Morgunblaðið - 13.02.2020, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 13.02.2020, Blaðsíða 41
UMRÆÐAN 41 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. FEBRÚAR 2020 ✝ Magnús Örnfæddist í Reykjavík 7. des- ember 1956. Hann lést á Hraunbúðum í Vestmannaeyjum 4. febrúar 2020. Foreldrar: Anna S. Steingrímsdóttir frá Höfðakoti Skagaströnd, f. 28. júní 1933, d. 26. mars 2018, og Guð- mundur Jón Magnússon, f. 28. janúar 1932, d. 11. febrúar 1973, fórst með Sjöstjörnunni KE 8 suður af Dyrhólaey. Systkini Magnúsar eru: Steingrímur, f. 24. ágúst 1954, d. 29. janúar 2004. Guðrún, f. 30. október 1955. Grettir, f. 17. júní 1958. Óðinn, f. 8. febrúar 1961. Þór, f. 6. des. 1962, og Rebekka, f. 1. ágúst 1965. Magnús var tvíkvæntur, með fyrri konu sinni átti hann tvö börn. 1) Ómar Örn, f. 19. júní 1976, hann á fjögur börn. Magnús Örn, f. 28. nóvember 1997, Lúkar Örn, f. 17. apríl 2007, Emma Guðrún, f. 20. Sigurðardóttir. Dóttir þeirra: Hafdís Helga, f. 22. júní 2015. Sigrún átti dóttur fyrir og gekk Magnús henni í föðurstað. 5) Hjördís Inga, f. 6. október 1981, unnusti Atli Már Magn- ússon. Börn Hjördísar: Anton Máni, f. 18. desember 2001, Adam Smári, f. 19. apríl 2004, Védís Eva, f. 17. janúar 2010, og Auðun Elí, f. 6. júlí 2012. Magnús fluttist til Vestmannaeyja 1976 og byrjaði á sjó hjá Svenna Valdimars. Fór svo að vinna á bátum hjá Sig- urði Einarssyni og tók svo Stýri- mannaskólann í Vestmanna- eyjum og kláraði skipstjórnarbraut 1986. Var skipstjóri á nokkrum bátum hjá Sigga Einars; Bjarnarey VE 501, Bergey VE 544 og Snorra Sturlusyni VE 28. Var einnig skipstjóri á Kristbjörgu VE 71 hjá Vinnslustöð Vestmannaeyja. Magnús var formaður Skip- stjóra- og stýrimannafélagsins Verðanda frá árinu 1997 til 2002. Starfaði einnig í fjölda- mörg ár með sjómannadagsráði. Árið 2014 greindist Magnús með Alzheimer og heilaæða- sjúkdóm og síðustu ár dvaldi hann á Hraunbúðum í Vest- mannaeyjum og lést þar. Útför hans fer fram frá Landakirkju í Vestmannaeyjum í dag, 13. febrúar 2020, klukkan 14. nóvember 2017, og Harpa Dís, f. 17. apríl 2018. 2) Anna Kristín, f. 11. apríl 1979, maki Hermann Þór Marínósson. Börn: Haraldur Fannar, f. 11. apríl 1999, Hanna Soffía, f. 16. júlí 2006, og Helena Kristín, f. 17. júní 2012. 2. apríl 1988 kvæntist Magnús eftirlifandi eiginkonu sinni Sig- rúnu Hjörleifsdóttur, f. 25. ágúst 1962 í Vestmannaeyjum. Foreldrar Sigrúnar: Hjörleifur Guðnason frá Oddstöðum, f. 5. júní 1925, d. 13. júní 2007, og Inga Jóhanna Halldórsdóttir frá Neskaupstað, f. 30. nóvember 1927. Börn Magnúsar og Sigrúnar eru: 3) Þórdís Gyða, f. 18. janúar 1988, maki Baldvin Þór Sig- urbjörnsson. Dætur þeirra: Anna Rakel, f. 11. mars 2014, og Sigrún Arna, f. 11. september 2017. 4) Guðmundur Jón, f. 21. apríl 1991, unnusta Ólöf Halla Elsku Maggi minn. Hvíldu í friði, ástin mín. Þar sem englarnir syngja sefur þú sefur í djúpinu væra. Við hin sem lifum, lifum í trú að ljósið bjarta skæra veki þig með sól að morgni. Drottinn minn faðir lífsins ljós lát náð þína skína svo blíða. Minn styrkur þú ert mín lífsins rós tak burt minn myrka kvíða. Þú vekur hann með sól að morgni. Faðir minn láttu lífsins sól lýsa upp sorgmætt hjarta. Hjá þér ég finn frið og skjól. Láttu svo ljósið þitt bjarta vekja hann með sól að morgni. Drottinn minn réttu sorgmæddri sál svala líknarhönd og slökk þú hjartans harmabál slít sundur dauðans bönd. Svo vaknar hann með sól að morgni. Farðu í friði vinur minn kær faðirinn mun þig geyma. Um aldur og ævi þú verður mér nær aldrei ég skal þér gleyma. Svo vöknum við með sól að morgni. (Bubbi Morthens) Þín Sigrún. Elsku pabbi, Það er svo margt sem ég ætlaði að segja þér. Það er svo margt sem ég ætlaði að gera með þér. Augun þín hafa lokast. Mín opnast betur. Vont þegar lífið bítur svona í mann. Og það svona harkalega við þig. Loksins er friðurinn kominn. Takk fyrir allt. Og síðan hittumst við aftur á miðri leið. Þín dóttir, Anna Kristín. Elsku pabbi minn. Þegar ég hugsa um lífið með þér þá get ég ekki annað en bros- að, þú