Morgunblaðið - 02.04.2020, Page 65

Morgunblaðið - 02.04.2020, Page 65
MENNING 65 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. APRÍL 2020 Tónlistarmaðurinn og ljóðskáldið Bubbi Morthens var beðinn að mæla með listaverkum sem hægt er að njóta innan veggja heimilisins í samkomubanninu. „Ég hvet alla til að lesa Sextíu kíló af sólskini eftir Hallgrím Helgason um upphaf síldveiða á Ís- landi. Þetta er mikil örlagasaga og ótrúlega margslungin bók sem er skrifuð af slíku listfengi og anda- gift að fáu er til að jafna. Kannski er þetta ein af bestu bókum sem hafa verið skrifaðar á Íslandi,“ seg- ir Bubbi og bendir á að bókin sé einnig aðgengileg sem hljóðbók. „Þar sem Hallgrímur les eins og enginn sé morgundagurinn. Hann er með slíka náðargáfu líka sem upplesari. Það getur tvöfaldað ánægju og gleði þeirra sem vilja njóta. Til að hafa sem forrétt legg ég til að fólk lesi ljóð Hannesar Péturs- sonar skálds án þess að þrengja mig við eina tiltekna bók. Sjálfur er ég að lesa ljóðasafn hans. Hann er klárlega eitt af höfuðskáldum ís- lenskrar ljóðlistar sem ungt fólk ætti ekki að láta framhjá sér fara. Ég held að enginn verði svikinn af því að lesa nokkur ljóð eftir Hann- es Pétursson áður en hann dembir sér í djúpu laugina með Hallgrími Helgasyni. Í eftirrétt hvet ég fólk til að lesa ljóð eftir Fríðu Ísberg til að fá nýja sýn á höfuð sitt. Þessi stelpa er algjör galdur. Hún er fersk og frumleg og býður upp á óvæntar myndir,“ segir Bubbi og tekur fram að Fríða sé í senn hvunndags og upphafin í skrifum sínum. „Afsakanir með Auði er skyldu- hlustun fyrir alla sem eru komnir á þann stað að þeir halda að unga fólkið hafi ekkert fram að færa. Auður er boðberi nýrra tíma í ís- lenskri dægurtónlist. Hann er frumlegur, djúpur, skáldmæltur og líka óhræddur við að opna tilfinn- ingalíf sitt og hjarta. Það þarf kjark og heiðarleika til að syngja um það sem hann er að syngja. En það þarf líka skáldlega gáfu til að geta gert það eins og hann gerir það. Þessi plata er eitt af undr- unum í íslensku tónlistarlífi. Hann ber höfuð og herðar yfir sam- tímamenn og -konur. Hins vegar er annar listamaður sem mig langar líka að nefna og það er GDRN, því nýja platan hennar er alveg geggjuð. Hún syngur á íslensku og fyrir vikið er hún að sýna allt aðra dýpt og öðru- vísi speglun en í fyrra efni sínu. Þessir tveir íslensku tónlistarmenn auðga líf okkar, stytta okkur stundir og gleðja okkur á tímum veirunnar.“ Bubbi hvetur alla til að horfa á kvikmyndina The Producers frá 1967 í leikstjórn Mels Brooks. „Þetta er mynd fyrir þá sem vilja hlæja, en um leið er grínið hár- beitt,“ segir Bubbi og bendir á að Brooks hafi fundið að besta leiðin til að takast á við reiðina út í Þýskaland nasismans, sem kostaði nána ættingja hans lífið í útrýming- arbúðum, hafi verið að gera grín að Hitler. „Svo myndi ég taka Chaplin-kvöld með fjölskyldunni. Hann er einn magnaðasti listamað- ur sögunnar – kannski sá stærsti innan kvikmyndalistarinnar. Að lokum langar mig að nefna myndlistina. Þá ætla ég að leyfa mér að benda fólki á Tolla bróður, en skoða má málverk hans á net- inu. Síðan er annar listamaður sem ég tel vera mesta myndlistarmann allra tíma sem er Paul Gauguin,“ segir Bubbi og mælir með skálduðu ævisögunni um Gauguin sem nefn- ist Tunglið og tíeyringurinn eftir William Somerset Maugham. „Gauguin var verðbréfasali sem ákvað um fertugt að gerast málari og yfirgaf þá fjölskyldu sína. Hann er andsetinn, svo góður er hann. Í metoo-byltingunni hefur hann fengið á kjaftinn fyrir ungu stelp- urnar á Tahítí. Það er alveg skilj- anlegt því í dag sjáum við þetta með þeim augum, en gleraugun voru öðruvísi þegar hann var á Ta- hítí að mála,“ segir Bubbi og tekur fram að þegar hann sé að skrifa og þurfi að hvíla sig inn á milli skoði hann myndir Gauguins á netinu. „Enda er þetta algjört undur.