Fréttablaðið - 10.09.2020, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 10.09.2020, Blaðsíða 16
Í þessari grein eru færð rök fyrir breyttum aðferðum við skimun á landamærum. Við þurfum að opna landamærin því það er mikil- vægt heilbrigðis- og félagsmál. Þetta snýst ekki eingöngu um sóttvarnir. Jafn mikilvægt er almennt heil- brigði í landinu og þar er atvinnu- leysi mikill áhættuliður. Rann- sóknir sýna að atvinnumissir er eitt alvarlegasta áfall sem fullorðnir einstaklingar verða fyrir á eftir ást- vinamissi og skilnaði (Holms and Rahe). Ég skil ekki hvers vegna ríkis- stjórnin valdi mest íþyngjandi kost- inn af tillögum sóttvarnalæknis og lokaði með því landamærunum fyrir ferðamenn. Þau smit sem upp hafa komið í seinni bylgjunni hafa ekki kostað okkur mikið, aðeins fáir lagðir inn á spítala og enginn inniliggjandi í dag, 27. ágúst. Lokun landamæra kostar okkur hins vegar tugi milljarða á mánuði og mikið atvinnuleysi sem hefur mjög alvar- legar heilsufarslegar og geðrænar afleiðingar. Mikilvægt er að vinna áhættu- greiningu og reikna líkindi á að far- þegi frá tilteknu landi smiti og áætla samfélagslegan kostnað af hverju smiti. Á móti er tiltölulega auðvelt að reikna út hvað mörg störf glatast vegna tiltekinnar fækkunar ferða- manna. Kostnaðinn við glötuð störf er hins vegar erfiðara að reikna þar sem af því eru bæði skammtíma- áhrif á landsframleiðslu og tekjur einstakra starfsmanna, fyrirtækja og ríkissjóðs, auk langtímaáhrifa á geðheilsu þeirra sem missa vinnuna og aukin hætta á að þeir verði öryrkjar. Ég tel mikilvægt að líta bæði til heimalands og brottfararlands við mat á áhættu af smiti. Til þess að opna aftur landamærin með ásætt- anlegu öryggi mætti f lokka lönd í þrjá f lokka og hafa viðbúnaðinn við landamærin í samræmi við áhættuna. A Fá smit. Farþegar sem eru með vegabréf úr A-flokki og koma frá landi í A-flokki fara í einfalda eða enga skimun (t.d. Noregur, Finn- land). B Meðalfjöldi smita. Farþegar fara í tvöfalda skimun án sóttkvíar. Undir þetta falla þeir sem eru með vegabréf úr B-flokki og koma frá landi í B-flokki eða með blöndu af A- og B-flokki. C Mörg smit. Farþegar sem eru með vegabréf frá landi í C-flokki eða koma frá landi í C-flokki fara í tvöfalda skimun og sóttkví (t.d. Spánn, USA). Það er hlutverk sóttvarnalæknis að fylgjast með tíðni smita í einstök- um löndum og flokka þau í áhættu- flokka. Ekki nægir að líta aðeins til fjölda þekktra smita í hverju landi síðustu fjórtán daga. Það þarf líka að meta hversu áreiðanlegar þær tölur eru. Í löndum með ófullkom- ið heilbrigðiskerfi er aðeins hluti smita greindur og því eru opinberar tölur lægri en efni standa til. Þau lönd mundu falla í C-flokk. Samkvæmt fréttum hafa mörg þeirra smita sem komu til landsins sloppið í gegn vegna þess að aðeins var litið til brottfararlands eða hvort viðkomandi var Íslendingur. Af þeim sökum er þessi tillaga sett fram um að líta bæði til brottfarar- lands og heimalands samkvæmt vegabréfi. Það mun koma í veg fyrir stóran hluta smita frá útlöndum án þess að allir fari í sóttkví. Opnum landamærin fyrir farþegum sem ólíklega smita Sumarið 2016 fór fram þjóð-aratk væðag reiðsla í Bret-landi. Spurt var hvort Bretar ættu að vera áfram í ESB eða ekki og var niðurstaðan 