Morgunblaðið - Sunnudagur - 22.03.2020, Side 28
28 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22.3. 2020
LESBÓK
SJÓNVARP Bresku þættirnir Noughts + Crosses, sem
hermt var af á þessum vettvangi fyrir viku, fá þokka-
lega dóma í breska blaðinu The Independent, þrjár
stjörnur af fimm mögulegum. Rýnir blaðsins, Fiona
Sturges, segir annmarka þáttanna ekki síst felast í því
að verið sé að laga unglingabókmenntir að sögu fyrir
fullorðna og að fé hafi augljóslega verið af skornum
skammti við gerð þáttanna. Þá þykir henni aðalpersón-
urnar ekki dregnar nægilega skýrum dráttum. Á móti
komi að boðskapurinn sé skýr og sterkur, en í Noughts
+ Crosses er kynþáttafordómum snúið á hvolf, svartir
drottna yfir hvítum í ímynduðum heimi. „Þetta er sería
sem spyr hvíta áhorfendur áleitinna spurninga og sú
mikilvægasta er: Hvað ef þetta værir þú?“
Hvað ef þetta værir þú?
Masali Baduza í
hlutverki sínu í
þáttunum.
BBC
BOÐSKAPUR Randy Blythe, söngvari Lamb
of God, sem þekktur er fyrir beitta texta sína,
hafnar því alfarið í samtali við tónlistar-
tímaritið Billboard að Checkmate, fyrsta
smáskífan af væntanlegri plötu bandaríska
málmbandsins, sem ber nafn þess, fjalli um
Donald Trump Bandaríkjaforseta. Erfitt sé
að yrkja um forsetann; hann sé ólíkindatól og
vont að sjá gjörðir hans fyrir. Blythe viður-
kennir þó að texti lagsins sé pólitískur.
„Hann fjallar um það að stjórnmálaflokk-
arnir okkar tveir eru nú um stundir sín hliðin
hvor á sama peningnum, sem hefur eyði-
leggjandi áhrif og er lýðræðinu hættulegt.“
Checkmate fjallar ekki um Trump
Randy Blythe yrkir á pólitískum nótum.
AFP
Julia Roberts lék í Pretty Woman.
Handritið
tónað niður
AFMÆLI Miðaldra kaupsýslumað-
ur borgar ungri vændiskonu fyrir
að þjónusta sig í heila viku. Ekkert
sérstaklega uppörvandi upplegg en
það kom ekki í veg fyrir að Pretty
Woman yrði ein af vinsælustu og
ástsælustu gamanmyndum seinustu
áratuga. Þetta hafa menn verið að
rifja upp síðustu daga en á morgun
verða þrjátíu ár liðin frá því að
myndin var frumsýnd. Á vef sínum
gerir breska ríkisútvarpið, BBC,
því skóna að tvennu sé helst að
þakka, annars vegar því að hand-
ritið var tónað heilmikið niður,
Vivian átti t.d. upphaflega að vera
fíkniefnaneytandi, og hins vegar
ógurlegum sjarma aðalleikaranna,
Juliu Roberts og Richards Gere.
Ég er rokkljósmyndari, ekkibara í þyngra rokki og málmi.Ég er best þekktur fyrir
málminn enda vann ég fyrir tímarit-
ið Kerrang! á níunda áratugnum.
Það helgaðist þó meira af því að í
stað þess að fara til Leeds að mynda
Pet Shop Boys fór ég frekar til
Hawaii að mynda Aerosmith. Hvort
hefðuð þið frekar valið? Á þessum
tíma sá Blaðamannafélagið líka til
þess að maður fengi tvöfalt betur
borgað fyrir litmyndir en myndir í
svart-hvítu. Og Kerrang! var löðr-
andi í lit.“
Þetta segir ljósmyndarinn Ross
Halfin í samtali við breska dagblaðið
The Guardian á dögunum, en hann
hefur um langt árabil verið einn
eftirsóttasti ljósmyndarinn í rokk-
heimum.
Halfin, sem fæddur er í Bretlandi
árið 1957, hneigðist snemma til lista
og ætlaði upphaflega að verða
myndlistarmaður. Ungur að árum
byrjaði hann hins vegar að taka
myndavélina sína með sér á rokk-
tónleika, sem var heimilt á þeim
tíma, og eitt leiddi af öðru.
Byrjaði ekki vel
Halfin vann mikið með Led Zeppelin
meðan rokktröllin voru og hétu. Það
byrjaði þó ekki vel, eins og hann lýs-
ir í The Guardian:
„Versta ljósmyndin mín var tekin
Plantið ykkur
ei í mín spor!
Robert Plant stjakaði við honum og hann hunsaði
fyrstu símtölin frá „fábjánanum“ Lars Ulrich.
Samt sló Ross Halfin rækilega í gegn og varð einn
eftirsóttasti ljósmyndarinn í rokkheimum.
Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is
Mynd sem Þorvaldur Örn Kristmundsson tók af Lars Ulrich í Egilshöll 2004.
Morgunblaðið/ÞÖK
Ross Halfin (t.h.) ræðir við Kirk Hammett gítarleikara Metallica í útgáfuhófi
vegna endurminninga Jimmys Page fyrir sex árum. Þeir hafa unnið lengi saman.
AFP
- meira fyrir áskrifendur
Lestumeira
með vikupassa!
Fyrir aðeins 1.890 kr. færð þú netaðgang
að öllu efni úr blaði dagsins og næstu 6 daga.
- Fréttir
- Ritstjórnargreinar
- Menning
- Íþróttir
- Daglegt líf
- Viðskipti
- Fastir þættir
- Aðsendar greinar
- Aukablöð
- Viðtöl
- Minningargreinar
- Umræðan
Vikupassi er auðveldari
leið til að lesaMorgunblaðið
á netinu.
Fáðu þér vikupassa af
netútgáfu Morgunblaðsins.