Morgunblaðið - 13.02.2020, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 13.02.2020, Blaðsíða 52
Ferðalög á 20% afsláttur í dag — Full búð af nýjum vörum 13.995.- 11.196.- KRINGLUPART Ý Þetta verkefni byrjaði fyrir tæpum tíu árum og hefur að sögn Jóns Arn- ar aukið áhuga almennings á vís- indum og fræðum og á íslenskri nátt- úru í borgarlandinu. „Markmiðið með Ferðafélagi barnanna hefur ávallt verið að skapa skemmtilegan vettvang fyrir börn og fjölskyldur þeirra til að njóta úti- veru, takast á við nýjar og spennandi áskoranir og hafa einfaldlega gaman af því að leika sér úti,“ segir Dalla frá Ferðafélagi barnanna og bætir því við að verkefnið með Háskóla Ís- lands hafi heppnast gríðarlega vel. Þarna mæti flinkir og flottir vís- indamenn sem bjóði upp á fróðleiks- göngur um t.d. fugla, skordýr, sveppi, fjöruna, eldfjöll, stríðsminjar og stjörnurnar. „Þetta eru gríðar- lega vinsælar göngur og mjög ánægjulegt að geta boðið börnum upp á að njóta náttúrunnar og fá fróðleikinn samhliða. Vísindamenn Háskólans hafa vakið mikla athygli fyrir að draga fram mikilvægi vísindastarfs fyrir íslenskt samfélag, fyrir lífríkið okkar og umhverfið.“ Nú er búið að raða upp fróðleiks- göngum fyrir allt árið og er næsta ganga í apríl. Þá eru farfuglarnir að flykkjast til landsins og verður farið í fuglaskoðun. Fjaran er auðvitað besti staðurinn til að skoða fugla snemma vors og verður líklegast far- ið í Grafarvoginn. Tómas Grétar Gunnarsson, forstöðumaður Rann- sóknaseturs Háskóla Íslands á Suðurlandi, mun leiða fuglaferðina eins og hann hefur gert frá upphafi með miklum tilþrifum. Hann veit enda nánast allt um fugla. „Minn uppáhaldsfugl er spói,“ segir Tómas Grétar spurður um þann fugl sem heillar hann mest. „Fuglar eru frísklegir og áberandi. Það er líka eitthvað heillandi við flugið sjálft. Ætli tilhneiging fólks til að velja sér uppáhaldsfugl sé ekki eins og að halda með fótboltaliði,“ segir Tómas Grétar. Fjaran er heillandi heimur Það er hægt að fara í fjöru allt árið um kring en vorið er frábær tími til rannsókna í flæðarmálinu. Fjöruferð í Gróttu er þess vegna áformuð í lok apríl. Grótta er algjör perla en þar verða ýmsar lífverur skoðaðar, grúskað og leitað að kröbbum í fjör- unni og öðrum smádýrum í skemmti- legri rannsóknaferð. Gríðarlegur fjöldi hefur notið þekkingar vísindamanna Háskólans í þessum fjöruferðum en í þeim eig- um við von á að sjá gnótt af fjöru- sniglum eins og klettadoppu, þang- doppu og nákuðungi en einnig beitukóng, sem yfirleitt lifir að mestu leyti neðan fjöru. Í fjöruferð má ekki gleyma að kíkja milli steina og undir klapparþangið og klóþang- ið, þar sem leynast marflær, litlir krabbar og jafnvel sprettfiskar, en einnig fallegir gulir svampar. Pöddur, oj bara! Nei, alls ekki, þær eru magnaðar Margir hafa ímugust á skordýrum en pöddur hafa samt heillað unga fólkið svo um munar undanfarin ár. Pödduskoðun í Elliðaárdal er því ár- viss viðburður á hverju sumri. Skor- dýr eru fjölbreyttasti flokkur dýra á jörðinni og á Íslandi hefur skordýr- um fjölgað undanfarin ár af ýmsum ástæðum. Nýjar tegundir hafa líka bæst við. Gísli Már Gíslason, skor- dýrasérfræðingur frá Háskóla Ís- lands, hefur verið fremstur í flokki við að fræða göngufólk um heim skordýranna en hann hefur líka ver- ið áberandi í fjölmiðlum þar sem hann hefur m.a. talað um nýja teg- und sem enginn fagnar, en það er lúsmýið sem bítur fólk. Gísli Már segir að skordýr séu helsti keppi- nautur mannsins um fæðu og hart- nær fjórðungur af nytjaplöntum fari beint í skordýr, m.a. hveiti, bygg, maís og ýmsar aðrar plöntur sem menn nýti sér sem fæðu. „Miklum fjármunum er varið í heiminum á ári hverju í að halda skordýrum niðri.“ Gísli Már segir að skordýr séu engu að síður gríðarlega mikilvæg í lífríkinu. „Skordýr frjóvga allar blómplöntur, og ef þeirra nyti ekki við væru blómplöntur ekki til.“ Viltu ekki fróðleik í fararnesti? Með fróðleik í fararnesti er samstarfsverkefni Ferðafélags Íslands, Ferðafélags barnanna og Háskóla Íslands þar sem mörg þúsund manns, ungir og aldnir, hafa gengið í borgarlandinu og hlotið þrennt: góða útivist, fína hreyfingu og fróðleik í fararnesti frá mögnuðum vísindamönnum Háskólans. Jón Örn Guðbjartsson, sviðsstjóri hjá Háskóla Íslands, hefur leitt þessar göngur ásamt hjónunum Döllu Ólafsdóttur og Matthíasi Sigurðarsyni. Alveg ókeypis Frítt er í fróðleiksgöng- urnar og allir velkomnir með. Mikil- vægt er að mæta vel klædd og gjarnan með nesti, en alltaf með góða skapið.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.