Morgunblaðið - 25.04.2020, Side 32
HM 2021
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Í gær varð ljóst að Ísland verður
með í lokakeppni heimsmeistara-
móts karla í handknattleik sem fram
fer í Egyptalandi í janúar á næsta
ári. Árangur Íslands á EM í janúar
á þessu ári, ásamt áhrifum kórónu-
veirunnar, gera það að verkum að
Ísland fer beint á HM.
Stórar ákvarðanir voru teknar af
Handknattleikssambandi Evrópu í
gær eins og sjá má í fleiri fréttum
hér á opnunni. Tímabært var að
taka slíkar ákvarðanir enda var
óvissa ríkjandi um hvort reyna ætti
að spila í sumar eða ekki.
Umspili fyrir HM karla var aflýst
og árangur liðanna á EM látinn
gilda. Þar komst Ísland upp úr sín-
um riðli og í milliriðil eftir sigra
gegn Dönum og Rússum en tap
gegn Ungverjum. Ísland hafnaði í
11. sæti þegar upp var staðið á EM.
„Það er alltaf frábært að komast á
HM. Ég er satt að segja mjög stolt-
ur vegna þess að þetta undirstrikar
okkar frábæra árangur að komast
upp úr erfiðum riðli á EM. Það skil-
ar okkur sæti á HM. Ég veit hvað
þurfti til og þar af leiðandi er ég
mjög ánægður. Það var ekkert ein-
falt að fara upp úr riðlinum á EM og
þannig lít ég á það,“ sagði Guð-
mundur Þ. Guðmundsson landsliðs-
þjálfari þegar Morgunblaðið hafði
samband við hann í gær.
Guðmundur er ánægður með að
fá niðurstöðu í málið enda óvissan
um hvort spila hafi átt mikilvæga
leiki eða ekki í sumar verið óþægileg
fyrir þjálfara.
„Mér fannst þetta rosalega
óþægilegt og maður var farinn að
bíða eftir einhverri niðurstöðu. Ég
held þar af leiðandi að það sé mjög
gott fyrir alla aðila að fá hana fram.
Maður vissi ekki hvort við ættum að
spila í júní eða júlí. Nú vitum við að
það verður ekki og því fylgir mjög
góð tilfinning að nú sé komin niður-
staða. Það hefði verið erfitt að þurfa
að eiga við þetta í sumar vegna þess
að óvissan í kringum þetta hefði ver-
ið svo mikil. Til dæmis varðandi
styrkleika liðsins. Leikmenn hefðu
ekkert spilað í langan tíma og mjög
misjafnt hvernig menn væru á sig
komnir. Sumir í formi og aðrir ekki
en enginn í almennilegri leik-
æfingu.“
Kom ekki á óvart
Nú þegar samkomubann og aðrar
hömlur vegna kórónuveirunnar hafa
verið í nokkurn tíma segist Guð-
mundur hafa verið farinn að búast
við þessari niðurstöðu.
„Ég var búinn að sjá fyrir mér að
þetta gæti gerst eftir að hafa velt
þessu nokkuð fyrir mér. Ég sá bara
ekki fyrir mér hvernig menn ætluðu
að koma þessum leikjum í umspilinu
fyrir í sumar. Þá fannst manni rök-
rétt að liðin í milliriðlinum á EM
myndu komast beint á HM. Mér
fannst þetta einhvern veginn líkleg
niðurstaða,“ sagði Guðmundur og
segir að hið jákvæða í stöðunni sé að
vita með góðum fyrirvara að liðið sé
á leið á stórmót.
„Enn er þó fullt af óvissuþáttum í
þessu út af ástandinu í heiminum
eins og hvort mótið verði haldið. Það
er seinni tíma mál. Ég held að mótið
verði haldið og maður vonar það.
Það sem er jákvætt í þessu er að
vita með góðum fyrirvara að við
séum á leið á stórmót,“ sagði Guð-
mundur enn fremur.
Frakkar rétt náðu inn
Spánn, Króatía og Noregur höfðu
þegar tryggt sér sæti á HM en nú
bætast við Slóvenía, Þýskaland,
Portúgal, Svíþjóð, Austurríki, Ung-
verjaland, Hvíta-Rússland, Ísland,
Tékkland og Frakkland, en þessar
þjóðir áttu að leika í umspilinu í
júní. Athyglisvert má telja að
Frakkar ná síðasta sætinu inn á HM
af Evrópuþjóðunum eftir að hafa
hafnað í 12. sæti á EM. Þar töpuðu
Frakkar fyrstu tveimur leikjunum
gegn Portúgal og Noregi og náðu
ekki í milliriðilinn. Liðið vann Bosn-
íu í þriðja leik sínum sem þá var tal-
ið að hefði enga þýðingu. Annað
kom á daginn. Einnig má segja að
sigurinn sæti gegn Dönum í fyrsta
leik íslenska liðsins á EM sé nú orð-
inn enn þýðingarmeiri en hann var í
janúar.
