Morgunblaðið - Sunnudagur - 25.01.2020, Síða 14

Morgunblaðið - Sunnudagur - 25.01.2020, Síða 14
komst hvorki lönd né strönd vegna ástandsins í landinu. Þetta var í júlí 2019 og ekki um ann- að að ræða en að gera hlé á ferðalaginu, setja hjólið í geymslu og fljúga heim til Íslands. Veikir innviðir Kristján sneri aftur til Eþíópíu í október, þeg- ar hægst hafði um í landinu. Stjórnarbylting- artilraunin náði ekki fram að ganga og voru menn fangelsaðir í kjölfarið. Ferðalagið gegn- um Eþíópíu reyndist ævintýri hið mesta. Kristján hafði sett sig í samband við hjálp- arstofnanir á Íslandi með það fyrir augum að skoða svæði sem þær hafa stundað hjálp- arstarf á. Hann sótti meðal annars heim SOS- barnaþorp í Addis Ababa og ber starfinu vel söguna. „SOS er stofnað af Austurríkismanni og barnaþorpin byggð samkvæmt þýskri ná- kvæmni og stöðlum. Að koma þarna var eins og að hoppa inn í aðra veröld; öll börnin tand- urhrein og fín og fá mun betri kennslu en önn- ur börn í Eþíópíu,“ segir hann. Ástandið í þorpunum er, að sögn Kristjáns, í hróplegu ósamræmi við ástandið í Addis Ababa almennt, en innviðir munu vera ákaf- lega veikir í höfuðborginni og fátt virkar sem skyldi. Hann spurði verkfræðing, sem hann kynntist í borginni, hvað væri til ráða og svarið var einfalt: Að byggja aðra borg á öðrum stað. Addis Ababa yrði ekki bjargað. Frá höfuðborginni lá leið Kristjáns inn í sveitir Eþíópíu og veitti hann því eftirtekt að allir sem á vegi hans urðu veifuðu meira og minna til hans. Fyrst hélt hann að um kurteisi væri að ræða en var síðan gerð grein fyrir því að fólkið væri ekki að heilsa honum, heldur að betla peninga. „Það þótti mér dapurlegt, að sjá þarna unga og aldna beiðast ölmusu.“ Kristján tók á sig drjúgan útúrdúr til að heim- sækja fjóra ættbálka frumbyggja í Eþíópíu og segir að þeirri upplifun verði ekki með orðum lýst. „Þetta var eins og að koma aldir aftur í tím- ann, svo frumstætt er lífið þarna. Þetta fólk er alveg meðvitað um flatskjái, snjallsíma og annan lúxus í samtímanum en kýs bara að færa sér það ekki í nyt. Samt var ekki annað að sjá en að hamingja og gleði svifi yfir vötnum. Þetta fólk hefur allt sem það þarf. Það var einstök upplifun að dveljast einn með þessu fólki um stund.“ Víða sem hann kom var lífið einfalt og sner- ist ekki síst um að bera heim vatnið og finna eldiviðinn. Það á við um nær öll löndin sem hann heimsótti í Afríku. „Eini munurinn er sá að hver þjóð hefur sína aðferð við að bera heim vatnið. Rosalega myndi einn sendibíll breyta miklu, hugsaði ég með mér. En hafa ber í huga að fólkið hefur vanist að gera þetta með þess- um hætti og athöfnin er aukinheldur félagsleg, þannig að maður veit ekki hvort sendibíllinn yrði endilega velkominn.“ Íslensk móðir Theresa Næst drap Kristján niður fæti í Kenía, þar sem velmegun er einna mest í álfunni. Ör- birgðin er þó sjaldan langt undan, eins og hann upplifði í fátækrahverfinu Kibera í höfuðborg- inni Naíróbí. „Maður sá bara bárujárnsþök eins langt og augað eygði en hermt er að allt að tvær milljónir manna búi í Kibera, sem er stærsta fátækrahverfi álfunnar. Ég komst að því í samtölum við heimamenn að spillingin er mikil og leigufélögin á valdi spilltra stjórn- málamanna sem úthluta vinum og ættingjum besta húsnæðinu í blokkum fyrir lægri leigu en gengur og gerist í kofunum í kring.