Morgunblaðið - 02.04.2020, Page 55

Morgunblaðið - 02.04.2020, Page 55
MINNINGAR 55 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. APRÍL 2020 ✝ Guðrún Helga-dóttir Arndal fæddist í Hafn- arfirði 15. janúar 1943. Hún lést á líknardeild LSH í Kópavogi 25. mars 2020. Foreldrar hennar voru Helgi F. Arndal, f. 1905, d. 1980, og Guð- laug M. Arndal, f. 1910, d. 2005. Guðrún átti þrjú systkini, þau eru Sigríður H. Arndal, f. 1936, Jónína H. Arndal, f. 1939, og Magnús H. Arndal, f. 1944. Fyrri maður Guðrúnar var Gestur Eggertsson, f. 1939, d. 2015. Börn þeirra eru: 1) Egg- ert, f. 1964, barn Heimir Gest- ur, f. 1986. 2) Guðlaug, f. 1967, börn Emil Arnar Reyn- isson, f. 1989, d. 2018, Jón Ar- on Jónsson, f. 1994, og Guðrún Marín Erlingsdóttir, f. 2003. 3) Katrín, f. 1973, unnusti Helgi Þór Helgason, f. 1965, börn Eva Írena Katrínardóttir, f. 1996, faðir Evu Írenar er Ingvar Sigurðsson, f. 1970, og Elmar Darri Helgason, f. 2011. Guðrún og Gestur skildu. Seinni maður Guðrúnar er Guð- mundur Gunn- arsson, f. 1947. Börn Guðmundar af fyrra hjóna- bandi eru: 1) Ás- dís, f. 1968, börn Kristinn Guðna- son, f. 1997, og Heiða Guðnadótt- ir, f. 1997. 2) Heiðar, f. 1975, börn Guðmundur Ágúst, f. 1997, og Einar Lúther, f. 1999. Guðrún Arndal fæddist í Hafnarfirði og er því inn- fæddur gaflari því hún fæddist í heimahúsi. Hún ólst upp á Vitastíg 12 við gamla vitann sem enn stendur efst við gamla heimilið hennar. Frá heimili sínu sá hún vitann við æskuheimilið á hverjum degi lífsins sem eftir var. Útför Guðrúnar verður gerð frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði í dag, 2. apríl 2020, og hefst at- höfnin klukkan 12. Útförin mun fara fram í kyrrþey vegna aðstæðna í þjóðfélaginu nú um stundir. Elsku ástkæra Guðrún mín. Þú varst alin upp á Vitastíg 12 í Hafnarfirði og þar var þitt leik- svæði sem barn og unglingur. Allir þekktu alla í götunni og það var barnamergð þarna eins og víða annars staðar á landinu eftir seinni heimsstyrjöld. Þú varst orkumikil og skemmtileg stelpa sem hafði nóg að gera alla daga og pabbi þinn sem stundum kallaði þig Dundun var aldrei viss hvort þú værir að koma eða fara við leiki í hraun- inuvið húsið. Þú fórst snemma að passa börn, þá aðeins 6 ára gömul og fékkst borguð smá laun hjá mömmum barnanna. Þarna myndaðist ævilöng vinátta við fjölskyldurnar allt fram á þenn- an dag. Þú varst send í sveit eitt sumarið. Það lá ekki alveg fyrir þér að vera í sveitinni því þú fórst á eigin vegum til baka til Hafnarfjarðar einum eða tveim- ur dögum seinna. Þannig hefur það alltaf verið, að heimabærinn togar í þig og má segja að þú hafir verið meiri Hafnfirðingur en Íslendingur í þér. Þú varðst fljótt mjög ákveðin í því sem þig langaði að gera. Eitt sinn lang- aði þig í litla kisu sem var ekki í boði heima hjá þér á Vitastígn- um. Þú ákvaðst þá að safna þér peningum fyrir kisunni sem var til sölu úti á Hvaleyri. Þú pantaðir leigubíl og keypt- ir kisuna Sally og komst með hana heim þó að það væri ekki í boði. Sally varð