Morgunblaðið - 02.04.2020, Blaðsíða 24
24 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. APRÍL 2020
Þú getur fundið allar uppáhalds dekurvörurnar þínar á
vefversluninni okkar á www.loccitane.is
Við bjóðum upp á fría heimsendingu með
pöntunum yfir 10.000 kr.
Hugsið vel um ykkur sjálf og ykkar nánustu.
Starfsfólk L’Occitane
Vid erum enn her
fyrir ykkur!
‘-
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Undirbúningi fyrir Hátíð hafsins í
Reykjavík er haldið áfram af fullum
krafti. Hátíðin verður að öllu
óbreyttu haldin um sjómannadags-
helgina 6.-7. júní í sumar. Aðsókn að
hátíðinni hefur farið vaxandi undan-
farin ár og í fyrra sóttu hana um 40
þúsund manns.
Skipuleggjendur hátíðarinnar
gera sér fulla grein fyrir því að
vegna veirufaraldursins getur
brugðið til beggja vona og staðan
verður metin í maí. „Þetta fer allt
eftir hvað Almannavarnir og land-
læknir segja, við fylgjum þeirra fyr-
irmælum í einu og öllu,“ segir Erna
Kristjánsdóttir, markaðsstjóri
Faxaflóhafna.
Sjómannadagurinn er lögbundinn
frídagur sjómanna og hefur verið
það fá árinu 1987. Hann skal ætíð
vera fyrstu helgina í júní nema þeg-
ar hann lendir á hvítasunnuhelginni.
Að Hátíð hafsins standa Faxaflóa-
hafnir, sjómannadagsráð og Brim.
Hátíðin samanstendur af tveimur
hátíðardögum, þ.e. hafnardeginum
sem er á laugardeginum og sjó-
mannadeginum sem er á sunnudeg-
inum. Hátíðin hefur verið haldin sem
slík síðan árið 2002.
Hátíð
hafsins
undirbúin
Morgunblaðið/Hari
Sjómannadagur Stefnt er að hátíð-
arhöldum fyrstu helgina í júní.
Verður að óbreyttu
fyrstu helgina í júní
Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
Stofnanasamningur um ýmsar kjara-
bætur var undirritaður í nýliðnum
mánuði í Fjölbrautaskóla Vestur-
lands á Akranesi (FVA) milli skóla-
meistara og félagsmanna í Kenn-
arasambandi Íslands, sem starfa við
skólann, en samningurinn var gerður
„eftir áralangt þóf“ eins og segir í
fréttabréfi skólans.
Kjaraviðræðum á milli framhalds-
skólakennara og ríkisins er enn ekki
lokið en Steinunn Inga Óttarsdóttir,
sem skipuð var skólameistari við
FVA undir lok síðasta árs, segir að
eldri stofnanasamningur hafi runnið
út 31. júlí árið 2013. Viðræður um nýj-
an samning hafi staðið yfir með hléum
frá árinu 2015 og frá þeim tíma þar til
nú hafi kennarar við FVA dregist aft-
ur úr launum miðað við aðra fram-
haldsskóla.
Í samningnum sem gildir frá 1. jan-
úar sl. til 31. desember 2021 eru lagð-
ar faglegar áherslur næstu ára og fé-
lagsmönnum KÍ raðað til launa en
síðan er greitt skv. launatöflu sem
fylgir miðlægum kjarasamningi.
Kveðið er á um grunnhækkun fyrir
alla og samið var um 400 þúsund
króna eingreiðslu til félagsmanna KÍ
sem starfa við skólann nú á vorönn,
auk þess sem einni starfsaldurshækk-
un er bætt við þær sem fyrir voru.
Ekki sérstök fjárveiting
Ekki fengust upplýsingar um
hversu miklar hækkanirnar eru í pró-
sentum en Steinunn Inga segir helstu
breytingar þær að grunnröðun í starf
hækkar um einn launaflokk og ein
starfsaldurshækkun bættist við þær
þrjár sem fyrir voru, þ.e. eftir fjög-
urra ára starf. Þá fengu þeir sem
starfað höfðu við skólann sl. sex annir
400 þúsund kr. eingreiðslu eins og
fyrr segir í samræmi við starfshlut-
fall.
Spurð hvort samningurinn kalli á
aukin framlög til skólans og hvort
samningar sem þessi þurfi samþykki
menntamálaráðuneytisins segir
Steinunn Inga að kjarasamningur
Félags framhaldsskólakennara og
Félags skólastjórnenda við ríkið sé
miðlægur og gildi fyrir alla fram-
haldsskólakennara á landinu. „Stofn-
anasamningar eru gerðir á ábyrgð
hverrar stofnunar og ekki koma til
sérstakar fjárveitingar vegna þeirra.
Nýr samningur felur í sér nálgun sem
er til þess fallin að styðja við jákvæða
þróun og uppbyggingu í skólastarfinu
og skapa traust milli kennara og
skólastjórnenda. Hækkanir á grund-
velli hans eiga að rúmast innan fjár-
heimilda FVA fyrir árið 2020.
Það var orðið mikilvægt að ganga
frá nýjum stofnanasamningi
milli FVA og félagsmanna í
KÍ og stuðla með því að
skilvirkara launakerfi sem
tekur mið af þörfum og
verkefnum skólans,“
segir hún.
Markmið stofn-
anasamnings FVA er
m.a. að gera skólann
að eftirsóttum vinnustað
og færa ákvörðun um
launasetningu starfa nær
starfsvettvangi kennara.
Samið um bætt kjör kennara FVA
Stofnanasamningur gerður í Fjölbrautaskóla Vesturlands Launaflokka- og starfsaldurshækkun
og 400.000 kr. eingreiðsla Rúmast innan fjárheimilda FVA Eldri samningur rann út 2013
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Akranes Nýr stofnanasamningur skólans var gerður „eftir áralangt þóf“.
„Stofnanasamningur er hluti af
kjarasamningi starfsmanna og
honum er ætlað að tryggja þróun
í skólastarfi og stuðla að skil-
virkara launakerfi sem tekur mið
af þörfum og verkefnum stofn-
unar og starfsmanna hennar,“
segir Steinunn Inga Óttarsdóttir,
skólameistari Fjölbrautaskóla
Vesturlands, í svari til Morgun-
blaðsins um nýja stofnanasamn-
inginn við kennara og aðra fé-
lagsmenn KÍ sem starfa við
skólann. „Hann snýst því ekki
aðeins um ákvörðun launa
heldur er hann ekki síður
tæki til að stuðla að jákvæðri
þróun og breytingum í
starfi stofnunar,“ seg-
ir hún ennfremur.
Endurskoða á
stofnanasamning-
inn á tveggja ára
fresti.
Virkara
launakerfi
SKÓLAMEISTARI FVA
Steinunn
Inga Óttarsdóttir