Morgunblaðið - 25.04.2020, Side 27
MINNINGAR 27
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. APRÍL 2020
næsta leiti þegar maður varð var
við Þóru í garðinum. Hún var
óþreytandi í að snurfusa og dunda
í garðinum og eftir að hún hætti
að vinna gafst henni meiri tími í
þessa iðju. Síðasta vor plantaði ég
sumarblómum í ker fyrir framan
húsið, það var frekar snemma en
ég var orðin ansi hress eftir veik-
indi mín og ákvað að skella í þetta.
Þóra og Gísli komu einmitt yfir
götuna og spurðu hvort þetta
væri nú ekki full snemmt því þau
voru ekki byrjuð í garðinum sín-
um og hvort blómin myndu hafa
næturfrostið af en blómin
blómstruðu vel og lengi síðasta
sumar en það sem ég fylgdist með
blómunum næstu daga til að at-
huga hvort þau væru örugglega
ekki í lagi. Krakkarnir minnast
þess að þegar þau voru að selja
saltfisk til að fjármagna fótbolta-
ferðir hafi Þóra og Gísli sagt þeim
að þau ættu alltaf að koma við
þegar þau væru að selja saltfisk
og hafa ferðirnar yfir götuna ver-
ið ófáar með fisk.
Aldrei hefði okkur órað fyrir
því að hún myndi lúta í lægra
haldi fyrir þessum vágesti en á
sama tíma fyllumst við gríðarlegu
þakklæti því við vorum heppin og
náðum að sigrast á þessum vá-
gesti hinum megin við götuna. Á
mínum daglegu gönguferðum á
meðan ég var að takast á við mitt
mein hitti ég Þóru oft og spjöll-
uðum við um heima og geima og
oftar en ekki varð útiveran mín
mun lengri en áætlað var þar sem
Þóra vissi einhvern veginn alltaf
að hverju hún ætti að spyrja og
tók reglulega stöðuna á mér, það
var ljúft og gott að spjalla við
hana.
Ég hef verið aðdáandi ítalska
markvarðarins Buffon frá því að
ég man eftir mér. Mér til ómældr-
ar gleði kom Þóra einn daginn
með flösku af ólífuolíu merkta
Buffon því hún hafði tekið eftir
því á samfélagsmiðlum að mér
var mjög í mun að fá að sjá kapp-
ann spila. Þessi olía hefur verið
okkur fjölskyldunni óþrjótandi
uppspretta alls kyns ánægju-
stunda og tilhugsunin um Buffon
glimmerolíuna eins við köllum
hana mun ylja okkur og minna á
yndislega nágrannakonu hana
Þóru.
Hetja varst’ til hinstu stundar
heilbrigð lundin aldrei brást.
Vinamörg því við þig funda
vildu allir, glöggt það sást.
Minningarnar margar, góðar
mikils nutum, bjarminn skín.
Bænir okkar heitar hljóðar
með hjartans þökk við minnumst
þín.
(María Helgadóttir)
Elsku Gísli og fjölskylda, ykk-
ar missir er mikill. Megi Guð gefa
ykkur styrk á erfiðum tímum.
Eyrún Harpa, Torfi og börn.
Elsku Þóra, mamma Ollu vin-
konu minnar, er látin. Þegar ég
settist niður og hugsaði um hana
kom margt upp í huga minn en
fyrst og fremst þakklæti.
Ég kynntist Ollu þegar við vor-
um 15 ára starfandi í Sambíóun-
um Álfabakka. Ég varð ekki bara
svo heppin að eignast þar eina af
mínum bestu vinkonum heldur
kynntist ég fjölskyldu sem tók
mér opnum örmum.
Ég bjó á Álftanesi svo Þóra
leysti það hratt og vel að skjóta
yfir mig skjólshúsi eftir langar
vaktir og reyndar hvenær sem
var. Ein ógleymanleg áramót átti
ég með fjölskyldunni í Furuhjalla.
Ekkert eitt stendur þar upp úr,
bara upplifun af samveru með
góðri samheldinni fjölskyldu. Eitt
af því sem við Þóra áttum sameig-
inlegt var ást á slátri, sem gerði
að verkum að það var oft á boð-
stólum á þessum tíma. Heyri ég í
henni ljóslifandi segja fyrir þrem-
ur vikum: „Nú takið þið Olla slát-
ur í haust.“ Dæmigerður frasi fyr-
ir þessa yndislegu konu. Þóra var
úrræðagóð með eindæmum. Eitt
sinn fengum við stöllur tjald að
láni í ferð á Þjóðhátíð. Við skil-
uðum því rennblautu og sjúskuðu
eftir blauta helgi. Var ég hálf-
smeyk að skila grip í slíku
ástandi. Ekki var það vandamál
hjá Þóru frekar en annað: Haldið
þið að þetta þorni ekki? – tjaldið
var hengt upp og ekki áhyggjur af
því meir. Þeir sem þekktu Þóru
vita að hún var einn stór klettur
fyrir alla sem stóðu henni næst.
