Morgunblaðið - 08.01.2020, Side 27
ÍÞRÓTTIR 27
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. JANÚAR 2020
Lois Abbingh, ein besta handknatt-
leikskona heims, hefur samið við
danska félagið Odense um að leika
með því frá og með næsta tímabili.
Abbingh leikur nú með Rostov-Don í
Rússlandi en þangað kom hún sumarið
2018. Abbingh varð heimsmeistari
með Hollandi í síðasta mánuði og varð
markadrottning heimsmeistaramóts-
ins með 71 mark.
Enska knattspyrnufélagið Aston
Villa fékk í gær miðjumanninn Danny
Drinkwater lánaðan frá Chelsea út
þetta keppnistímabil. Drinkwater var í
láni hjá Burnley fyrri hluta tímabilsins
en kom lítið við sögu. Chelsea keypti
hann af Leicester fyrir 35 milljónir
punda haustið 2017 en Drinkwater,
sem er 29 ára gamall, hefur aðeins
spilað tólf úrvalsdeildarleiki með Lund-
únaliðinu.
Moussa Sissoko, miðjumaður
enska knattspyrnuliðsins Tottenham,
gekkst undir uppskurð á hné í gær og
verður frá keppni næstu þrjá mán-
uðina. Sissoko, sem leikur sitt fjórða
tímabil með Tottenham og hefur spilað
25 mótsleiki í vetur, meiddist í leik liðs-
ins gegn Southampton á nýársdag.
Nicolaj Jacobsen, þjálfari danska
karlalandsliðsins í handknattleik, sagði
í gær að nær engar líkur væru á því að
hornamaðurinn reyndi Lasse Svan yrði
leikfær í fyrsta leiknum á EM þegar
Danmörk mætir Íslandi í Malmö á laug-
ardaginn. Hinn 36 ára gamli Svan glím-
ir við meiðsli en Jacobsen vonast til að
geta notað hann fljótlega eftir Íslands-
leikinn.
Landsliðsþjálfararnir Vladimir Ko-
lek og Miloslav Racansky hafa valið
hóp íslenska U20 ára landsliðsins í ís-
hokkíi karla sem tekur þátt í 3. deild
heimsmeistaramótsins í Búlgaríu dag-
ana 13. til 19. janúar. Hópurinn er
þannig skipaður: Markverðir: Jóhann
Björgvin Ragnarsson og Helgi Þór Ív-
arsson. Varnarmenn: Vignir Arason,
Halldór Ingi Skúlason, Róbert Máni
Hafberg, Markus Máni Ólafarson,
Gunnar Aðalgeir Arason og Atli Þór
Sveinsson. Sóknarmenn: Heiðar Örn
Kristveigarson, Sölvi Freyr Atlason,
Axel Snær Orongan, Styrmir Steinn
Maack, Einar Kristján Grant, Thorgils
Eggertsson, Unnar Hafberg Rún-
arsson, Kári Arnarsson, Hákon Mar-
teinn Magnússon, Kristján Árnason,
Bjartur Geir Gunnarsson og Heiðar
Gauti Jóhannsson. Ísland er í riðli með
Búlgaríu, Mexíkó og Nýja-Sjálandi en
átta lið taka þátt í keppninni.
Slóveninn ungi Luka Doncic náði
þrefaldri tvennu annan leikinn í röð
þegar Dallas Mavericks lagði Chicago
Bulls, 118:110, í NBA-deildinni í körfu-
knattleik í fyrrinótt. Þetta var samtals
ellefta þrefalda tvennan
hjá Doncic í vetur en
hann skoraði 38 stig,
tók 11 fráköst og
átti 10 stoðsend-
ingar í leiknum. Í
níu af þessum ellefu
skiptum hefur Doncic
skorað 30 stig eða
meira. Hann er þriðji
stigahæsti leik-
maður deildarinnar
með 29,7 stig að
meðalatali í leik.
Annar ungur
Evrópubúi, Lauri
Markkanen frá
Finnlandi, var
stigahæstur hjá
Chicago í leiknum
með 26 stig.
Eitt
ogannað
mjög lélegur í öxl þegar hann lék
síðast með landsliðinu en hefur náð
bata á síðustu árum sem ef til mætti
kalla undraverðan í ljósi þess hversu
mikið álag er í Þýskalandi. Alexand-
er styrkir vörnina sérstaklega og er
frábær í því að ganga út á móti
skyttunni. Með honum er nýliði á
stórmóti en það er Viggó sem hefur
stimplað sig hratt og örugglega inn í
þýsku bundesliguna í vetur. Viggó
og Alexander eru ólíkir leikmenn og
Viggó kemur með aðra vídd inn í
sóknarleikinn.
