Morgunblaðið - Sunnudagur - 22.03.2020, Side 13
22.3. 2020 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13
„Við leggjum ofuráherslu á að vernda þá sem
myndu fara verst út úr veikindinum, aldraða og
þá sem eru með undirliggjandi sjúkdóma. Mér
finnst allir vera með á nótunum. Það er auðvitað
kvíði og óvissa í þjóðfélaginu því það er ekkert
okkar sem veit hvað er framundan. Við þurfum
að teygja á faraldrinum því annars ræður heil-
brigðiskerfið ekki við það,“ segir Alma.
„Við erum að búa okkur undir að taka á móti
fleiri mikið veikum. Þetta snýst allt fyrst og
síðast um mannskap. Alls staðar í heiminum er
skortur á heilbrigðisstarfsfólki.“
Aðgerðir halda veirunni í skefjum
Áttuð þið von á að útbreiðslan yrði svona hröð?
„Nei, ég get ekki sagt það. Reyndar rann
upp fyrir mér ljós fyrir nokkrum vikum um
hvernig þetta gæti þróast en ég held að ekkert
okkar hafi séð það fyrir þegar fyrsta tilfellið
greindist 28. febrúar, hversu hratt tilfellum
myndi fjölga,“ segir Alma og útskýrir að hér á
landi sé gengið mjög hart fram í að taka sýni
sem gæti skýrt það hversu mikið tölurnar
hækka hér á landi, frekar en annars staðar þar
sem ekki er unnið eins ötullega að söfnun sýna.
Heldurðu að veiran hafi verið farin að gras-
sera áður en fyrsta fólkið greindist sem kom
hingað af skíðasvæðum Ítalíu?
„Nei, mér finnst það mjög ólíklegt og ég
byggi það á skimuninni hans Kára. Það kom
frekar á óvart að það væru ekki fleiri smitaðir.
Þess vegna halda allar aðgerðir áfram að hafa
gildi; eins og einangrun, smitrakning, sóttkví,
samkomubann og lokun framhaldsskóla. Við
reiknum með að þessar aðgerðir muni halda
veirunni í skefjum.“
Nú taka aðrar þjóðir öðruvísi á málunum,
eins og með að loka landamærum. Myndir þú
vilja sjá það hér?
„Það gæti hugsanlega komið til þess. Þetta
er í sífelldri skoðun. Það er mismunandi hvern-
ig þjóðir gera þetta og það er engin ein leið.“
Veiran fer um allan heim
Alma segir ný verkefni koma í fangið á þeim á
hverjum degi. „En við erum líka að vinna fram
fyrir okkur og verið er að búa til spálíkan um
hvernig fjöldi smitaðra og veikra muni þróast.
Við vitum ekki hvað margir Íslendingar eiga eft-
ir að smitast. Það eru alls konar prósentutölur á
sveimi og best að miða við það sem við vitum að
gerðist, eins og í Kína. Ég vona að við séum með
betri tök á þessu en Ítalir. Ef ástandið eins og
það er á Ítalíu væri hér væru nú þegar tólf látn-
ir. Það eru allar líkur á því hér að fólk muni
veikjast alvarlega og að fólk deyi,“ segir Alma og
nefnir að bóluefnis sé ekki að vænta á næstunni.
Alma segist ekki geta svarað því hvenær líf-
ið fari aftur í sömu skorður og áður.
„Við höfum sagt að þetta taki einhverja
mánuði. Og svo það sé alveg á hreinu, þá er
hvorki hægt að loka þessa veiru inni né úti.
Hún fer um allan heim,“ segir hún og leggur
áherslu á að halda öldruðum og fólki með und-
irliggjandi sjúkdóma frá veirunni.
„Við þurfum að hafa það fólk í bómull, eins
og mömmu mína.“
Búum okkur undir það versta
Hver eru mikilvægustu skilaboð sem þú mynd-
ir vilja koma til þjóðarinnar?
„Það er að sýna áfram yfirvegun. Að kynna
sér málin á áreiðanlegum miðlum eins og
covid.is og landlaeknir.is. Að hlýða öllum til-
mælum, eins og að gæta hreinlætis, fara ekki úr
sóttkví eða einangrun. Virða samkomubann og
vanda sig í umgengni við aldraða. Þetta eru
mörg skilaboð en öll mjög mikilvæg. Svo þarf
fólk að hjálpast að. Þeir sem veikjast eru fórn-
arlömb og þetta getur komið fyrir hvern sem
er. Við verðum að passa að láta veiruna ekki
komast upp á milli okkar. Eitt af því góða sem
gæti komið út úr þessu er að við förum að hugsa
betur hvert um annað. Þetta verður að þjappa
þjóðinni saman því við erum öll í þessu saman.“
Ertu bjartsýn eða svartsýn?
„Hvorugt. Ég er í þessu verkefni og tek því
eins og það kemur. Ég er auðvitað að vona að
við lendum ekki í eins málum og Ítalía. Við
vonum það besta en búum okkur undir það
versta. En ef eitthvað gott á að koma út úr
þessu vona ég að það verði að fólk meti mikil-
vægi heilbrigðisstarfsfólks, mikilvægi hrein-
lætis og mikilvægi náungakærleika.“
„Við höfum sagt að þetta taki einhverja
mánuði. Og svo það sé alveg á hreinu,
þá er hvorki hægt að loka þessa veiru
inni né úti. Hún fer um allan heim,“
segir Alma D. Möller landlæknir.
Morgunblaðið/Ásdís
Alma þurfti oft að síga niður í skip í stórsjó þeg-
ar hún vann sem þyrlulæknir hjá Gæslunni.
Móðir Ölmu, Helena Sigtryggsdóttir, stillti sér
upp á mynd með dóttur sinni á 95 ára afmælinu.
Alma segir það hafa verið tilviljun að þær voru
svipað klæddar og að nú sé gert grín að henni
fyrir að klæða sig eins og 95 ára kona.
Frá vinstri eru Torfi, tengdasonurinn Daníel, Helga, Alma, Jónas, tengdadóttirin Andrea og hund-
urinn Mói, en myndin er tekin í júní á síðasta ári þegar Helga og Daníel útskrifuðust með meistara-
gráðu í jarðfræði, Jónas með BA í lögfræði og Alma með diplóma í opinberri stjórnsýslu, öll frá HÍ.
Ljósmynd/Landhelgisgæslan
Ljósmynd/Helga Kristín Torfadóttir
Ljósmynd/Helga Kristín Torfadóttir