Morgunblaðið - 02.04.2020, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 02.04.2020, Blaðsíða 39
YFIRTÖKUTILBOÐ TIL HLUTHAFA HEIMAVALLA HF. Fredensborg ICE ehf. gerir hluthöfum Heimavalla hf. tilboð um kaup á hlutum þeirra í félaginu á genginu 1,5 kr. fyrir hlut. Þann 10. mars 2020 keypti Fredensborg ICE ehf. („tilboðsgjafi“) 7.168.946.995 hluti í Heimavöllum hf. („Heimavellir“), sem nemur 63,72% af heildar útgefnum hlutum í Heimavöllum. Fyrir átti tilboðsgjafi 10,22% eignarhlut í Heimavöllum og eftir kaupin á tilboðsgjafi sem samsvarar 73,94% af heildarhlutafé Heimavalla. Kaupin gera það að verkum að skylt er að gera öðrum hluthöfum yfirtökutilboð, þ.e. bjóðast til að kaupa hlut þeirra í Heimavöllum, til samræmis við 100. gr. laga nr. 108/2007 um verðbréfaviðskipti („vvl“), nánar tiltekið X. og XI. kafla laganna. Fredensborg ICE ehf., sem er íslenskt einkahlutafélag, í fullri (100%) eigu norska félagsins Fredensborg AS, gerir yfirtökutilboð byggt á skilmálum og skilyrðum sem sett eru fram í opinberu tilboðsyfirliti sem dagsett er 6. apríl 2020 („tilboðsyfirlitið“). Tilboðshafar Tilboðið nær til allra hluta í Heimavalla sem ekki eru í eigu tilboðsgjafa eða félagsins sjálfs við lok viðskiptadags þann 3. apríl 2020. Hluthöfum sem skráðir eru í hlutaskrá Heimavalla í lok viðskiptadags þann 3. apríl 2020 verður sent tilboðsyfirlitið, samþykkiseyðublað og svarumslag. Tilboðið nær ekki til þeirra hluthafa í Heimavöllum sem skráðir eru í hlutaskrá Heimavalla eftir lok viðskiptadags 3. apríl 2020. Framangreind skjöl verða einnig aðgengileg hjá Arctica Finance hf., Katrínartúni 2, 105 Reykjavík („Arctica Finance“) og hægt er að nálgast tilboðsyfirlitið á heimasíðu Arctica Finance, www.arctica.is. Þá hefur verið óskað eftir því að tilboðsyfirlitið verði einnig aðgengilegt á heimasíðu Heimavalla, www.heimavellir.is. Umsjónaraðili Fyrirtækjaráðgjöf Arctica Finance hf., kt. 540509-1820, Katrínartúni 2 - 15. hæð, 105 Reykjavík hefur verið ráðinn umsjónaraðili með tilboðinu fyrir hönd tilboðsgjafa. Nánari upplýsingar veitir Jón Þór Sigurvinsson í síma 895 9242. Tilboðsverð og greiðsla Tilboðsverð er 1,5 krónur fyrir hvern hlut í Heimavöllum, kvaða- og veðbandalausan. Tilboðsverðið er jafnhátt og hæsta verð sem tilboðsgjafi hefur greitt fyrir hluti í Heimavöllum á síðustu sex mánuðum áður en að tilboðsskylda myndaðist og er jafnframt hærra en dagslokagengi hluta í Heimavöllum á síðasta viðskiptadegi áður en að tilboðsskylda myndaðist. Greiðsla fyrir hluti þeirra sem tilboðið samþykkja mun innt af hendi í íslenskum krónum inn á bankareikning viðkomandi hluthafa sem tilgreindur er á samþykkiseyðublaðinu eða þann bankareikning sem tengdur er við verðbréfavörslureikning þar sem hlutir viðkomandi hluthafa í Heimavöllum eru varslaðir. Greiðslan verður innt af hendi eigi síðar en fimm viðskiptadögum eftir að gildistími yfirtökutilboðsins rennur út Tilboðstímabil Gildistími yfirtökutilboðsins er frá kl. 09:00 þann 6. apríl 2020 til kl. 17:00 þann 15. júní 2020. Samþykki yfirtökutilboðsins verður að hafa borist Arctica Finance eða á tölvupóstfangið heimavellir@arctica.is eigi síðar en kl. 17:00 þann dag. Hluthafar bera sjálfir ábyrgð á að samþykkiseyðublaðið hafi borist umsjónaraðila. Tilboðsgjafi áskilur sér einhliða rétt til að ákveða hvort samþykkiseyðublöð sem berast eftir að gildistími tilboðsins rennur út verði tekin gild. Framlengja má yfirtökutilboðið að því marki sem ákvæði vvl. leyfa. Taka úr viðskiptum Eftir uppgjör tilboðs þessa hyggst tilboðsgjafi leita afskráningar hluta í Heimavöllum af skipulegum verðbréfamarkaði. Ef hlutirnir verða teknir úr viðskiptum verða þeir ekki skráðir á neinum viðurkenndum verðbréfamarkaði eða markaðstorgi og því verulegar líkur á því að enginn virkur markaður verði með hlutina. Tilboðsyfirlitið felur ekki í sér ráðgjöf af hálfu tilboðsgjafa og Arctica Finance og er tilboðshöfum bent á að leita sér viðeigandi ráðgjafar. Reykjavík, 2. apríl 2020 Fredensborg ICE ehf.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.