Ísland hefur tuttugu sinnum
keppt í lokakeppni HM karla og í
janúar 2021 verður það að óbreyttu í
tuttugasta og fyrsta skipti. HM hef-
ur áður farið fram í Egyptalandi,
heimalandi formanns Alþjóðahand-
knattleikssambsins Hassans Moust-
afa. Var það árið 1999 en þá komst
Ísland ekki í lokakeppnina, merki-
legt nokk, en liðið hafnaði í 5. sæti á
HM tveimur árum áður.
28 þjóðir eru komnar inn á HM af
32 en þær sem hér hafa verið taldar
upp eru fulltrúar Evrópu. Enn á eft-
ir að handvelja tvær þjóðir inn eins
og IHF áskilur sér rétt til að gera
og varð frægt þegar Þjóðverjum var
hjálpað inn á HM 2015.
Aðrar þjóðir sem eru öruggar
eru: Egyptaland, Angóla, Alsír,
Túnis, Katar, Japan, Barein, Suður-
Kórea, Argentína, Brasilía, Græn-
höfðaeyjar, Marokkó, Úrúgvæ og
Kongó. Aron Kristjánsson stýrir
Barein og Dagur Sigurðsson stýrir
Japan.
Ekkert
umspil hjá
landsliðinu
Ísland er komið á HM í Egyptalandi
Sigurinn gegn Dönum mikilvægur
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Glaðbeittur Guðmundur Þ. Guðmundsson er á leið á enn eitt stórmótið.
32 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. APRÍL 2020
25. apríl 1967
KR-ingar eru Íslandsmeist-
arar karla í körfuknattleik
þriðja árið í röð
eftir stórsigur á
ÍR, 72:43, í
hreinum úrslita-
leik liðanna um
titilinn í Laugar-
dalshöllinni en
þau höfðu endað
jöfn og efst í deildinni. Kol-
beinn Pálsson skorar 22 stig
fyrir KR í úrslitaleiknum,
Hjörtur Hansson 19 og Einar
Bollason 13.
25. apríl 1980
Íslenska kvennalandsliðið í
handknattleik sigrar Fær-
eyinga, 21:12, í
vináttulandsleik
í Laugardals-
höllinni. Þetta
er annar af
þremur leikjum
þjóðanna hér á
landi á jafn-
mörgum dögum og Ísland
vinnur alla. Guðríður Guðjóns-
dóttir skorar 6 mörk og Arna
Garðarsdóttir 4.
25. apríl 1985
Ísland sigrar Lúxemborg,
93:84, í fyrsta vináttulands-
leik þjóðanna af fjórum í
körfuknattleik karla sem
fram fer í íþróttahúsinu í
Keflavík að kvöldi sumar-
dagsins fyrsta. Valur Ingi-
mundarson skorar 29 stig fyr-
ir íslenska liðið og Jón Kr.
Gíslason 16.
25. apríl 1995
Íslenska karlalandsliðið í
handknattleik sigrar Dani á
þeirra heimavelli í Nyköbing
á Falstri, 22:20, í fyrsta leikn-
um á alþjóðlegu móti. Gústaf
Bjarnason skorar 5 mörk,
Patrekur Jóhannesson 4 og
Sigurður Sveinsson 4 fyrir ís-
lenska liðið sem er í loka-
undirbúningi fyrir heims-
meistaramótið sem síðan fór
fram á Íslandi í maímánuði.
25. apríl 2000
KR rýfur áratugar einokun
Suðurnesjaliðanna á Íslands-
meistaratitlinum í körfubolta
karla með því að sigra
Grindavík, 83:63, í fjórða úr-
slitaleik liðanna sem fram fer
í Vesturbænum. Keith Vassell
skoraði 21 stig fyrir KR,
Jesper Sörensen 14 og Jón-
atan Bow 14. Meðal skorara
KR eru m.a. tveir ungir piltar,
Jón Arnór Stefánsson og Jak-
ob Örn Sigurðarson.
25. apríl 2001
Ísland sigrar Möltu 4:1 á úti-
velli í undankeppni heims-
meistaramóts karla í knatt-
spyrnu, þrátt fyrir að vera
undir í leiknum í tæpan hálf-
tíma. Tryggvi Guðmundsson
og Helgi Sigurðsson skora á
lokamínútum fyrri hálfleiks
og þeir Eiður Smári Guðjohn-
sen og Þórður Guðjónsson
bæta við mörkum á lokakafla
leiksins.