síðan eftirlæti allra á heimilinu í mörg ár á eft- ir. Þú vannst eins og aðrir krakkar á þessum árum líka í fiski í frystihúsinu og varst ráð- in gangastúlka á Sólvang í Hafnarfirði 16 ára gömul og vannst þar í 25 ár, mikið á næt- urvöktum og jafnfram því að vera með heimili á Vitastíg, í Grænukinn og á Miðvangi þar sem þú ólst upp börnin þin þrjú, Eggert, Guðlaugu og Katrínu. Þú vannst líka við þrif og ræst- ingar með Ástu vinkonu þinni í sælgætisgerðinni Mónu í Hafn- arfirði í rúman ártug til að ná endum saman á þessum tíma þegar miklar umbreytingar voru í þjóðfélaginu. Þegar við kynnt- umst var það ást við fyrstu sýn hjá okkur báðum. Við löðuðumst hvort að öðru og höfum verið saman síðastliðin 27 ár og sem hjón frá 2001. Það hefur gengið á ýmsu hjá okkur og í kringum okkur en við héldum það út og höfum átt marga yndislega tíma saman hér heima og erlendis. Höfum bæði gaman af að ferðast til útlanda og skoða staði og láta okkur liða vel á Spáni. Þarna hóst nýr kafli hjá inn- fædda Gaflaranum mínum því henni fannst alveg óskaplega gaman að ferðast og njóta lífsins bæði innanlands sem utan. Við fórum til margra landa og borga og alltaf var verið að skoða eitt- hvað nýtt og skemmtilegt. Guð- rún var alltaf mjög smekkleg til fara og hafði sinn ákveðna stíl í sambandi við fatnað og fór aldr- ei úr húsi án þess að vera vel snyrt og með hárgreiðsluna í lagi rétt eins og Magga vinkona hennar frá 10 ára aldri þegar þær fór í verslun eða á manna- mót. Hafðu þökk fyrir allt og allt. Ég mun sakna þín mikið, ástin mín. Guðmundur Gunnarsson. Elsku yndislega mamma okk- ar, sem lést á líknardeild Land- spítalans 25. mars síðastliðinn. Það er svo sárt að hugsa til þess að við eigum ekki eftir að sitja oftar við eldhúsborðið heima á Hringbraut og spjalla um lífið og tilveruna. Þú fórst ekki í gegnum lífið áfallalaust en alltaf stóðstu í fæturna með þinni seiglu. Þú varst kletturinn í lífi okkar sama hvað. Það er ein setning sem þú sagðir alltaf við okkur og hljómar í eyrum okkar núna, og hún er „já krakkar mínir, það þýðir ekkert annað en að halda áfram sama á hverju gengur“. Nú ertu komin til Emils okkar sem fór allt of fljótt, sem þú elskaðir svo mikið eins og öll þín barnabörn. Lífið verður tómlegt án þín elsku mamma, en minning þín mun alltaf lifa í hjörtum okkar og þitt fallega bros og hlýja nærvera. Við elskum þig alltaf og barna- börnin þín elska þig meira en orð fá lýst. Við erum svo heppin að hafa átt þig fyrir mömmu og ömmu, en við huggum okkur við það að þú ert komin á góðan stað. Góða nótt elsku mamma og amma. Eggert, Guðlaug og Katrín, Jón Aron, Eva Írena, Guð- rún Marín og Elmar Darri. Ég fel í forsjá þína, Guð faðir, sálu mína, því nú er komin nótt. Um ljósið lát mig dreyma og ljúfa engla geyma öll börnin þín, svo blundi rótt. (Matthías Jochumsson) Ásdís Guðmundsdóttir, Heiðar Guðmundsson. Mig langar til að skrifa nokk- ur kveðjuorð um kynni mín af minni góðu vinkonu Guðrúnu Arndal, sem við samferðafólk hennar kölluðum yfirleitt