Morgunblaðið - 13.02.2020, Blaðsíða 60

Morgunblaðið - 13.02.2020, Blaðsíða 60
60 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. FEBRÚAR 2020 Frakkland Bikarkeppnin, 8-liða úrslit: Dijon – París SG....................................... 1:6  Rúnar Alex Rúnarsson varði mark Dijon í leiknum. Holland Bikarkeppnin, 8-liða úrslit: AZ Alkmaar – Breda............................... 1:3  Albert Guðmundsson hjá AZ er frá keppni vegna meiðsla. Grikkland Bikarinn, 8-liða úrslit, seinni leikur: Panathinaikos – PAOK........................... 0:1  Sverrir Ingi Ingason lék allan leikinn með PAOK.  PAOK áfram, 3:0 samanlagt.    Grill 66 deild karla Haukar U – Valur U............................. 33:27 Staðan: Þór Ak. 12 10 2 0 365:312 22 Haukar U 13 8 1 4 380:341 17 Valur U 13 8 1 4 381:371 17 Grótta 12 7 0 5 342:334 14 Þróttur 13 6 2 5 388:366 14 FH U 12 5 1 6 348:351 11 Víkingur 12 5 1 6 331:330 11 KA U 12 4 1 7 347:358 9 Fjölnir U 12 2 1 9 297:338 5 Stjarnan U 13 1 2 10 327:405 4 Spánn Barcelona – Bidasoa ........................... 31:24  Aron Pálmarsson skoraði eitt mark fyrir Barcelona. Danmörk Aalborg – Holstebro............................ 23:21  Janus Daði Smárason skoraði 3 mörk fyrir Aalborg og Ómar Ingi Magnússon 3. Arnór Atlason er aðstoðarþjálfari liðsins. Horsens – Esbjerg ............................... 26:24  Rut Jónsdóttir skoraði eitt mark fyrir Esbjerg. Frakkland Toulon – Brest Bretagne.................... 18:30  Mariam Eradze skoraði tvö mörk fyrir Toulon. Noregur Elverum – Drammen .......................... 33:30  Sigvaldi Björn Guðjónsson skoraði 6 mörk fyrir Elverum.  Óskar Ólafsson komst ekki á blað hjá Drammen. EHF-bikarinn Ademar León – Magdeburg............... 27:31  Gísli Þorgeir Kristjánsson hjá Magde- burg er frá keppni vegna meiðsla. Geysisbikar karla Fjölnir – Grindavík............................... 74:91  Grindavík mætir Stjörnunni eða Tinda- stóli í úrslitaleik en viðureign þeirra var ekki lokið þegar blaðið fór í prentun í gær- kvöld. NBA-deildin Philadelphia – LA Clippers ............. 110:103 Washington – Chicago ..................... 126:114 New Orleans – Portland .................. 138:117 Oklahoma City – San Antonio ......... 106:114 Houston – Boston ............................. 116:105   Aalborg er með átta stiga forskot á toppi dönsku úrvalsdeildar- innar í hand- knattleik eftir 23:21-sigur gegn Holstebro í gær. Janus Daði Smárason og Ómar Ingi Magnússon fóru báðir mikinn. Janus skoraði þrjú mörk og gaf tvær stoðsendingar og Ómar skoraði þrjú mörk og gaf sex stoðsendingar. Íslendingar atkvæðamiklir Janus Daði Smárason KÖRFUKNATTLEIKUR Geysisbikar kvenna, undanúrslit: Laugardalshöll: Valur – KR ................ 17.30 Laugardalshöll: Skallagr. – Haukar... 20.15 ÍSHOKKÍ Íslandsmót karla, Hertz-deildin: Egilshöll: Fjölnir – SR ......................... 19.45 Í KVÖLD! Í HÖLLINNI Kristján Jónsson kris@mbl.is Galdramaðurinn Sigtryggur Arnar Björnsson kann vel við sig í bikar- leikjum eins og íþróttaunnendur sáu þegar Tindastóll varð bikarmeistari fyrir tveimur árum. Sigtryggur Arn- ar sneri undanúrslitaleiknum í gær fyrir Grindavík gegn Fjölni. Grinda- vík sigraði 91:74 eftir jafnan leik þar sem Fjölnismenn höfðu lengi frum- kvæðið og leikur til úrslita í Laugar- dalshöllinni á laugardaginn. Sigtryggur skoraði stórglæsilega flautukörfu fyrir Grindavík þegar leiktíminn var að renna út í lok þriðja leikhluta. Kom þá Grindavík yfir 65:63 fyrir síðasta leikhlutann. Grindavík tók innkast þegar ein og hálf sekúnda var eftir. Reyndist það nóg fyrir Sigtrygg Arnar til að grípa boltann, snúa sér og skjóta úr frekar litlu jafnvægi. Boltinn kom aldrei við hringinn heldur fór beint í gegn. Þessi tilþrif voru mikið stemningsatriði fyrir Grindvíkinga og um leið tuska framan í Fjölnis- menn. Reyndar voru tvær flautu- körfur skoraðar í leiknum og því var eins og maður væri að horfa á NBA- leik. Hina fyrri skoraði Tómas Heið- ar Tómasson fyrir Fjölni undir lok fyrsta leikhluta og gerði það frá eig- in vallarhelmingi. Fjölnir var þá yfir 25:22 og einnig 46:42 að loknum fyrri hálfleik. Sigtryggur Arnar skoraði alls 25 stig og þar af 14 í síðari hálfleik. Hann lét finna fyrir sér þegar leið á leikinn og átti stóran þátt