52%-48% fyrir að fara úr sambandinu. Þetta var ekki bindandi atkvæðagreiðsla, en stjórnmálamenn í Bretlandi tóku hana samt svo alvarlega að þegar var hafist handa við að vinna að úrsögninni og verður hún endan- lega að veruleika um næstu áramót. Það er ekki ætlunin hér að ræða hvort þessi knappa niðurstaða hafi verið skynsamleg eða ekki, heldur hvernig breskir stjórnmálamenn tóku þverpólitískt á henni. Þeir viðurkenndu hana og fóru að vinna í samræmi við niðurstöður hennar. Öðru máli gegnir um það sem gerðist hér á Íslandi. Í október 2012 fór fram þjóðaratkvæða- greiðsla með sex spurningum um nýja stjórnarskrá og var meiri- hluti fylgjandi þeim öllum, 64% vildu að tillögur stjórnlagaráðs yrðu lagðar til grundvallar nýrri stjórnarskrá, 74% vildu auðlinda- ákvæði í hana. Það sem gerðist síðan í aðdraganda kosninga 2013 var þinginu til skammar, en þar hóf Sigmundur Davíð Gunnlaugs- son eyðileggingarherferð sína með málþófi, eins og hann hefur iðkað reglulega síðan til að spilla fyrir málum sem meirihluti er fyrir í þinginu. Glæsilegt dæmi um lýð- ræðishugsun það. Verri er þó fyrir- litningin gagnvart þjóðinni sjálfri, þjóðinni sem ákvað afdráttarlaust í þjóðaratkvæðagreiðslu að nota bæri tillögur stjórnlagaráðs sem grundvöll að nýrri stjórnarskrá. Flokkarnir sem hafa stýrt landinu síðan hafa hunsað þessa niðurstöðu meira og minna og er það þeim til minnkunar, svo ekki sé meira sagt. Þeir eru í raun að bera sig sem and- lýðræðissinnaða f lokka sem telja að þeir hafi valdið en ekki þjóðar- viljinn. Aumt er það hlutskipti Vinstri- grænna sem á sínum tíma stóðu að málinu sem kæft var í meðförum þingsins og hafa nú, andstætt þjóð- arviljanum, staðið fyrir einhverri málamiðlun við hina andlýðræðis- legu flokka, svo að hagsmunaöflin, sem þeir gæta, geti fengið að valsa áfram um þjóðareignir að vild. Aumt er það hlutskipti stjórnmála- manna sem ropa og gapa um lýð- ræði alla daga en haga sér síðan á þveröfugan hátt í raun. Aumt verður þeirra hlutskipti í sögunni þegar frá líður. En þjóðin vill ekki láta þá troða á sér og safnar nú undirskrift- um (https://nystjornarskra.is/) því hún vill að pótintátar f lokkanna fari að ráðum og vilja þjóðarinnar. Ég hvet alla til að skrifa undir því það verður að kenna hinum örfáu þingmönnum að linsoðin plott þeirra sjálfra eru ekki grundvöllur lýðræðisins, heldur er það þjóðar- viljinn. Þjóðarvilji og lýðræði Gunnlaugur H. Jónsson eðlisfræðingur Það þarf ekki að fara mörgum orðum um það ástand sem ríkir í samfélaginu og heim- inum öllum vegna heimsfaraldurs- ins. Óvissutímar hafa sjaldan verið meiri, ekki síst vegna þess að ekki er vitað hvenær bóluefni kemur við COVID-19. Reykjavíkurborg, eins og önnur sveitarfélög, er að fá á sig þungan skell. Á tímum sem þessum er forgangurinn skýr, eða ætti að vera það. Það er líf og heilsa og að halda uppi fullnægjandi grunn- þjónustu, sem vermir efstu sæti forgangslistans. Til að geta kallast samfélag með réttu þarf grunnþjón- usta að vera í lagi og er það hlutverk borgarinnar að sjá til þess að velferð íbúanna sé ávallt höfð í fyrirrúmi. Engu að síður gerir borgarstjóri kröfu um að klipið verði af vel- ferðar-, skóla- og frístundasviði. Í engu er slakað á hagræðingarkröfu á sviðinu, um að hagræða um 0,5% þrátt fyrir þær