Morgunblaðið - 03.01.2020, Blaðsíða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. JANÚAR 2020
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/
Lengi máfinna for-dæmi í
sögunni um
stjórnmálalega at-
burði, þótt hitt sé
rétt að hæpið sé að
setja þau eins og
ósjálfrátt í ljósritunarvélina.
Árásirnar á sendiráð
Bandaríkjanna í Bagdad í vik-
unni hrópa á fordæmin.
Bandarísk yfirvöld fullyrða
að valdhafarnir í Íran standi á
bak við árásirnar á sendiráð
þeirra í höfuðborginni og
birta sönnunargögn sem
renna stoðum undir þær stað-
hæfingar.
Það kallar strax á minni um
tvær ólíkar árásir á bandarísk
sendiráð. Báðar höfðu pólit-
ískar afleiðingar.
Sú síðari er nýleg enda frá
árinu 2012 og var á ræðis-
skrifstofu Bandaríkjanna í
Benghazi í Líbíu. Þar varð
mannfall og þar á meðal var
sendiherrann sjálfur.
Hin er mun eldri, eða frá
nóvember 1979 í Teheran í
Íran, þegar það var látið heita
að stúdentar hefðu ráðist á
bandaríska sendiráðið þar og
tekið 52 Bandaríkjamenn sem
gísla og héldu þeim í 444 daga
án þess að Bandaríkin fengju
að gert.
Demókratarnir Barack
Obama (jan. 2009-jan. 2017)
og Jimmy Carter (jan. 1977-
jan.1981) voru forsetar þá.
Í fyrra tilvikinu hafði upp-
reisn, sem breyttist í bylt-
ingu, undir forystu erki-
klerksins Ayatollah
Khomeini, hrakið keisara
Írans, Reza Pahlavi, frá völd-
um. Hann hafði leitað sér
lækninga við krabbameini í
Bandaríkjunum og heimtuðu
klerkar framsal hans.
(Keisarinn var skorinn upp af
íslenskum lækni í Bandaríkj-
unum, Birni Þorbjarnarsyni.)
Yfirtaka sendiráðsins þótti
niðurlæging fyrir Bandaríkin.
Her og leyniþjónusta stór-
veldisins skipulögðu aðgerðir
til að leysa sendimennina úr
haldi en þær mistókust herfi-
lega. Átta Bandaríkjamenn
fórust af slysförum í þeim að-
gerðum, en bjargvættir náðu
aldrei á áfangastað. Ekki varð
sú hrakför til að styrkja stöðu
Jimmy Carter forseta í bar-
áttu hans við andstæðinginn,
Ronald Reagan, sem sigraði
hann af öryggi.
Þegar Reagan hafði verið
forseti í fáeinar mínútur eftir
innsetningarathöfn hans í
embættið lét klerkastjórnin
loks gíslana lausa.
Var það óskabyrjun fyrir
Ronald Reagan. En andstæð-
ingarnir héldu því
auðvitað fram að
augljóst mætti
vera að hinn ný-
kjörni frambjóð-
andi hefði ber-
sýnilega verið
byrjaður að hafa
sig í frammi áður en hann tók
formlega við og slíkt væri
bannað. „Það var eins gott að
hann byrjaði,“ sögðu Banda-
ríkjamenn og þar með hófst
ástarsamband þeirra við
Reagan. Fjórum árum síðar
vann hann 49 af 50 ríkjum
Bandaríkjanna við endurkjör
og munaði aðeins tæplega
1.000 atkvæðum að hann ynni
það fimmtugasta líka, sem var
heimaríki andstæðings hans!
Hvað sem því leið stimplaði
nöldrið í demókrötum það
óviljandi inn að lausn gíslanna
væri Reagan að þakka!
Seinni árásin í þessari sögu
var í Bengazi í Líbíu. Hún átti
tengsl við „vorhreingerning-
arnar“ skaðlegu sem gerðar
voru í nokkrum löndum „fyrir
botni Miðjarðarhafs,“ sem
þeir Cameron, Sarkozy og
Obama stóðu fyrir í Líbíu,
Túnis, Sýrlandi og að nokkru í
Egyptalandi, sem var þó
fremur pólitísk en hernaðar-
leg, þegar Obama ákvað að
svíkja Mubarak forseta, sem
hafði hugrakkur lengi átt
samstarf við Bandaríkamenn
og bandamenn þeirra, eins og
Sadat fyrirrennari hans, sem
galt fyrir þá einurð með lífi
sínu. En Obama kaus að ýta
undir Bræðralag múslíma, svo
sérkennilegt sem það var.
Hillary Clinton var utan-
ríkisráðherra þegar árásin í
Bengazi var gerð og í baráttu
hennar og Trumps gerðu
repúblikanar harða hríð að
henni fyrir „ámælisverða
framgöngu hennar“ í aðdrag-
anda árásar á ræðisskrifstof-
una og dráp sendiherrans.
