Morgunblaðið - 02.04.2020, Qupperneq 62
KÖRFUBOLTI
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
„Ég hef aðeins leitt hugann að því,
undanfarin ár, að láta staðar numið
og kalla þetta gott. Ég finn það núna
að á meðan ég er ekki tilbúin að eyða
öllum þeim tíma sem ég þarf í körfu-
boltann þá er kannski kominn tími
til þess að hætta þessu og það varð
að lokum niðurstaðan,“ sagði körfu-
knattleikskonan Gunnhildur Gunn-
arsdóttir í samtali við Morgunblaðið
í gær.
Gunnhildur, sem verður þrítug í
ágúst, ákvað að leggja skóna á hill-
una í gær eftir afar farsælan fimm-
tán ára feril með Snæfelli, Haukum
og íslenska landsliðinu. Hún varð
tvívegis Íslandsmeistari með Snæ-
felli, 2015 og 2016, og tvívegis bik-
armeistari, einu sinni með Snæfelli,
2016, og einu sinni með Haukum,
2014. Gunnhildur á að baki 36 A-
landsleiki og þá var hún valin körfu-
knattleikskona ársins 2016.
„Sonur minn er orðinn tveggja og
hálfs árs og ég sneri í raun aftur á
völlinn eftir barnsburð í ársbyrjun
2018. Mér fannst í raun bara komið
að ákveðnum tímapunkti hjá mér að
fara eyða meiri tíma með fjölskyld-
unni. Maður hefur verið minntur á
það síðastliðnar vikur hvað er mik-
ilvægast í þessu lífi. Í fimmtán ár
hefur maður skipulagt tímann sinn
út frá körfuboltanum og verður það
ágætis tilbreyting að geta skiplagt
sinn eigin frítíma sjálfur í fyrsta sinn
í langan tíma.“
Varð snemma leiðtogi
Gunnhildur hóf ferilinn með upp-
eldisfélagi sínu Snæfelli árið 2005,
þá fimmtán ára gömul. Hún lék með
liðinu til ársins 2010 þegar hún
ákvað að söðla um og samdi við
Hauka í Hafnarfirði. Hún lék með
Haukum til ársins 2014 þegar hún
ákvað að snúa aftur á heimaslóðir og
semja við uppeldisfélag sitt á nýjan
leik en hún hefur verið fyrirliði liðs-
ins undanfarin ár.
„Fyrstu árin mín í Snæfelli var
þetta ákveðið bras og við vorum allt-
af að berjast við botninn, þótt við
hefðum aldrei fallið um deild. Á
þessum tíma lærði maður að verða
ákveðinn leiðtogi, bæði innan og ut-
an vallar. Það gerði mér svo mjög
gott að fara í Hauka þar sem ég
þurfti í raun bara að sanna mig upp
á nýtt. Ég þurfti að vinna mér inn
mitt sæti í liðinu. Við urðum svo bik-
armeistarar 2014 eftir sigur á Snæ-
felli í úrslitum bikarkeppninnar sem
var geggjað en á sama tíma var það
líka skrítin tilfinning. Að sama skapi
var svo gríðarlega svekkjandi að
tapa fyrir Snæfelli í úrslitaeinvíginu
um Íslandsmeistaratitilinn árið
2014. Að verða Íslandsmeistari er
sérstök tilfinning sætasti sigurinn
var klárlega vorið 2016 þegar að við
unnum Hauka á Ásvöllum í fimmta
leiknum um Íslandsmeistaratitilinn
að viðstöddum 1.600 stuðnings-
mönnum.“
Ára yfir liðinu
Gunnhildur spilaði í mörgum frá-
bærum liðum á sínum ferli en hún
viðurkennir að Snæfellsliðið 2016,
sem varð bæði Íslands- og bikar-
meistari, hafi verið með þeim betri
sem hún spilaði með.
„Ég spilaði með mörgum frábær-
um leikmönnum á ferlinum og í
mörgum frábærum liðum. Það er
hins vegar erfitt að horfa fram hjá
Snæfellsliðinu 2016 sem vann tvö-
falt. Við vorum með mjög góða
blöndu af ungum og reynslulitlum
sem og eldri og reyndari leik-
mönnum í liðinu. Þetta var blanda
sem virkaði frábærlega saman og
svo vorum við auðvitað með geggj-
aðan útlending í Haiden Palmer.