Ég verð ansi stolt ef ég næ að
verða eins góð mamma og amma
og hún var.
Samband okkar seinustu ár var
að mestu á rafrænan hátt en Fés-
bókin kom þar sterkt inn. Við
sendum hvor annarri afmælis-
kveðjur og annað slíkt. Þegar við
hjónin giftum okkur í desember
árið 2014 sendi Þóra okkur jóla-
óróa, okkar fyrsta óróa sem mun
minna mig á Þóru öll komandi jól.
Hugur minn er hjá elsku Gísla,
Georg, Ollu, Rúrik og öllum ást-
vinum hennar á þessum erfiða
tíma.
Minningin um einstaka konu
lifir.
Ykkar vinkona,
Hjördís Halldóra
Sigurðardóttir.
Það er ómetanlegt að eiga góð-
an kennara að, ekki síst þegar
fyrstu skrefin eru stigin á
menntaveginum. Ég var svo
heppinn að njóta leiðsagnar og
verndar Þóru í þrjá vetur. Margt
gekk á í stórum bekk en hún átti
alltaf stund aflögu fyrir áhyggjur
lítils hnokka. Fyrsta skólavetur-
inn sinn gekk Georg í Seljaskóla.
Ósjaldan beið ég við bílastæðið,
spenntur að taka á móti Georgi
litla (því ég var svo ægilega gam-
all og reynslumikill að eigin mati)
og fylgdi honum til stofu sinnar.
Það góða samband sem Þóra
ræktaði við mig hefur verið mér
veigamikið veganesti inn í fullorð-
insárin og í uppeldi dætra minna.
Aðeins einu sinni skyggði á, þegar
ég af galsa kastaði snjóbolta inn í
kennslustofuna okkar. Hún leysti
það með natni og jákvæðni. Þessa
sögu og fleiri af samskiptum okk-
ar Þóru rifja ég reglulega upp
með dætrum mínum. Með þakk-
læti kveð ég minn kæra barna-
skólakennara og votta fjölskyldu
hennar samúð mína.
Karl Óskar Þráinsson,
1.-3. ÞR 1982-1985.
Á þessum erfiðu tímamótum
koma upp svo margar góðar og
kærar minningar um liðna tíma.
Minningar um yndislega vinkonu
og minningar um traustan og góð-
an vinskap okkar. Það er þyngra
en tárum taki að missa þig og þú
munt um ókomna tíð eiga sérstak-
an stað í hjarta mínu.
Ég sendi þér kæra kveðju,
nú komin er lífsins nótt,
þig umvefji blessun og bænir,
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði sorg mitt hjarta
þá sælt er að vita af því,
þú laus ert úr veikinda viðjum,
þín veröld er björt á ný.
Ég þakka þau ár sem ég átti,
þá auðnu að hafa þig hér,
og það er svo margs að minnast,
svo margt sem um hug minn fer,
þó þú sért horfinn úr heimi,
ég hitti þig ekki um hríð,
þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sigurðardóttir)
Með sorg og trega kveð ég þig,
elsku besta Þóra mín.
Þín verður sárt saknað.
Elínborg (Bogga).
Sálm. 16.1-2
biblian.is
Varðveit mig, Guð,
því að hjá þér leita
ég hælis. Ég segi
við Drottin: „Þú ert
Drottinn minn, ég
á engin gæði nema
þig.”
Virðing,
reynsla
& þjónusta
Allan
sólarhringinn
571 8222
Svafar:
82o 3939
Hermann:
82o 3938
Ingibjörg:
82o 3937
www.kvedja.is
svafar & hermann
Hjartans þakkir fyrir samúð og hlýjar
kveðjur vegna andláts og útfarar
okkar ástkæra
MAGNÚSAR SIGURÐSSONAR.
Sérstakar þakkir fær starfsfólk
Heilbrigðisstofnunar Suðurlands, Selfossi,
fyrir einstaka umönnun og hlýju.
Brynja Ingadóttir
Hrafnhildur Magnúsdóttir Jóhann Ólafur Sigurðsson
Sigurður Ingi Magnússon
Unnar Magnússon
Hrafnhildur Sveinsdóttir Sigurður Magnússon
Ingimar Bjartur og Unnar Þeyr
Bróðir okkar og mágur,
STEFÁN JENNÝJARSON
HALLDÓRSSON,
Framnesvegi 5c, Reykjanesbæ,
lést á heimili sínu sunnudaginn 29. mars.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey.
Jón Rúnar Halldórsson Signý Elíasdóttir
Jóhanna Halldórsdóttir Sigtryggur Hafsteinsson
Okkar yndislega og besta mamma,
tengdamamma, amma og langamma,
ÞÓRHALLA RAGNARSDÓTTIR,
lést á hjúkrunarheimilinu Eir föstudaginn
17. apríl. Útförin fór fram í kyrrþey.
