Morgunblaðið - Sunnudagur - 25.01.2020, Side 29
Stefán Hjörleifsson, framkvæmdastj. Storytel á Íslandi, og Sigursteinn Másson.
hljóðskreyttir þættir þar sem Sig-
ursteinn gæðir gömul og ný saka-
mál lífi í umfjöllun sinni ásamt því
að kafa dýpra ofan í málin með sínu
rannsóknarnefi. Við munum öll eft-
ir því hvaða fjaðrafoki þættirnir um
Guðmundar- og Geirfinnsmál ollu
þegar Sigursteinn fór að velta við
steinum á sínum tíma. Hver veit
nema slíkt gerist líka núna?“ segir
Stefán Hjörleifsson, fram-
kvæmdastjóri Storytel á Íslandi.
Fjórir þættir af átta eru nú að baki
og kveðst Þóra hafa fengið góð við-
brögð frá áhorfendum. „Ég heyri
ekki annað en að fólk sé jákvætt og
spennt. Það skemmtilega við að sýna
svona seríu á Íslandi er að allir eru að
horfa og spjalla síðan saman um gang
mála heima í stofu, á kaffistofunni í
vinnunni, í ræktinni eða á Twitter.
Það er ákaflega séríslenskt. Fyndn-
ast við þetta er að fólk sé að horfa og
„live-tweeta“,“ segir hún og hlær.
Streymisveitur gulls ígildi
Eins og fram hefur komið hefjast
sýningar á Broti senn í Bretlandi og
Danmörku, auk þess sem serían
kemur í heild inn á efnisveituna Net-
flix í mars, undir heitinu The Val-
halla Murders. Þóra bíður að vonum
spennt eftir viðtökum ytra. „Fólk lít-
ur íslenskt sjónvarpsefni öðrum aug-
um erlendis; er minna að pæla í
svona lókal hlutum eins og við hér
heima. Streymisveitur eins og Net-
flix hafa verið algjör himnasending
fyrir okkur sem höfum gaman af því
að kynnast nýju efni og nýjum heim-
um, eins og að detta inn í belgíska
seríu, svo dæmi sé tekið. Það var
varla hægt áður, nema þá að búa í
Belgíu. Svo geta veiturnar auðvitað
opnað dyr fyrir okkur sem erum að
gera þetta efni. Gangi Brot vel er
aldrei að vita nema það vindi upp á
sig. Ekki er langt síðan íslenskt sjón-
varpsefni var bara gert fyrir inn-
lendan markað en það hefur breyst
hratt á síðustu árum. Þökk sé vönd-
uðu efni sem héðan hefur komið.“
Fram hefur komið að aðstand-
endur Brots eru opnir fyrir fram-
haldi og ekki mun standa á Þóru,
verði önnur sería framleidd. „Ég er
algjörlega til í að fylgja þessum kar-
akterum eftir, það er að segja þeim
sem lifa af,“ segir hún hlæjandi.
„Það getur verið mjög sniðugt að
fara inn í svona verkefni með fram-
hald í huga. Heillist áhorfendur af
persónunum vilja þeir oftar en ekki
meira.“
Þóra er með fleiri járn í eldinum en
hún hefur tryggt sér kvikmyndarétt-
inn að Konum, skáldsögu Steinars
Braga. Söguna vinnur hún með Snjó-
laugu Lúðvíksdóttur sem skrifar
handritið. „Myndin er í fjármögn-
unarferli en vonandi verður hægt að
fara í tökur í lok þessa árs eða byrjun
næsta. Við stefnum í öllu falli að því að
frumsýna myndina á næsta ári. Ann-
ars eltist ég lengi við réttinn að þess-
ari sögu og það kenndi mér heilmikla
þolinmæði,“ segir hún sposk. Þær
Snjólaug vinna einnig að vísindaskáld-
sögulegum sjónvarpsþáttum en það
verkefni er skemmra á veg komið.
Fór óvenjulega leið
Þóra er ekki menntaður kvikmynda-
leikstjóri en hún lauk prófum í list-
rænu kvikmyndanámi frá Central St.
Martins í London árið 2011. „Ég fór
svolítið óvenjulega leið en þetta hef-
ur undið jafnt og þétt upp á sig og
leikstjóraverkefnum fjölgað,“ segir
hún. Þekktasta verk Þóru til þessa
er líklega stuttmyndin Frelsun sem
sýnd hefur verið vítt og breitt um
heiminn en Þóra er einnig afkasta-
mikill tónlistarmyndbandaleikstjóri
og hefur meðal annars unnið með Of
Monsters and Men og Ólafi Arnalds.
„Svo hef ég líka gert auglýsingar.
Það er ágætt fyrir svona óþolinmóða
manneskju eins og mig að geta lokið
einhverjum verkefnum annað veif-
ið,“ segir hún hlæjandi.
