Morgunblaðið - Sunnudagur - 22.03.2020, Síða 19
Draumaverkefni innanhússarkitekta erustór verkefni þar sem leysa þarf mörgvandamál. Í þessu húsi þurfti til dæmis
að koma fyrir sjónvarpi án þess að eyðileggja
útsýnið úr stofunni. Hún leysti það með því að
setja upp vegg í rýminu fyrir sjónvarpið. Það
sem er kannski óhefðbundið í
þessu húsi er að steypt loft
og veggir fá að njóta sín.
„Það var mjög skemmti-
legt að vinna þetta verkefni
og samvinnan við verkkaup-
ana gekk mjög vel. Það er
ótrúlega mikilvægt þegar
farið er í stórar fram-
kvæmdir eins og þessa að
samstarfið sé gott. Þegar fólk velur sér hönnuð
þarf að tryggja að sameiginleg sýn sé um hug-
myndafræðina og að hönnuðinum sé treyst. Ég
var til dæmis mjög spennt fyrir að leyfa steyp-
unni að njóta sín og eigendurnir voru á sama
máli,“ segir Rut.
Rut segir að stofur eigi ekki að vera ónotaðar
og þess vegna fann hún lausn til þess að koma
sjónvarpinu fyrir.
„Það sem helst var snúið við hönnunina var
að húsráðendur vildu koma fyrir sjónvarpsrými
á aðalhæðinni þannig að það væri í góðum
tengslum við önnur rými. Til þess að eyðileggja
ekki stofuna og útsýnið úr henni varð lausnin sú
að byggja spónlagðan vegg og setja síðan rimla
upp í loft sem stúkuðu sjónvarprýmið aðeins af
en lokuðu því ekki. Þannig má nú sitja í sjón-
varpssófanum og njóta útsýnisins úr stofunni
um leið. Mér finnst vera allt of mikið um það að
fólk sitji inn í lokuðu og loftlausu sjónvarpsrými
á meðan stofan stendur ónotuð,“ segir hún.
Eldhúsið er sérlega fallegt. Þegar Rut er
spurð að því hvernig það hafi verið skipulagt
segir hún að það hafi orðið að vera eins og það
er því rýmið sjálft sé ekki mjög stórt og því hafi
þurft að gera sem mest úr því.
„Hér lá grunnrýmið fyrir og við vorum bund-
in af því. Farin var sú leið að hafa eldhúsið hálf-
opið. Rýmið er frekar lítið svo við ákváðum að
hafa eitt stórt borð sem gegnir bæði hlutverki
eldhúss- og borðstofuborðs,“ segir Rut og bætir
við:
„Við notuðum reykta, bæsaða eik í innrétt-
ingarnar sem er svo hlý á móti steypunni á
veggjum og lofti. Innréttingarnar voru sérsmíð-
aðar hjá Við og við. Borðplöturnar eru frá fyrir-
tækinu Silestone, og eru þær bæði fáanlegar hjá
Rein steinsmiðju og S. Helgasyni.“
Uppáhaldsgluggatjöldin
Gluggatjöldin setja svip sinn á eldhúsið og þeg-
ar Rut er spurð út í þau kemur í ljós að þetta
eru uppáhaldsgluggatjöld hennar þessa dagana.
„Ég er mjög hrifin af því að nota „tága“ felli-
tjöld því þau eru bæði hlýleg og hleypa inn nota-
legri birtu. Þessi tjöld eru frá versluninni
Skermi, sem býður upp á mikið úrval af fal-
legum efnum og frábæra þjónustu.“
Þegar inn á baðherbergið er komið taka við
gráir veggir og fallegar sandlitaðar flísar.
Steypan fær að njóta sín í loftinu eins og í öðr-
um rýmum.
„Ég vil að mismunandi rými á heimilum kall-
ist á og séu í takti. Þannig finnst mér alltaf gam-
an að hluti af efnisvalinu poppi upp í öðrum her-
bergjum eins og gerist í þessu baðherbergi.
Gunnar Sverrisson
Innanhúss-
arkitektastarfið
stundum eins og
björgunarstarf
Sjónsteypa, dökkur viður og bæsuð eik sameina fallegt heimili
sem Rut Káradóttir innanhússarkitekt teiknaði. Hún segir það ekki
rétt að flest heimili séu í gráum tónum því fasteignavefurinn sanni
að flestir landsmenn séu fastir í hvíta litnum. Þrátt fyrir að Rut sé
búin að vera í meira en tvo áratugi í faginu segist hún elska vinn-
una og upplifi stundum að hún sé í björgunarstarfi því fólk þurfi
svo mikla hjálp þegar kemur að endurskipulagningu á heimilinu.
Marta María Jónasdóttir mm@mbl.is
Horft niður stigann. Steypti
veggurinn fer vel við gráa tóna
á örðum veggjum og ljósa
parketið. Ljósakrónan frá Flos
setur svip sinn á rýmið en hún
fæst til dæmis í Casa.
22.3. 2020 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19
Rut Káradóttir
Þegar þú vaknar í rúmi frá Hästens munt þú skilja virði þess að ná
fullkomnum nætursvefni. Rúmin eru framleidd með einstöku samspili
handverks og hráefna þar sem hvergi eru gerðar málamiðlanir í gæðum
náttúrulegra efna eða tíma við óþreytandi handverkið.
Þú sérð það ekki en þú munt fi nna fyrir því. Allan sólarhringinn.
Heimsæktu Hästens í Faxafeni eða pantaðu vörulistann á hastens.com.