Þóra Karlsdóttir Sveinn Helgason
Ragna Karlsdóttir Svavar Aðalsteinsson
Kristbjörg Karlsdóttir Gísli Gunnar Marteinsson
barnabörn og barnabarnabörn
Okkar ástkæra móðir, tengdamóðir, amma
og langamma,
ELSA P. NÍELSDÓTTIR,
lést á Hjúkrunarheimilinu Mörk
laugardaginn 18. apríl.
Ólöf Dóra Hermannsdóttir
Ragnhildur Hermannsdóttir Hjörtur Pálsson
Erlendur Níels Hermannsson Anna María Grétarsdóttir
Jóhann Gísli Hermannsson Natalija Virsiliene
Erla Ósk Hermannsdóttir Gunnar S. Gottskálksson
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
RICHARD HENRY ECKARD,
Miðnestorgi 3, Sandgerði,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja
mánudaginn 20. apríl.
Útförin fer fram frá Sandgerðiskirkju fimmtudaginn 7. maí
klukkan 14. Sökum aðstæðna verður aðeins nánasta fjölskylda
viðstödd athöfnina.
Oddný Bergþóra Guðjónsdóttir
Vilborg Rós Eckard Óskar Sólmundarson
Rakel Ósk Eckard
Richard Henry Eckard jr. Ásdís Eckard
Dagný Helga Eckard
Elísabet Kolbrún Eckard Jóhann Jóhannsson
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
ÞORBJÖRG JÓNASDÓTTIR,
lést á líknardeild Landspítalans
mánudaginn 20. apríl.
Vegna aðstæðna fer útför fram í kyrrþey
mánudaginn 4. maí.
Þökkum hlýhug og auðsýnda samúð.
Þóra Björg Jónasdóttir
Yngvi Halldórsson Linda Jónsdóttir
Halldór Halldórsson Arna Borg
barnabörn og barnabarnabarn
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir og amma,
GUÐNÝ G.H. MARINÓSDÓTTIR,
textíllistakona og kennari,
verður jarðsungin frá Akureyrarkirkju
fimmtudaginn 30. apríl klukkan 13.30.
Í ljósi aðstæðna verður athöfnin í kyrrþey en streymt verður úr
kirkjunni.
Við þökkum starfsfólki almennrar göngudeildar og
heimahlynningar Sjúkrahússins á Akureyri fyrir frábæra
umönnun, og öllum þeim sem sýnt hafa okkur samúð og
hlýhug.
Rúnar Sigþórsson
Heiðar Þór Rúnarsson Birna M. Guðmundsdóttir
Oddur Már Rúnarsson Iona Louie Morris
og barnabörn
Hjartans þakkir fyrir samúð og hlýjar
kveðjur vegna andláts okkar ástkæru
eiginkonu, móður og dóttur,
NÍNU ÞÓRU RAFNSDÓTTUR.
Unnar Ingvarsson
Sigríður Eygló Unnarsdóttir Aldís Ósk Unnarsdóttir
Unnbjörg E. Sigurjónsdóttir
Elskuleg móðir okkar, tengdamamma,
amma og langamma,
GUÐBJÖRG PÁLÍNA EINARSDÓTTIR,
lést á hjúkrunarheimilinu Mörk
miðvikudaginn 15. apríl. Vegna aðstæðna í
þjóðfélaginu mun útförin fara fram í kyrrþey.
Sérstakar þakkir fær starfsfólk nýrnadeildar Landspítalans fyrir
hlýju og alúð í umönnun. Þeim sem vilja minnast hinnar látnu er
bent á styrktarsjóð Félags nýrnasjúkra, reikningur
0334-26-001558, kennitala 670387-1279.
Guð geymi ykkur öll.
Fyrir hönd hinnar látnu,
Sigurður K. Guðfinnsson Aldís Hugbjört Matthíasdóttir
Stefán Birgir Guðfinnsson Rositsa Slavcheva
Sveinn Hjörtur Guðfinnsson
Helga Björg Jones Guðfinnsdóttir, Ingólfur Marteinn Jones
barnabörn og barnabarnabörn
Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu
greinar eru vinsamlega beðnir að nota inn-
sendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðs-
lógóið í hægra horninu efst og viðeigandi lið-
ur, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr
felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn
slóðina www.mbl.is/sendagrein
Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á út-
farardegi verður greinin að hafa borist eigi
síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr
(á föstudegi ef útför er á mánudegi eða
þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað get-
ur birting dregist, enda þótt grein berist áður
en skilafrestur rennur út.
Lengd | Minningargreinar sem birtast í
Morgunblaðinu séu ekki lengri en 3.000 slög.
Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri
greinar eru eingöngu birtar á vefnum. Hægt
er að senda örstutta kveðju, HINSTU
KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er unnt að tengja
viðhengi við síðuna.
Formáli | Minningargreinum fylgir formáli
sem nánustu aðstandendur senda inn. Þar
koma fram upplýsingar um hvar og hvenær
sá sem fjallað er um fæddist, hvar og hvenær
hann lést og loks hvaðan og klukkan hvað út-
förin fer fram.
Minningargreinar