Ekki er ósennilegt að öll sú
saga hafi haft áhrif á það
hversu hratt Trump lét her
sinn bregðast við árásunum á
sendiráðið í Bagdad nú. Sam-
stundis var liðstyrkur sér-
sveita sendur til sendiráðsins
skreyttur hefðbundnum hót-
unum um stórfelldar hefndar-
aðgerðir sem fylgja myndu ef
árásarmenn létu sér ekki
segjast.
Þótt sagan sé ekki gripin
glóðvolg út úr ljósritunarvél-
unum má augljóst vera að hún
leikur stórt hlutverk í þeim
háskaleik sem er settur á
stóra sviðið á þessum heitasta
bletti jarðarkringlunnar ein-
mitt núna.
Svo er bara að vona það
besta.
Átökin um sendiráð
Bandaríkjanna
í Bagdad kalla
fram margvísleg
sögubrot}
Átök með ættarmót
Í
upphafi nýs árs er við hæfi að meta árið
sem nú er liðið og horfa til þess hvern-
ig nýja árið lítur út. Árið 2019 var við-
burðaríkt og full ástæða er til að horfa
björtum augum á árið 2020.
Ísland er á réttri leið og við getum verið full
tilhlökkunar gagnvart þeim krefjandi verk-
efnum sem bíða og nýjum tækifærum til að
gera enn betur.
Ríkissjóður hefur aldrei staðið styrkari fót-
um og vextir hafa lækkað þrátt fyrir samdrátt-
arskeið. Í gegnum þau efnahagslegu áföll, sér-
staklega í ferðaþjónustu, sem urðu á árinu sem
nú er liðið, hefur verðbólga haldist stöðug og
gengið lítið lækkað. Sá grunnur er forsenda
þess að hægt sé að vinna áfram að betri lífs-
kjörum allra landsmanna.
Útlitið í efnahagsmálum í upphafi síðasta árs
var ekki bjart. Stærsta úrlausnarefnið voru
kjarasamningar á almennum vinnumarkaði. Með sam-
stilltu átaki og vegna þeirra skynsamlegu ákvarðana sem
teknar voru tókst okkur að afstýra óstöðugleika og bæta
lífskjör almennings, einkum hinna lægst launuðu, skapa
forsendur fyrir aukinn kaupmátt, lægri vexti og stöðug-
leika í verðlagsmálum til hagsbóta fyrir alla.
Ríkisstjórnin kom með myndarlegum hætti að lausn
kjaradeilunnar og mun áfram stuðla að aukinni velsæld
hér á landi. Við höfum lækkað tekjuskatt, lengt fæðing-
arorlof, aukið barnabætur og stuðning við ungt fólk í hús-
næðiskaupum. Allt eru þetta brýn verkefni sem einkum
gagnast ungu fólki og hinum tekjulægri. Ég er
stolt af því að eiga sæti í ríkisstjórn sem berst
fyrir bættum lífskjörum almennings með svo
afgerandi hætti.
Máttur samstöðu og gagnkvæms skilnings
er mikill og árangursríkur. Það mun ég hafa að
leiðarljósi í störfum mínum í dómsmálaráðu-
neytinu á komandi ári. Þar bíða brýn verkefni
á borð við málefni fanga, útlendinga og lög-
reglu, svo fátt eitt sé nefnt. Sú bjargfasta trú
mín að mikilvægt sé að einfalda regluverk öll-
um til hægðarauka verður leiðarljós mitt á
nýju ári – meðal annars í breytingum á lögum
um áfengissölu, breytingum á lögum um
mannanafnanefnd og bættri þjónustu við al-
menning.
Sannindin um þýðingu samstöðu og sam-
heldni þjóðarinnar birtist með óvæntum hætti
þegar gífurlegt óveður gekk yfir landið í byrj-
un desember. Þar urðum við vitni að því að þúsundir sjálf-
boðaliða eru reiðubúnir til að hætta lífi sínu til stuðnings
og hjálpar meðborgurum sínum. Allar aðgerðir stjórn-
málamanna blikna í samanburði. Þarna sýndu Íslendingar
sínar bestu hliðar. Í þeim anda, umhyggju fyrir náung-
anum, sem er svo stór þáttur í samfélagi okkar, skulum við
byggja framtíðina. Fyrir þessa dýrmætu auðlind ber að
þakka, ekki eingöngu um áramót heldur allan ársins hring.
Áslaug Arna
Sigurbjörns-
dóttir
Pistill
Á tímamótum – og allan ársins hring
Höfundur er dómsmálaráðherra.
aslaugs@althingi.is
STOFNAÐ 1913
Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík.
Ritstjóri:
Davíð Oddsson
Aðstoðarritstjóri:
Karl Blöndal
Ritstjóri og framkvæmdastjóri:
Haraldur Johannessen
BAKSVIÐ
Ágúst Ásgeirsson
agas@mbl.is
Lestarverkföllin í Frakk-landi höfðu staðið yfir í 29daga í gær og hefur sam-göngukerfi landsins ekki
verið lamað jafn lengi frá í maí 1968.
Aðgerðirnar beinast gegn áformum
ríkisstjórnar Emmanuels Macrons
um uppstokkun lífeyriskerfis lands-
manna og fækkun þeirra úr 42 í eitt
kerfi. Ýmis launþegasamtök önnur
en lestarmanna hafa tekið þátt í að-
gerðunum einn og einn dag.
