Morgunblaðið - 25.04.2020, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 25.04.2020, Blaðsíða 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. APRÍL 2020 Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Starfsmenn Landhelgisgæslunnar stefna að því í lok maímánaðar að steypa fyrir op við olíutanka í flaki El Grillo á botni Seyðisfjarðar. Um talsverða aðgerð er að ræða og sam- þykkti ríkisstjórnin nýverið 38 millj- óna króna framlag til þess að koma í veg fyrir olíuleka úr skipinu. Gert er ráð fyrir að varðskipið Þór fari á staðinn, minnst fimm til sex kafarar taki þátt í aðgerðinni og afþrýstiklefi verði um borð í varðskipinu. Til að tryggja öryggi verður varðskipið bú- ið mengunarvarna- og mengunar- hreinsibúnaði meðan á aðgerðinni stendur. Mikil tæring í flakinu Ásgrímur L. Ásgrímsson, fram- kvæmdastjóri aðgerða hjá Land- helgisgæslunni, segir að aðgerð sem þessi kalli á góðan undirbúning. Flakið sé mikið tært, en 76 ár eru liðin frá því að skipinu var sökkt, og við skoðun í fyrrahaust kom í ljós svartolíuleki úr mannopi sem liggur ofan í einn af olíutönkum skipsins. Aðeins á þessum eina stað varð vart við olíuleka. Ásgrímur segir að ekki sé ætlunin að hreinsa olíu úr skipinu, heldur að steypa fyrir mannopið þar sem olía seytlar út. Á þann hátt takist von- andi að koma í veg fyrir mengun, þó hugsanlega aðeins tímabundið því með aukinni tæringu hafi líkur á leka úr skipinu aukist. Hugsanlega þarf að steypa fyrir fleiri tanka í framtíðinni. Steypumót úr áli og stáli Að sögn Sigurðar Ásgrímssonar, yfirmanns séraðgerða hjá Landhelg- isgæslunni, er þessa dagana verið að smíða steypumót úr áli og stáli utan um mannholið. Um 32 metrar eru niður á dekk skipsins og verður vinnuprammi fyrir ofan El Grillo. Sérstöku sementi verður síðan dælt með steypudælu í gegnum barka frá prammanum í mótið utan um mann- holið. El Grillo var tankskip og fjöldi tanka í því og mannop ofan í hvern þeirra. „Þegar kafað er í flaki vegna svona vinnu er mikilvægt að aðgát sé höfð varðandi skotfæri og sprengi- kúlur,“ segir Ásgrímur. Talsvert var af skotfærum og sprengikúlum í El Grillo þegar skipinu var sökkt, enda var skipið ekki aðeins olíubirgðaskip og auk þess vopnum búið. Hann seg- ir að þó svo að ráðist hafi verið í hreinsanir í skipinu nokkrum sinn- um sé sprengiefni úr því enn að koma í ljós. Síðast í fyrrahaust hafi kafarar Landhelgisgæslunnar, sem skoðuðu aðstæður, komið í land með skotfæri úr El Grillo. Miðað er við að þrír kafaranna sem taka þátt í að- gerðinni séu jafnframt sprengju- sérfræðingar. Í samantekt Landhelgisgæsl- unnar eftir könnunarleiðangurinn síðasta haust kemur fram að 23 sprengikúlur hafi fundist á brúar- væng skipsins, sem sprengju- sérfræðingar hafi fjarlægt og síðan eytt. Lögð er áhersla á að mikilvægt sé að gera langtímaáætlun um hreinsun og eftirlit með flakinu. Minna af olíu í flakinu? Olíubirgðaskipið El Grillo hafði þjónað herskipum bandamanna í seinni heimsstyrjöldinni. Talið var að níu þúsund tonn af olíu hefðu ver- ið í skipinu þegar þýskar herflug- vélar gerðu árás á það í Seyðisfirði í febrúar 1944. Olía lak úr skipinu eða var dælt úr því áður en það sökk. Meðal annars var olíu dælt úr skip- inu 1952 og aftur 2001 auk þess sem djúpsprengjur hafa verið fjarlægðar úr því. Að lokinni hreinsun í skipinu í september 2001 sagði í tilkynningu frá umhverfisráðuneytinu: „Aðgerð- um við El-Grillo í Seyðisfirði er lokið. Kannaðir voru allir 36 tankar skips- ins og fannst olía í 13 þeirra. Magn olíunnar reyndist vera 91 tonn sem er minna en það sem menn óttuðust að gæti verið í flakinu. Líklegt má telja að annaðhvort hafi El Grillo ekki verið fulllestað þegar því var grandað í síðari heimsstyrjöldinni eins og talið hefur verið eða að veru- legt magn olíu hafi borist út í um- hverfið skömmu eftir að skipinu var sökkt. Þessi hreinsunaraðgerð er sú um- fangsmesta á þessu sviði sem ráðist hefur verið í hér við land. Hættu á bráðri olíumengun í Seyðisfirði hefur því verið afstýrt, en næstu árin er þó ekki hægt að útiloka minniháttar leka frá skipinu frá þeim innan- sleikjum sem enn gætu leynst undir bitum tankanna … Nú þegar lokið er við að fjarlægja sprengjur og skotfæri ásamt því að fjarlægja olíu úr tönkum skipsins mun El Grillo njóta aukins aðdráttar- afls sportkafara þar sem 134 metra langt flakið liggur á 50 metra dýpi í miðjum Seyðisfirði rétt utan hafnar- innar. Mestu skiptir að með hreinsun skipsins hefur verið komið í veg fyrir hættu á bráðri mengun í Seyðisfirði.