Morgunblaðið - 13.02.2020, Blaðsíða 16
16 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. FEBRÚAR 2020
BL ehf
Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík
525 8000 /www.bl.is
Bílasalan Bílás
Akranesi
www.bilas.is
431 2622
Bílasala Akureyrar
Akureyri
www.bilak.is
461 2533
Bílaverkstæði Austurlands
Egilsstöðum
www.bva.is
470 5070
IB ehf.
Selfossi
www.ib.is
480 8080
BL söluumboð
Vestmannaeyjum
481 1313
862 2516
Bílasala Reykjaness
Reykjanesbæ
www.bilasalareykjaness.is
419 1881
Nýr Nissan JUKE er einn tæknilegasti bíll sem Nissan hefur kynnt, öll ljós á ytra
byrði eru LED og á aðalljósum er að auki sjálfvirk birtustýring á háum og lágum
geisla. neyðarhemlun og tengingar við Apple CarPlay og Android Auto eru
staðalbúnaður og nýtt ProPilot akstursöryggiskerfi fylgist með akstri ökumanns
og stýrir ef þörf krefur, dregur úr eða eykur hraðann þegar á þarf að halda.
NISSAN JUKE ACENTA, bensín, sjálfskiptur
Verð frá: 3.790.000 kr.
NÝR NISSAN JUKE
SKARTAR ÖLLU ÞVÍ NÝJASTA
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
9
8
1
0
6
Nú þegar inflúensan ogaðrar sýkingar eru í há-marki í umhverfi okkarer vert að minna okkur á
mikilvægi handþvottar. Með góðum
handþvotti er hægt að hindra að
sýklar berist staða á milli. Það tekur
einungis um 30 mínútur fyrir sýkla
að dreifast á milli yfirborða og geta
hreinar hendur tafið slíka útbreiðslu
til muna. Heima og á vinnustöðum
er mikilvægt að allir séu meðvitaðir
um mikilvægi handþvottar.
Snerting er smitleið
Bein eða óbein snerting er lang-
algengasta smitleið sýkla milli
manna og handþvottur því mikil-
vægasta og árangursríkasta leiðin til
að koma í veg fyrir smit. Örverur og
sníkjudýr leynast allst staðar í um-
hverfi okkar. Sem dæmi má nefna
hurðarhúna, handrið og innkaupa-
kerrur. Með snertingu komast þess-
ir sýklar frá öðrum inn í líkama okk-
ar í gegnum munn, nef og augu og
geta síðan valdið sýkingu eins og
kvefi, inflúensu, niðurgangi og öðr-
um sýkingum í meltingarfærum eins
og nóroveirusýkingu. Á sama hátt
getum við borið sýkingu beint eða
óbeint frá okkur sjálfum yfir í aðra.
En með góðum og reglulegum hand-
þvotti erum við að vernda okkur
sjálf og daga úr líkum á að smita
aðra.
Eðlilegur bakteríugróður á húð er
öllum mönnum nauðsynlegur og er
hann hluti af varnarkerfi okkar.
Þessum eðlilega bakteríugróðri er
gjarnan skipt í annars vegar stað-
bundinn bakteríugróður sem er í
neðri húðlögum og þvæst ekki svo
auðveldlega af og hins vegar í
flökkugróður en það eru bakteríur
og annað smitefni sem kemur á húð-
ina í dagsins önn og þvæst oftast
auðveldlega af.
Vel útfærður handþvottur með
smá sápu og vatni fjarlægir 90% af
því smitefni sem maður getur haft á
höndunum og er það ásættanlegur
árangur við allar venjubundnar að-
stæður. Handspritt er einnig árang-
ursríkt en kemur aldrei í staðinn
fyrir góðan handþvott. Við matvæla-
framleiðslu og við störf á sjúkra-
húsum eru hins vegar gerðar meiri
kröfur og þá eru gjarnan notuð sótt-
hreinsandi efni til að fjarlægja enn
meira af bakteríunum af húð hand-
anna. Hendurnar þarf ávallt að þvo
með vatni og sápu og þurrka vel:
Eftir klósettferðir
Áður en hafist er handa við mat-
reiðslu
Áður en við borðum
Þegar við komum heim
Eftir að hafa hnerrað eða hóstað í
hendurnar
Eftir að hafa farið út með ruslið
Eftir bleiuskipti á ungbarni
Þegar hendurnar eru óhreinar
Eftir að hafa klappað ókunnum
dýrum
Hvernig þvær maður hendur:
Taka hringa og skartgripi af.
Skola hendur undir rennandi,
volgu vatni.
Setja smá sápu á hendur, dreifa
og nudda hendur í að minnsta
kosti 15 sekúndur og passa vel að
þvo fingurgóma, naglasvæði, á
milli fingra og ekki gleyma
þumalfingri.
Skola alla sápu af höndum með
rennandi vatni.
Þurrka hendur vel með pappírs-
þurrku eða hreinu handklæði.
Handklæði mengast fljótt af bakt-
eríum. Því þarf að þvo þau oft.
Muna að kranar á almenningssal-
ernum geta verið óhreinir og því
er gott að skrúfa fyrir þá með
pappírsþurrkunni.
Munum að við erum fyrirmyndir
barnanna okkar og það þarf að
kenna þeim að þvo sér um hendur.
Á vefnum heilsuvera.is er hægt að
fá góðar upplýsingar um handþvott
og smitsjúkdóma.
Munum eftir handþvottinum
Handþvottur Svona má hindra að sýklar berist á milli staða og brjóta þannig upp vítahring sem er hættulegur.
Heilsuráð
Kristín Þorbjörnsdóttir,
svæðisstjóri og fagstjóri hjúkr-
unar, Heilsugæslunni Módd.
Unnið í samstarfi við Heilsugæslu
höfuðborgarsvæðisins
Hin árlega jeppasýning Toyota í
Kauptúni í Garðabæ verður næst-
komandi laugardag, 15. febrúar, milli
kl. 12 og 16 í Kauptúni. Sýningin er
fastur liður í tilveru jeppamanna og
útivistarfólks og hefur jafnan verið
sótt af fjölda fólks, sem vill kynna
sér stefnur og strauma í fjalla-
mennsku og jeppasporti.
Á laugardaginn má í Kauptúni sjá
Toyota-jeppa af öllum stærðum og
gerðum. Efnt er nú til sögusýningar
á Toyota Hilux. Gott úrval verður á
sýningunni af nýjum og gömlum
jeppum, breyttum og óbreyttum.
Allt frá Land Cruiser 70, árgerð
1989 sem lítur út eins og nýr til
Land Cruiser 150 sem var að koma
úr 42“ breytingum og verður í notk-
un hjá björgunarsveitinni Ársæli í
Reykjavík.
Samstarfsaðili Toyota er Neyðar-
línan sem sýnir jeppa sem fyrir-
tækið notar vegna verkefna við
senda og endurvarpa á hálendinu.
Einnig verða kynnt fjórhjól, Buggy-
bílar, jeppabreytingar, dekk og kerr-
ur svo eitthvað sé nefnt.
Sýning hjá Toyota
Jeppar af öll-
um gerðum
Toyota Fróðleg sýning á laugardag.
Morgunblaðið/Eggert