Rúnu. Ég kynntist Rúnu fljótlega eftir að ég flutti í Hafnarfjörð. Við hófum búskap í sömu götu og voru kynni okkar Rúnu af- skaplega góð. Rúna var einstak- lega þægileg og man ég aldrei eftir að okkur yrði sundurorða allan okkar samverutíma, sem var orðinn nokkuð langur enda var Rúna einstaklega geðgóð. Við hófum báðar búskap í Kinnunum í Hafnarfirði á sama tíma. Við áttum báðar þrjú börn á svipuðum aldri, sem þurfti að annast og passa. Fljótlega lang- aði okkur báðar að vinna okkur inn smá pening og sóttum um starf við að skúra Sælgætisgerð- ina Mónu, sem passaði vel fyrir okkur að gera þegar mennirnir okkar komu heim á daginn. Við skúruðum Mónu í þrettán ár og ég hlakkaði alltaf til að vera í samvistum við Rúnu meðan við vorum að skúra. Ég hlakkaði alltaf til að hitta hana í skúring- unni á daginn, hún var svo skemmtileg að ég kom alltaf glaðari heim. Okkar góðu kynni stóðu alltaf meðan við lifðum og mig langar með þessum kveðju- orðum að þakka Rúnu öll okkar kynni. Ég bið góðan guð að vernda þig og blessa. Ég þakka þér fyr- ir allar góðu samverustundirnar sem við áttum saman. Við Garð- ar vottum eiginmanni, börnum, barnabörnum og systkinum Rúnu innilega samúð og biðjum guð að styrkja þau og vernda. Góður guð geymi þig, góða vinkona, Ásta. Guðrún H. Arndal ✝ Guðni Jónssonfæddist 31. ágúst 1942. Hann lést á Landspít- alanum 25. mars 2020. Foreldrar hans voru Jón Jóns- son, f. 26. febrúar 1914, d. 26. febrúar 1993, og Sigríður Oddleifsdóttir, f. 29. september 1908, d. 4. apríl 1984. Systk- ini Guðna eru Rútur, f. 8. nóv- ember 1943, og Bjarnheiður, f. 15.júlí 1948. Guðni giftist Þór- unni Haraldsdóttur f. 28. des- ember 1942, d. 6. janúar 1998, þann 27. mars 1971. Þau eign- uðust þrjú börn 1) Ásgeir, aði nám við London Academy. Hann starfaði í verslununum Andersen og Lauth sem og Horne Brothers á Englandi. Guðni hóf störf í Naustinu 1965 og varð annar eigandi Naustsins til ársins 1982. Þá stofnaði hann fyrirtækið „Guðni Jónsson ráðgjöf og ráðningarþjónusta“ sem sinnti ráðningarstörfum og ýmiss konar ráðgjöf. Guðni var félagsmaður í hin- um ýmsu félögum svo sem Juni- or Chamber, Rótarý og Sjálf- stæðisflokknum. Hann kenndi á Dale Carnegie-námskeiðum og einnig námskeiðum um ræðu- mennsku og fundarstjórn. Hann var einnig meðlimur Frímúrarareglunnar á Íslandi frá árinu 1970. Útför Guðna fer fram í kyrr- þey að eigin ósk. læknir, f. 11. apríl 1973, maki Elín Gróa Guðjóns- dóttir. Þeirra börn eru a) Katr- ín, f. 2004, b) Bjarki, f. 2009, c) Freyja, f. 2014. 2) Björn, f. 23. sept- ember 1975, d. 4. desember 1978. 3) Anna Sigríður, aðstoð- arskólastjóri, f. 30. júlí 1980, maki Hörður Lárusson. Þeirra börn eru a) Stefanía, f. 2008, b) Lárus Högni, f. 2011. Guðni ólst upp á Bárugötu í Reykjavík. Hann fór til Eng- lands 1962 þar sem hann stund- Í jólakorti frá Guðna til okkar í fjölskyldunni fyrir nokkrum ár- um stóð: „Góðir vinir eru eins og stjörnur, þú sérð þá ekki alltaf en þeir eru alltaf til staðar.