“ Olía lekur þegar sjór hlýnar Þá var metið að 10-15 tonn af olíu væru enn í skipinu. Í frétt frá um- hverfisráðuneytinu 17. apríl síðastlið- inn segir að í aðgerðinni 2001 hafi rúm 60 tonn af hreinni olíu náðst úr flakinu. „Síðan hefur reynslan sýnt að olía leki úr flakinu þegar sjór hlýn- ar á sumrin. Í könnunarleiðangri Landhelgisgæslunnar í október sl. kom í ljós að töluverður olíuleki var úr opi við olíutanka skipsins vegna tæringar. Því er mikilvægt að bregð- ast við lekanum hið fyrsta til að fyrir- byggja neikvæð umhverfisáhrif í firð- inum,“ segir í frétt ráðuneytisins. Snúin steypuvinna í Seyðisfirði  Landhelgisgæslan undirbýr aðgerðir til að koma í veg fyrir mengun frá El Grillo  Steypt fyrir mannop þar sem olía seytlar út  Mikilvægt að aðgát sé höfð varðandi skotfæri og sprengikúlur Stöðvun olíuleka úr El Grillo Varðskipið Þór Smíðað í Síle árið 2009 Stærð: 4.049 brúttótonn Burðargeta: 2.089 tonn Lengd: 93,8 metrar Siglingahraði: 19,5 sjómílur Olíu birgðaskipið El Grillo lagðist við akkeri á Seyðisfi rði haustið 1943 og þjónaði þar herskipum og tundurspillum bandamanna í seinni heimsstyrjöldinni. El Grillo varð fyrir árás Focke-Wulf Condor sprengjufl ugvéla þjóðverja 10. febrúar 1944, tíu dögum eftir það var fyllt af olíu. Talið var að um 9.000 tonn af dísil- og svartolíu hefðu verið í skipinu. Ein sprengja sprakk fyrir framan stefni þess og 5-6 metra löng rifa opnaðist á stjórnborðsbóg skipsins. El Grillo sökk síðar um daginn á botn fjarðarins á um 40 m dýpi. Töluverðu af olíu var dælt úr skipinu áður en það sökk. Árið 1952 var olíu dælt úr því og aftur árið 2001. Áætlað hefur verið að 10-15 tonn af olíu séu enn eftir í Við skoðun á fl aki El Grillo í október í fyrra kom í ljós að olía lekur úr mannopi á tanki 7 eða 8 stjórn- borðsmegin þar sem mikil tæring er við lúgu og mælilok þar ofan á. Ramminn undir mannopinu er 1 x 1,5 metrar á stærð og 70 cm hár. Ryðfríu röri og krana verður komið fyrir sem síðar er hægt að bora í gegnum til að dæla úr tanknum. Olía lekur um lúgu á mannopi á einum af olíutönkum skipsins. Fyrirhugað er að steypa utan um mannopið til að stöðva lekann. 42 m 32 m 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 El Grillo Smíðað í Newcastle árið 1922 Sökkt 10. febrúar 1944 Stærð: 7.264 brúttótonn Burðargeta: 9.000 tonn af olíu Lengd: 134,3 metrar Landhelgisgæslan mun sjá um aðgerðir og verður varðskipið Þór á staðnum meðan á þeim stendur. Sex kafarar, þar af þrír sprengjusérfæðingar munu vinna við köfun. Um borð í Þór verður sérhæfður búnaður til djúp- köfunar og afþrýstiklefi fyrir kafara. Áætlaður kostnaður er um 38 milljónir. Seyðisfjörður Lónið S E Y Ð I S FJ Ö R Ð U R Siglingahraði: 12 sjómílur Vél: gufuvél Stýrishús Olíuleki Olíutankar 1 til 10 Káetur Vélarrými Myndin sýnir stærð Þórs og El Grillo í réttum hlutföllum Austurvegur Hafnargata Búðareyri El Grillo liggur á um 40 m dýpi Heimild: Landhelgisgæslan og samtímaheimildir Í frétt í Morgunblaðinu fyrr í vetur segir að vitað sé að kúlur úr loftvarna- byssum El Grillo séu til víða um land og sumar þeirra séu virkar. Þannig fékk Landhelgisgæslan nýlega tilkynningu um slíka kúlu sem hafði verið til sýnis í byggðasafninu á Görðum á Akranesi í áratugi. Hún var með fullri hleðslu, enda hafði henni ekki verið skotið. Þegar sprengieyðingar- mennirnir reyndu að ná hleðslunni úr kúlunni sprakk hún í tætlur. Í ágúst 2018 var greint frá því í blaðinu að tveir drengir á Seyðisfirði hefðu fundið fágætan hlut á förnum vegi. Um var að ræða virka sprengju- kúlu og voru kallaðir til sprengjusérfræðingar Landhelgisgæslunnar, sem gerðu sprengjuna óvirka og eyddu henni. Drengirnir sluppu vel, því þeir höfðu leikið sér að sprengjunni og kastað henni á milli sín áður en þeir gerðu foreldrum sínum viðvart um fundinn, segir í fréttinni. Ein var til sýnis í byggðasafni KÚLUR ÚR EL GRILLO HAFA FUNDIST VÍÐA UM LAND Ljósmynd/Amgueddfa Cymru - Nat Skipið í höfninni El Grillo áður en því var grandað af Þjóðverjum í Seyðisfjarðarhöfn árið 1944.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.