reyndir eftir þínu fremsta megni að dekra okkur og láta okkur brosa. Ég fór yfirleitt ekki tómhent heim þegar þú komst heim af sjónum þegar við fórum í búðarrölt saman, Þorláksmessa er mér efst í huga þegar ég fór með þér að kaupa jólagjöf handa mömmu. Ég var örugglega í kringum 6 ára aldurinn því mig langaði svo mikið í eina dúkku sem var inni í búð, þú varst ekki lengi að segja já og ég fór á Þor- láksmessudag hrikalega ánægð- ur krakki korter í jól með eitt stykki dúkku með mér heim. Þó að þú dekraðir okkur í döðlur þá áttir þú nú samt til að taka af skarið og ýta okkur áfram í nám- inu og íþróttum. Það var enginn eins góður og þú í stærðfræði og íslensku, við fengum oft að sjá einkunnaspjöldin þín og þú settir okkur gott fordæmi. Íþróttaferð- irnar mínar í sundinu reyndir þú að koma með í, eins mörg keppn- isferðalög og þú gast, enda ekki leiðinlegt að hafa þig með, þú frá- bæri maður, húmorinn var aldrei langt undan og þú varst tilbúinn að gera allt fyrir alla. Þegar ung- lingsaldurinn færðist nær mér varst þú sá sem varaðir mig við strákum, sagðir við mig að 95% af þeim væru aular og ég ætti að passa mig á flestum þeirra. Þeg- ar einn þeirra sagði mér upp og þú ákvaðst að fara með mig á rúntinn í pulsu og kók var sá strákur niðri í bæ, ég gleymi því ekki hvað ég hló mikið þegar þú ætlaðir að hurða þetta fífl sem sagði dóttur þinni upp eða þegar einn strákurinn var að berja á rúðuna í glugganum hjá mér og ég vildi ekkert með hann hafa, þá fórst þú út og sagðir honum að hypja sig annars væri þér að mæta, sá strákur bankaði ekki oftar á gluggann minn, glottinu á þér þegar þú komst inn um dyrn- ar gleymi ég aldrei. Þegar ég átti Önnu Rakel varstu að ganga í gegnum grein- ingarferli, við vissum að eitthvað stórt væri í aðsigi enda varstu ekki búinn að vera þú sjálfur í svolítinn tíma. Þarna vissi ég að ég þyrfti að nýta tímann okkar til hins ýtrasta, Anna Rakel lítil og elskaði ekkert meira en afa Magga. Allt klinkið sem var í vas- anum fór í baukinn hennar. Á þínum góðu dögum fórstu með mér að sækja Önnu í leikskólann og leiddir hana heim til þín. Þakklæti er mér efst í huga fyrir hvernig við fjölskyldan tókumst á við þetta allt saman í sameiningu eins og þú hefðir gert það. Ég fer út í lífið þakklát fyrir að vera dóttir þín, ég ætla að lifa líf- inu lifandi, vera góð við náungann og hafa húmorinn mér við hlið eins og þú gerðir. Ég á eftir að segja stelpunum margar afa Magga-sögur og á eftir að segja þeim að passa sig á strákunum „afa Magga style“. Sorgin við að missa þig er mér svo erfið en eins og við höfum tekist á við síðustu ár saman ger- um við áfram sem fjölskylda, ég skal lofa þér því að ég passa vel upp á mömmu. Takk fyrir allt, elsku besti pabbi minn. Þín dóttir Þórdís Gyða. Kveðja frá Skipstjóra- og stýrimannafélaginu Verð- andi, Vestmannaeyjum. Ótrúlega góður maður er fall- inn frá eftir langa og erfiða bar- áttu við Alzheimersjúkdóminn. Sjúkdóm sem breytti honum mikið. Eitt af því góða sem manni getur hlotnast í lífinu er að kynn- ast manni eins og Magga Guð- munds. Þessi síbrosandi maður, eiginmaður, pabbi, afi, skipstjóri, sjómaður og vinur allra fékk mig til að brosa í hvert skipti sem við hittumst. Það voru aldrei nein vandamál hjá honum. Maggi starfaði mikið fyrir Verðandi og sinnti öllu af alúð og dugnaði, hvort heldur sem fánaberi félags- ins, í orlofs- og sjúkrasjóðsnefnd eða í sjómannadagsráði. Þar að auki var Magnús Guðmundsson, formaður Verðandi í 5 ár, frá 1997-2002. Ég verð að segja að Maggi var einn af duglegustu mönnum Verðandi og fór fjöldann allan af vinnuferðum og fundarferðum fyrir hönd félagsins. Sem betur fer náðum við að heiðra hann fyrir störf sín, á sjó- mannadegi fyrir nokkrum árum áður en Alzheimerinn náði tökum á honum. Við Magga vil ég bara segja: takk, takk og endalaust takk fyr- ir allt það sem þú gerðir fyrir okkar félag. Aðstandendum og vinum votta ég okkar dýpstu samúð. Fyrir hönd stjórnar Verðandi, fyrrverandi, núverandi og komandi félaga Bergur