Morgunblaðið - 02.04.2020, Blaðsíða 6
6
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. APRÍL 2020
Glæsilegar danskar
innréttingar í öll
herbergi heimilisins
Fríform ehf.
Askalind 3,
201 Kópavogur.
562–1500
Friform.is
Mán. – Fim. 10–18
Föstudaga. 10–17
Laugardaga. 11–15
KÓRÓNUVEIRUFARALDUR
Guðni Einarsson
Jón Pétur Jónsson
Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir
lagði til við heilbrigðisráðherra í gær
að aðgerðir og samkomubönn sem
áttu að gilda til 13. apríl giltu áfram
út apríl. Þetta kom fram á daglegum
upplýsingafundi almannavarna og
landlæknis í gær.
Þórólfur sagði að kórónuveirufar-
aldurinn ætti eftir að ná toppnum og
vonandi rættist spá um að honum
yrði náð í fyrri hluta apríl. Hann
sagði að í ljósi mikils álags á Land-
spítalann, einkum gjörgæsludeildir,
teldi hann að það væri óhjákvæmi-
legt að halda áfram þeim aðgerðum
og samkomubanni sem hefðu verið í
gangi undanfarið.
Enduskoðað seinni part apríl
„Því mun ég leggja það til í dag við
heilbrigðisráðherra að við munum
halda áfram með þær aðgerðir, þau
samkomubönn, sem hafa verið í gildi
og áttu að gilda til 13. apríl, að þau
muni áfram gilda út aprílmánuð.
Seinni partinn í apríl verði þá endur-
skoðað hvað við munum gera,“ sagði
Þórólfur í gær. Hann tók fram að að-
gerðirnar væru í sífelldri endurskoð-
un og yrðu áfram í ljósi faraldursins,
þ.e. hvort það þyrfti að herða þær
eða hugsanlega slaka á þeim. „Ég á
ekki von á því að það verði gert fyrr
en eftir aprílmánuð og þá verður það
kynnt nánar þegar þar að kemur
hvernig það verður gert, í hversu
mörgum skrefum og hvað það muni
taka langan tíma.“
Þórólfur sagði að nú reyndi virki-
lega á úthaldið og samstöðuna. „Því
skora ég á alla að standa saman um
þær aðgerðir sem eru í gangi þannig
að okkur takist sem best að hindra
framgang þessarar sýkingar. Það er
mikilvægt að við höldum þær leið-
beiningar sem gilda um hreinlæti,
sýkingavarnir, fjarlægðarmörk og
samkomutakmarkanir.
Mikilvægt að fara í rannsókn
Og sérstaklega vil ég leggja
áherslu á þær leiðbeiningar sem við
höfum gefið út varðandi viðkvæma
hópa. Það er mjög mikilvægt að við
höldum áfram að standa vörð um
það. Og það er mjög mikilvægt að
þeir einstaklingar sem eru eitthvað
veikir, með öndunarfærasýkingu,
kvef, hita og hósta, að þeir loki sig af,
fari ekki innan um fólk, fari ekki inn-
an um viðkvæma hópa, geri vart við
sig svo það sé hægt að taka frá þeim
sýni og rannsaka,“ sagði sóttvarna-
læknir. Hann tók ennfremur fram að
veiran mundi ekki virða frídaga eða
páskana. Því væri mikilvægt að
halda áfram með þessar aðgerðir.
Þá lagði hann áherslu á mikilvægi
sýnatöku hjá einstaklingum sem
uppfylltu skilyrði fyrir sýnatökur.
Og benti um leið á sýntökur hjá Ís-
lenskri erfðagreiningu sem væru að
fara af stað með slembiúrtaksrann-
sókn til að kanna raunverulega dreif-
ingu á veirunni í samfélaginu. Hann
hvatti fólk til að taka þátt í rann-
sókninni, sem mundi gefa góða inn-
sýn varðandi næstu skref.
Auk Þórólfs tóku þátt í fundinum í
gær þau Alma D. Möller landlæknir,
Páll Matthíasson, forstjóri Landspít-
alans, Unnur Sverrisdóttir, forstjóri
Vinnumálastofnunar, og Víðir Reyn-
isson yfirlögregluþjónn.
