Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 05.04.2020, Qupperneq 4

Morgunblaðið - Sunnudagur - 05.04.2020, Qupperneq 4
HEIMURINN 4 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 5.4. 2020 Eftir að hljómplötur hættu að seljast þurfa tónlistarmenn að vera duglegri að halda tónleika út um hvippinn og hvappinn til að hafa frambærilegar tekjur. Alltént til að drýgja þær; sumt af þessu fólki lepur víst ekki dauðann úr skel. Hinn ástsæli söngvari Van Morrisson, sem verður 75 ára síðar á þessu ári, átti að vera á miðri tónleika- ferð í Lundúnum um þessar mundir en þess í stað er hann heima í Belfast „að láta braka í fingrunum“, eins og hann upplýsir sposkur í samtali við breska blaðið The Independent. „Eins og allir aðrir þá hlýði ég Víði,“ segir hann í lauslegri þýðingu Sunnudagsblaðs- ins. Hvað ætli slíkir höfðingjar hafist að í út- göngubanninu sem nú gildir á Bretlandi? „Mig langar að skrifa en er hálflatur í augna- blikinu. Ég átti að vera með sex tónleika í Lundúnum en fór af túr yfir í það að vera bara heima. Ég er að reyna að koma mér aftur í að skrifa,“ segir Morrison og bætir við að hann geri ekki greinarmun á ljóða- gerð og textasmíð fyrir söng- lög. Hann er frægur fyrir að vera víðlesinn og vísar gjarnan í heimsbókmenntirnar í texta- gerð sinni. Morrison upplýsir í samtal- inu að hann hafi haft yndi af því að leika knattspyrnu í Belfast í gamla daga. Hann var sókndjarfur og lék stöðu miðherja. „Ég spilaði með frænda mínum og hann var síð- ar til reynslu hjá Manchest- er United ásamt George Best og fleiri góð- um félögum. Síðan fékk hann heimþrá og sneri aftur.“ VAN MORRISON Í ÚTGÖNGUBANNI Í BELFAST Lætur braka í fingrum Van Morrison hress að vanda. Ekki var liðin vika af hinu nýjalífi þegar ég áttaði mig á þvíað ég var dæmd til að troða eins mörgu með skóhorni inn á dag- skrána mína og FK (fyrir kórónu- veiruna). Nei, þetta hefur eiginlega verið verra – ég hef þurft að skó- horna ennþá fleiru inn. Ástæðan er sú að ekki er lengur til nein trúverð- ug afsökun fyrir því að hafna boði.“ Þannig komst breski blaðamað- urinn Helen Coffey að orði í pistli í dagblaðinu The Independent í vik- unni en eins og aðrir Bretar þá er hún í útgöngubanni. Já, það er erfitt að víkja sér undan rafrænum fundum og símtölum þessa dagana; það er ekki eins og maður þurfi að vera annars staðar á sama tíma. Þetta eru vondir tímar fyrir verslanir sem selja staðsetn- ingartæki og aðrar græjur til að rekja ferðir fólks. Eins einka- spæjara. Mamma hringir án afláts Í fáfræði sinni stóð Coffey í þeirri meiningu að útgöngubannið yrði al- gjör andhverfa hins erilsama og óseðjandi félagslífs stórborgarinnar og að henni gæfist nú kærkomið tækifæri til að komast í samband við sitt innra sjálf. Ekki aldeilis. „Skyndilega vildi fólk, sem ég hitti alla jafna á hálfs árs fresti, skipu- leggja vikulega hittinga á FaceTime; og móðir mín, sem ég tala venjulega við tvisvar í mánuði, byrjaði allt í einu að hringja annan hvern dag,“ segir hún í pistlinum. Okkar besti maður, Víðir, og ígildi hans um allan heim, hafa einmitt hvatt okkur til að taka upp tólið og hringja í þá sem okkur þykir vænt um og kanna hvernig þeir hafa það meðan faraldurinn geisar. Á skrifi Coffey má merkja að ekki þykir öll- um það eins góð hugmynd. Öpp á allra vörum Til að gæta fyllstu sanngirni þá amast Coffey ekki við þessu í pistli sínum enda þykir flestum sem eru í útgöngubanni, sóttkví eða bara heima að vinna gott að heyra annað veifið í fólki, hvort sem er í síma eða að sjá það hlæja og sötra kaffi eða rauðvín á sófanum heima fyrir at- beina samfélagsmiðla. Þetta sé bara spurning um meðalhófið. Alls konar smáforrit eða öpp, sem fæst okkar hafa heyrt um áður, eru nú á allra vörum. Sá er þetta ritar er til dæmis eins aftarlega á merinni og hugsast getur þegar kemur að öpp- um og samfélagsmiðlum en hann tók á dögunum Teams í sína þjónustu til þess að geta haft skilvirk og greið samskipti við sína nánustu sam- verkamenn hér á blaðinu. Það hefur að mestu leyti gengið vel, nema hvað kappinn hefur verið spjaldaður fyrir óhóflega notkun á brosköllum. Það rjátlast líklega fljótt af manni, eins og öðrum nýgræðingum. En helvíti er gott úrval af þessum köllum þarna. Þið afsakið orðbragðið! Bræðir ekki úr sér Fram að þessu var eina appið sem ég kunni almennilega skil á FotMob sem færir mér glóðvolgar fréttir af stöðu leikja í ensku knattspyrn- unni. Það er ekki eins og það ágæta app sé að bræða úr sér um þessar mundir. Í pistli sínum notar Coffey orðið „félagsskepnur“ um okkur mann- fólkið og fyrir vikið taki það okkur ekki langan tíma að finna út úr því hvernig hægt sé að blanda geði með sem auðveldustum og greiðustum hætti enda þótt „venjuleikinn“ hafi hrunið til grunna. Allt er þetta þó spurning um jafn- vægi, eins og Coffey bendir á. „Sjáið til. Ég veit að ég er ótrú- lega lánsöm að eiga fjölmarga vini sem eru reiðubúnir að horfa reglu- lega framan í mína ófríðu ásjónu; ég veit að ég er ótrúlega lánsöm að hafa aðgang að bestu tækni og burði og þekkingu til að hafa samskipti við fólk augliti til auglitis þegar mér sýnist svo. Allt í lagi, ég veit.“ Svo botnar hún pælinguna: „Svo virðist hins vegar að „þegar mér sýnist svo“ eigi sjaldnar við hjá mér en öðrum. Komið hefur í ljós að fyrir okkur innhverfa fólkið þá eru svolítil samskipti meira en nóg.“ Allir heim í stofu Fjarlægðin er með öðrum orðum farin að þrengja að Helen Coffey og það á ugglaust við um fleiri á þessum ótrúlegu tímum. Hver hefði búist við því? Fjarlægðin æðir í hlað, eins og eimreið, og eirir engu á leiðinni. Hvað varð um hóflegt næði? Hvað varð um friðhelgi einkalífsins? Þurf- um við virkilega að bjóða öllum heiminum heim í stofu? Svari nú hver fyrir sig! Fjarlægðin þrengir að Kórónuveiran hefur snúið lífi okkar flestra á hvolf. Við þurfum að nálgast daglega rútínu með öðrum hætti en áður og eiga annars konar samskipti við vini og vandamenn en vanalega. Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is „Sæl mamma mín. Hvernig hefurðu það í dag?“ AFP Gott getur verið að sjá framan í aðra við þær aðstæður sem uppi eru um þess- ar mundir. Höfum þó hugfast í þessum efnum sem öðrum að allt er best í hófi. AFP

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.