Morgunblaðið - Sunnudagur - 05.04.2020, Blaðsíða 20
Lísa María Markúsdóttir, einkaþjálfari í World
Class, breytti bílskúrnum í æfingastöð fyrir sig og
fjölskyldu sína. Hún keypti skápa og setti allt dót-
ið í þá og svo máluðu þau í rauðum lit og komu
tækjunum þannig fyrir að gaman væri að æfa.
Hún segir að það hafi aldrei verið mikilvægara en
akkúrat núna að hugsa vel um sig.
Marta María mm@mbl.is
Breytti bíl-
skúrnum í
heimarækt
Eins og staðan er núna þá er bú-ið að loka vinnustaðnum mín-um, en ég starfa sem einka-
þjálfari í World Class. Þar sem ég
mæti ekki til vinnu þá passa ég samt
vel upp á það að sofna snemma og
vakna snemma, búa til nýja rútínu
og eyða mun meiri tíma með fjöl-
skyldunni sem ég hefði annars ekki
gert. Ég hef stundað líkamsrækt
alla tíð og er því ansi vön að hreyfa
mig mikið. Þar af leiðandi skiptir
það mig miklu máli þessa dagana að
geta fengið mína „útrás“. Það má
eiginlega segja að ég komist varla í
gegnum daginn án þess að taka æf-
ingu og ég er svo heppin að hafa
góða aðstöðu í bílskúrnum sem
hjálpar okkur fjölskyldunni í þessu
ástandi,“ segir Lísa María aðspurð
hvernig hún bregðist við breyttum
aðstæðum.
Hver er sagan á bak við heima-
ræktina?
„Það er nú þannig eins og hjá
mjög mörgum held ég, að bílskúr-
inn er ekki notaður fyrir bílinn
heldur safnast þar alls konar dót og
endar sem geymsla. Við höfðum
keypt lóð og önnur lítil æfingartæki
til þess að geta æft í skúrnum en
staðan var þannig að það var orðið
erfitt að hreyfa sig út af óþarfa
drasli. Ég tók heljarinnar tiltekt,
henti hlutum og setti upp stóra
skápa þar sem hægt var að koma
öðru fyrir. Hægt og rólega vorum
við búin að koma okkur upp alls
kyns búnaði svo það var ekkert
annað í stöðunni en að taka þetta
alla leið og búa til okkar eigið
„gym“,“ segir Lísa María.
Hvaða tæki ertu með?
„Ég er með hlaupabretti, trainer,
bekkpressubekk, margnota æf-
ingatæki til dæmis fyrir bak og
hendur, boxpúða, TRX-band, fim-
leikahringi í loftinu, slam ball og
upphífingarstöng ásamt handlóðum,
stöngum og teygjum.“
Hver er þín uppáhaldsæfinga-
rútína?
„Það er engin ein rútína sem ég
held mest upp á. Stundum er ég í
hlaupastuði, stundum vil ég lyfta,
öðrum stundum gera æfingar með
eigin líkamsþyngd. Ef ég fylgi einni
rútínu lengi þá fæ ég leiða á henni og
því finnst mér mikilvægt fyrir alla að
hreyfa sig bara eins og þeim líður
hverja stundina. Þetta snýst um að
láta sér líða vel, bæði andlega og lík-
amlega og æfingar eiga ekki að vera
kvöð. Það er svo mikið í boði og ég
hvet fólk til þess að hætta ekki ef
það fær leiða og nennir ekki í rækt-
ina. Finnið gleðina á ný með því að
prófa eitthvað nýtt,“ segir hún.
Hvað þarf fólk að gera til að
breytast ekki í myglusvepp í þessu
ástandi?
„Ekki snúa sólarhringnum við!
Borðaðu hollan mat, hreyfðu þig og
farðu að minnsta kosti einu sinni á
dag út í göngutúr eða út að leika þér
með börnin, alveg sama hvernig
viðrar! Það eru til svo ótrúlega
margar fallegar gönguleiðir á Ís-
landi sem þú hefur ekki farið áður.
Það þarf ekki að eiga fullt af lóðum
eða öðrum æfingatækjum heima hjá
sér, góður göngutúr er oft vanmet-
inn. Takið fram til dæmis spilin sem
hafa verið uppi í skáp í mörg ár,
kláraðu bókina sem þú byrjaðir á um
jólin, lærðu að hugleiða eða gerðu
það sem þig hefur lengi langað til
þess að gera en hefur ekki „haft tíma
til“.“
Hver er þín uppáhaldsæfing?
„Ef ég nauðsynlega þyrfti að velja
eina æfingu þá væri það hlaup. Mér
finnst frábært að hlaupa og það hef-
ur svo marga kosti. En það er afar
mikilvægt samt sem áður að gera
styrktaræfingar líka.“
Er öll fjölskyldan að æfa með þér?
„Já, það má eiginlega segja það,
við erum öll mjög dugleg að nota að-
stöðuna sem við höfum hér heima.
Mesti kosturinn við heimaræktina er
sá að um helgar förum við saman inn
í skúr og tökum æfingu og þurfum
ekki að fara út af heimilinu og frá
krökkunum til þess. Það er líka gott
að mínu mati fyrir börnin að alast
upp við hreyfingu og útivist og þá
þurfa foreldrarnir að vera fyrir-
mynd í því. Nú til dæmis þegar allar
æfingar hjá unglingunum eru dottn-
ar niður þá eru þau mjög dugleg að
gera styrktaræfingar hér heima og
hlaupa. Ég hef gert æfingaplön fyrir
þau sem þau elska. Svo eigum við
líka eina fimm ára sem vill vera með
og hefur gaman að hreyfa sig með
mér í skúrnum.“
Hvað mælir þú með að fólk geri til
að láta sér líða betur á meðan þetta
ástand varir?
„Formúlan er ekki flókin, það vita
allir að manni líður vel þegar maður
borðar hollan mat og hreyfir sig. Það
er ekkert að því að horfa á sjón-
varpið og vera smá sófakartafla en
munum að allt er gott í hófi. Svo er
það reyndar þannig líka að margir
eru orðnir langþreyttir, stressaðir,
kvíðnir og sofa lítið og þá er um að
gera að nýta tímann núna til þess að
hlúa vel að sér og hvíla sig!“
Veggir og loft eru máluð í
rauðum lit en gólfið er svart-
hvítt. Þessi litasamsetning
passar vel við æfingatækin.
Það er ekki ónýtt að geta sveiflað
20 kílóa bjöllu til að koma sér í
form eða viðhalda forminu.
Lísa María Markúsdóttir, einka-
þjálfari í World Class, breytti bíl-
skúrnum í líkamsræktarstöð fyrir
sig og fjölskyldu sína.
20 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 5.4. 2020
LÍFSSTÍLL
PFAFF • Grensásvegi 13 • Sími: 414 0400 • www.pfaff.is
LÝSiNgArRÁÐGjÖF
GeRiR GÆFuMuNiNn