Morgunblaðið - 31.03.2020, Blaðsíða 25
DÆGRADVÖL 25
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 31. MARS 2020
„GAURINN SEM KVARTAÐI UNDAN ÓBRAGÐI
AF KAFFINU FÓR ÁN ÞESS AÐ BORGA!”
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
... að njóta
haustlaufanna.
TÍMI TIL KOMINN AÐ LÉTTA
SIG OG KOMA SÉR Í FORM
NÚ ER ÞAÐ
ORÐIÐ OF SEINT
ERTU Í
GÖNGU-
TÚR,
SVEINN?
JÁ! ÞAÐ RANN UPP FYRIR
MÉR AÐ ÞAÐ STOÐAR
EKKERT AÐ RÍFAST VIÐ
FRÚNA SVO ÉG FÓR ÚT
AÐ GANGA Í STAÐINN!
ÞAÐ GERIR ÞAÐ SVO
LENGI SEM ÉG HELD
ÁFRAM Í SÖMU ÁTT!
ÉG VONA AÐ ÞAÐ LAGI
ÁSTANDIÐ
SAMNINGAVIÐRÆÐURNAR HÓFUST EKKI
Á SKEMMTILEGUM NÓTUM.
OLNBOGANA AF
BORÐINU!
Freyr, f. 12.9. 1959, tæknifræðingur í
Reykjavík, fyrrverandi maki: Lilja
Sigurðardóttir. Þau eiga fjögur börn
og fimm barnabörn; 2) Ragna Freyja,
f. 11.11. 1960, kennari á Möltu, maki:
Þórir Hálfdánarson. Þau eiga tvö
börn; 3) Freyja Rún, f. 7.6. 1962,
ferðafræðingur í Noregi. Hún á eitt
barn; 4) Davíð Karl Sigursveinsson, f.
7.1. 1978, ekkill, búsettur í Kópavogi.
Hann á þrjú börn.
Systkini Gísla eru Bjarni Birgir, f.
3.3. 1942, bifvélavirki í Þórshöfn; Vik-
ar, f. 12.10. 1944, rafmagnsverkfræð-
ingur í Reykjavík; Pétur Örn, f. 18.2.
1949, alvirki í Reykjavík; Björg, f. 7.9.
1961, jarðfræðingur í Kópavogi. Sam-
feðra bræður Gísla eru Guðmundur
Þorgrímsson, f. 30.10. 1956, verktaki
á Fáskrúðsfirði, og Böðvar Bjarki
Pétursson, f. 14.10. 1962, kvik-
myndari í Kópavogi.
Foreldrar Gísla voru hjónin Pétur
Sumarliðason, f. 24.7. 1916, d. 5.9.
1981, kennari í Austurbæjarskóla, og
Guðrún Gísladóttir, f. 5.9. 1920, d. 2.7.
2013, bóka- og skjalavörður á Orku-
stofnun. Þau gengu í hjónaband
30.10. 1940 og bjuggu í Reykjavík og
Kópavogi.
Gísli Ólafur
Pétursson
Petrea Kristín Pétursdóttir
húsfreyja á Grímsstöðum
í Mývatnssveit, f. í Reykjahlíð
Jakob Hálfdanarson
b. á Grímsstöðum og kaupfélagsstj.
Kaupf. Þing., f. á Brenniási í Bárðardal
Aðalbjörg Jakobsdóttir
húsfreyja á Eyrarbakka
Gísli Ólafur Pétursson
héraðslæknir á Eyrarbakka
Guðrún Gísladóttir
skjalavörður á Orkustofnun
Valgerður Ólafsdóttir
húsfreyja í Ánanaustum,
f. á Ægissíðu í Holtum
Pétur Ólafur Gíslason
útvegsb. í Ánanaustum
í Rvík, f. í Rvík
Pétur H. J. Jakobsson
yfirlæknir
Jakob Gíslason orkumálastjóri
Jón Ármann Jakobsson
kaupmaður á Húsavík,
K: Valgerður dóttir Péturs
útvegsb. í Ánanaustum
Björg Andrésdóttir húsfreyja
á Ljótunnarstöðum í Hrútafirði
Áki Jakobsson
ráðherra
Páll
Bergþórsson fv.
veðurstofustjóri
Skúli Guðjónsson rithöfundur
og bóndi á Ljótunnarstöðum
Bergþór
Jónsson
b. í Fljótstungu
í Hvítársíðu
Guðrún
Pétursdóttir
húsfr.