Selfyssingar á miðjunni
Á miðjunni eru sveitungarnir Elv-
ar Örn, Janus Daði og Haukur en
allir koma þeir frá handboltabænum
Selfossi. Elvar tognaði á ökkla gegn
Þjóðverjum á dögunum. Ekki teljast
það vera alvarleg meiðsli til lengri
tíma litið en þurfa yfirleitt tvær vik-
ur til að ganga yfir. Elvar er örugg-
lega allur af vilja gerður til að hefja
leik á EM en spurning hvernig
hreyfigetan verður í ökklanum.
Haukur fékk eldskírnina á HM í
fyrra vegna meiðsla í íslenska hópn-
um en öllum er ljóst að Haukur get-
ur komist í allra fremstu röð eins og
Viktor, samherji hans í yngri lands-
liðunum. Spurningin er hversu mikil
ógn er af Hauki gegn bestu lands-
liðum heims á þessum tímapunkti en
hann er í það minnsta illviðráðan-
legur í íslensku deildinni þrátt fyrir
ungan aldur. Janus hlýtur að vera
hungraður í að sanna sig með lands-
liðinu og hefur leikið vel með dönsku
meisturunum í vetur.
Ungir menn í miðri vörninni
Stærsta spurningin er líklega á
hverja verður mest veðjað í miðri
vörninni. Frá því Guðmundur tók
við landsliðinu að nýju hefur Ólafur
Gústafsson verið í stóru hlutverki í
vörninni en hann er ekki með. Arnar
Freyr hefur öðlast talsverða reynslu
á stórmótum síðustu ár og Ýmir Örn
var fyrst tekinn með á stórmót fyrir
tveimur árum. Báðir voru þeir í U19
ára landsliðinu sem vann til brons-
verðlauna á HM árið 2015 og hafa
þróast í A-landsliðsmenn. Sveinn er
nýliði á stórmóti og erfitt að segja til
um hvernig honum reiðir af en hann
er leikmaður sem hefur farið í gegn-
um öll yngri landsliðin.
Línumaðurinn Kári Kristján er í
hópnum og gæti reynst gott vopn í
sókninni. Kári er klókur og and-
stæðingarnir þurfa að hafa mikið
fyrir honum. Auk þess er samleikur
Kára og Arons oft góður. Kári hefur
bæði glímt við meiðsli og veikindi á
sínum ferli og spurning hversu mik-
ið verður hægt að tefla honum fram
í þeim átökum sem línumannsstöð-
unni fylgja í móti sem þessu.
Ungir leikmenn á EM
Efnilegustu leikmenn Íslands, Viktor og Haukur, eru báðir í hópnum Óljóst
hvort Elvar Örn verður leikfær þegar Ísland mætir Danmörku á laugardag
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Lykilmaður Mikið mun mæða á Aroni Pálmarssyni á EM og ljóst að frammistaða hans mun ráða miklu um gengi liðsins.
Aldur Leikir Mörk
MARK: Björgvin Páll Gústavsson, Skjern ............................ 34 222 13
MARK: Viktor Gísli Hallgrímsson, GOG................................ 19 10 0
HORN: Bjarki Már Elísson, Lemgo ....................................... 29 64 142
HORN: Guðjón Valur Sigurðsson, París SG ........................ 40 357 1.857
SKYTTA: Aron Pálmarsson, Barcelona ................................ 29 141 553
SKYTTA: Ólafur Andrés Guðmundsson, Kristianstad ......... 29 116 217
MIÐJA: Elvar Örn Jónsson, Skjern........................................ 22 27 81
MIÐJA: Haukur Þrastarson, Selfossi .................................... 18 13 16
MIÐJA: Janus Daði Smárason, Aalborg .............................. 25 38 45
SKYTTA: Alexander Petersson, Rhein-Neckar Löwen ........ 39 174 696
SKYTTA: Viggó Kristjánsson, Wetzlar ................................. 26 3 4
HORN: Arnór Þór Gunnarsson, Bergischer ......................... 32 106 315
HORN: Sigvaldi Björn Guðjónsson, Elverum ....................... 25 21 39
LÍNA: Arnar Freyr Arnarsson, GOG...................................... 23 45 67
LÍNA: Kári Kristján Kristjánsson, ÍBV .................................. 35 138 163
LÍNA: Sveinn Jóhannsson, SönderjyskE.............................. 20 7 14
LÍNA: Ýmir Örn Gíslason, Val................................................ 22 34 14
Sautján sem fara til Malmö
GUÐMUNDUR Þ. GUÐMUNDSSON MEÐ ENDANLEGAN EM-HÓP
Handknattleikskappinn Daníel Þór
Ingason fer ekki með íslenska
landsliðinu á Evrópumeistaramótið
sem fram fer í Austurríki, Noregi
og Svíþjóð vegna meiðsla en þetta
staðfesti Guðmundur Þórður Guð-
mundsson, þjálfari íslenska liðsins,
á blaðamannafundi HSÍ sem fram
fór í höfuðstöðvum Alvogen á Ís-
landi í gær. Daníel Þór fingur-
brotnaði á æfingu 2. janúar síðast-
liðinn og voru meiðsli hans staðfest
í gær. Daníel er 24 ára og hefur
verið viðloðandi íslenska landsliðið
undanfarin ár. bjarnih@mbl.is
Fingurbrotinn og
missir af EM
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Meiddur Daníel Þór Ingason er
leikmaður Ribe-Esbjerg.