Kristinsson. Magnús Örn Guðmundsson FALLEGIR LEGSTEINAR Verið velkomin Opið: 10-17 alla virka daga Auðbrekku 4, 200 Kópavogi, sími: 537-1029, www.bergsteinar.is Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og systir, RAGNHEIÐUR ÁSGEIRSDÓTTIR, andaðist í Hjúkrunarheimilinu Sólvangi, Hafnarfirði, laugardaginn 8. febrúar. Útförin fer fram frá Víðistaðakirkju þriðjudaginn 18. febrúar klukkan 13. Blóm vinsamlega afþökkuð en þeir sem vilja minnast hennar láti minningar- og styrktarsjóð Sólvangs njóta þess. Ágústa Hinriksdóttir Ásdís Hinriksdóttir Ásgeir Jónasson Ása Hinriksdóttir Þröstur Laxdal Hjartarson Þór Hinriksson Ásdís Ásgeirsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SIGRÍÐUR ÓLAFSDÓTTIR, Hringbraut 2 A, Hafnarfirði, lést þriðjudaginn 4. febrúar á hjúkrunarheimili Hrafnistu í Hafnarfirði. Útförin fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju fimmtudaginn 27. febrúar klukkan 13. Ólafur Arason Agnes Arthúrsdóttir Ingibjörg Þ. Aradóttir Guðmundur Sigurjónsson Draumey Aradóttir Jóhannes Harðarson ömmu- og langömmubörn Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, GUÐMUNDUR MAGNÚS GUÐMUNDSSON bifvélavirkjameistari, Lækjasmára 6, Kópavogi, lést föstudaginn 7. febrúar á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð. Útför hans fer fram frá Lindakirkju, mánudaginn 17. febrúar klukkan 11. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Sunnuhlíðar fyrir veitta alúð og umhyggju í veikindum hans. Jónína Davíðsdóttir Anna María Guðmundsdóttir Guðni Björn Jónsson Brynja Guðmundsdóttir Grímur Örn Jónsson afa- og langafabörn Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir og amma, SIGRÚN BJARKAR VALDIMARSDÓTTIR ferðaþjónustubóndi, Dæli, Víðidal, verður jarðsungin frá Hvammstangakirkju laugardaginn 15. febrúar klukkan 13. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Hollvinasamtök Heilbrigðisstofnunarinnar á Hvammstanga, kt. 711006-2140. Rnr.: 0159-15-200135. Víglundur Gunnþórsson Hrafnhildur Ýr Víglundsd. Davíð Stefán Hanssen Vilmar Þór Víglundsson Anna Nordberg Kristinn Rúnar Víglundsson Hallfríður Sigurbjörg Óladóttir Eva Rún, Óskar Freyr, Gabríel Þór og Víglundur Bolli Ástkær móðir okkar, tengdarmóðir, amma og langamma, ÓLÖF INGIBJÖRG HARALDSDÓTTIR Laugardælum, lést á Fossheimum Selfossi laugardaginn 8. febrúar. Útför fer fram frá Selfosskirkju fimmtudaginn 20. febrúar klukkan 13. Jarðsett verður frá Laugardælakirkju. Sigríður Þórarinsdóttir Óli Sverrir Sigurjónsson Haraldur Þórarinsson Þórey Axelsdóttir Kristín Þórarinsdóttir Garðar Sverrisson Ólafur Þór Þórarinsson Malin Widarson barnabörn og barnabarnabörn Ástkær eiginkona, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐRÚN SIGÞRÚÐUR GUNNARSDÓTTIR Hulduborgum 5, Reykjavík, andaðist þriðjudaginn 4. febrúar á hjúkrunarheimili Hrafnistu. Útför hennar fer fram frá Grafarvogskirkju mánudaginn 17. febrúar klukkan 15. Óli Örn Tryggvason Tryggvi Ólason Hugrún Hansen Bryndís Óladóttir Sævar Skaptason Gunnar Ólason Hilmar Þór barnabörn og barnabarnabörn Morgunblaðið birtir minning- argreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morg- unblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðs- ins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/sendagrein Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skilafrestur rennur út. Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri greinar eru eingöngu birtar á vefnum. Hægt er að senda ör- stutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síð- una. Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem nánustu að- standendur senda inn. Þar koma fram upplýsingar um hvar og hve- nær sá sem fjallað er um fæddist, hvar og hvenær hann lést og loks hvaðan og klukkan hvað útförin fer fram. Þar mega einnig koma fram upplýsingar um foreldra, systkini, maka og börn. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í for- málanum, sem er feitletraður, en ekki í minningargreinunum. Minningargreinar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.