
unarrekstri með lokun Leonard. Þau
reka einnig verslunina Galleria á
Hafnartorgi í Reykjavík. Þar er eink-
um lögð áhersla á sölu á fylgihlutum
og töskum. „Við verðum þar með
skartgripi einnig, en engin úr, nema
frá ítalska framleiðandanum Gucci.
Við viljum leggja áherslu á tísku, og
verðum líka með flott vörumerki eins
og Burberry.“
Sævar segir að andrúmsloftið á
Hafnartorgi sé mjög flott, og það
verði spennandi þegar hótel og íbúðir
sem eru í byggingu allt í kring verði
komin í fulla notkun. „Þetta svæði
verður svakalega skemmtilegt.“
En verður Sævar á bak við búðar-
borðið í Galleria á nýju ári, eða að
stýra tökkum í netversluninni? „Nei,
konan sér um það að mestu. Ég er
hins vegar með önnur verkefni á
prjónunum, aðallega í ferðaþjón-
ustu,“ segir Sævar, en vill ekki fara
meira út í það að sinni. Hann játar
því þó að um sé að ræða tækifæri í
svokallaðri lúxusferðamennsku.
Aukin verslun Kínverja
Sævar kveðst spenntur að sjá hver
þróunin verður í komu Kínverja
hingað til lands. „Ef þeir fara að
koma hingað í auknum mæli gæti
það orðið mikil innspýting fyrir
verslanir eins og þá sem við rekum.
Ef verð er sambærilegt við það sem
gerist og gengur erlendis, eins og er
hjá okkur, sýnir reynslan erlendis að
Kínverjar versla umtalsvert í svona
verslunum.“
Sævar hóf innflutning á úrum frá
Sviss árið 1991 og stofnaði Leonard í
kjölfarið. Síðan þá hefur mikið vatn
runnið til sjávar hér á landi hvað
lúxusvarning varðar. „Áður var erf-
itt að fá Íslendinga til að kaupa dýr
úr, og enginn vildi láta vörumerkið
sjást. Í Sviss hins vegar keyptu
menn frekar dýrt úr en að fá sér nýj-
an bíl eða sófa í stofuna. Ég man að
þegar ég var að byrja með verslun-
ina í Borgarkringlunni bað ég sér-
staklega um að fá enga gripi þar sem
Christian Dior-vörumerkið væri sjá-
anlegt. Þá myndi varan ekki seljast.
Nú er þetta algjörlega öfugt, og
vörumerkjavitund hefur tekið
stakkaskiptum. Þetta er ungu kyn-
slóðinni að þakka. Hún er öll í merkj-
unum.“
„Nýr leikur að hefjast“
Morgunblaðið/Eggert
Kaflaskil „Við bjóðum fólki núna að kaupa vörur á góðum afslætti til 12. janúar til að hjálpa okkur að losa búðina.“
Leonard lokað í Kringlunni eftir tæplega 30 ára rekstur Ný netverslun hef-
ur þegar fengið góðar viðtökur Börnin voru spennt fyrir framtíð á internetinu
Verslun
» Sævar Jónsson stofnaði
Leonard árið 1991.
» Hann kynntist lúxusúrum úti
í Sviss þar sem hann var eitt
sinn atvinnumaður í fótbolta.
» Fyrst vildi fólk ekki láta sjást
í dýr vörumerki eins og Christi-
an Dior. Nú er það breytt.
3. janúar 2020
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 120.81 121.39 121.1
Sterlingspund 159.03 159.81 159.42
Kanadadalur 92.67 93.21 92.94
Dönsk króna 18.129 18.235 18.182
Norsk króna 13.734 13.814 13.774
Sænsk króna 12.956 13.032 12.994
Svissn. franki 124.79 125.49 125.14
Japanskt jen 1.1122 1.1188 1.1155
SDR 167.25 168.25 167.75
Evra 135.45 136.21 135.83
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 165.9418
Hrávöruverð
Gull 1523.0 ($/únsa)
Ál 1799.5 ($/tonn) LME
Hráolía 66.65 ($/fatið) Brent
Danska tryggingafélagið Europæ-
iske ERV A/S tilkynnti ferðaskrif-
stofum í viðskiptum við félagið með
bréfi dagsettu 17. desember að
tryggingafélagið myndi ekki lengur
tryggja ferðir bókaðar með flug-
félaginu Norwegian gegn gjaldþroti.
„Þetta þýðir að bókanir gerðar hjá
Norwegian eftir 14. janúar 2020
munu ekki vera tryggðar ef tjón
verður vegna eða tengist því að Nor-
wegian á ekki fyrir skuldum,“ segir í
bréfinu frá Europæiske.
„Þetta er mjög skrýtið. Í átta
mánuði höfum við aukið tekjurnar,“
segir í svari Norwegian við fyrir-
spurn danska TV 2 vegna málsins.
Vissu ekki af málinu
Skarphéðinn Berg Steinarsson
ferðamálastjóri segir ferðamálastofu
ekki hafa vitað af málinu og að bréf
Europæiske komi á óvart. Þá sé um
að ræða viðbótartryggingu sem
ferðaskrifstofurnar kaupi umfram
opinbera tryggingu sem er skilyrði
fyrir rekstrarleyfi samkvæmt evr-
ópskum lögum. Spurður hvort
tryggingafélagið kunni að vera að
leggja mat á lausafjárstöðu Nor-
wegian svarar Skarphéðinn: „Mér
finnst þetta svolítið glannalegt að
stíga svona ákveðið fram. Norwegi-
an og önnur flugfélög sem eru í
rekstri uppfylla þær kröfur sem
opinberir aðilar gera til þeirra og
gildandi regluverk.“ gso@mbl.is
Tryggja
ekki gegn
gjaldþroti
Ótryggt Europæiske breytir skil-
málum vegna Norwegian.