í því þegar Grindvíkingum tókst að slíta sig frá Fjölnismönnum í síðasta leikhlut- anum. Hann gaf auk þess 8 stoð- sendingar og tók 5 fráköst. Sig- tryggur Arnar hitti úr 6 af 10 þriggja stiga skotum sínum. Ekki þyrfti að koma á óvart ef hann verð- ur einnig í essinu sínu í úrslita- leiknum á laugardaginn. LeDay verður í banni Þar verður Grindavík án Seth Christian LeDay, sem verður í leik- banni vegna háttsemi sinnar í leik gegn Stjörnunni í deildinni á dög- unum. Mjög góður leikmaður þar á ferð og verður högg fyrir Grindvík- inga að missa hann en Dagur Kár Jónsson er auk þess á sjúkralist- anum. LeDay var ekki aðalmaðurinn hjá Grindavík í gær en lék engu að síður mjög vel og styrkir vörn liðsins mjög. Valdas Vasylius sýndi hvers hann er megnugur og skoraði 25 stig eins og Sigtryggur. Þá kom Ólafur Ólafsson með mikilvægar körfur eins og hann á til að gera þegar mik- ið liggur við. Hjá Fjölni var Viktor Moses mjög góður og skoraði 20 stig. Hann hitti úr fyrstu fjórum þriggja stiga skot- um sínum. Þegar illa gekk hjá Fjölni í síðasta leikhlutanum hefði verið snjallt að opna meira fyrir hann en gert var. Jere Vucica fór út af um tíma með fjórar villur í síðari hálfleik og það veikti liðið umtalsvert. Róbert Sigurðsson stýrði leik Fjölnis og reyndi eins og hann gat í síðari hálfleik þegar Grindvíkingar hitnuðu. Tómas lék vel í vörninni og Sigtryggi gekk ekki eins vel þegar Tómas valdaði hann. Ýmislegt er spunnið í Fjölnisliðið og sú stað- reynd að liðið hefur aðeins unnið einn leik í Dominos-deildinni sýnir hversu ógnarsterk deildin er. Stjarnan og Tindastóll Viðureign Stjörnunnar og Tinda- stóls hófst í Laugardalshöllinni klukkan 20.15 í gærkvöld. Þegar Morgunblaðið fór í prentun var fyrri hálfleik lokið og staðan 45:43, Stjörnunni í vil. Sigtryggur sneri leiknum  Grindavík leikur til úrslita  Tvær flautukörfur í bráðfjörugum leik  Sigtryggur Arnar kann vel við sig í bikarleikjum í Laugardalshöllinni Morgunblaðið/Eggert Magnaður Sigtryggur Arnar Björnsson lék frábærlega með Grindavík og hér stöðva hann og Kristófer Breki Gylfason Fjölnismanninn Srdan Stojanovic. Sverrir Ingi Ingason og liðsfélagar hans í gríska knattspyrnufélaginu PAOK eru komnir í undanúrslit grísku bikarkeppninnar eftir 1:0- sigur gegn Panathinaikos í seinni leik liðanna í átta liða úrslitum keppninnar í gær. Fyrri leik lið- anna lauk með 2:0-sigri PAOK, sem vann viðureignina samanlagt 3:0. PAOK hefur unnið bikarinn þrjú ár í röð, en liðið vann 1:0-sigur gegn AEK í úrslitaleik í fyrra. Sverrir kom inn á sem varamaður í þeim leik í uppbótartíma, en PAOK hefur sjö sinnum fagnað sigri í keppninni. Sverrir og PAOK í undanúrslit AFP Vörn Sverrir Ingi Ingason leikur til undanúrslita annað árið í röð. Sigvaldi Björn Guðjónsson átti mjög góðan leik fyrir Elverum þegar liðið vann 33:30-heima- sigur gegn Drammen í norsku úr- valsdeildinni í handknattleik í gær. Sigvaldi skoraði sex mörk úr sex skotum í leiknum og var næstmarkahæstur í liði Elverum. Óskar Ólafsson komst ekki á blað hjá Drammen en Elverum er með 30 stig á toppi deildarinnar og hefur nú sex stiga forskot á Ar- endal og Drammen þegar fimm umferðir eru eftir af deild- arkeppninni. Elverum nálgast bikarinn óðfluga AFP Sex Sigvaldi Björn Guðjónsson er mikilvægur hlekkur í liði Elverum. Laugardalshöll, Geysisbikar karla, undanúrslit, miðvikudag 12. febrúar 2020. Gangur leiksins: 0:6, 11:14, 17:16, 25:22, 35:25, 37:34, 42:34, 46:42, 46:48, 57:52, 63:59, 63:65, 65:65, 65:71, 71:76, 71:88, 74:91. Fjölnir: Victor Lee Moses 20/8 frá- köst, Róbert Sigurðsson 15/5 stoð- sendingar/4 fráköst, Jere Vucica 14/11 fráköst, Srdan Stojanovic 13, Tómas Heiðar Tómasson 5/5 frá- köst/5 stoðsendingar, Orri Hilm- arsson 3, Vilhjálmur Theodór Jóns- FJÖLNIR – GRINDAVÍK 74:91 son 2, Daníel Bjarki Stefánsson 2. Grindavík: Sigtryggur Arnar Björns- son 25/8 stoðsendingar/5 fráköst, Valdas Vasylius 25/8 fráköst, Seth LeDay 18/14 fráköst, Ólafur Ólafs- son 14/5 fráköst, Ingvi Þór Guð- mundsson 3/7 fráköst/5 stoðsend- ingar, Miljan Rakic 3/4 stoðsendingar, Kristófer Breki Gylfason 3/6 fráköst. Dómarar: Davíð Tómas Tómasson, Rögnvaldur Hreiðarsson og Jóhann Guðmundsson. Áhorfendur: Um 1.200.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.