Fréttablaðið - 10.09.2020, Qupperneq 24
Útgefandi: Torg ehf Veffang: frettabladid.isÁbyrgðarmaður: Jóhanna Helga Viðarsdóttir Sölumaður auglýsinga: Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 550 5653,
Í nýja húsnæðinu, sem stefnt er að því að opna í lok mánaðar-ins, verður nóg pláss. Þar eru
tvær um það bil 50 m2 tómstunda-
stofur. Önnur er hugsuð fyrir létta
handavinnu og föndur, en hin er
hugsuð fyrir yngri kynslóðina
þar sem verða sófar, fótboltaspil,
þythokkí og önnur af þreying.
Auk þess er þar samkomusalur
sem má skipta í tvennt. Sem lítill
rúmar salurinn 40 manns, en í
fullri notkun komast 200 manns
þar inn.
Salurinn er hugsaður fyrir
kirkjulegar athafnir eins og sam-
komur á sunnudögum, giftingar,
jarðarfarir og fermingar. Hann
hentar einnig vel fyrir tónleika-
hald og hægt verður að leigja hann
út fyrir veislur og ráðstefnur.
Hjördís Kristinsdóttir, ein fjög-
urra foringja í Reykjavíkurteymi
Hjálpræðishersins, segir að það
hafi fyrir löngu verið tímabært að
fá stærra húsnæði undir starfsemi
Hjálpræðishersins.
„Nýja húsið er byggt sérstak-
lega utan um okkar starf. Hús-
næðið sem við höfum verið í niðri
í Mjódd er löngu sprungið. Þar er
bara einn salur, sem er í raun mjög
lítill fyrir allt það fólk sem hefur
verið að koma til okkar,“ segir
hún.
Þegar komið er inn í húsið er
gengið inn í kaffihús sem verður
opið fyrir almenning. Hjördís
segir þá hugmynd hafa komið
upp að fólk geti borgað fyrir tvo á
kaffihúsinu. Þetta verði kaffihús
þar sem hægt sé að láta gott af sér
leiða. Þannig þarf fólk með lítið
á milli handanna ekki að borga,
Nýja húsið er einstaklega fallegt en það er sérhannað fyrir hina fjölbreyttu starfsemi Hjálpræðishersins. Stefnt er að því að starfsemi hefjist í húsinu innan skamms. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Í húsinu munu
fara fram kirkju-
legar athafnir
auk fjölbreytts
félagsstarfs og
hjálparstarfs.
Verið er að leggja lokahönd á húsið að innan. Þar verður meðal annars kaffi-
hús, samkomusalur, tómstundaherbergi og verslun. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Framhald af forsíðu ➛ Nýja húsið býður upp á aukna
möguleika á fjölbreyttu
starfi fyrir ýmiss konar
hópa.
Hjördís Kristinsdóttir
en þau sem hafa efni á því geta
borgað fyrir tvo ef þau vilja.
Á sömu hæð eru tómstunda-
stofurnar og samkomusalurinn.
Þegar komið er inn í enda hússins
er komið inn í rými sem er kallað
velferðarstofan. Þar er sérinngang-
ur sem má nýta ef þess þarf.
„Þar tökum við á móti fólki sem
sækir um mataraðstoð hjá okkur
og þar er hægt að komast í sturtu
og þvo af sér föt,“ útskýrir Hjördís.
Hjördís segir að í velferðar-
stofunni sé einnig hægt að setjast
niður og fá sér að borða ef fólk er
ekki í ástandi, eða treystir sér ekki,
til að vera á almennu kaffihúsi.
„Það er samt auðvitað val. Það
eru allir velkomnir á kaffihúsið
okkar,“ tekur hún fram.
Á efri hæð hússins eru skrif-
stofur og fundarsalur, en í húsinu
er einnig 400 fermetra verslunar-
rými, en Hjördís segir að ekki sé
búið að ákveða endanlega hvers
konar verslun verður þar.
Fjölbreytt starfsemi allt árið
Hjálpræðisherinn er á þremur
stöðum á landinu. Í Reykjavík,
Reykjanesbæ og á Akureyri. Þar
fer fram fjölbreytt starfsemi allan
ársins hring. Öflugt velferðarstarf,
barna- og unglingastarf, félags-
starf og kirkjustarf. Nýja húsið
býður upp á aukna möguleika á
fjölbreyttu starfi fyrir ýmiss konar
hópa.
„Við erum með spilakvöld þar
sem fólk kemur saman að spila
borðspil. Okkur langar að hafa
„open mic“ á kaffihúsinu okkar
á föstudagskvöldum og höfða
þannig til unga fólksins, en við
erum með edrú kaffihús þar sem
ekki eru nein vímuefni í okkar
húsnæði. Svo er hér velferðar-
starf eins og opið hús þar sem fólk
getur komið að borða, matarað-
stoð og fleira, en fólk af ýmsum
þjóðernum sækir það starf. Einnig
verðum við með jólaboðin okkar í
salnum. Það komast allir fyrir þar
og við þurfum því ekki lengur að
finna annað húsnæði fyrir þau,“
segir Hjördís.
„En við erum líka kirkja og þess
vegna er líka almennt kirkjustarf
í húsinu. Allt sem fólk þekkir úr
venjulegum kirkjum er líka að
finna í Hjálpræðishernum.“
Við óskum Hjálpræðishernum
innilega til hamingju með nýtt
og glæsilegt húsnæði.
Takk fyrir ánægjulegt samstarf!
XXXXXXXXXXXXXXXXXXXX 2 KYNNINGARBLAÐ 1 0 . S E P T E M B E R 2 0 2 0 F I M MT U DAG U RHJÁLPRÆÐISHERINN