“ Það er einmitt það sem Guðni var sjálfur, einstaklega góður og traustur vinur sem var alltaf til staðar. Hann var til staðar til að veita góð ráð og velta upp úr- lausnum í ýmsum málum. Ég hef ekki kynnst ráðabetri manni en Guðna. Hann hafði merkilegan hæfileika til að greina mál og benda á skynsamlegar leiðir til lausna. Fólk og mannlegt eðli var áhugamál sem við deildum. Það var einstakt hvað hann var mikill mannþekkjari. Þegar hann rak ráðningarþjónustu og sá m.a. um ráðningar fyrir mig kom hann yf- irleitt með möppu með umsókn- um og sagði: „Þú verður að velja þann sem þér líst best á,“ en ég raðaði umsóknunum þannig að þeir sem mér leist best á voru fremst. Það brást ekki að sá eða sú sem var ráðin var númer eitt eða tvö í röðinni hjá Guðna. Per- sónuleikapróf og tölvukerfi nú- tímans ná ekki að jafna þetta innsæi Guðna Jónssonar. Við sátum oft og ræddum mál- in, stundum var kveikt í vindli en nú í seinni tíð voru það oftar en ekki símtöl. Þótt hann glímdi við veikindi og vanheilsu spurði hann alltaf um stöðuna á mínu heimili og minntist á að hann geymdi okkur í bænum sínum. Samtölin heima hjá honum á aðfangadag eru mörg minnisstæð. Rætt var um tilgang lífsins í bland við yfirferð um menn og málefni. Á aðfanga- dag fyrir síðustu jól sagði Guðni mér að hann væri nokkuð viss um að þetta væru hans síðustu jól. Þá eins og svo oft áður hafði hann rétt fyrir sér. Ég mun sakna þessara funda, samtala, góðra ráða, traustrar og hlýrrar vináttu. Nú þegar sökn- uðurinn nístir get ég ekki annað en verið þakklátur fyrir að hafa átt Guðna Jónsson að trúnaðar- vini. Það voru sérstök forréttindi. Vináttu þína met og þakka það sem þú kenndir um bræðranna sið. Til endurfunda í austri hlakka einhver þó kunni að verða á bið. Ásgeiri, Önnu Sigríði og fjöl- skyldum þeirra sendi ég mínar innilegustu samúðarkveðjur. Guð blessi minningu Guðna Jónssonar. Magnús E. Kristjánsson. Guðni Jónsson var sannur, traustur, vandaður, mikill og góð- ur maður. Hann hafði hugrekki til að segja hlutina eins og þeir raunverulega voru – umbúða- laust. Orð hans höfðu ávallt merkingu, honum líkaði ekkert sérstaklega innantómt hjal. Mað- ur er kannski ekki alltaf tilbúinn fyrir sannleikann, sérstaklega þegar hann snýr að eigin breysk- leika eða dómhörku, en eftir því sem árin færast yfir átta ég mig betur og betur á að best er að um- gangast fólk sem segir sína mein- ingu. Persónuleiki Guðna var ein- stakur; hann var hugrakkur, kærleiksríkur, stundum torráð- inn og batt sannarlega ekki bagga sína sömu hnútum og flest- ir samferðamenn hans. Ég held að vísa úr ljóðinu Lífsþor eftir Árna Grétar Finnsson teikni nokkuð raunsanna mynd af Guðna: Því þarf magnað þor til að vera sannur maður, meta sinn vilja fremur en fjöldans dað- ur, fylgja í verki sannfæringu sinni, sigurviss, þó freistingarnar ginni. Guðni var vinur vina sinna en þeir voru ekki endilega margir þótt hann þekkti fjölda fólks. Hann var mikill mannþekkjari og fljótur að greina kjarnann frá hisminu. Það var ýmislegt sem hann kenndi mér beint eða