Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 22.03.2020, Qupperneq 12

Morgunblaðið - Sunnudagur - 22.03.2020, Qupperneq 12
KÓRÓNUVEIRAN 12 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22.3. 2020 Þ að hefur líklega aldrei verið jafn mikið annríki hjá landlækni síðan í spænsku veikinni og síðustu daga og vikur. Alma Dagbjört Möller gaf sér þó tíma eftir langan vinnu- dag til að setjast niður og ræða málin. Í fallegu húsi í Kópavogi býður hún í bæinn og bendir að sjálfsögðu strax á stóran sprittbrúsa í and- dyrinu. Í þessari nýju heimsmynd fer að verða jafn sjálfsagt að spritta sig eins og áður þótti að heilsast með handabandi. Alma býður vel sprittuðum blaðamanni til stofu þar sem hægt er að spjalla í ró og næði. Í bakgrunni má heyra eiginmanninn, hjartalækninn Torfa Fjalar Jónasson, stússast við matargerð því senn líður að kvöldmat. Og jafnvel á óvissutím- um þurfa landlæknar að borða. Starf landlæknis hefur oftast verið unnið fyrir luktum dyrum en nú þarf Alma að vera vel sýnileg almenningi sem fylgist grannt með málum í fjölmiðlum. Daglega mæta þau Alma, Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir og Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn á blaðamanna- fundi sem sjónvarpað er beint til landsmanna. Ber öllum saman um að þar sé á ferð afar gott tríó sem svarar öllu vel og af yfirvegun. En áð- ur en við ræðum veiruna skæðu er ekki úr vegi að skyggnast inn í líf Ölmu og kynnast konunni á bak við landlækninn. Vann ung í fiski „Ég er fædd og uppalin á Siglufirði. Móðir mín heitir Helena og er 96 ára og mjög hress. Faðir minn hét Jóhann Möller og var verkstjóri í síldarverksmiðju á Siglufirði og móðir mín vann ýmis störf; var húsmóðir og í síldar- söltun.“ Mér skilst að amma þín hafi látið fleyg orð falla við móður þína þegar hún frétti að hún ætti von á þér, sjötta barninu? „Já, hún sagði: „Fár veit hverju fagna skal. Ég hélt þú værir sloppin.“ Mamma var 38 ára þegar hún átti mig sem þótti gamalt í þá daga til að eignast barn. En það var fínt að alast upp sem yngsta barnið. Systur mínar voru farnar að heiman í menntaskóla þegar ég fer að muna eftir mér þannig ég er eiginlega bara alin upp með bróður mínum Kristjáni, sem síðar varð ráðherra,“ segir hún og útskýrir að átta ár eru á milli þeirra og því hafi hún að lokum verið ein eftir heima af þeim systkinum. „Það var frábært að alast upp á Siglufirði. Það var annaðhvort gott veður eða brjálað veð- ur og mér fannst hvort tveggja jafn skemmti- legt. Þarna var gríðarlegt frelsi og mikið um að vera fyrir krakka; skíði, skautar, sleðar og kajakar á sumrin. Ég fór ung að vinna í fiski og saltfiski,“ segir Alma og segist hafa náð aðeins í skottið á síldarævintýrinu. „Systkini mín unnu öll mikið í síld, en ég, ör- verpið í hópnum, hef líka saltað. Við erum fimm systur og einn bróðir, en elsta systirin Helga Kristín er látin fyrir löngu. Dóttir mín fæddist sama ár og hún lést og heitir í höfuðið á henni. Hún lést úr krabbameini 49 ára gömul þegar ég var um þrítugt. Hún var fyrirmynd fyrir okkur öll og hún er með okkur alla tíð.“ Allt heillandi við læknisfræði Þrátt fyrir að foreldrar Ölmu hafi ekki sjálf fengið tækifæri til að ganga menntaveginn hvöttu þau börnin óspart til þess. „Aðstæður þess tíma voru aðrar, en mamma fór í Húsmæðraskólann á Laugum sem var ekki sjálfgefið, og þar kynntist hún pabba. Pabbi lagði áherslu á það alla tíð að við börnin myndum mennta okkur; það var efst á lista hjá honum! Okkur gekk öllum vel að læra,“ segir Alma sem fór ung að heiman til að stunda nám við Menntaskólann á Akureyri. Hún átti góð ár í menntaskóla og segir það hafa verið lítið mál að standa á eigin fótum svona ung. „Það er margt sem ég lærði þar sem ég bý að alla tíð.“ Alma segist hafa ákveðið frekar snemma í menntaskóla að leggja læknisfræðina fyrir sig. „Mér fannst gaman í líffræði og öllu sem henni tengist og eins fannst mér gaman að fólki. Það hafði enginn nálægt mér farið í læknisfræði en síðan þá hafa nokkur systk- inabörn fetað þá braut,“ segir hún. „Mér fannst allt heillandi við læknisfræðina og námið var skemmtilegt og starfið enn betra.