Morgunblaðið - 25.04.2020, Blaðsíða 1
L A U G A R D A G U R 2 5. A P R Í L 2 0 2 0
Stofnað 1913 97. tölublað 108. árgangur
Njóttu hækkandi sólar á rúntinum.
Uppáhaldsbíllinn þinn bíður!
HEKLA · Skoðaðu úrvalið á www.hekla.is/vefverslun
LEIKUR KLÓK-
AN VÍKINGA-
FORINGJA SNÚIN STEYPUVINNA
FLAK EL GRILLO LEKUR ENN 10EYSTEINN Á NETFLIX 34
„Það er búið að
kippa stoðunum
undan þessari
þjónustu. Við er-
um komin 50 ár
aftur í tímann
með sjópóstinn,“
segir Birgir
Jónsson, forstjóri
Íslandspósts.
Ástandið sem
skapast hefur í
samgöngum í heiminum vegna
kórónuveirufaraldursins hefur
valdið miklum seinkunum á póst-
sendingum.
Margra vikna bið er eftir bréfum
frá Bandaríkjunum, sem eru nú
send sjóleiðis til Evrópu, og tugir
tonna af sendingum frá netversl-
unum í Kína bíða í kerfinu eftir að
komast til Íslands.
Erfitt hefur reynst að fá erlenda
samstarfsaðila til að breyta ferlum
sínum. Birgir segir svipað ástand
vera í flestum löndum. »2
Birgir
Jónsson
Sjópóstur færir
okkur aftur um 50 ár
Hugrún ÞH-240 er varðveitt í Útgerðarminjasafninu á Greni-
vík. Þar hefur þessi 64 ára gamli bátur verið í allmörg ár og
pallarnir í kringum hann eru vinsæll viðkomustaður ferðafólks,
en þaðan er upplagt að fylgjast með sólinni setjast á bak við fjöll
Eyjafjarðar. Báturinn hét lengi Hólmatindur og hafði víða ratað
á langri ævi áður en hann fékk samastað á landi safnsins.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Öldungur miðdepillinn
á sumarkvöldi í Grenivík
Stefán E. Stefánsson
Baldur Arnarson
„Þeir verða örugglega yfir tíu því
vinna okkar stjórnmálamanna næstu
misseri er að bregðast við þeirri stöðu
sem upp er komin.“ Þetta segir Þór-
dís Kolbrún R. Gylfadóttir, ferða-
mála-, iðnaðar-, og nýsköpunarráð-
herra, þegar hún er spurð út í hversu
marga aðgerðapakka ríkisstjórnin
muni þurfa að kynna á komandi mán-
uðum vegna þess ástands sem nú er
uppi í íslensku efnahagslífi. Þórdís er
viðmælandi í Viðskiptapúlsinum,
hlaðvarpi ViðskiptaMoggans sem nú
hefur verið birt. Reynist ráðherra
sannspár á ríkisstjórnin eftir að
kynna að minnsta kosti átta aðgerða-
pakka til bjargar
íslensku efna-
hagslífi í kjölfar
kórónuveiru-
faraldursins.
Segir Þórdís
verkefnið gríðar-
legt að vöxtum og
að sumum fyrir-
tækjum verði ekki
bjargað, hversu
umfangsmiklar
sem aðgerðir stjórnvalda verði. Hætt
sé við að mjög fáir ferðamenn muni
leggja leið sína til landsins nú í ár.
Ráðherra segir stjórnvöld fylgjast
náið með framvindu mála á vettvangi
Icelandair Group og þá sé ljóst að
staða Isavia sé einnig áhyggjuefni.
Hennar skoðun sé sú að styrkja
mætti stöðu Keflavíkurflugvallar með
því að fá einkafjárfesta sem hefðu
reynslu af rekstri alþjóðaflugvalla er-
lendis sem minnihlutaeigendur að
vellinum. Hún tekur þó fram að það
sé ekki hluti af stefnu stjórnvalda að
svo stöddu.
Uppstokkun í burðarliðnum
Viðmælendur Morgunblaðsins í
hótelgeiranum reikna með uppstokk-
un á markaðnum á komandi vikum og
mánuðum. Rekstri City Park Hótels í
Ármúla hefur verið hætt. Þá hefur
lögmaður annars hótels fengið það
svar frá leigusala að gengið verði að
tryggingum vegna ógreiddrar leigu í
marsmánuði. Af þessu tilefni fólu
hóteleigendur Viðari Má Matthías-
syni prófessor að kanna réttarstöðu
hótela gagnvart leigusölum og lán-
veitendum.
Niðurstaða Viðars Más er að fjórar
reglur fjármunaréttar geti haft áhrif
á stöðu leigutaka gagnvart slíkum
skuldbindingum. Ferðabann vegna
kórónuveirufaraldursins og hindranir
sem af því leiði geti talist grundvöllur
þess að slíkar reglur nái til þeirrar
stöðu sem upp er komin á markaðn-
um. Sú niðurstaða gæti haft þýðingu
fyrir aðrar atvinnugreinar sem horft
hafa fram á gríðarlegt tekjuhrun og
geta í mörgum tilvikum ekki staðið
við skuldbindingar sínar.
Tíu pakkar hið minnsta
Ferðamálaráðherra segir stjórnvöld munu þurfa að grípa enn meira inn í stöðuna
Lítið verði úr ferðaþjónustu í ár Stefnir í erfitt uppgjör á hótelmarkaði
Þórdís Kolbrún
Gylfadóttir
MKórónuveiran »4, 6, 11, 16-18