“ Hann segir mörg dæmi um að fólk vilji ekki flytja í burtu jafnvel þótt skárra húsnæði bjóð- ist enda finni það til öryggis innan um sína nánustu í slömminu. Sumir flytji jafnvel aftur þangað eftir að hafa búið annars staðar við skárri aðstæður um tíma. Meðal þeirra sem Kristján heimsótti í Naí- róbí var íslensk kona, Þórunn Helgadóttir, sem kom þangað fyrir rúmum áratug, festi kaup á gömlum ruslahaug af borginni og byggði þar skóla sem hún rekur fyrir um sjö hundruð nemendur. „Þórunn er í mínum huga Móðir Teresa. Ég á ekki orð yfir það sem hún hefur áorkað þarna. Ef einhver á Fálkaorðuna skilið þá er það hún, fyrir ósérhlífni og upp- byggingarstarf í Naíróbí.“ Eitt af því sem Þórunn hefur lagt áherslu á er að tengja munaðarlaus börn við ættingja sína enda er hún sannfærð um að ekkert í þessu lífi sé þykkara en blóð. „Þegar þetta tekst verður ekki rof og konseptið er sér- staklega fallegt. Sjálfur heimsótti ég konu sem hefur tekið að sér tíu blóðskyld börn og hefur unnið kraftaverk. Ég varð fyrir rosalegum áhrifum þarna.“ Fleiri Íslendingar hafa látið að sér kveða í Kenía. Má þar nefna Gunnar Stefánsson, stærðfræðiprófessor við Háskóla Íslands, sem gaf börnum í litlu þorpi spjaldtölvur fyrir nokkrum árum. „Netið var hins vegar gagns- laust þarna, þannig að Gunnar og samstarfs- fólk hans bjuggu til sjálfstæða vefþjóna, þar sem fjögur þúsund bækur eru nú aðgengileg- ar, ekki bara stærðfræði, heldur ýmislegt ann- að námsefni líka. Verkefnið nær nú til tveggja grunnskóla og eins háskóla á svæðinu, auk fangelsis, og hefur án nokkurs efa stuðlað að miklum framförum,“ segir Kristján, sem heim- sótti annan grunnskólann og háskólann. Fjárfestum í menntun Eftir heimsókn sína til Afríku er Kristján ekki í nokkrum vafa um að með þessum hætti sé þróunaraðstoð best varið; með því að fjárfesta í menntun. „Kennum fólkinu að gera hlutina í stað þess að gera þá fyrir það. Þannig aukum við lífsgæði fólksins, fjölgum möguleikum og tryggjum því sjálfsvirðingu.“ Kristján sóttist eftir ólíkum upplifunum í Afríku og er heimsókn í Maasai Mara- þjóðgarðinn í Kenía honum ofarlega í huga. Þar leigði hann sér leiðsögumann og safaríbíl til að upplifa nálægðina við dýrin án truflunar frá öðrum ferðamönnum. Stóð þar andspænis fílum, gíröffum, ljónum, sebrahestum og hvað það nú allt heitir. „Ég er svo sem enginn sér- stakur áhugamaður um dýr en hefði eigi að síður alls ekki viljað missa af þessari mögnuðu upplifun.“ Það getur tekið sinn toll að ferðast lengi á framandi slóðum og á löngum köflum við frum- stæð skilyrði. Kristján veiktist þó bara einu sinni í Afríkuferðinni; fékk matareitrun í Kenía og og þurfti að leita á bráðamóttöku spítalans í Nairobí.. Hann náði sér þó að fullu á einni viku. Í Úganda hitti Kristján meðal annars sendi- herra Íslands, Unni Orradóttur Ramette, en hún hjálpaði honum meðan á skipulagningu og ferðinni sjálfri stóð, og kynntist starfinu sem þar