Stemningin var algjörlega frábær út
allt tímabilið. Ég kom aftur til baka
fyrir tímabilið 2014-15 en árið 2016
voru Snæfellsstelpurnar að vinna
sinn þiðja titil í röð og það var ákveð-
in ára yfir liðinu á þessum árum.
Þegar allt kemur til alls þá hefur
hins vegar hvert einasta tímabil sinn
sjarma og ég hef aldrei pælt eitthvað
sérstaklega í því hvaða tímabil hafi
staðið upp úr á mínum ferli. Þegar
ég horfi til baka var það var mikil
upplifun að vera 18 ára og spila í
fyrsta sinn í úrvalsdeild og vera svo
allt í einu orðin 29 ára. Deildin hefur
bara orðið betri í gegnum árin og
gæðamunurinn hefur aukist jafnt og
þétt frá því að ég byrjaði að spila
fyrst.“
Gengið upp og niður
Í Stykkishólmi búa rúmlega 1.200
manns en þrátt fyrir það hefur Snæ-
felli tekist að halda úti einu besta
kvennaliði landsins í körfuboltanum,
undanfarinn áratug.
„Ég held að klúbburinn hafi náð
að gera virkilega vel í að halda úti
kvennaliði án þess að falla niður um
deild. Gengið hefur verið upp og nið-
ur en það er bara eins og það er. Við
toppuðum í kringum 2016 en eftir
það höfum við verið um miðja deild.
Þegar við fáum ekki tíu nýjar stelp-
ar upp úr yngri flokkunum á hverju
ári þá er eðlilegt að við séum ekki að
toppa á hverju ári. Í heild hefur
Snæfell gert frábærlega í kvenna-
körfunni og þeir leikmenn sem hafa
komið hingað og spilað fyrir félagið,
þeim líður alltaf eins og þeir séu
heima hjá sér.
Körfuboltinn er ennþá stærsta
íþróttagreinin í Stykkishólminum en
við erum ekki með nema 150 krakka
í grunnskólanum í Hólminum. Það
koma því ekki margir upp úr hverj-
um árgangi sem eru tilbúnir að
leggja á sig þá vinnu sem þarf en það
er alltaf einn og einn. Við þurfum því
að passa að halda vel utan um þessa
krakka og gera eins vel og við getum
í að sjá til þess að þau hafi allt sem
til þarf til þess að ná árangri í körf-
unni,“ sagði Gunnhildur í samtali við
Morgunblaðið.
Minnt á síðustu vikur hvað
sé mikilvægast í lífinu
Gunnhildur Gunnarsdóttir er hætt eftir fimmtán ára farsælan feril
Hvert einasta tímabil sem hún upplifði í körfuboltanum var einstakt
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Stykkishólmur Gunnhildur Gunnarsdóttir kom mikið við sögu í sigursælu liði Snæfells.
62 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. APRÍL 2020
2. apríl 1960
Morgunblaðið segir frá því að
landsliðið í fótbolta muni æfa
síðdegis á Mela-
velli og Há-
skólavelli. Þrír
nýir menn hafi
verið boðaðir,
Ragnar Jóhanns-
son úr Fram og
Helgi Hannesson
og Helgi Björgvinsson frá
Akranesi. Hinsvegar hafi Helgi
Jónsson og Gunnar Guðmanns-
son úr KR boðað forföll vegna
anna.
2. apríl 1967
Íslenska karlalandsliðið í
körfuknattleik sigrar Dani,
61:51, í vináttulandsleik í
Laugardalshöll. Þetta er fyrsti
heimaleikur Íslands gegn
Norðurlandaþjóð en fjórði sig-
urinn á Dönum í röð. Nýliðinn
Þórir Magnússon skorar 14
stig fyrir íslenska liðið og
Kristinn Stefánsson 10.
