Morgunblaðið - 13.02.2020, Side 52
Ferðalög á
20% afsláttur í dag — Full búð af nýjum vörum
13.995.-
11.196.-
KRINGLUPART Ý
Þetta verkefni byrjaði fyrir tæpum
tíu árum og hefur að sögn Jóns Arn-
ar aukið áhuga almennings á vís-
indum og fræðum og á íslenskri nátt-
úru í borgarlandinu.
„Markmiðið með Ferðafélagi
barnanna hefur ávallt verið að skapa
skemmtilegan vettvang fyrir börn
og fjölskyldur þeirra til að njóta úti-
veru, takast á við nýjar og spennandi
áskoranir og hafa einfaldlega gaman
af því að leika sér úti,“ segir Dalla
frá Ferðafélagi barnanna og bætir
því við að verkefnið með Háskóla Ís-
lands hafi heppnast gríðarlega vel.
Þarna mæti flinkir og flottir vís-
indamenn sem bjóði upp á fróðleiks-
göngur um t.d. fugla, skordýr,
sveppi, fjöruna, eldfjöll, stríðsminjar
og stjörnurnar. „Þetta eru gríðar-
lega vinsælar göngur og mjög
ánægjulegt að geta boðið börnum
upp á að njóta náttúrunnar og fá
fróðleikinn samhliða. Vísindamenn
Háskólans hafa vakið mikla athygli
fyrir að draga fram mikilvægi
vísindastarfs fyrir íslenskt samfélag,
fyrir lífríkið okkar og umhverfið.“
Nú er búið að raða upp fróðleiks-
göngum fyrir allt árið og er næsta
ganga í apríl. Þá eru farfuglarnir að
flykkjast til landsins og verður farið
í fuglaskoðun. Fjaran er auðvitað
besti staðurinn til að skoða fugla
snemma vors og verður líklegast far-
ið í Grafarvoginn. Tómas Grétar
Gunnarsson, forstöðumaður Rann-
sóknaseturs Háskóla Íslands á
Suðurlandi, mun leiða fuglaferðina
eins og hann hefur gert frá upphafi
með miklum tilþrifum. Hann veit
enda nánast allt um fugla.
„Minn uppáhaldsfugl er spói,“
segir Tómas Grétar spurður um
þann fugl sem heillar hann mest.
„Fuglar eru frísklegir og áberandi.
Það er líka eitthvað heillandi við
flugið sjálft. Ætli tilhneiging fólks til
að velja sér uppáhaldsfugl sé ekki
eins og að halda með fótboltaliði,“
segir Tómas Grétar.
Fjaran er heillandi heimur
Það er hægt að fara í fjöru allt árið
um kring en vorið er frábær tími til
rannsókna í flæðarmálinu. Fjöruferð
í Gróttu er þess vegna áformuð í lok
apríl. Grótta er algjör perla en þar
verða ýmsar lífverur skoðaðar,
grúskað og leitað að kröbbum í fjör-
unni og öðrum smádýrum í skemmti-
legri rannsóknaferð.
Gríðarlegur fjöldi hefur notið
þekkingar vísindamanna Háskólans
í þessum fjöruferðum en í þeim eig-
um við von á að sjá gnótt af fjöru-
sniglum eins og klettadoppu, þang-
doppu og nákuðungi en einnig
beitukóng, sem yfirleitt lifir að
mestu leyti neðan fjöru. Í fjöruferð
má ekki gleyma að kíkja milli steina
og undir klapparþangið og klóþang-
ið, þar sem leynast marflær, litlir
krabbar og jafnvel sprettfiskar, en
einnig fallegir gulir svampar.
Pöddur, oj bara! Nei, alls ekki,
þær eru magnaðar
Margir hafa ímugust á skordýrum
en pöddur hafa samt heillað unga
fólkið svo um munar undanfarin ár.
Pödduskoðun í Elliðaárdal er því ár-
viss viðburður á hverju sumri. Skor-
dýr eru fjölbreyttasti flokkur dýra á
jörðinni og á Íslandi hefur skordýr-
um fjölgað undanfarin ár af ýmsum
ástæðum. Nýjar tegundir hafa líka
bæst við. Gísli Már Gíslason, skor-
dýrasérfræðingur frá Háskóla Ís-
lands, hefur verið fremstur í flokki
við að fræða göngufólk um heim
skordýranna en hann hefur líka ver-
ið áberandi í fjölmiðlum þar sem
hann hefur m.a. talað um nýja teg-
und sem enginn fagnar, en það er
lúsmýið sem bítur fólk. Gísli Már
segir að skordýr séu helsti keppi-
nautur mannsins um fæðu og hart-
nær fjórðungur af nytjaplöntum fari
beint í skordýr, m.a. hveiti, bygg,
maís og ýmsar aðrar plöntur sem
menn nýti sér sem fæðu. „Miklum
fjármunum er varið í heiminum á ári
hverju í að halda skordýrum niðri.“
Gísli Már segir að skordýr séu
engu að síður gríðarlega mikilvæg í
lífríkinu. „Skordýr frjóvga allar
blómplöntur, og ef þeirra nyti ekki
við væru blómplöntur ekki til.“
Viltu ekki fróðleik í fararnesti?
Með fróðleik í fararnesti er samstarfsverkefni Ferðafélags Íslands, Ferðafélags barnanna og Háskóla Íslands þar sem mörg þúsund manns, ungir og
aldnir, hafa gengið í borgarlandinu og hlotið þrennt: góða útivist, fína hreyfingu og fróðleik í fararnesti frá mögnuðum vísindamönnum Háskólans.
Jón Örn Guðbjartsson, sviðsstjóri hjá Háskóla Íslands, hefur leitt þessar göngur ásamt hjónunum Döllu Ólafsdóttur og Matthíasi Sigurðarsyni.
Alveg ókeypis Frítt er í fróðleiksgöng-
urnar og allir velkomnir með. Mikil-
vægt er að mæta vel klædd og gjarnan
með nesti, en alltaf með góða skapið.