erfiðu aðstæður sem uppi eru vegna COVID-19. Borgar- stjóri segir sjálfur í greinargerð með tillögu að rammaúthlutun „að ekki skuli, við þessar aðstæður, fara í niðurskurð til þess að koma rekstri borgarinnar í jafnvægi“. Af hverju þá ekki að fella niður þessa kröfu þótt ekki væri nema þetta árið? Ef eitthvað er þá ætti að bæta í til að tryggja að grunnþjón- ustan gangi hnökralaust. Í velferðarráði, þar sem ég sit sem aðalfulltrúi, hef ég mótmælt þessu harðlega og kvatt velferðarráð til að sætta sig ekki við hagræðingar- kröfuna né nokkurn annan niður- skurð hvaða nöfnum sem hann kann að nefnast. Þess utan er stefnt að gjaldskrárhækkun á ýmsa nauðsynlega þjónustu. Það sam- ræmist ekki tilmælum Sambands íslenskra sveitarfélaga sem mælast til í ályktun sinni dagsettri 27. mars 2020, að haldið verði aftur af öllum gjaldskrárhækkunum. COVID-19 er engum að kenna. Kjarni þess meirihluta í borgar- stjórn sem ríkir nú hefur ríkt lengi. Löngu fyrir faraldurinn og þau efnahagslegu áföll sem hann hefur leitt af sér, voru borgarbúar farnir að taka eftir hnökrum í þjónustu borgarinnar. Biðlistar eftir þjón- ustu hafa um áraraðir verið allt of langir. Nú horfir fram á skertar tekjur borgarinnar ásamt aukinni þörf borgarbúa fyrir aðstoð. Það er öllum augljóst að átaks er þörf til að koma í veg fyrir að biðlistar eftir þjónustu lengist enn frekar. Borg- arfulltrúi Flokks fólksins spurði borgarstjóra í óundirbúnum fyrir- spurnum á fundi borgarstjórnar 1. september hvort hann hefði áhuga á að ráðast í átak til að stytta bið- lista. Svar borgarstjóra við fyrir- spurninni var bæði óljóst og loðið. Klipið af velferðarsviðinu Kolbrún Baldursdóttir borgarfulltrúi Flokks fólksins Gauti Kristmannsson prófessor Mikilvægt er að vinna áhættugreiningu og reikna líkindi á að farþegi frá til- teknu landi smiti og áætla samfélagslegan kostnað af hverju smiti. Aumt er það hlutskipti stjórnmálamanna sem ropa og gapa um lýðræði alla daga en haga sér síðan á þveröfugan hátt í raun. Til að geta kallast samfélag með réttu þarf grunnþjón- usta að vera í lagi og er það hlutverk borgarinnar að sjá til þess að velferð íbúanna sé ávallt höfð í fyrirrúmi. Sjúkraliðar hafa árum saman bar ist f y r ir námsbraut á háskólastigi. Í erfiðum kjara- samningum liðins vetrar var krafan um hana gerð að úrslitaatriði. Fullur sigur vannst að lokum. Ný náms- braut mun því hefjast við Háskól- ann á Akureyri. Undirbúningsnám byrjar strax í haust og á næsta ári hefst tveggja ára sjúkraliðanám sem lýkur með diplómagráðu. Afgerandi könnun Fyrir skömmu sendi Sjúkraliða- félagið út spurningalista til félags- manna til að kanna áhuga á dipl- ómanáminu. Niðurstöðurnar eru birtar í dag á árlegu fulltrúaþingi félagsins sem streymt er á síðu þess á Facebook. Niðurstöðurnar eru mjög afgerandi: Alls svöruðu 643 könnuninni. Af þeim höfðu 82,27% áhuga á að skrá sig í nýju námsbrautina. Í dag eru alls um 2.200 sjúkraliðar starfandi í greininni. Merkasta niðurstaðan var því að næstum fjórðungur þeirra lýsti áhuga á að efla sig í starfi með 60 ECTS eininga diplómanámi. Innan stéttarinnar er uppsöfnuð löngun eftir aukinni menntun. Í könnuninni birtist hún í að 65,79% svarenda vilja helst hefja námið strax á næsta ári. Sami vilji til mennta og framfara í starfi