Guðjón Valur Sigurðsson mætir til
leiks sem methafi á Evrópumót karla
í handknattleik þegar Ísland leikur
gegn Danmörku í Malmö á laugar-
daginn. Guðjón tekur þátt í sínu ell-
efta Evrópumóti í röð og það hefur
enginn leikið eftir. Með mótinu í ár
hefur Guðjón verið með í öll ellefu
skiptin sem Ísland hefur tekið þátt í
lokakeppninni, fyrst í Króatíu árið
2000. Guðjón er líka markahæstur í
lokakeppni EM frá upphafi með sam-
tals 270 mörk fyrir íslenska liðið,
fjórtán mörkum á undan Frakkanum
Nikola Karabatic. vs@mbl.is
Mætir í ellefta
skipti í röð á EM
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Fyrirliði Guðjón Valur Sigurðsson
er reyndasti leikmaður Íslands.
EM 2020
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Guðmundur Guðmundsson, lands-
liðsþjálfari karla í handknattleik,
tekur sautján leikmenn með til Sví-
þjóðar á EM en hópurinn var
kynntur á blaðamannafundi hjá
Alvogen í gær. Sextán leikmenn eru
á leikskýrslu í mótinu en Guð-
mundur segir svigrúmið til að gera
breytingar eftir að mótið hefst vera
ágætt.
Daníel Þór Ingason getur ekki
verið með á EM vegna fingurbrots
og þar með var valið á varnar-
mönnum orðið mun einfaldara. Ís-
lenski hópurinn fer með tvo mark-
verði utan en Ágúst Elí
Björgvinsson var í nítján manna
hópnum en er ekki í sautján manna
hópnum.
Viktor Gísli er ekki bara framtíð-
armaður í landsliðinu heldur hefur
burði til að verða markvörður í
heimsklassa ef allt gengur upp á
hans ferli. Sé horft til framtíðar er
mjög skynsamlegt að gefa honum
alvöru tækifæri en hann sýndi auk
þess í undankeppninni að hann get-
ur látið til sín taka nú þegar. Mark-
varðaparið er áhugavert að því leyt-
inu til að þeir eru með ólíkan stíl og
þá er annar ungur en hinn reyndur,
Björgvin Páll. Verður fróðlegt að
sjá hvernig markvarslan kemur út
undir handleiðslu ekki ómerkari
manns en Tomasar Svensson.
Guðjón Valur Sigurðsson og
Bjarki Már Elísson sjá um vinstra
hornið. Þar ættum við ekki að þurfa
að hafa áhyggjur. Bjarki hefur þó
kennt sér meins í baki en miðað við
spilamennsku hans í Þýskalandi í
vetur ætti það ekki að há honum að
ráði. Í hægra horninu eru Arnór
Þór og Sigvaldi Björn. Arnór varð
fyrir meiðslum í vetur en var þó
ekki mjög lengi frá og ætti að vera í
fínu formi. Arnór lék virkilega vel á
HM í Þýskalandi í fyrra og það lofar
góðu. Þá fékk hann reyndar mikla
þjónustu frá Ómari Inga Magn-
ússyni en hans nýtur ekki við í þetta
skipti vegna höfuðáverka. Sigvaldi
fékk tækifæri á HM og nýtti það
vel. Er góður hraðaupphlaups-
maður og nýtir færin vel.
Alexander styrkir vörnina
Aron er á sínum stað í skyttustöð-
unni. Ef tognunin í síðustu viku
truflar hann ekki þá hef ég á tilfinn-
ingunni að EM verði mjög gott mót
hjá Aroni því hann er kröftugri og
snarpari en áður. Með honum eins
og áður er Ólafur Andrés sem nýtist
landsliðinu vel enda getur hann
leikið bæði vörn og sókn og er
snöggur fram og til baka.
Hægra megin snýr Alexander
Petersson aftur og ekki laust við að
maður finni fyrir eftirvætingu
vegna þess. Alexander var orðinn