25.4.2010
Valskonur eru Íslandsmeist-
arar í handbolta í fyrsta sinn í
27 ár eftir sigur
á Fram, 26:23, í
Safamýri í
fjórða úrslita-
leik liðanna og
þær vinna þar
með einvígið
3:1. Berglind
Hansdóttir ver 22 skot í marki
Vals og Hrafnhildur Skúla-
dóttir skorar 12 marka
Hlíðarendaliðsins.
Á ÞESSUM DEGI
Spjótkastarinn Ásdís Hjálmsdóttir
hefur keppt á síðasta stórmóti sínu
í frjálsíþróttum, þar sem Evrópu-
meistaramótinu 2020 sem fram átti
að fara í París í ágúst hefur verið
aflýst. Þetta staðfesti hún í samtali
við Bylgjuna í hádeginu í gær. Eins
og fram kom hjá Ásdísi eftir að Ól-
ympíuleikunum var frestað eru
áætlanir hennar um að hætta
keppni eftir þetta keppnistímabil
óbreyttar. Tilkynnt var í fyrra-
kvöld að EM í París færi ekki fram í
ár vegna útbreiðslu kórónuveir-
unnar.
Ásdís fer ekki á
fleiri stórmót
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Spjótkast Ásdís Hjálmsdóttir er að
ljúka löngum keppnisferli.
Íslenski landsliðsmaðurinn Guð-
laugur Victor Pálsson hefur verið
besti leikmaður þýska B-deildar-
liðsins Darmstadt á yfirstandandi
keppnistímabili, að mati knatt-
spyrnutímaritsins Kicker. Í gær tók
það út einn leikmann í hverju liði
deildarinnar og Victor var sagður
burðarásinn á miðju Darmstadt,
yfirvegaður, með mikla hlaupagetu
og öflugur í návígjum, auk þess sem
hann tæki góðan þátt í sóknar-
leiknum. Darmstadt er í sjötta sæti
B-deildarinnar þegar níu umferð-
um er ólokið.
Besti leikmaður-
inn í liðinu
Morgunblaðið/Eggert
Darmstadt Guðlaugur Victor Páls-
son hefur átt mjög gott tímabil.
Tvö Íslendingafélög hafa verið felld út úr Meistaradeild
Evrópu í handknattleik en tvö eru komin í undanúrslit
eftir að Evrópska handknattleikssambandið, EHF,
ákvað í gær að fella niður sextán og átta liða úrslit
Meistaradeildarinnar. Keppninni verður lokið með því
að leika fjögurra liða úrslit í Köln um næstu jól, dagana
28. og 29. desember. Liðin fjögur sem þangað fara eru
þau sem enduðu í tveimur efstu sæta riðlanna tveggja í
keppninni í vetur, Barcelona, París SG, Kiel og Veszp-
rém. Aron Pálmarsson leikur með Barcelona og Guðjón
Valur Sigurðsson með París SG en samningur Guðjóns
Vals við frönsku meistarana rennur út í sumar.
Tvö önnur Íslendingalið, Szeged frá Ungverjalandi og Aalborg frá Dan-
mörku, voru komin í sextán liða úrslit en hafa nú lokið keppni. Stefán Rafn
Sigurmannsson leikur með Szeged og þeir Janus Daði Smárason og Ómar
Ingi Magnússon með Aalborg, en Arnór Atlason er aðstoðarþjálfari danska
liðsins.
Aron á leiðinni í undanúrslitin
Aron
Pálmarsson
Keppnistímabilinu hjá karlaliði Vals í handknattleik er
formlega lokið þar sem EHF ákvað í gær að aflýsa því
sem eftir er af Áskorendabikar Evrópu. Snorri Steinn
Guðjónsson og lærisveinar hans í Val voru komnir í átta
liða úrslit keppninnar og áttu að mæta Halden frá Nor-
egi en þeim leikjum hafði verið frestað fram í byrjun
júní. EHF tilkynnti eftir fund framkvæmdastjórnar í
dag að frekari keppni í EHF-bikar karla, EHF-bikar
kvenna, Áskorendabikar karla og Áskorendabikar
kvenna á þessu keppnistímabili hefði verið felld niður.
Þessi ákvörðun EHF hefur áhrif á þrjú erlend Íslend-
ingalið sem voru á fullri ferð í sextán liða úrslitum
EHF-bikarsins. Rhein-Neckar Löwen, lið Alexanders Peterssonar og
Ýmis Arnar Gíslasonar, hafði þegar tryggt sér sæti í átta liða úrslitum og
Melsungen, undir stjórn Guðmundar Þ. Guðmundssonar, var í hörðum
slag við Bjerringbro/Silkeborg, lið Þráins Orra Jónssonar, um að komast í
átta liða úrslitin.
Evrópuleikjum Vals aflýst
Snorri Steinn
Guðjónsson