óbeint á þeim 25 árum sem við þekkt- umst og á ég honum margt að þakka. Vinátta var einu sinni sem oftar til umræðu og benti hann mér þá á að „hagsmunavinir“, eins og hann kallaði þá, eru sjaldnast raunverulegir vinir og að á þeim er jafnan lítið að byggja. Ég vissi það ekki þá, en veit það nú, að bæði Sókrates og Platón höfðu velt vináttunni fyrir sér á sambærilegan hátt en höfðu þó aðra sýn. Skoðun Guðna átti frekar samleið með skilgreiningu Aristótelesar, sem taldi þessa tegund vináttu byggjast á manns eigin heill en ekki heill vinarins, hans sjálfs vegna. Guðni var ákaflega stoltur af börnum sínum, tengdabörnum og barnabörnum. Þótt hann talaði sjaldnast mikið um sín mál sá maður kærleikann ljóma í augum hans þegar fjölskyldumeðlimi bar á góma. Ég leitaði stundum til Guðna varðandi sameiginlegt áhugamál okkar, sérstaklega síðustu árin. Hann hafði einstaka lagni við að leiðbeina á þann hátt að vísa í átt til lausnar en leyfa mér að finna svarið. Stundum las hann mér pistilinn – en aldrei af innistæðu- leysi. Guðni Jónsson er sannar- lega einn af þeim samferðamönn- um sem maður er ríkari að hafa kynnst. Nú hefur Guðni lagt í sína hinstu ferð og hann var undir hana búinn. Frímúrarareglan á Íslandi sér á eftir góðum og merkum félaga. Guðni gegndi ýmsum trúnaðarstörfum innan Reglunnar, var m.a. stólmeistari St.Jóh.st. Fjölnis um sjö ára skeið og lagði líf og sál í starfið. Ég vil að leiðarlokum, fyrir hönd Fjölnisbræðra, óska honum vel- ferðar á þeirri braut sem hann hefur nú lagt út á. Við bræðurnir kunnum Guðna innilegar þakkir fyrir hans mikla og örláta starf í þágu stúkunnar og Reglunnar. Ásgeiri, Önnu Sigríði og fjöl- skyldum þeirra sendum við okk- ar innilegustu samúðarkveðjur. Kærleiksríkar minningar um mikinn, merkan og góðhjartaðan mann munu ylja okkur öllum um ókomna tíð. Leópold Sveinsson. Guðni Jónsson Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýjar kveðjur vegna andláts elskulegs eiginmanns, föður, tengdaföður og afa, LEÓS KRISTJÁNSSONAR. Elín Ólafsdóttir Kristján Leósson Margrét Leósdóttir Hildigunnur Sverrisdóttir Kristján Bragason Nanna Kristjánsdóttir Elín Kristjánsdóttir Tómas Leó Kristjánsson María Ósk Kristjánsdóttir Kristján Nói Kristjánsson Við önnumst alla þætti undirbúnings og fram- kvæmd útfarar ásamt vinnu við dánarbússkiptin. Við þjónum með virðingu og umhyggju að leiðarljósi og af faglegum metnaði. Við erum til staðar þegar þú þarft á okkur að halda Lára Árnadóttir, umsjón útfara Útfararþjónusta & lögfræðiþjónusta Vesturhlíð 2, Fossvogi | Sími 551 1266 | útför.is Með kærleik og virðingu Útfararstofa Kirkjugarðanna Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, RAGNAR INGI HARALDSSON bifreiðarstjóri, Grundarfirði, lést þriðjudaginn 31. mars. Jóna Björk Ragnarsdóttir Guðmundur Smári Guðmunds. Auður Hanna Ragnarsdóttir Reynir Ragnarsson Ásgeir Ragnarsson Þórey Jónsdóttir Sveinn Ingi Ragnarsson Tinna Torfadóttir barnabörn og langafabörn

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.