“ Mælt með í samkomubanni Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Gleði Bubbi Morthens gleður landsmenn í samkomubanninu með vikuleg- um tónleikum sínum á Stóra sviði Borgarleikhússins á föstudögum kl. 12. Afsakanir, sólskin, hlátur og undur Grátbroslegur Charles Chaplin í hlutverki sínu sem flækingurinn. Hallgrímur Helgason Fríða Ísberg Auður GDRN mjög lítið úr sér. Það er ýmist of eða van, svona eins og hjá svo mörgum, en veldur engum óþægindum. Þetta er samtímasaga og drepið er á helstu mál í þjóðfélaginu sam- fara upprifjun á ævi Atla Jóns. Fíkniefnaheimurinn og það sem honum tengist er áberandi. Stjórn- málamenn fá orð í eyra og látið að nýju hruni liggja með réttu hugar- fari. Gagnrýni í bókum rithöfunda á borgaryfirvöld vegna skipulagsmála hefur vakið athygli og Ingvi Þór heggur í sama knérunn. Betur sjá augu en auga. „Hvernig verður þessi miðbær þegar ferðamennirnir nenna ekki lengur að koma hingað?“ (bls. 79). Tónlistin er sem rauður þráður í Vandamál er fyrsta orðiðsem kemur upp í huganneftir að hafa lesið glæpa-söguna Stigið á strik eftir Ingva þór Kormáksson. Eftir að lík finnst í rotþró við sumarbúsað í Biskupstungum hefst frásögn Atla Jóns, helstu persónu sögunnar. Hann á í erfiðleikum við drauga fortíð- arinnar sem tengjast tónlist og óreglu, kemur fram eins og hann sé sár yfir því að hafa misst af lestinni í tón- listinni, sem hann virðist samt þekkja býsna vel. Engu að síður er það tónlistin, sem kemur honum á sporið og þrátt fyrir hindranir af ýmsu tagi á hann henni margt að þakka. Hún er enda eilíf eins og Eilífur. Bókin er þægileg aflestrar. Það er eins og maður sitji með Atla Jóni og hlusti á frásögn hans. Miðaldra mað- urinn sér sjálfan sig stundum í skær- ara ljósi en hann á innistæðu fyrir, en svo á hann það líka til að gera bókinni og er greinilegt að höfundur er þar á heimavelli, en hætt er við að nákvæmar lýsingar á máli hennar fari fyrir neðan garð og ofan hjá Jóni og Gunna. Hún er samt mikilvæg í sögunni sem slík enda strengir Hörpu órannsakanlegir. Stigið á strik er ágætlega upp- byggð, en persónur eru helst til of margar og húmorinn missir stund- um marks. Nótur verða að lagi og eftir því sem málið verður „heitara“ fyrir þá sem hlut eiga að máli æsist leikurinn. Áður en yfir lýkur hefur Atli Jón, „kennarablókin sem þykist vera sérfræðingur í músík“, kynnst vegferð ofurmanna af eigin raun. Það er eiginlega of mikið af hinu góða. Morgunblaðið/Arnþór Birkisson Höfundurinn „Þetta er samtímasaga og drepið er á helstu mál í þjóðfélag- inu,“ segir rýnir um „þægilega“ glæpasögu Ingva Þórs Kormákssonar. Í draumi ofurmanna Glæpasaga Stigið á strik bbbnn Eftir Ingva Þór Kormáksson. Sæmundur 2020. Kilja, 290 bls. STEINÞÓR GUÐBJARTSSON BÆKUR Húðfegrun ehf | Vegmúli 2 | Sími 533 1320 | www.hudfegrun.is Tímapantanir í síma 533 1320 Við tökumvel ámóti ykkur í Vegmúla2 Gelísprautun Greiddu fyrir meðferð í dag og nýttu þér tilboðið hjá okkur. Bókaðu og nýttu meðferðina þegar hentar þér best! Gefur náttúrulega fyllingu • Grynnkar línur og hrukkur • Eykur kollagenframleiðslu APRÍL TILBOÐ 30% afsláttur Hverri vinsælu listahátíðinni af annarri sem halda átti í vor eða sumar úti um löndin er frestað eða aflýst þessa dagana. Katharina Wagner, afkomandi tónskáldins kunna, tilkynnti á þriðjudag að hinni árlegu Bayreuth-óperuhátíð, þar sem unnendur ópera Wagners safnast saman ár hvert til að upp- lifa þær í nýjum uppfærslum, væri aflýst að þessu sinni. Ákvörðunin hefði verið tekin í sameiningu af eigendum hátíðarinnar, sem væru fylkið Bayern, bærinn Bayreuth og félag vina óperuhátíðarinnar. Þá var tilkynnt í gær að öllum hinum fimm vinsælu listahátíðum sem haldnar hafa verið í Edinborg í Skotlandi ár hvert sé líka aflýst að þessu sinni. „Í fyrsta skipti í sögu hinna fimm alþjóðlegu listahátíða í Edinborg, þar á meðal Fringe-hátíðarinnar, hefur þeim verið frestað vegna kór- ónuveirunnar,“ segir í yfirlýsingu frá skipuleggjendum. Listahátíðum aflýst AP Í Bayreuth Wagner-óperuhátíðinni frægu hefur verið aflýst í ár.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.