fer fram. Heimsótti górillur Smáríkið Rúanda er suður af Úganda og þar komst Kristján í fyrsta sinn á ævinni í snert- ingu við górillur. „Þetta var í þjóðgarði og tók ferðalagið þangað inn heilan dag. Ein klukku- stund með górillunum kostaði 1.500 dollara, andvirði tæplega 190 þúsund króna. Sú upp- hæð stóð aðeins í mér en ég lét mig hafa það og sé ekki eftir því. Það var stórkostlegt að eiga þessa klukkustund með górillunum,“ segir Kristján, sem var þarna í hópi fjögurra ferða- manna en þeim fylgdu bæði leiðsögumenn og hermenn. Allur er varinn góður. „Górillurnar voru rólegar og virtu okkur fyrir sér en voru einnig á varðbergi og pössuðu vel upp á af- kvæmi sín.“ Rúanda var það land í Afríku sem kom Kristjáni mest á óvart. „Rúanda var lang- hreinasta landið sem ég heimsótti; ég sá aldrei rusl þar enda þjóðarátak í gangi til að halda landinu hreinu. Þarna fann ég fyrir mestri þró- un og skynjaði hverju hægt er að áorka með samstilltu átaki.“ Stríðið og fjöldamorðin sem áttu sér stað í Rúanda fyrir um aldarfjórðungi eru fólki enn í fersku minni, þar sem talið er að um ein millj- ón manna hafa fallið. „Tútsanum Paul Kagame tókst að stöðva voðaverkin með hernaðar- aðgerðum og hann hefur verið forseti frá árinu 2000. Honum hefur tekist að sætta ættflokk- ana með fyrirgefningarleið og lifa þeir núna í sátt og samlyndi. Ekki er nóg með það, hann vill líka að þjóðin sé sjálfbær, sem skiptir sköp- um fyrir framtíðina.“ Enn eitt ævintýrið beið Kristjáns í Lýðveld- inu Kongó; tveggja daga gönguferð upp á hið virka eldfjall Nyiragongo. „Ég er ágætlega á mig kominn en gangan upp að eldgígnum er með því erfiðara sem ég hef gert. En það var þess virði; það er ekki á hverjum degi sem maður kemst í návígi við virkan eldgíg,“ segir Kristján, sem slóst í för með níu manna hópi sem hermenn fylgdu. Vel er passað upp á ferðamenn víða í álfunni. Hann staldraði þó stutt við í Kongó. „Í fyrsta skipti í ferðinni fann ég fyrir ónotum; ég tengdist einfaldlega ekki fólkinu. Þegar ég brosti til þess fékk ég það ekki endurgoldið. Ég get ekki útskýrt þetta en mér leið bara ekki vel þarna og dreif mig því út úr landinu eins fljótt og ég gat.“ Við hjólið urðum eitt Tansanía er Kristjáni minnisstæðust fyrir þær sakir að þar kynntist hann presti nokkrum í vegkantinum. „Ég var að skipta um föt og hann nam staðar til að kanna hvort ekki væri allt í lagi; fólk sem ég hitti í ferðinni var upp til hópa mjög hjálplegt og almennilegt. Hann bauð mér gistingu á heimili sínu og við erum Fjárhirðirinn, af ættbálki Mursi í Labuko Eþíópíu, passar vel upp á féð sitt. Ung hjón með barnið sitt í börum í Woito í Eþíópíu. ’Ég þurfti stöðugt að geragrein fyrir mér og ferðummínum enda vilja Egyptar allsekki að neitt komi fyrir ferða- menn í landinu. Viðbúnaður- inn var sérstaklega mikill í mínu tilfelli enda var ég eins og villtur kúreki einn á mótorhjól- inu. „Þú ruglar alveg kerfinu,“ sagði einn við mig. Kona af Hamer-ætt- bálknum kemur á mark- aðinn í Turmi í Eþíópíu. ÆVINTÝRI 14 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26.1. 2020

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.