“ Aldrei í lífinu Að loknu grunnnámi hér heima hélt Alma til Lundar í Svíþjóð í sérnám í svæfinga- og gjör- gæslulækningum. „Það er gríðarlega fjölbreytt svið því á gjör- gæslu koma sjúklingar með alls konar vanda- mál. Þar koma allir sérgreinalæknarnir saman og maður vinnur með þeim. Þannig þarf maður að hafa mjög breiða þekkingu. Svo er þarna skemmtileg blanda af fræðum og að vinna með höndunum. Ég sérhæfði mig mest í gjörgæslu- lækningum og varð yfirlæknir á sjúkrahúsinu í Lundi árið 1999 þegar ég hafði lokið doktors- námi.“ Mitt í námi og krefjandi starfi eignuðust hjónin Helgu árið 1992 en hún er í dag í dokt- orsnámi í jarðfræði. Sonur þeirra Jónas fædd- ist í Svíþjóð árið 1996 en hann stundar meist- aranám í lögfræði. „Árið 2003 kom ég heim og var fyrst yfir svæfingum í Fossvogi og síðar gjörgæslu á Hringbraut. Árið 2014 varð ég fram- kvæmdastjóri en þá hafði ég bætt við mig meistaragráðu í stjórnun og lýðheilsu frá Há- skólanum í Reykjavík. Svo var ég skipuð land- læknir árið 2018.“ Þegar þú bættir við þig námi í stjórnun og lýðheilsu, sástu fyrir þér að enda sem land- læknir? „Aldrei í lífinu,“ segir Alma og hlær. „Það var aldeilis ekki planið. En ég hef of- boðslega gaman af því að læra og sá áhugi hef- ur bara aukist með aldrinum. Á þessum tíma var ég orðin yfirlæknir og vildi styrkja mig í stjórnun.“ Þú slærð þá Georg Bjarnfreðarsyni við með háskólagráður? „Já, líklega. Áður en ég varð landlæknir byrj- aði ég í námi í opinberri stjórnsýslu í Háskóla Íslands. Það gerði ég af því að ég var orðin framkvæmdastjóri á Lansanum, yfir sex hundruð manns og með milljarða veltu á mínum herðum. Það var gríðarlega skemmtilegt starf. En eftir að ég var skipuð landlæknir fannst mér of mikið að klára það nám með vinnu. En ég hef aldrei gengið frá ókláruðu verki, þannig að ég kláraði þetta bara. Það var mikil vinna en ekk- ert mál. Og svakalega góður undirbúningur fyr- ir landlæknisstarfið,“ segir Alma og viður- kennir að hún sé líklega keppnismanneskja. „En ég er bara að keppa við sjálfa mig, ekki einhvern annan. Ég vil gera hlutina vel.“ Sigið í tíu metra ölduhæð Alma vann í mörg ár sem gjörgæslulæknir sem hún segir afar krefjandi starf en skemmti- legt. „Mér hefur alltaf þótt gaman í vinnu, hvort sem það var í fiski eða sem læknir. En mér finnst líka gaman að breyta til þannig að ég hef alltaf skipt reglulega um starf. Mér finnst það gott vegna þess að þá læri ég eitthvað nýtt og það er ekki síður gott fyrir starfsemina. Það er ekki gott fyrir neina starfsemi að sami stjórn- andinn sitji allt of lengi.“ En hvenær varstu þyrlulæknir hjá Gæsl- unni og hvernig var það? „Það var sko gaman! Það var þegar ég var unglæknir og var byrjuð í svæfinga- og gjör- gæslulækningum. Þetta var í kringum 1990, í tvö ár, þangað til ég varð ófrísk; ég hefði ekki getað sigið niður í skip ófrísk,“ segir hún og hlær. Alma var þá með kalltæki og alltaf til taks þegar kallið kom en þess má geta að Alma var fyrst kvenna til að gegna þessu starfi. „Þegar kallið kom þá hljóp maður.“ Í hverju lentir þú? „Öllu. Ég þurfti margoft að síga niður í skip. Í fyrsta skipti sem ég var látin síga var tíu metra ölduhæð. Ég man þetta eins og það hafi gerst í gær. Það var nótt og stýrimaðurinn spurði mig hvort ég treysti mér niður. Ég svaraði: „Ég veit það ekki, þið verðið að meta það.“ Af því að ég hafði ekki gert þetta áður. Og niður fór ég og það gekk vel. Ég þurfti að búa um sjúkling sem álitið var að hefði fengið hjartaáfall. Ég bjó um hann í börunum og hann var hífður upp og ég á eftir,“ segir Alma og segist ekki hafa fundið fyrir hræðslu. „Ég er hvorki hrædd né kvíðin yfir verk- efnum. Ég bara fer í verkin.