Morgunblaðið - 02.04.2020, Qupperneq 72
ILVA Korputorgi, s: 522 4500 - www.ILVA.is
Alla daga vikunnar: 12-18
Frí heimsending
Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU
FYRIR ÞÁ SEM VERSLA
FYRIR 5.000 EÐA MEIRA
WWW.ILVA.IS
GILDIR Í VEFVERSLUN ILVA
TIL OG MEÐ 30. APRÍL
25-40%
Sparadu-
af öllum ljósum
og 20% af allri smávöru*
26. mars - 13. apríl
*Gildir ekki um vörur á áður niðursettu verði.
BREYTTUR AFGREIÐSLUTÍMI
ALLA DAGA 12-18
LYSS veggljós. Svartur, hvítur eða gulur.
Áður 29.995 kr.NÚ 20.995 kr.
Hljómsveitin Skítamórall heldur tónleika á Eldborgar-
sviði Hörpu annað kvöld kl. 21.10 og verður sýnt frá þeim
í beinni útsendingu á RÚV 2. Skítamórall var stofnuð árið
1989 og hefur því verið starfandi í yfir 30 ár. Stóð til að
sveitin héldi tónleika í Eldborg 9. maí en vegna sam-
komubanns var þeim frestað til 16. júní. Nokkrir góðir
gestir munu kíkja í heimsókn til strákanna annað kvöld
en þess verður þó gætt að tveir metrar séu hið minnsta á
milli fólks á sviðinu. Hægt verður að taka þátt í um-
ræðunni á Twitter með myllumerkinu #skimo2020.
Hljómsveitin var stofnuð af Selfyssingunum og jafnöldr-
unum Gunnari Ólasyni, Herberti Viðarsyni, Jóhanni
Bachmann Ólafssyni og Arngrími Fannari Haraldssyni.
Skítamórall í beinni frá Eldborg
FIMMTUDAGUR 2. APRÍL 93. DAGUR ÁRSINS 2020
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 697 kr.
Áskrift 7.530 kr. Helgaráskrift 4.700 kr.
PDF á mbl.is 6.677 kr. iPad-áskrift 6.677 kr.
„Mér fannst í raun bara komið að ákveðnum tímapunkti
hjá mér að fara að eyða meiri tíma með fjölskyldunni.
Maður hefur verið minntur á það síðastliðnar vikur
hvað er mikilvægast í þessu lífi. Í fimmtán ár hefur
maður skipulagt tímann sinn út frá körfuboltanum og
verður það ágætis tilbreyting að geta skiplagt sinn eig-
in frítíma sjálfur í fyrsta sinn í langan tíma,“ segir
körfuboltakonan Gunnhildur Gunnarsdóttir sem er
hætt eftir langan og farsælan feril. » 62
Komið að ákveðnum tímapunkti
ÍÞRÓTTIR MENNING
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Ólafur Axelsson, fyrrverandi smiður
í Árbæjarsafni, hefur ákveðið að
gefa KFUM og KFUK áletraðan
róðukross í keðju, sem hann fékk að
gjöf frá séra Friðriki Friðrikssyni
fyrir um 70 árum.
Friðrik fékk hann
hins vegar í
kveðjugjöf eftir að
hafa verið í Ís-
lendingabyggðum
í Kanada 1913-
1916 og meðal
annars þjónað
Skjaldborgarsöfnuðinum, skammt
frá Selkirk í Manitoba.
Ólafur fæddist á Barónsstíg 14 í
Reykjavík og þaðan var stutt í
KFUM á Amtmannsstíg. Hann seg-
ir að frændi sinn, sem var þremur
árum eldri, hafi tekið sig með á fundi
og eitt sinn á sjötta áratugnum, þeg-
ar hann hafi verið átta eða níu ára,
hafi hann sem oftar setið á spjalli við
séra Friðrik.
„Þegar ég stóð upp og ætlaði að
fara tók hann upp kross og sagði að
ég mætti eiga hann,“ rifjar Ólafur
upp. „Ég þakkaði fyrir, pabbi setti í
hann tvo nagla, sem vantaði, og ég
var með krossinn uppi á vegg heima
þar til við fluttum í Ársali fyrir tæp-
lega tuttugu árum.“
Í ævisögu Friðriks kemur fram að
í Kanada hafi hann fengið til minja
fallegt krossmark með silfurlitaðri
Kristsmynd á og það hafi verið kær-
kominn gripur. Ólafur segist ekki
hafa viljað sitja uppi með krossinn
og því ákveðið að gefa KFUM hann.
„Ég pakkaði honum vel inn fyrir
flutningana. Svo vel að ég fann hann
ekki fyrr en fyrir nokkrum dögum í
kassa eftir að hafa leitað og leitað og
farið oft í alla kassa.“
Sögulegt gildi
Aftan á krossinum er letrað:
„Séra Fr. Friðriksson. Frá Skjald-
borg 19. sept. 1915“. Ólafur segist
ekki hafa tekið eftir áletruninni fyrr
en áratugum eftir að hann fékk gjöf-
ina. Hann segist vera grúskari af
guðs náð og hafi kynnt sér sögu séra
Friðriks til að reyna að fræðast
meira um krossinn. Í kjölfarið hafi
hann haft samband við séra Guð-
mund Karl Brynjarsson í Linda-
kirkju í Kópavogi og beðið hann að
koma krossinum í réttar hendur. „Ef
fólk vill ekki að menn og málefni
gleymist er best að koma hlutum
sem tengjast því á söfn og krossinn
er best geymdur í Friðriksstofu í
KFUM.“
Guðmundur Karl segir að áletr-
unin setji krossinn í sögulegt sam-
hengi og auki sögulegt gildi hans.
„Hugsanlega hefði hann ekki varð-
veist svona vel ef sr. Friðrik hefði
ekki gefið þessum litla dreng þennan
kross á sínum tíma,“ segir hann.
Ólafur leggur áherslu á að hann sé
ekki safnari. Ekki alls fyrir löngu
hafi sonur hans litið inn í geymsluna.
„„Við bræðurnir þurfum ekki að
hafa áhyggjur af þessu,“ sagði hann
og það er lýsandi dæmi um enga
söfnunaráráttu. Ég sé aldrei eftir
neinu sem ég gef því það eina sem
þú átt er það sem þú gefur.“
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Gjöf Ólafur Axelsson og sr. Guðmundur Karl Brynjarsson í Lindakirkju með
krossinn sem sr. Friðrik Friðriksson fékk í kveðjugjöf í Kanada fyrir rúmri öld.
Gjöfin er eina eignin
Áritaður kross sem séra Friðrik Friðriksson fékk
í kveðjugjöf í Kanada 1915 fundinn Fer til KFUM