Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 11.01.2020, Qupperneq 30

Morgunblaðið - Sunnudagur - 11.01.2020, Qupperneq 30
30 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12.1. 2020 08.00 Strumparnir 08.25 Blíða og Blær 08.45 Stóri og Litli 08.55 Dagur Diðrik 09.20 Dóra og vinir 09.45 Skoppa og Skrítla 10.00 Mæja býfluga 10.10 Latibær 10.35 Zigby 10.45 Ævintýri Tinna 11.10 Lukku láki 11.35 Lína langsokkur 12.00 Nágrannar 12.20 Nágrannar 12.40 Nágrannar 13.00 Nágrannar 13.25 Nágrannar 13.45 20 Years of Jamie Oliver 14.35 Kevin’s Grandest Designs 15.25 X-Factor: The Band 16.45 Leitin að upprunanum 17.38 60 Minutes 18.28 Veður 18.30 Fréttir Stöðvar 2 18.55 Sportpakkinn 19.10 Hvar er best að búa? 19.50 The Great British Bake Off 20.55 Keeping Faith 21.50 Shameless 22.45 Sticks & Stones 23.35 Silent Witness ÚTVARP OG SJÓNVARP Sjónvarp Símans RÚV Rás 1 92,4  93,5 Omega N4 Stöð 2 Hringbraut 19.30 Föst í fortíðinni – Þátt- ur 1 20.00 Eitt og annað af um- hverfisvernd 20.30 Eitt og annað af Norð- urlandi 21.00 Á slóðum Nanu 21.30 á slóðum Nanu 16.00 Trúarlíf 17.00 Times Square Church 18.00 Tónlist 18.30 Ísrael í dag 19.30 Jesús Kristur er svarið 20.00 Omega 20.00 Mannamál (e) 20.30 Suðurnesja-magasín Víkurfrétta (e) 21.00 Goðsögnin Þorvaldur Halldórsson (e) 21.30 Stóru málin (e) Endurt. allan sólarhr. 12.00 Everybody Loves Ray- mond 12.30 The King of Queens 12.50 How I Met Your Mother 13.15 Bluff City Law 14.00 Superstore 16.00 Malcolm in the Middle 16.20 Everybody Loves Ray- mond 16.45 The King of Queens 17.05 How I Met Your Mother 17.30 The Kids Are Alright 17.55 Solsidan 19.45 A.P. BIO 20.10 This Is Us 21.00 Law and Order: Special Victims Unit 21.50 Catch-22 22.35 Jägarna 23.20 Perpetual Grace LTD 00.20 The Handmaid’s Tale 06.55 Bæn og orð dagsins. 07.00 Fréttir. 07.03 Tríó. 08.00 Morgunfréttir. 08.05 Á tónsviðinu. 09.00 Fréttir. 09.03 Samtal. 10.00 Fréttir. 10.05 Veðurfregnir. 10.15 Bók vikunnar. 11.00 Guðsþjónusta í Bú- staðakirkju. 12.00 Hádegisútvarp. 12.20 Hádegisfréttir. 12.40 Veðurfregnir. 12.50 Dánarfregnir. 13.00 Sögur af landi. 14.00 Víðsjá. 15.00 Glans. 16.00 Síðdegisfréttir. 16.05 Úr tónlistarlífinu: Vín- artónleikar Sinfóní- unnar. 18.00 Kvöldfréttir. 18.10 Íslenska mannflóran. 18.50 Veðurfregnir. 19.00 Óskastundin. 19.40 Orð um bækur. 20.35 Gestaboð. 21.30 Fólk og fræði. 22.00 Fréttir. 22.05 Veðurfregnir. 22.10 Á reki með KK. 23.10 Frjálsar hendur. 24.00 Fréttir. 00.05 Næturútvarp Rásar 1. 07.15 KrakkaRÚV 07.16 Begga og Fress 07.29 Lalli 07.36 Tulipop 07.39 Minnsti maður í heimi 07.40 Hæ Sámur 07.47 Hrúturinn Hreinn 07.54 Letibjörn og læmingj- arnir 08.01 Stuðboltarnir 08.12 Alvin og íkornarnir 08.23 Ronja ræningjadóttir 08.50 Disneystundin 08.51 Tímon & Púmba 09.13 Sígildar teiknimyndir 09.20 Músahús Mikka 09.45 Krakkavikan 10.05 Villta Nýja-Sjáland 11.00 Silfrið 12.10 Lestarklefinn 13.05 Menningin – samatekt 13.35 Joanna Lumley í Japan 14.25 Íþróttaafrek Íslendinga 14.50 Tékkland – N- Makedónía 16.35 Nýjar hendur 17.30 Sætt og gott 17.50 Táknmálsfréttir 18.00 KrakkaRÚV 18.01 Stundin okkar 18.25 Innlit til arkitekta 19.00 Fréttir 19.30 Veður 19.40 Íþróttir á sunnudegi 20.05 Siglufjörður – saga bæj- ar 21.05 Brot 21.55 England nasismans 23.30 Brennandi hjörtu 14 til 16 Tónlistinn Topp40 Eini opinberi vinsældalisti Íslands er sendur út á K100 alla sunnudaga. Siggi Gunnars telur niður 40 vinsælustu lög landsins. 