“ Fallegt stell fýkur ekki Landlæknir á sér mörg áhugamál og nýtir tím- ann vel þegar stund gefst milli anna. „Útivist er mikið áhugamál en við hjónin höfum farið víða, bæði innanlands og utan. Við höfum meðal annars gengið upp á sex þúsund metra hátt fjall í Perú. Verkaskiptingin okkar er þannig að ég skipulegg utanlandsferðir, og höfum við farið til dæmis til Galapagos og Hawaii, en eiginmaðurinn skipuleggur innan- landsferðir. Þá förum við upp á hálendi sem er best í heimi. Við viljum þá komast í algjörar óbyggðir og sofum þá í tjaldi. En ég legg upp úr því að hafa með góðan mat og gjarnan að það sé fallega lagt á borð,“ segir Alma. Því hafði nefnilega verið hvíslað að blaða- manni að Alma færi jafnvel með fallegt mat- arstell upp í óbyggðir, þegar flestir láta sér nægja útilegudiska úr plasti. „Það er betra að vera með fallegt stell; það fýkur heldur ekki. Það er lítið mál að fara með tvo fína diska. Ég legg mikinn metnað í að skipuleggja matinn. Við getum farið í vikuferð en samt borðað eðal mat, enda bragðast matur hvergi betur en úti undir beru lofti.“ Önnur áhugamál Ölmu eru hannyrðir og tónlist og eru óperur í sérlegu uppáhaldi. „Það er langt síðan ég fór að hlusta á óperur og við höfum séð óperur víða um heim. Ef ég fer í vinnuferðir athuga ég alltaf hvort ekki sé verið að sýna óperu og fer þá ef svo er.“ Sá þetta ekki fyrir Hinn fyrsta apríl hefur Alma gegnt embætti landlæknis í tvö ár og segir hún árin hafa verið gríðarlega skemmtileg. „Þetta starf hentar mér ágætlega og mér finnst alltaf gaman í vinnunni. Það koma upp alls konar mál og sum erfið en heilt á litið er starfið mjög fjölbreytt. Ég vinn með góðu fólki og hef verið mjög sátt. Ég vinn mjög vel með mínum næsta yfirmanni, heilbrigðisráðherra. Við eigum í góðu og skemmtilegu samstarfi,“ segir Alma en þess má geta að embættið varð 260 ára í vikunni og sjaldan hefur mætt eins mikið á því og nú. Grunaði þig einhvern tímann að þú myndir standa frammi fyrir þessari ógn sem heltekur nú heiminn? „Nei. Ég get ekki sagt það. Auðvitað hefur maður hugsað um heimsfaraldra og ég var kom- in heim til Íslands þegar SARS- faraldurinn, sem er skyldur þessum, gekk yfir árið 2003. Við fórum þá í vinnu og undirbjuggum ýmsa hluti sem við búum að núna. Þegar svínaflensan gekk yfir vann ég á gjörgæslunni og hún olli miklu álagi en við réðum vel við það. Það komu 170 sjúklingar á spítalann og sextán á gjörgæslu en þeir dreifðust vel yfir tíma. Í kjölfarið var gerð áætlun um heimsfaraldur þannig að hún var til. En auðvitað erum við að læra mikið. Ég var ekki búin að sjá þetta fyrir. Svo var ekki í starfs- lýsingunni að vera svona mikið í fjölmiðlum. Maður hefur þurft að sjóast hratt því það er svo mikilvægur hluti af þessu verkefni.“ Vernda þá viðkvæmustu Hvernig hefur þér fundist ganga að miðla áfram upplýsingum og hvernig finnst þér al- menningur taka þessu? „Auðvitað ríkir mikil óvissa og faraldurinn er á fleygiferð. Það er mikið áhyggjuefni þegar ný veira kemur og þessi er meira smitandi en inflú- ensa. Og það er hvorki til bóluefni né meðferð. Við sjáum hvað gerðist í Kína og hvað er að ger- ast á Norður-Ítalíu. Þetta er mjög alvarlegur faraldur og veldur gríðarlegu álagi á heilbrigð- iskerfið. En ég er mjög sátt við framgöngu sótt- varnalæknis og er sátt við aðgerðirnar. Það er mikilvægt að fræða almenning og mér finnst það hafa gengið vel. Það hjálpar okkur í því hvað við erum fámenn,“ segir Alma. Ég vil gera hlutina vel Alma D. Möller hræðist ekki mikla vinnu enda alin upp við fiskvinnu á Siglufirði sem barn. Sem unglæknir vann hún með Gæslunni og vílaði ekki fyrir sér að síga niður í skip í tíu metra ölduhæð. Nú siglir hún annars konar stórsjó sem landlæknir á tímum kórónuveirunnar. Alma stýrir því skipi sem best hún má og segist vona það besta en búa sig undir það versta. Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is ’ Ég er í þessu verkefni og tekþví eins og það kemur. Ég erauðvitað að vona að við lend-um ekki í eins málum og Ítalía. Við vonum það besta en búum okkur undir það versta.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.