2. apríl 1978
Hin þrettán ára gamla Kristín
Magnúsdóttir er óvæntur Ís-
landsmeistari kvenna í einliða-
leik í badminton. Í úrslita-
leiknum vinnur hún Lovísu
Sigurðardóttur sem hafði verið
Íslandsmeistari samfleytt frá
árinu 1961. Jóhann Kjart-
ansson, átján ára gamall, er Ís-
landsmeistari karla í einliða-
leik í fyrsta sinn og er
þrefaldur meistari á mótinu.
Hann vinnur Sigfús Ægi Árna-
son í úrslitaleiknum.
2. apríl 1989
KA vinnur sinn fyrsta Íslands-
meistaratitil í meistaraflokki í
flokkaíþrótt þegar karlalið fé-
lagsins í blaki vinnur Íþrótta-
félag Stúdenta, 3:2, í úrslitaleik
í íþróttahöllinni á Akureyri.
„Sumir hafa sagt okkur hafa
verið heppna í leikjum okkar í
vetur en ég er því alfarið ósam-
mála,“ segir Haukur Valtýsson
fyrirliði KA í samtali við Morg-
unblaðið eftir sigurinn.
2. apríl 1995
Guðni Bergsson spilar fyrstur
íslenskra knattspyrnumanna
úrslitaleik á
Wembley-
leikvanginum í
London. Guðni,
sem er nýkom-
inn til liðs við
Bolton, kemur
inn á sem vara-
maður í úrslitaleik deildabik-
arsins gegn Liverpool og legg-
ur upp mark með sinni fyrstu
snertingu í leiknum. Liverpool
vinnur þó leikinn, 2:1.
2. apríl 1997
Íslenska karlalandsliðið í hand-
knattleik sigrar Kínverja,
27:24, í vináttulandsleik sem
fram fer á Ísafirði. Patrekur
Jóhannesson skorar 7 mörk
fyrir Ísland og Júlíus Jónasson
6.
2. apríl 2014
„Það kom aldrei til greina að
hætta. Ég var alltaf með það í
huga að koma
aftur til baka.
Ég stefndi ekk-
ert á að gera
það of fljótt,
enda var ég
ekki í kapp-
hlaupi við að ná
neinu af síðasta tímabili,“ segir
Guðný Björk Óðinsdóttir, lands-
liðskona í knattspyrnu, við
Morgunblaðið en hún er byrjuð
að æfa á ný með Kristianstad
eftir að hafa slitið krossband í
hné í fjórða skipti á ferlinum.
Á ÞESSUM DEGI
Handknattleiksdeild ÍR hefur selt
Hafþór Vignisson, leikmann úrvals-
deildarliðs félagsins, til Stjörn-
unnar. Þetta staðfesti Sigurður
Rúnarsson formaður deildarinnar í
þættinum Sportið á Stöð2 sport í
gær. Hafþór, sem er örvhent
skytta, hefur verið algjör lyk-
ilmaður hjá ÍR í vetur. Hann hefur
skorað 103 mörk og gefið 77 stoð-
sendingar í úrvalsdeildinni á yf-
irstandandi keppnistímabili en
hann kom til félagsins frá Akureyri
síðasta sumar. Þar með fara minnst
fjórir leikmenn frá ÍR í sumar.
Selja Hafþór til
Stjörnunnar
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Öflugur Hafþór Már Vignisson
hefur verið í stóru hlutverki hjá ÍR.
Forráðamenn Wimbledon-
tennismótsins sem haldið er árlega
í London tilkynntu í gær að mót
ársins 2020 hefði verið slegið af
vegna kórónuveirunnar. Wimble-
don-mótið, elsta og eitt þekktasta
tennismót heims, átti að hefjast 29.
júní í 134. skipti en það fór fyrst
fram árið 1877 í London. Það er
eina stórmótið í íþróttinni sem enn
er leikið á grasvöllum. Þetta er í
fyrsta skipti síðan í síðari heims-
styrjöldinni á árunum 1940 til 1945
sem ekki er hægt að halda Wimble-
don-mótið.
Ekki hægt að
halda 134. mótið
AFP
Wimbledon Simona Halep sigraði í
einliðaleik kvenna í fyrra.