í Fljótstungu
Andrea Andrésdóttir
húsfreyja í Vindási í Eyrarsveit, f. í Gröf
Pétur Pétursson
bóndi í Vindási, f. á Laxárbakka, Hnapp.
Björg Pétursdóttir
húsfreyja í Bolungarvík
Sumarliði Guðmundsson
vélstjóri í Bolungarvík
Anna Petrína Magnúsdóttir
húsfreyja í Miðhúsum, f. í Hattardal
í Súðavíkurhreppi
Guðmundur Sumarliðason
bóndi í Miðhúsum í Reykjarfirði,
f. í Unaðsdal á Snæfjallaströnd
Úr frændgarði Gísla Ólafs Péturssonar
Pétur Sumarliðason
kennari í Austurbæjarskóla
Á sunnudaginn birti Anton HelgiJónsson bráðfallega sonnettu
á Boðnarmiði, sem hann kallar
„Hláturstund“ en hefur að yf-
irskrift á vefnum „Óskaljóð á
sunnudagsmorgni“:
Þú hlærð og burt með fingri tekur tár
sem trillar niður kinn úr bláu auga.
Nú rætast mínar allra innstu þrár;
ég á hér stund með þér og fæ að
spauga.
Þú hlærð og getur eflaust ekkert sagt
nú eða gert af viti rétt á meðan
en kaffibollann fékkstu frá þér lagt
í fréttum virðist lítið annað héðan.
Þú hlærð og úti flýgur flugvél hjá
með fólk sem ætlar norður yfir heiðar
en ég vil helst til hamingjunnar ná
með hlátri þínum flýg ég þangað greið-
ar.
Svo lengi sem mér hlotnast hlátur þinn
ég hlýt að vilja spauga enn um sinn.
Kötturinn Jósefína Meulengracht
Dietrich lætur fara vel um sig:
Það er mesta eymdarár,
inni flestir kúra.
Það er pest og það er fár
það er best að lúra.
Þessi er „Niðurstaða“ Halldórs
Guðlaugssonar:
Mér finnst það sé betra að fá’ana
en forðast að smitast, og skrá’ana!
Það annaðhvort hefst
eða ég drepst
því aldrei mun hægt að útmá’ana.
Kristján Karlsson kveður:
Einhver Sigurjón sunnan úr Garði
hafði sest upp í Vonarskarði.
„Margbölvaður dóni
ég skal melda þig Jóni,“
sagði Melgrasskúfurinn harði.
Páll Jónasson í Hlíð yrkir um
„Ævintýri á gönguför“:
Gekk um að glæsihætti
gullörn og súlu mætti
og þau gerðu útá götu
það sem gert var við Kötu
„í ágúst að áliðnum slætti“.
Alltaf er gott að rifja upp limru
eftir Jóhann S. Hannesson:
Menn halda ef þeir heyra mig stama
að það hljóti að vera til ama,
þó að staðreyndin sé
að mé mé mé mé
mé mér er sko djöfulsins sama.
Árni Óla orti:
Ástalífsins „alfabet“
er að lofa og svíkja.
Ekki mun ég flugufet
frá þeim hætti víkja.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Hláturstund og pest og fár
Gæðavörur
í umhverfisvænum
umbúðum
Kaja organic, Kalmansvellir 3, kajaorganic.com,
kajaorganic@gmail.com
Hollt, bragðgott og þægilegt
Vegan - Keto - Pascaterian - Glutenlaust
Sölustaðir: Hagkaup, Nettó, Heilsuhúsin, Fjarðarkaup, Melabúðin,
Fiskkompaní, Frú Lauga, Brauðhúsið og Matarbúr Kaju á Akranesi