Í nýársávarpi sínu til þjóðar-
innar sl. þriðjudag sagði Macron
breytingarnar nauðsynlegar til að
lífeyriskerfið yrði sanngjarnara.
„Það yrði sviksemi við börnin okkar
og börn sem síðar fæðast að gefast
upp. Þau myndu þurfa að gjalda
þess,“ sagði Macron.
Í úttekt sem forsætisráð-
herrann Edouard Philippe birti í
nóvember sl. var það niðurstaðan að
með óbreyttu lífeyriskerfi yrði upp-
safnaður halli á því 17,2 milljarðar
evra þegar árið 2025 gengi í garð.
Stéttarfélögin halda mörg hver
því fram að staða launþega verði
verri með nýja kerfinu, sérstaklega
þó staða opinberra starfsmanna.
Í viðræðum deiluaðila til þessa
hefur lítt miðað enda stál í stál.
Krefst CGT, stéttarfélag starfs-
manna frönsku ríkisjárnbrautanna
(SNCF) og jarðlestakerfis Parísar
(RATP), þess að frumvarpi um
breytingar á kerfinu verði í heild
sinni kippt til baka. Að óbreyttu
verður ekki efnt til nýs samninga-
fundar fyrr en 7. janúar.
Leiðtogar hins róttæka stéttar-
félags CGT hvöttu alla launþega
landsins til að sameinast í andstöðu
gegn áformum Macrons og taka þátt
í verkföllunum sem lamað hafa opin-
bera samgöngukerfið á Parísar-
svæðinu á annan mánuð. Í ávarpi
sínu hét Macron því að gefa ekkert
eftir með kerfisbreytingunni sem
leiða myndi til þess að launþegar
yrðu að vinna lengur. Segir ríkis-
stjórnin breytingar sem myndu gera
lífeyriskerfið sjálfbærara nauðsyn-
legar. Helsti foringi CGT, Philippe
Martinez, brást við ávarpi Macrons
með því að hvetja til verkfalla „alls
staðar“ frá og með næsta mánudegi,
bæði meðal „opinberra starfsmanna
sem starfsmanna einkafyrirtækja“.
„Við verðum að senda hinum
sjálfumglaða forseta, sem heldur að
allt gangi vel í landinu, kröftugri við-
brögð. Við hvetjum alla Frakka til
að svara kalli, sækja útifundi og
mótmælagöngur og fara í verkfall,“
bætti Martinez við.
Lestaverkföllin hafa raskað
mjög daglegu lífi milljóna manna
sem ferðast með lestum daglega til
og frá vinnu. Þá komust þúsundir
hvergi um jólin vegna aðgerðanna. Í
gær höfðu aðgerðirnar staðið í 29
daga og ekkert útlit er fyrir að þeim
linni í bráð. Fram að þessari deilu
var lengsta járnbrautarverkfall 28
dagar í desember 1986 og janúar
1987.
Stéttarfélögin hafa blásið til
fjöldamótmæla og eins dags alls-
herjarverkfalls í landinu eftir viku,
9. janúar. Búist er við að þá fái
starfsfólk í opinbera samgöngu-
geiranum liðsauka frá samtökum
kennara, hafnarverkamanna, starfs-
fólki sjúkrahúsa og fleiri samtökum
opinberra starfsmanna. Starfsmenn
í orkugeiranum hafa hvatt til
þriggja daga umsáturs um olíu-
hreinsistöðvar og eldsneytis-
birgðastöðvar frá og með 7. janúar
og gæti af þeim sökum komið til
bensínskorts.
Það hefur vakið eftirtekt fjöl-
miðla og almennings að þátttaka
starfsfólks hefur dvínað jafnt og
þétt í verkföllunum. Vantaði til að
mynda aðeins 7,7% starfsmanna
SNCF-lestarfélagsins til vinnu á ný-
ársdag, sem er langt undir þátttök-
unni fyrstu daga aðgerðanna, sem
hófust 5. desember sl. Harðastir
starfsmanna SNCF hafa lestar-
stjórar verið en ekki hefur þurft
mikla fjarveru þeirra til að lama
lestarkerfið í heild. Athygli hefur og
vakið að verkföllin hafa að óveru-
legu eða svo til engu leyti raskað
daglegu lífi utan Parísarsvæðisins.
Samkvæmt skoðanakönnun sem birt
var á jóladag studdi naumur meiri-
hluti ennþá verkfallsaðgerðirnar.
Sættir ekki í augsýn
í frönsku metverkfalli
AFP
Aðgerðir Óeirðalögregla franska innanríkisráðuneytisins króaði í gær
af verkfallsmenn í frönsku höfuðborginni og batt enda á aðgerðir þeirra.
0 5 10 15 20 25 30
Lengstu samhangandi verkföll
sem hafa haft áhrif á samgöngur
(síðan 1985)
28
22
17
15
29 dagar
Verkföll í Frakklandi
Heimild: AFP
Október 2010
Des. 2019 - jan. 2020
Apríl 2010
Nóv. - des. 1995
Des.1986 - jan. 1987