Fjöldi eftir landshlutum
Óstaðsett 32 1.609
Útlönd 0 0
Austurland 5 171
Höfuðborgarsvæði 918 3.951
Suðurnes 54 378
Norðurland vestra 29 146
Norðurland eystra 34 375
Suðurland 118 767
Vestfirðir 6 151
Vesturland 24 274
Smit
Sóttkví
Uppruni smits
Innanlands Erlendis
Óþekktur
19.516 sýni hafa verið tekin
236 einstaklingar hafa náð bata
7.735 hafa lokið sóttkví
41 er á sjúkrahúsi
2 einstaklingar eru látnir
12 á gjör-gæslu
982 manns eru í einangrun
Fjöldi staðfestra smita frá 28. febrúar
Upplýsingar eru fengnar af covid.is og landspitali.is
1.220 smit voru staðfest
í gær kl. 13.00
7.822 manns eru í sóttkví
1.220
28. 29. 1. 2. 3. 4. 5. 6. 7. 8. 9. 10. 11. 12. 13. 14. 15. 16. 17. 18. 19. 20. 21. 22. 23. 24. 25. 26. 27. 28. 29. 30. 31.
66%
9%
25%
1.200
1.000
800
600
400
200
Samkomubann líklega út apríl
Kórónuveirufaraldurinn á eftir að ná toppnum Mikið álag á Landspítalanum, einkum á gjörgæslu
Aðgerðir eru stöðugt í endurskoðun Nú reynir á úthaldið og samstöðuna Veiran tekur ekki frí
Ljósmynd/Lögreglan
Upplýsingafundur Sóttvarnalæknir lagði til við heilbrigðisráðherra í gær að samkomubann yrði framlengt.
Algengt er um þessar mundir að að-
standendur fresti útförum ástvina
sinna, enda eru jarðneskar leifar
þeirra brenndar og svo stefnt á útför
eða minningarathöfn þegar sam-
komubanni vegna kórónuveirunnar
lýkur. Þetta segir Þórsteinn Ragn-
arsson, forstjóri Kirkjugarða
Reykjavíkurprófastsdæma. Sömu-
leiðis færist líkbrennsla í vöxt og er
nú viðhöfð hjá yfir helmingi látinna á
höfuðborgarsvæðinu.
„Að fara eftir reglunum um
samkomubann hefur ekki verið neitt
vandamál hér í Fossvogskirkju.
Margir vilja þó halda útför sam-
kvæmt gamalli hefð og velja því lík-
brennslu og halda minningarathöfn
þegar slíkt verður leyft að nýju. Aðr-
ir kjósa jarðarför með hefðbundum
hætti sem fram fer í kyrrþey, en
ætla síðan þegar aðstæður leyfa að
vera með athöfn þar sem mynd af
hinum látna er hugsanlega höfð uppi
eða eitthvað slíkt,“ segir Þórsteinn.
Í mars síðastliðnum voru útfarir á
starfssvæði Kirkjugarða Reykjavík-
urprófastsdæma, sem spannar
höfuðborgina, Kópavog og Seltjarn-
arnes, alls 180 talsins en voru 204 í
sama mánuði í fyrra. Yfirleitt er
fjöldi útfara í hverjum mánuði svip-
aður, en fækkunin nú frá síðasta ári
gæti, að sögn Þórsteins, helgast af
því að allmörgum útförum hefur ver-
ið frestað vegna aðstæðna í sam-
félaginu.
Á sjúkrahúsum eru heimsóknir
aðstandenda til sjúklinga háðar
samráði við hjúkrunarfræðinga á
vakt. Eru leyfðar í sérstökum til-
vikum svo sem þegar fólk er á bana-
beði. Við þær aðstæður eru fundnar
lausnir í samræmi við aðstæður.
„Lífið er allt ein stór málamiðlun, er
stundum sagt, og fólk er viljugt að
taka tillit til óvenjulegra aðstæðna,“
segir Vigfús Bjarni Albertsson
sjúkrahúsprestur. sbs@mbl.is
Líkbrennsla og útför
eftir samkomubannið
Lífið er málamiðlun, segir prestur
Morgunblaðið/Kristinn
Kirkjugarðar Margir hafa frestað
útförum vegna aðstæðna nú.
Enginn sem
hefur farið í
öndunarvél á
Landspít-
alanum eftir að
hafa smitast af
kórónuveirunni
hefur losnað úr
henni.
Þetta sagði
Páll Matthías-
son, forstjóri Landspítalans, á
blaðamannafundi í gær. Alls voru
ellefu manns með covid- 19 í
öndunarvél. Hann sagðist ekki
geta svarað því hversu lengi sá
sem hefur lengst verið í önd-
unarvél hefði verið þar.
„Þegar fólk fær lungnabólgu
tengda covid-sýkingu þá er hún
ansi alvarleg,“ sagði hann og
nefndi að langvinna öndunar-
vélameðferð þyrfti við slíkar að-
stæður. Alma Möller landlæknir
sagði að tölur að utan sýndu að
fólk sem færi í öndunarvél með
lungnabólgu þyrfti að vera þar
að jafnaði í eina til þrjár vikur.
freyr@mbl.is
Ellefu eru í
öndunarvél
KÓRÓNUVEIRUSMITAÐIR
Páll
Matthíasson