16 til 19 Pétur Guðjóns Pétur Guðjónsson hækkar í gleðinni og fylgir hlust- endum K100 síðustu metrana í fríi helgarinnar síð- degis á sunnudögum. Góð tónlist og létt spjall á K100. Hákarlinn snýr aftur og Steven Spielberg ætlar hugs- anlega að taka að sér að leikstýra verkefninu. Back to the Future Part II spáði því að þegar árið 2015 gengi í garð yrðu JAWS-myndirnar orðnar 19 talsins. Það gekk ekki eftir en þó er verið að ræða gerð nýrrar Jaws-myndar. Hákarlinn snýr aftur Berlín. AFP. | Mikail Akar lætur sér ekki bregða við kliðinn frá ljós- myndavélum allt í kringum sig. Akar er undrabarn í listum, fæddur í Þýskalandi 2012 og hefur hálfa æv- ina verið í sviðsljósinu. Hann lítur út eins og hver annar sjö ára drengur, klæddur röndóttri peysu með strákslegt bros og drauma um að verða atvinnumaður í knattspyrnu og ber ekki með sér að hafa komið eins og stormsveipur inn í alþjóðlegt listalíf. Verk hans seljast á þúsundir evra um allan heim. „Nóg af ofurhetjudúkkum“ „Þótt hann sé aðeins sjö ára gamall hefur hann haslað sér völl í listheim- inum. Það er áhugi í Þýskalandi, Frakklandi og Bandaríkjunum,“ sagði faðir hans og umboðsmaður, Kerem Akar. Akar eldri áttaði sig fyrir tilviljun á hæfileikum drengs- ins unga þegar hann gaf syni sínum striga og liti til að mála með hönd- unum á fjögurra ára afmæli hans. „Við höfðum gefið honum nóg af bílum og ofurhetjudúkkum þannig að við fengum þá hugmynd að gefa honum striga,“ sagði Kerem Akar. „Fyrsta myndin leit stórkostlega út og fyrst hélt ég að konan mín hefði málað hana. Svo taldi ég að þetta hlyti að vera tilviljun, en eftir aðra og þriðju mynd var ljóst að hann hefði hæfileika.“ Hæfileikar Akars skína í gegn í nýjustu verkum hans, sem hann gerði í samstarfi við fótboltastjörn- una Manuel Neuer, leikmann Bay- ern München og þýska landsliðsins. Eitt af nýju verkunum seldist nýlega fyrir 11 þúsund evrur (1,5 milljónir króna) og rennur ágóðinn til góð- gerðarstofnunar Neuers fyrir börn. Litasprengjur, sem minna á Jack- son Pollock, eru einkennandi fyrir stíl Akars, sem sagði við AFP að Pollock, Michael Jackson og Jean- Michel Basquiat væru í uppáhaldi. Hann hefur einnig þróað eigin tækni, þar á meðal að setja málningu á strigann með því að kýla hann með boxhönskum föður síns. Á kynningu á nýjum verkum Ak- ars í einkagalleríi í Berlín í liðnum mánuði kvaðst einn gestanna hafa orðið „orðlaus“ við að komast að því að listamaðurinn væri barn og ný- byrjaður í barnaskóla. „Jafnvægið og samhljómurinn í samsetningunni – ég myndi ekki bú- ast við þessu hjá barni,“ sagði Arina Daehnick, ljósmyndari frá Berlín. Diana Acthzig, stjórnandi Acht- zig-nútímalistagallerísins í Berlín, kvaðst hrifin af „ímyndunarafli og fjölbreytni“ Akars. „Hann á mikla framtíð fyrir sér ef hann nýtur stuðnings og ekki verður reynt að græða á honum,“ sagði hún. Knattspyrnudraumar Metnaður Akars liggur þó annars staðar. „Þegar ég verð eldri vil ég verða fótboltamaður,“ segir hann og lætur gamminn geisa um 8-0-sigur, sem hann vann nýlega með skólalið- inu sínu. „Það getur verið þreytandi fyrir mig að mála. Stundum tekur það langan tíma … sérstaklega með boxhönskunum,“ sagði hann. Faðir hans ítrekar að hann og kona hans gæti þess að ganga ekki of hart að syninum. „Við skerumst í leikinn þegar þetta verður of mikið og höfnum mörgum beiðnum,“ sagði Akar eldri. „Hann málar bara þegar hann vill, stundum einu sinni í viku, stundum einu sinni í mánuði.“ Næsta sýning Akars verður í Köln og eftir það liggur leiðin til Parísar. Mikail Akar, sjö ára, stillir sér upp fyrr framan málverk sitt „Champi“ sem er prentað í takmörkuðu upplagi á sýningu í Berlín um miðjan desember. AFP SJÖ ÁRA DRENGUR HRISTIR UPP Í ÞÝSKU LISTALÍFI „Á mikla framtíð fyrir sér“ Kerem Akar, faðir undrabarnsins Mikails Akars, og listaverkasali hengja upp verkið Manus 11 sem strákurinn gerði með markmanninum Manuel Neuer. AFP

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.