Morgunblaðið - Sunnudagur - 25.01.2020, Qupperneq 24
24 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26.1. 2020
LÍFSSTÍLL
Fyrir 6
1 búnt ferskt kóríander (u.þ.b.
50 g)
1 lítill skalottlaukur
4 hvítlauksrif
3 cm bútur af engifer
1 tsk kóríanderfræ
1 tsk chilimauk, t.d. sambal oe-
lek (eða 1 ferskur chili)
1 tsk túrmerik
4 litlar fernur kókosmjólk eða
tvær 400 ml dósir
1½-2 l vatn
fisk- og grænmetiskraftur (ég
notaði 2 teninga af fisk og 1 af
grænmetis)
3 msk fiskisósa (má sleppa)
1 lítið fennel, skorið í tvennt og
svo þunnar sneiðar
400 g þorskur (eða annar
hvítur fiskur sem er frekar
þéttur í sér)
400 g ósoðnar risarækjur
4 vorlaukar
safi úr einni límónu, eða eftir
smekk
Skerið kóríanderstilkana
ásamt dálitlu af laufinu
gróft niður. Skiljið smá lauf
eftir til að strá yfir súpuna í
lokin. Setjið kóríander, ska-
lottlauk, hvítlauk, engifer,
chilimauk, túrmerik og
kóríanderfræ í matvinnslu-
vél eða mortel og maukið
vel saman. Hitið 1 msk af
kókosolíu í stórum potti.
Steikið kryddmaukið í olíu-
nni í 1-2 mínútur. Hellið
vatni og kókosmjólk yfir
ásamt krafti, fiskisósu og
fennel og leyfið að sjóða í 10
mínútur. Smakkið til með
fiskisósu, límónusafa og salti
og pipar ef ykkur finnst
þurfa. Skerið fiskinn í bita
og hreinsið rækjurnar. Þeg-
ar súpan hefur náð því
bragði sem þið eruð sátt við
hleypið þá suðunni upp og
setjið fisk og rækjur út í og
sjóðið í um 2 mínútur eða
þar til fiskurinn er tilbúinn.
Stráið söxuðum vorlauk og
kóríander yfir í lokin.
Frá eldhusperlur.com.
Taílensk fiskisúpa
Fyrir 6
1 laukur
1-2 hvítlauksrif
1 tsk. ferskt engifer, rifið smátt
2 tsk. ferskt túrmerik, rifið smátt
2 tsk. cumin
cayanne pipar, eftir smekk
2 dósir kjúklingabaunir, vökvinn
sigtaður frá
2 dósir tómatar
2 dósir þykk kókosmjólk, að-
eins þykki hlutinn notaður
1 blómkálshaus
1 sæt kartafla
1 grænmetisteningur
handfylli ferskt kóríander, saxað
smátt
Saxið laukinn smátt og rífið
hvítlauk, engifer og túrmerik
smátt á rifjárni. Steikið í
djúpum potti upp úr olíu þar
til mjúkt.
Bætið cumin og cayanne-
pipar út í pottinn og steikið í
2-3 mín.
Skerið sætu kartöfluna
niður og rífið blómkálið í
smá blóm og bætið í pottinn
ásamt kjúklingabaununum.
Setjið tómata í dós út í
ásamt þykka hlutanum af
kókosmjólkinni. Bætið einnig
grænmetisteningi út í ásamt
salti og pipar.
Leyfið réttinum að malla í
um 40 mínútur eða þar til
kartöflurnar eru orðnar
mjúkar. Rétt undir lokin er
fersku, söxuðu kóríander
bætt út í.
Berið fram með soðnu
kínóa eða hrísgrjónum og
fersku kóríander.
Frá graenkerar.is
Einfaldur pottréttur
Fyrir 6
3-4 msk. ólífuolía
3-4 kjúklingabringur
3 rauðar paprikur
1 púrrulaukur
1-3 msk. karrí
1-3 stk. hvítlauksrif
2 flöskur Heinz-chilísósa
400 g Philadelphia-rjómaostur
500 ml matreiðslurjómi
1 l vatn (jafnvel meira)
1 msk. Oscar’s kjúklingakraftur
cayenne-pipar
salt og pipar
Skerið kjúkingabringurnar í bita
og steikið á pönnu með salti og
pipar. Setjið til hliðar á disk.
Skerið grænmetið smátt.
Hitið olíu í stórum potti
ásamt karrí. Bætið grænmetinu
út í pottinn og mýkið.
Látið chilísósuna, rjómaost-
inn, rjóma, krydd og kjúklinga-
kraft út í pottinn og vatnið.
Látið malla í 15 mínútur.
Setjið kjúklinginn saman við
og bætið við meira vatni ef
þörf er á. Smakkið til með
kryddi.
Gott er að bera súpuna fram
með nachos-flögum, sýrðum
rjóma og rifnum osti.
Frá grgs.is
Mexíkó kjúklingasúpa