Morgunblaðið - Sunnudagur - 05.04.2020, Blaðsíða 14
Hjálmar Svanur Hjálmarsson,
sjúkraliði á Grund, segir skyldustörfin í
vinnunni hafa breyst. „Eftir að ættingj-
arnir hættu að koma sinnum við fólkinu
enn meir en áður því fólkið verður ein-
mana. Við erum að reyna að hafa ofan
af fyrir því með ýmsu, eins og með bíó-
kvöldum og að baka vöfflur. Síðan eru
sóttvarnir miklar. Ég hitti engan fyrir ut-
an vinnu. Flestir hérna loka sig algjör-
lega af. Álagið er töluvert meira en allir
eru að gera sitt besta.“
Á
þessum síðustu og verstu tímum skiptir máli að grunnstoðir þjóðfélagsins séu
traustar. Það þarf að halda úti öflugri heilbrigðisþjónustu og skólar og leik-
skólar þurfa að sinna börnunum okkar. Einnig þarf að huga að samgöngum,
löggæslu og þjónustu.
Fólk sem vinnur að þessum störfum stendur vaktina á tímum kórónuveir-
unnar og vinnur störf sín af alúð og elju sem aldrei fyrr. Þetta er fólkið sem fær sjaldnast hrós
en í dag er þetta fólkið sem er í framlínunni. Án þess værum við illa stödd.
Morgunblaðið hitti fólk úr ýmsum stéttum og fékk að heyra hvernig störf þeirra og líf hafa
breyst á síðustu vikum.
Þau standa
vaktina
Á meðan hálf þjóðin hefur fært vinnustöðvar sínar heim í
öryggi er margt fólk sem ekki hefur þann kost. Þetta er fólk-
ið sem stendur vaktina og heldur hjólum atvinnulífsins
gangandi; fólkið sem er mikilvægt til þess að líf okkar hinna
raskist sem minnst nú á tímum kórónuveirunnar.
Texti og myndir: Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is
Þórey Úlfarsdóttir, verslunarstjóri í
Krónunni í Garðabæ, segir mikið álag í
vinnunni núna. „Það er erfitt en
skemmtilegt. Við teljum inn í búðina og
það gengur vel en fólk þarf sjálft að bera
ábyrgð á tveggja metra reglunni. Þetta er
svolítið eins og jólin; það er jafn mikið
álag. En það eru breyttar neysluvenjur.
Við finnum fyrir því að dósamatur rýkur
út. Svo eru bökunarvörur vinsælar og
eins nammi og snakk. Fólk er aðeins að
hamstra og greinilega að baka miklu
meira en áður.“
Jónína Lýðsdóttir, hjúkrunarfræðingur á bráðamóttöku í Fossvogi, segir lífið hafa breyst töluvert,
bæði innan og utan vinnu. „Ég reyni að forðast smit eins og ég get til að bera ekki veiruna inn á spít-
alann. Eins þurfa allir að gæta mun betur að smitvörnum hér á vinnustaðnum. Félagslífið hefur eðli-
lega minnkað, en ég er heppin að geta stundað mitt aðaláhugamál sem er hestamennska. Annars hitti
ég fáa aðra en nánustu fjölskyldu. Hvað vinnuna varðar er búið að breyta miklu á bráðamóttökunni
með tilliti til Covid, færa til starfsemi, stúka af svæði og setja upp m.a. farsóttarhurðir. Stöðugt er
verið að uppfæra vinnu- og verkferla samkvæmt nýjustu upplýsingum og allir eru að gera sitt besta til
að fylgja þeim og sporna gegn þessari vá. Sem betur fer hefur almennt aðflæði aðeins minnkað, því
færri eru að slasa sig, en á sama tíma stefnir í að sjúklingum með Covid-19 fari fjölgandi.“
KÓRÓNUVEIRAN
14 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 5.4. 2020