Þóra er með umboðsmann í Bret-
landi og stefnir á að vinna jöfnum
höndum í kvikmyndum og sjónvarpi í
framtíðinni. „Þegar ég var í náminu
datt mér ekki í hug að ég ætti eftir að
gera efni fyrir sjónvarp en hef lært
að meta þennan miðil og kann mjög
vel við hann í dag. Sumar sögur
henta forminu einfaldlega betur en
kvikmyndinni og svo er alltaf gaman
að gera efni sem svona margir sjá.“
26.1. 2020 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29
ENDURKOMA Þrassgoðin í Mega-
deth tróðu upp í fyrsta skipti í
fimmtán mánuði í byrjun vikunnar
en Dave Mustaine, söngvari og gít-
arleikari sveitarinnar, greindist
með krabbamein í hálsi síðasta
sumar. Hann hefur nú lokið með-
ferð og dóttir hans, Electra Mus-
taine, hældi föður sínum á hvert
reipi á Twitter eftir tónleikana sem
fóru fram í Helsinki. Hann væri
betri en nokkru sinni en áhöld voru
um hvort Mustaine gæti sungið á ný
eftir veikindin.
Mustaine kominn á kreik á ný
Mustaine er goðsögn í málmheimum.
AFP
Ég er nýbyrjuð að
lesa Dietland eftir
Sarai Walker. Vin-
konur mínar mæltu
með bókinni í bak
og fyrir og ég er því
búin að hlakka mik-
ið til lestursins. Bókinni hefur verið
lýst sem femínískri ádeilu (jafnvel
herkvaðningu) í skvísubókmennta-
stíl. Satt best að segja var það akk-
úrat það sem ég þurfti til að jafna
mig á jólabókunum
Um tímann og vatn-
ið eftir Andra Snæ
Magnason og Svíns-
höfði eftir Bergþóru
Snæbjörnsdóttur.
Algerlega magnaðar
bækur sem ég mæli hiklaust með
en ég viðurkenni að ég var eig-
inlega alveg búin á því eftir að hafa
klárað þær og rank-
að við mér í jan-
úarmyrkri, grenjandi
gulum viðvörunum á
færibandi og tómum
smákökudunkum út
um allt.
Efst í ólesna staflanum er svo
The Story of Jane: The Legendary
Underground Feminist Abortion
Service e. Lauru Kaplan. Bókin
segir frá starfsemi aktívista í Chi-
cago á árunum fyrir Roe vs. Wade,
sem hjálpuðu konum sem þurftu
að komast í meðgöngurof, sem þá
var ólöglegt, í gegnum leynileg
samtök sem gengu einfaldlega
undir heitinu Jane. Bók sem ég gat
ekki staðist að útvega mér, verandi
áhugamanneskja um frjósem-
isréttindi og kvennasögu. Önnur
bók í staflanum er Dauðinn er
barningur e. Khaled Khalifa, sem
ég fékk heimsenda á aðventunni.
Það eru alltaf ánægjulegar send-
ingar sem berast
okkur sem erum í
bókaklúbbi Ang-
ústúru, þar tekst
ótrúlega vel til að
velja áhugaverðar og
góðar bækur til þýð-
ingar og útgáfu.
Ég er líka að endurlesa ljóðabæk-
urnar sem ég las um jólin, af því að
ég er búin að ná að
hugsa aðeins um
þær og er tilbúin í að
staldra við þær aftur.
Núna er ég að end-
urlesa Leður-
jakkaveður eftir
Fríðu Ísberg og
finnst hún ansi góð.
Þess utan les ég nánast daglega
um Múmínálfana
e. Tove Jansson
með þriggja ára
dóttur minni, að
hennar ósk. Þar
kemur hin fallega
Hver vill hugga
krílið í íslenskri þýðingu Þórarins
Eldjárn sterk inn.
STEINUNN ER AÐ LESA
Femínísk ádeila í
skvísubókmenntastíl
Steinunn
Rögnvalds-
dóttir er fé-
lags- og kynja-
fræðingur.
BÓKSALA 15.-21. JANÚAR
Listinn er tekinn saman af Eymundsson
1 Fórnarlamb 2117 Jussi Adler Olsen
2 Almanak Háskóla Ísl. 2020 Þorsteinn/Gunnlaugur/Jón Árni
3 Árstíðir Karítas Hurndar Pálsdóttir
4 Ketóflex 3-3-1 Þorbjörg Hafsteinsdóttir
5 Hin konan G. Hendricks/S. Pekkanen
6 Hver ertu og hvað viltu? Ingvar Jónsson
7 Svínshöfuð Bergþóra Snæbjörnsdóttir
8 Tilfinningabyltingin Auður Jónsdóttir
9 800 fastan Michael Mosley
10 Þögn Yrsa Sigurðardóttir
1
Orri óstöðvandi
– hefnd glæponanna
Bjarni Fritzson
2 Leikskólalögin okkar Jón Ólafsson og fleiri
3 Draugaslóð Kristín Helga Gunnarsdóttir
4 Lestarráðgátan Martin Widmark
5 Kennarinn sem hvarf Bergrún Íris Sævarsdóttir
6 Þinn eigin tölvuleikur Ævar Þór Benediktsson
7 Í talnalandi 2 Hafdís Finnbogadóttir
8 Í talnalandi 1 Hafdís Finnbogadóttir
9
Hinn ógnvekjandi heimur
– risaeðlur
Carlton Books
10
Kiddi klaufi
– Randver kjaftar frá
Jeff Kinney
Allar bækur
Barnabækur
Sími: 411 5000 • www.itr.is
Fyrir líkama og sál
Laugarnar í Reykjavík
Frá
morgnifyrir alla
fjölskylduna
í þínu
hverfi t i l kvölds
ICQC 2020-2022