endur- speglast í því að ár hvert skrá sig á sjöunda hundrað sjúkraliða í sér- hæfð námskeið hjá símenntunar- stöðinni Framvegis. Úr könnuninni má jafnframt lesa að hátt hlutfall sjúkraliða, eða 55,37%, telur eftirsóknarvert að eiga kost á nokkurra vikna undirbún- ingsnámi. Mestur áhugi var á að efla sig í faglegri ensku og tölvufærni. Samfélagssviðin heilla Í könnuninni var spurt á hvaða hjúkrunarsviðum sjúkraliðar vilja helst sérhæfa sig. Langmestur áhugi reyndist vera á öldrunarhjúkrun, heilsugæslu og heimahjúkrun. Alls vilja 41,84% mennta sig á þeim sviðum. Næstvinsælast er geð- og samfélagshjúkrun, en 21,77% vilja búa sig undir þess háttar hjúkrunar- þjónustu. Áhugi á öðrum sviðum skoraði lægra. Af sjúkraliðum sem hafa áhuga á háskólanámi í greininni hafa 38,41% stúdentspróf. Næstum fjórð- ungur þeirra, eða 9,18%, hafa lokið háskólanámi í öðrum greinum. Þess má geta að í dag útskrifast sjúkra- liðar með svipaðan fjölda fram- haldsskólaeininga og þeir sem hafa almennt stúdentspróf. Á framhalds- skólastiginu taka hins vegar sjúkra- liðarnir sterkan grunnkjarna úr heilbrigðistengdum greinum. Þeir hafa að því leytinu betri undirbún- ing fyrir sjúkraliðanám á háskóla- stigi en ætla má að almennt stúd- entspróf veiti. Sjúkraliðafélagið stefnir að því að allir félagsmenn með starfsleyfi frá Embætti land- læknis séu gjaldgengir í námið. Athyglisverðar niðurstöður birt- ust einnig í tengslum starfsaldurs og áhuga á háskólanámi. Mestur áhugi reyndist meðal þeirra sem hafa unnið skemur en fimm ár í greininni. Úr þeim hópi koma 31,57% áhugasamra sjúkraliða. Ætla má að það séu yngstu aldursflokkar stéttarinnar. Enn athyglisverðara er þó að jafnstórt hlutfall – 31,1% – kemur úr röðum þeirra sem hafa starfað sem sjúkraliðar í meira en 10 ár. Næstum þriðjungur þeirra, 9,64%, hefur starfað í greininni í 20 ár eða lengur. Sjúkraliðar – vannýtt auðlind Einbeittur vilji til að bæta færni í starfi með aukinni þekkingu, ein- kennir stéttina. Hann birtist í því háa hlutfalli sjúkraliða sem ár hvert lýkur sérhæfðum námskeiðum hjá símenntunarstöðinni Fram- vegis. Önnur birtingarmynd er sú staðreynd að fjórðungur starf- andi sjúkraliða er áhugasamur um háskólanám í greininni. Aukið menntastig sjúkraliða hefur hins vegar ekki verið metið að verðleikum. Stjórnendur í heil- brigðiskerfinu hafa ekki svarað því með nýjum starfsleiðum og aukinni ábyrgð. Þeir sem efast um það ættu að lesa skýrslu Arnrúnar Höllu Arn- órsdóttur frá febrúar 2019 um „Fag- nám á háskólastigi fyrir sjúkraliða.“ Betri nýting á menntun og sér- hæfingu sjúkraliða á ákveðnum sviðum, er eitt af svörunum við mönnunarvandanum sem blasir við kerfinu. Stjórnendur verða að skilja að aukinni menntun stéttarinnar verður að svara með því að fela henni aukna ábyrgð og gefa sjúkra- liðum tækifæri á auknum starfs- frama. Þannig er hægt að frelsa kraftinn sem býr í sjúkraliðum og kerfið nýtir ekki í dag. Sjúkraliðar vilja í háskólanám Sandra B. Franks formaður Sjúkraliða- félagsins Betri nýting á menntun og sérhæfingu sjúkraliða á ákveðnum sviðum er eitt af svörunum við mönnunar- vandanum sem blasir við kerfinu. 1 0 . S E P T E M B E R 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R14 S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.